Morgunblaðið - 05.08.2003, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.08.2003, Blaðsíða 30
DAGBÓK 30 ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Maxim Gorkiy kemur og fer í dag. Atlantic Peace, Professor Logachev koma í dag. Margrét fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Ocean Tiger og Polar Timmiarmiut koma í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Fannborg 5. Lokað vegna sumarleyfa frá 1. júlí til 12. ágúst. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 bað, vinnustofa, kl. 13 vinnustofa. Versl- unarferð í Hagkaup farið frá Aflagranda kl. 10, kaffi í boði Hagkaupa. Árskógar 4. Kl. 9–12 bað. Smíðastofan er lokuð til 11. ágúst. Handavinnustofan er lokuð vegna sumar- leyfa. Kl. 9.30 dans, kl. 10.30 leikfimi, Kl. 13.30 létt ganga. Pútt- völlur opinn mánudag til föstudags kl. 9– 16.30. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–13 hárgreiðsla, kl. 8.30–14.30 bað, kl. 9– 16 handavinna, kl. 9– 17 fótaaðgerð. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 að- stoð við böðun, hár- greiðslustofan opin, kl. 10 samverustund. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 op- in handavinnustofan, kl. 9–16 vefnaður, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 13.30 myndband. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Kl. 9–16 opin vinnustofa, leikfimi byrjar aftur 2. sept., kl. 12.40 verslunarferð í Bónus, kl. 12 hár- greiðsla. Bókabíllinn er í fríi til 9. sept. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10 hárgreiðsla, kl. 11 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Púttæfingar á Hrafn- istuvelli kl. 14–16. Gerðuberg, félags- starf. Lokað vegna sumarleyfa til 12. ágúst. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum kl. 9.30–12, kl. 14 ganga. Gullsmári, Gullsmára 13. Lokað vegna sum- arleyfa til 5. ágúst. Hárgreiðuslustofan og fótaaðgerðarstofan verða opnar. Hraunbær 105. Kl. 9 kaffi, spjall, dagblöð- in,kl. 10 boccia, kl. 12.15 verslunarferð, kl. 13 hárgreiðsla. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 boccia, kl. 9.45 bankaþjónusta, fóta- aðgerðir, hársnyrting. Norðurbrún 1. Vinnu- stofa og tréskurður lokað frá 3. júlí til 5. ágúst. Kl. 10–11 boccia. Fótaaðgerða- stofan er lokuð frá 21 júlí til 5 ágúst. Hár- greiðslustofan er lok- uð frá 15. júlí til 12. ágúst. Vesturgata 7. Kl. 9– 16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 13–16 frjáls spil. Vitatorg. Kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 morgunstund, kl. 10 fótaaðgerð, kl. 14 fé- lagsvist. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, á mið- vikudögum kl. 20, svarað í s. 552 6644 á fundartíma. Minningarkort Minningarkort MS- félags Íslands eru seld á skrifstofu fé- lagsins, Sléttuvegi 5, 103 Rvk. Skrifstofan er opin mán.–fim. kl. 10–15. Sími 568-8620. Bréfs. 568-8621. Tölvupóstur ms@msfelag.is. FAAS, Félag aðstand- enda alzheimer- sjúklinga. Minningar- kort eru afgreidd alla daga í s. 533-1088 eða í bréfs. 533-1086. Heilavernd. Minning- arkort fást á eftir- töldum stöðum: í síma 588- 9220 (gíró) Holts- apóteki, Vesturbæjar- apóteki, Hafnarfjarð- arapóteki, Keflavíkur- apóteki og hjá Gunn- hildi Elíasdóttur, Ísafirði. Minningarkort Park- insonsamtakanna á Íslandi eru afgreidd á skrifstofutíma í síma 552-4440 frá kl 11–15. Kortin má einnig panta á vefslóðinni: http://www.parkin- son.is/sam_minningar- kort.asp. Minningarkort Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar (KH) er hægt að fá í Bóka- búð Böðvars, Reykja- víkurvegi 64, 220 Hafnarfirði s. 565- 1630 og á skrifstofu KH, Suðurgötu 44, II. hæð, sími á skrifstofu 544-5959. Minningarkort Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588-7555 og 588-7559 á skrif- stofutíma. Í dag er þriðjudagur 5. ágúst, 217. dagur ársins 2003. Orð dags- ins: Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera. (Lúk. 12, 34.)     Alls eru 27 þingmenn, af63, með heimasíðu. Sjálfsagt er það frekar hátt hlutfall á alþjóðlegan mælikvarða, en þeir eru hins vegar misduglegir við að uppfæra síðurnar sínar og margir hverjir frekar latir. Sennilega er ekki á neinn hallað þegar sagt er að Ögmundur Jónasson, þingmaður vinstri grænna, og Björn Bjarnason dóms- málaráðherra séu dug- legastir við að uppfæra vefi sína með pistlum.     Fjölmennastir eru þing-menn Samfylkingar, tólf talsins. Sl. föstudag hafði Ágúst Ólafur Ágústsson, agustolaf- ur.is, síðast uppfært síð- una sína 23. júlí. Ásta R. Jóhannesdóttir, alt- hingi.is/arj, 11. júlí. Björgvin G. Sigurðsson, bjorgvin.is, 29. júlí. Bryn- dís Hlöðversdóttir, bryndis.is, 7. maí. Guð- mundur Stefánsson, mmedia.is/gas/, 11. apríl. Guðrún Ögmundsdóttir, althingi.is/go/, 4. febr- úar. Helgi Hjörvar, helgi- .is, 28. maí. Jóhanna Sig- urðardóttir, althingi.is/johanna/, 25. júlí. Katrín Júlíusdóttir, katrin.co.is, ódagsett. Lúðvík Bergvinsson, bergmal.is, 24. október 2002. Rannveig Guð- mundsdóttir, althingi.is/ rannveig/, 6. desember 2002. Þórunn Sveinbjarn- ardóttir, althingi.is/tsv/, 31. mars.     Sjö sjálfstæðismenn erumeð heimasíðu. Árni R. Árnason, althingi.is/ ara/, uppfærði síðuna sína síðast 8. október 2002. Björn Bjarnason, bjorn.is, 26. júlí. Einar K. Guðfinnsson, ekg.is, 19. júlí. Einar Oddur Kristj- ánsson, einaroddur.is, er ekki með pistil. Guð- mundur Hallvarðsson, ghallvards.is, 25. nóv- ember 2002. Pétur H. Blöndal, blondal.is, ódagsett. Sturla Böðv- arsson, sturla.is, 31. júlí.     Fimm framsóknarmenneru með heimasíður, samkvæmt heimasíðu Al- þingis. Dagný Jónsdóttir uppfærði síðuna sína, xb.is/dagny, 27. júlí. Hall- dór Ásgrímsson, fram- sokn.is/halldor, uppfærir ekki. Jón Kristjánsson, framsokn.is/jonkr, upp- færir ekki. Siv Friðleifs- dóttir, siv.is, 30. júlí. Val- gerður Sverrisdóttir, valgerdur.is, 9. júlí.     Tveir vinstri grænirþingmenn eru með síður. Kolbrún Halldórs- dóttir, althingi.is/ kolbrunh, uppfærði síð- una sína 25. júlí. Ög- mundur Jónasson, ogmundur.is, 27. júlí.     Guðjón A. Kristjánsson,althingi.is/gak, er eini þingmaður Frjáls- lynda flokksins með heimasíðu. Síðasta grein hans birtist sjómanna- daginn 2002. STAKSTEINAR Misduglegir við skriftir á heimasíðurnar MIKIÐ er leiðinlegt að fólk finni alltaf þörf fyrir að koma á framfæri því sem miður er, en sjaldnar því sem vel er gert, góðu og skemmtilegu. Ég veit um fjölmarga sem hafa fengið fallega, heilbrigða og vel hirta hvolpa frá Dalsmynni. Dóttir mín fékk einn árið 2001 og ann- an í fyrra og hún fylgdist með báðum frá nokkurra vikna aldri. Hún var ætíð velkomin að heimsækja hvolpana þar til þeir voru tilbúnir að fara frá mömmu sinni. Ég fór oft með henni og sá marga hvolpa af ýmsum teg- undum. Allir áttu það sam- eiginlegt að vera kátir og yndislegir og greinilega vanir mannanna með- höndlun. Ég hef einnig heyrt frá starfsfólki Dýra- spítalans í Víðidal að skoð- anir og sprautur séu í pott- þéttu lagi af hálfu Dalsmynnis. Góður siður hjá Ástu er hvolpaveislan sem haldin er á hverju sumri. Þá koma saman, ár eftir ár, eigendur með hunda sína sem allir hafa komið frá Dalsmynni. Allt glatt og hamingjusamt fólk með dýrin sín fallegu. Vissulega er gott og gilt að hafa skýrar reglur um hundaræktun og ég er viss um að Ásta í Dalsmynni mun fara eftir þeim. En nú er mál að linni makalaus- um árásum á viðkomandi. Með kveðju og þakklæti til Ástu og áfram Dals- mynni. Sigríður Ketilsdóttir. Raddir neytenda ÞVÍ MIÐUR er það svo hér á landi að ýmis þjón- usta er ekki nógu góð. Ég þurfti að ná sambandi við innheimtu Símans, reyndi ég í tvo daga að hringja en aldrei var svarað. Ég fór á staðinn þar sem mér var sagt að svo mikið hafi verið að gera að ekki hafi verið hægt að svara símanum. Ég spurði hvort skiptiborð Símans hefði verið látið vita af þessu en svo var ekki. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég hef þurft að fara á staðinn vegna þess að ekki hefur verið svarað. Það er víðar sem erfitt er að ná sambandi, t.d. hjá Tollstjóra hefur oft verið mjög erfitt að ná sam- bandi. Svo er það líka að þjónustan er ákaflega stirð hjá mörgum fyrirtækjum og það er ömurlegt að þurfa að eiga viðskipti við skapvont fólk. Ég er ekki aldeilis ein um að segja þetta því margir hafa kvartað yfir því sama. En það eru ýmis fyrirtæki sem sýna góða þjónustu. Ég fór út að borða á veitinga- staðnum Asíu við Lauga- veg. Maturinn var frábær og þjónustan mjög góð. Einnig hef ég stundum verslað við Litaver á Grensásvegi og þar hef ég fengið frábæra þjónustu. Það er nauðsynlegt að neytendur láti í sér heyra um það hvað þeim finnst því við eigum ekki að láta bjóða okkur lélega þjón- ustu. Sigrún Reynisdóttir. Tapað/fundið Karlmannsúr tapaðist ORIENT karlmannsúr tapaðist í Heiðmörk, á vinnudegi vinnuskólans nú í júlí. Skilvís finnandi vin- samlegast hafi samband í síma 553 7514 eða 893 5357. Reiðhjól í óskilum FJÓLUBLÁTT og appels- ínugult reiðhjól fannst í Gerðunum. Upplýsingar í síma 869 3281. Dýrahald Fressköttur með langt skott fæst gefins ÁRSGAMALL fress fæst gefins. Hann er grábrönd- óttur að lit og frekar lítill. Matur og kassi fylgir. Upp- lýsingar í síma 568 8165, 695 1138 eða 869 7663. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Áfram Dalsmynni Morgunblaðið/Árni Torfason Þessar stúlkur vinkuðu ljósmyndaranum þar sem þær syntu nærri Nauthólsvíkinni LÁRÉTT 1 afdrep, 4 blaðra, 7 milda, 8 fangbrögð, 9 þegar, 11 holdlítið, 13 heiðurinn, 14 mannsnafn, 15 görn, 17 súrefni, 20 stór geym- ir, 22 lítið herbergi, 23 sett, 24 bik, 25 fífl. LÓÐRÉTT 1 er viðeigandi, 2 ís- stykki, 3 fuglinn, 4 út- flenntur, 5 kjánar, 6 skynfærin, 10 heldur, 12 líkams- hlutum, 13 hlass, 15 kunn, 16 magurt dýr, 18 dáin, 19 halda vel áfram, 20 sjávargróð- urs, 21 æsingur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 handaskol, 8 veini, 9 æskan, 10 lár, 11 rudda, 13 tunna, 15 hlaði, 18 ögrar, 21 nit, 22 sárin, 23 urmul, 24 hringlaði. Lóðrétt: 2 aðild, 3 deila, 4 skært, 5 orkan, 6 sver, 7 snúa, 12 dáð, 14 ugg, 15 hass, 16 aurar, 17 innan, 18 ötull, 19 rómað, 20 rola. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Víkverji skrifar... VÍKVERJI getur varla beðið eftirþví að nýtt leiðakerfi Strætó bs., sannkölluð umbylting í almanna- samgöngum, líti dagsins ljós. For- stjóri Strætó bs. lýsti því í viðtali í Morgunblaðinu á dögunum hvernig nýja kerfið mun auðvelda allar sam- göngur og verða vonandi til þess að strætisvagnarnir keyra fullir um göt- urnar en ekki hálftómir eins og í dag. x x x VÍKVERJI á ekki bíl og ferðast þvímikið með strætó. Hann er samt einn af fáum sem hefur ekki mikið út á leiðakerfið að setja í dag annað en það að ferðirnar mættu vera tíðari. Annars finnst Víkverja leið 111 t.d. sem fer upp í Breiðholt, fljót í ferðum. Það er bara svo hundleiðinlegt að bíða eftir henni. Þá finnst Víkverja nú ekki dýrt í strætó eins og margir tala um. Víkverji bjó nefnilega einu sinni í Noregi og þar er dýrara að taka strætó. Þar eru ferðirnar reyndar tíð- ari og því réttætanlegra að verðið sé hærra. Í eina tíð þurfti Víkverji að fara til vinnu í Kópavogi með strætó. Sonur hans var á leikskóla vestur í bæ en Víkverji bjó hins vegar í Breiðholti. Það verður að viðurkennast að strætókerfinu var þá bölvað daglega enda þurfti Víkverji fyrst að fara með barnið á leikskóla, með 111 neðan úr Breiðholti niður á Lækjartorg, leið 5 í Skerjafjörðinn og sömu leið til baka á Lækjartorg. Víkverji þurfti svo að taka annan vagn í Hamraborg og svo enn einn þaðan í hverfið þar sem hann vann. Þetta þýddi að Víkverji var rúma tvo tíma í strætó (eða bíða eftir honum) á dag og kom inn í tíu vagna hvorki meira né minna dag- lega. VÍKVERJI er sammála forstjóraStrætó bs. um að forgangur vagnanna í umferðinni sé lykilatriði því eins og forstjórinn sagði þá verða farþegar að finna fyrir því að það taki skemmri tíma að fara með strætó en á einkabílnum. x x x VÍKVERJI má til með að kvartaundan skyndibitastaðnum Pizza Hut. Á dögunum fór hann ásamt vin- konunum á veitingastaðinn að Sprengisandi. Krakkarnir sem þjón- uðu til borðs voru alveg frábærir, en þeir voru alltof fáir og því gekk allt mjög hægt. Helmingur hópsins fékk sinn mat löngu á undan hinum og þegar þeir voru búnir að borða höfðu hinir ekki enn fengið sitt! Víkverji vildi nú ekki alveg afskrifa Pizza Hut enda pitsurnar þar einstaklega ljúf- fengar. Hann fór því í félagi við fjöl- skyldufólk á Pizza Hut í Smáralind og ekki tók betra við. Börn og foreldrar þurftu að bíða í 50 mínútur eftir að fá pitsurnar sínar sem er algjörlega óviðunandi að mati Víkverja. Hóp- urinn fékk þó 25% afslátt af matnum en hópurinn mun ekki í bráð sækja þennan stað eða þann á Sprengisandi. Morgunblaðið/Kristinn Bráðum kemur betri tíð og nýtt leiðakerfi Strætó bs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.