Morgunblaðið - 05.08.2003, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.08.2003, Blaðsíða 24
MINNINGAR 24 ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartasjúklinga Sími 552 5744 Gíró- og kreditkortaþjónusta LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA A u g l. Þ ó rh . 1 2 7 0 .9 7 Hann Einsi púkk er dáinn. Þetta voru orðin sem hljómuðu á KR- vellinum sunnudaginn 20. júlí sl., rétt í sama mund og leik- urinn við Fram var að hefjast. Okkur setti hljóða og reyndar er það svo að ennþá sitjum við og trú- um því ekki að púkkarinn sé horfinn af vettvangi, svo stórkostlegur kar- akter sem hann var. Það er ekki á færi venjulegs manns að ætla að skrifa æviágrip hans, okkur félaga hans og vini langar þó að draga fram nokkrar EINAR GUNNAR ÓSKARSSON ✝ Einar GunnarÓskarsson fædd- ist á Leifsgötu 7 í Reykjavík 24. ágúst 1943. Hann lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi við Hringbraut 20. júlí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Áskirkju 29. júlí. minningar sem við eig- um um hann til fjölda ára. Í daglegu tali gekk hann undir nafninu Einsi púkk, þetta mun hafa verið vegna yfir- burðahæfileika hans við að spila púkk á hans yngri árum. Púkkarinn var allt í senn mikill gleðimað- ur, afburða sögumað- ur, fjallmyndarlegur á velli og höfðinglegur í fasi hvar sem hann fór. Púkkarinn var al- skemmtilegasti maður sem við höf- um kynnst um ævina, og víst er að ekkert verður eins og áður eftir að hann er horfinn á braut. Við höfum tíu félagar og vinir haldið úti félagsskap undir nafninu Eiríkur um margra ára skeið. Það þótti mörgum skrýtið að við gætum gegnum mörg ár hist á hverjum degi, það var þó engin tilviljun að fundarstaðir voru á verkstæðinu hjá púkkaranum, þar voru haldnir veislufundir. Eitt sinn bjó hann til sjávarréttasúpu og efumst við um að svo góð súpa hafi verið búin til áður, soðið var saltað hrossakjöt, svið og margt fleira. Frægastar voru þó kjötsúpuveisl- urnar sem haldnar voru austur á Eiríksbakka hjá einum af okkur, Gauja póló. Þá var gjarnan setið fram eftir nóttu, púkkarinn í stuði sagði sögur, sumar sannar, aðrar gætu hafa gerst, en enginn sagði betur frá en hann. Þessar minningar okkar með púkkaranum eru fjársjóður sem gott er að eiga og muna, við sjáum hann fyrir okkur í eldhúsinu á Bakkanum með svuntuna, flysjandi rófur, smakkandi til súpuna og gef- andi okkur hinum skipanir um hvernig leggja skyldi á borðið. Þá eins og áður var hann fremst- ur meðal jafningja. Fólk kom um langan veg þegar fréttist að púkk- arinn væri staddur á Bakkanum. Púkkarinn starfaði alla sína tíð í Reykjavík og var lengst af með sjálfstæðan atvinnurekstur. Hann þótti með afbrigðum hestglöggur maður og átti hesta um margra ára skeið. Frægastur mun hafa verið hlaupahesturinn Örvar frá Hjalta- stöðum í Skagafirði en hann vann til verðlauna. Það voru engir tveir dagar eins í návist púkkarans. Púkkarinn sigldi ekki alltaf fleyi sínu í meðbyr en alltaf komst hann í rétta höfn, enda maðurinn af þeirri gerðinni að sitja ekki og kvarta yfir myrkrinu heldur standa upp og kveikja á kertunum. Púkkarinn var það sem kallað er eðal-KR-ingur, og því var það kannski engin tilviljun að þegar kallið kom var hann staddur við KR-völlinn. KR var hans félag. Nú þegar leiðir skiljast um stund þökkum við fyrir að hafa átt þig að vini og horfum til þess með tilhlökk- un að hitta þig aftur því að þá verð- ur aftur gaman. Lilla, missir þinn er mestur, við biðjum góðan guð að vera með þér og sonum ykkar. Hvíl þú í friði, kæri vinur. Edvard Skúlason og Guðjón Skarphéðinsson. Sigrún Guðmunds- dóttir, prófessor við uppeldisfræðistofnun Háskólans í Þránd- heimi, andaðist 28. júní sl. 55 ára að aldri. Hún var fædd og uppalin á Íslandi en flutti til Noregs árið 1989. Þá hafði hún lokið doktorsprófi við Stanford-há- skólann í Bandaríkjunum. Í þess- um virta og velmetna háskóla kynntist hún rannsóknum á starfi og umhverfi í kennslustofum og hún var viðurkennd fyrir rann- sóknir sínar jafnt innanlands í Noregi sem utan og var þekkt í hinum alþjóðlega vísindaheimi fyr- ir störf sín. Sigrún bar mikla virðingu fyrir kennarastarfinu. Hún beindi sjón- um að því, sem fer fram í kennslu- stofunni og í rannsóknum sínum fékk hún fram hugleiðingar kenn- arans um starf sitt. Á þennan hátt komu raddir kennaranna fram í vísindagreinum og skýrslum og þá um leið opinberlega. Sigrún var ritstjóri fyrir „Skriftserien Klasse- romsforskning“ sem gefin er út af Tapir-forlaginu í Þrándheimi og þegar hún lést höfðu verið gefnar út 12 bækur, sem fjalla um störf kennara og hugleiðingar þeirra um störf sín. Hinn mikli áhugi Sigrún- ar á bekkjarrannsóknum, auðmýkt hennar gagnvart kennarastarfinu og sterkar rætur hennar í menn- ingarsamfélagslegum kenningum urðu til þess, að margir nemendur í uppeldis- og kennslufræði óskuðu eftir að fá hana sem leiðbeinanda í meistaraprófs- og doktorsverkefn- um. Sigrún var mjög upptekin af því að frásögnin kæmi skýrt fram í rannsóknarverkefnunum. Hún var brautryðjandi í notkun frásagnar- hefðar í rannsóknum og notkun kenninga, sem byggjast á þessari hefð, og hvernig ætti að nálgast viðfangsefnið út frá frásagnarhefð- inni. Mikið af því sem hún gaf út vakti athygli í öðrum vísindagrein- SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR ✝ Sigrún Guð-mundsdóttir fæddist í Vestmanna- eyjum 4. nóvember 1947. Hún lést á heimili sínu í Þránd- heimi í Noregi að- faranótt 28. júní síð- astliðins og var útför hennar gerð í Þránd- heimi 3. júlí. um en uppeldis- og kennslufræði og eru sígild verk í hinum al- þjóðlega vísindaheimi. Nálgun hennar út frá frásagnarhefðinni varð líka til þess, að nemendur úr öðrum greinum en uppeldis- og kennslufræði ósk- uðu eftir því að fá hana sem leiðbein- anda. Í hlutverki sínu sem leiðbeinandi átti Sig- rún ekki sinn líka. Hún gerði kröfur til okkar og hvatti okkur. Við áttum að lesa frumútgáfur vísindamanna og vera í tengslum við það besta í faginu. Við áttum að skoða og hlusta á okkar eigin rannsóknar- efni og finna okkar eigin rödd. Að hennar frumkvæði tókum við þátt í leshringjum þar sem við með sam- ræðum og samspili okkar á milli fengum aukna reynslu og skilning á menningarsamfélagslegum kenn- ingum og nálgun í rannsóknum. Við vorum kynnt fyrir vísinda- heiminum með því að hún hvatti okkur til að skrifa greinar í tímarit og bækur og með því að skrifa er- indi og flytja þau á innlendum og alþjóðlegum ráðstefnum. Sem nemendur Sigrúnar vorum við kynnt fyrir og fengum að vera hluti af hinum miklu alþjóðlegu tengslum hennar. Vinna og notaleg samvera var gjarnan samræmd yf- ir kaffibolla eða hádegisverði. Hún kenndi okkur, að fagleg tengsl og vinátta eru tvær hliðar á því sama. Einstaklingsbundnir leiðbein- ingatímar fóru oftast fram heima hjá Sigrúnu í eldhúsinu hennar yf- ir góðu sterku kaffi og gjarnan á laugardegi eða sunnudegi. Sigrún var gestrisin og örlát og batt sig ekki við hefðbundinn vinnutíma. Hún gerði samt sem áður miklar kröfur til okkar, sem leiddi til þess að við undirbjuggum okkur vel fyrir leiðbeiningatímana hjá henni og unnum það vel, sem við skil- uðum til hennar. Sigrún gerði kröfur um gæði og hafði þær væntingar til okkar að við stæðum undir þeim kröfum. Þetta leiddi til góðra faglegra umræðna, nýrra hugleiðinga og áframhaldandi þró- unar á verkefnum okkar. Að lokn- um leiðbeiningatíma hjá Sigrúnu vorum við alltaf full af innblæstri og nýjum hugmyndum um hvernig við gætum haldið áfram með rann- sóknarverkefnin okkar. Hún hafði sérstakan hæfileika að gefa okkur kraft til að hefjast handa og trú á okkur sjálf. Hún sem viðurkennd- ur sérfræðingur vann alltaf þann- ig, að við nemendur hennar skipt- um máli og verk okkar væru sýnileg. Sigrún var og verður áfram mik- ilvæg persóna í lífi okkar og rödd hennar og áhrif verða mjög sterk í doktorsnámi og vísindastarfi okkar í framtíðinni. Við erum mjög þakk- lát fyrir að hafa haft hana sem leiðbeinanda og fyrir það að hún var alltaf til staðar fyrir okkur og veitti okkur ómældan tíma. Þrándheimi í júlí 2003. Doktorsnemendurnir: Arne Carlsen, Grete Håkon- sen, Ingunn H. Lysø, Janne Madsen, Torill Moen, Vivi Nil- sen, May Britt Postholm, Anne Reinertsen, Håvard Åsvoll. Með þessum línum vil ég minnast Jónínu Þórðardóttur sem vann með okkur hjá Hannarr ehf. síðustu 13 ár ævi sinnar. Á þessum langa tíma varð Jónína eins og hluti af okkar daglega lífi og nánast sem ein úr fjölskyld- unni. Jónína var einstakur starfsmað- ur og leysti hin fjölbreyttustu störf af hendi af áhuga og var mjög rösk við öll sín störf og þeg- JÓNÍNA MARGRÉT ÞÓRÐARDÓTTIR ✝ Jónína MargrétÞórðardóttir fæddist í Reykjavík 23. janúar 1957. Hún lést á Landspítalan- um í Fossvogi 4. júlí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Grafarvogs- kirkju 14. júlí. ar hún hafði tekið eitthvað að sér þurfti ekki að hafa áhyggjur af því að það yrði ekki leyst af hendi og á besta máta. Meira segja eftir að hún fékk sitt síðasta áfall og var orðin veik, þá var hún ákveðin í að sinna sínu starfi í sumarfríi annarra starfmanna. Til þess fékk hún hins vegar ekki tækifæri. Oft voru fjörugar umræður í kaffistof- unni, því að ekki voru allir á sama máli, sérstaklega ef stjórnmál bar á góma. Allt var það þó í léttum dúr og ef till vill mest iðkað til að hafa gaman af. Út frá því hvernig Jónína sá um sitt hjá okkur í vinnunni, er í mín- um huga nokkuð víst að hún hefur verið ábyrg og góð eiginkona og móðir. Oft varð líka vart við að leitað væri til Jónínu um hin ýmsu mál, bæði börn hennar, móðir og aðrir sem ég ekki kann skil á og má á því sjá að margir lögðu traust sitt á hana. Einnig sinnti hún mikið íþróttastarfsemi síns hverfis á tímabili. Ekki lét hún neitt af þessu bitna á vinnu sinni. Oft talaði Jónína um barnabörn- in, sem gátu verið uppátækjasöm samkvæmt lýsingum hennar, en sem hún hafði greinilega mjög mikla gleði af. Heimili Jónínu og eiginmanns hennar Ófeigs bar þess glöggt merki að þar færi dugnaðar- og smekkfólk. Það er mikill missir þegar fólk á hennar aldri fellur frá og þó að við vinnufélagar söknum góðs félaga og frábærs starfsmanns, hlýtur sá söknuður að vera léttvægur í sam- anburði við missi fjölskyldunnar, barnanna, barnabarnanna, eigin- mannsins, systkinanna, aldraðrar móður og annarra nákominna. Ég sendi þeim mínar samúðar- kveðjur. Sigurður Ingólfsson. Með Páli Agnari Pálssyni, fyrrum yfir- dýralækni, er genginn svipmikill maður, sem öllum er eftirminni- legur, er kynntust. Ríkjandi þættir í fari Páls voru skyldurækni, vinnusemi og afköst. Í persónulegri viðkynn- ingu var Páll hlýr, hvetjandi og ráðagóður. Honum var gefið að geta náð til hinna ólíkustu manna, jafnt lærðra sem leikra, og gat fengið þá til þess að hlusta á rök sín og málflutning. Slíkt er ómet- PÁLL AGNAR PÁLSSON ✝ Páll Agnar Páls-son fæddist að Kletti í Reykholtsdal 9. maí 1919. Hann lést í Reykjavík 10. júlí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Dómkirkjunni 22. júlí. anlegt embættismanni í umsvifamiklu emb- ætti og ekki síst ef vinna á brautargengi nýjum boðum og bönnum. Mér er til efs, að hér hafi marg- ir náð lengra með tærnar en Páll hafði hælana. Kynni okkar Páls byrjuðu í lyfjaskrár- nefnd fyrir nær 40 ár- um og þau héldust meira eða minna óslit- in eftir það. Vegna áratugalangs starfs að eiturefnamálum þurfti ég oft að leita til Páls, ýmist til þess að heyra álit hans eða leita eftir stuðningi hans eða hvort tveggja. Ég leitaði ennfremur ráða Páls jafnt í þungbærum málum, svo sem um rannsókn á banvænum meiðslum hestsins Gýmis á sýning- arvelli, og í léttvægum málum, svo sem um val á beislisbúnaði eða skeifum undir eigin hesta. Þegar svo réðst, að ég víkkaði svið rann- sókna á hrörnunarsjúkdómum í miðtaugakerfi manna til þess einn- ig að taka til riðu í sauðfé naut ég enn stuðnings Páls. Yfirsýn Páls var mikil á því máli svo sem glöggt má sjá af viðamikilli yfirlitsgrein í Búnaðarritinu 1991. Páll var með fyrstu mönnum, sem gerði ráð fyr- ir því, að riða úr sauðfé gæti borist í og sýkt dýr af öðrum tegundum. Hann lagðist því á sínum tíma þungt á árar að banna notkun mjöls úr sláturúrgangi sauðfjár til þess að fóðra með nautgripi. Ein- mitt slík notkun fóðurmjöls hefur að líkindum valdið uppkomu kúa- riðu í Bretlandi með hrikalegum afleiðingum svo sem kunnugt er. Það er enginn efi í mínum huga, að í þessu efni var Páll, sem og oftar, réttur maður á réttum stað. Ég kveð Pál með söknuði og með þökk í huga fyrir góð ráð og langa samfylgd. Ég færi konu hans og fjölskyldu innilegar sam- úðarkveðjur. Þorkell Jóhannesson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.