Morgunblaðið - 05.08.2003, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.08.2003, Blaðsíða 13
SAMKEPPNISSTOFNUN OG TRYGGINGAFÉLÖGIN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 13 Heimsferðir bjóða borgarævintýri til fegurstu borga Evrópu á hreint frábærum kjörum með beinu flugi í haust. Alls staðar nýt- ur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar, sem eru á heimavelli á söguslóðum og bjóða spennandi kynnisferðir meðan á dvölinni stendur. Notaðu tækifærið og kynnstu mest spennandi borgum Evrópu, mannlífi og menningu og upplifðu ævintýri í haust. Fegurstu borgirnar í beinu flugi í haust frá kr. 28.550 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Róm 1.-5. okt. Heimsferðir bjóða nú einstakt tæki- færi til borgarinnar eilífu í beinu flugi þann 1. okt. frá Íslandi til Rómar. Nú getur þú kynnst þessari einstöku borg sem á engan sinn líka í fylgd farar- stjóra Heimsferða og upplifað árþús- undamenningu og andrúmsloft sem er einstakt í heiminum. Péturstorgið og Péturskirkjan, Vatíkanið, Spænsku tröppurnar, Colosseum, Forum Romanum og Pantheon hofið. Sjá www.heimsferðir.is Verð frá kr.65.850 Búdapest október fimmtud. og mánud., 3, 4 eða 7 nætur Stórkostleg borg í hjarta Evrópu, sem Íslendingum býðst nú að kynn- ast í beinu flugi frá Íslandi. Hér getur þú valið um góð 3 og 4 stjörnu hótel í hjarta Budapest og spennandi kynnisferðir með farar- stjórum Heimsferða. Verð kr. 28.550 Flugsæti til Budapest 20. okt. með 8.000 kr. afslætti. Skattar innifaldir. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Verona 17. sept., 5 nætur Fegursta borg Ítalíu, þar sem þú getur notið hins besta af ítalskri menningu um leið og þú gengur um gamla bæinn, skoðar svalir Júlíu og kynnist frægasta útileik- húsi Ítalíu, Arenunni í Verona eða ferðast um Gardavatn og Feneyjar. Verð kr. 29.950 Flugsæti með sköttum. Völ um 3 og 4 stjörnu hótel. Ekki innifalið: Forfalla- gjald, kr. 1.800 valkvætt. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Prag Okt. og nóv. fimmtud. og mánud., 3, 4 eða 7 nætur Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara nú hingað í þúsundatali á hverju ári með Heims- ferðum. Fararstjórar Heimsferða gjör- þekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Góð hótel í hjarta Prag. Verð kr. 29.950 Flug og hótel í 3 nætur. M.v. 2 í her- bergi á Quality Hotel, 3. nóv. með 8.000 kr. afslætti. Skattar innifaldir. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Barcelona 2. okt. 3 nætur 22./26./30. okt. 4 nætur Einn vinsælsti áfangastaður Íslend- inga í 11 ár. Heimsferðir bjóða nú bein flug í október, sem er einn skemmtilegasti tíminn til að heim- sækja borgina. Menningarlífið er í hápunkti og ótrúlegt úrval listsýn- inga og tónleika að heimsækja ásamt spennandi næturlífi og ótrú- legu úrvali verslana. Fararstjórar Heimsferða kynna þér borgina á nýjan hátt, enda hér á heimavelli. Verð kr. 49.950 Flug og hótel í 4 nætur. M.v. 2 í herbergi á Aragon, 22. okt. Skattar innifaldir. Ferðir til og frá flug- velli kr. 1.800. Sorrento 30. sept., 5 nætur Heimsferðir bjóða nú í fyrsta sinn á Íslandi beint flug til Napolí og dvöl í Sorrento, þessum frægasta sumar- leyfisstað Ítalíu. Hér kynnist þú hinni ótrúlega fögru Amalfi strönd, eyjunni Capri, Pompei og Napolí. Ótrúlega fallegt umhverfi og heill- andi andrúmsloft á þessum fagra stað. Völ um úrvalshótel í hjarta Sorrento. Verð kr. 63.650 Flug og hótel í 5 nætur. M.v. 2 í her- bergi á La Meridiana með morgunmat. Skattar innifaldir. Ferðir til og frá flug- velli kr. 1.800. Verð m.v. 2 í herbergi, Hotel Villa Torlonia, flug, gisting, skattar, íslensk fararstjórn. Ekki innifalið: Forfalla- gjald, kr. 1.800 valkvætt. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Samband íslenskra tryggingarfélaga Í andmælum Sambands ís- lenskra tryggingarfélaga, vegna meints samráðs um að hamla samkeppni í starfs- ábyrgðartryggingum, segir að Samkeppnisstofnun dragi allt of víðtækar ályktanir af minnisblaði aðila, sem hafði ótvíræða hagsmuni af því að samstarf vátryggingafélaganna yrði sem víðtækast á þessu sviði. Ekki verði ráðið af minnisblaðinu að þær skoðanir sem þar komi fram séu sameiginlegar öllum fundarmönnum og ekkert liggi fyrir um hvaða fulltrú- ar aðildarfélaga SÍT voru á þessum fundi. Gæta verði varfærni í notkun þess sem sönunargagns og vara- samt að draga af því víðtækar ályktanir. Ekki sé unnt að telja að í þessu minnisblaði hafi falist samkomulag um að keppa ekki á sviði starfsábyrgðartrygginga. Nauðsynlegt sé að kanna það sérstaklega hvort sú hafi verið raunin. Samkeppnisstofnun vísar í símbréf sem sent var frá Sjóvá-Almennum um markaðshlutdeild í þessari teg- und trygginga. SÍT segir að það hafi verið í trúnaði sem var virtur og því ekki um að ræða, að verið væri að dreifa viðkvæmum viðskiptaupplýsingum milli keppinauta. Í ummælum í bréfinu felist engar sam- stilltar aðgerðir heldur sé það ósköp einföld yfirlýsing félags með sterka stöðu á þessum hluta vátrygg- ingamarkaðarins í þá veru að félagið hafi hagsmuni af því að markaðurinn fari ekki á hreyfingu. SÍT áréttar að skilmálar lögboðinnar starfsábyrgð- artryggingar fyrir lögmenn hafi verið samdir hjá sam- bandinu á hefðbundinn hátt í samráði við fulltrúa fé- laganna og stjórnvöld. Skilmálar eða sjónarmið eins félags hafi að sjálfsögðu ekki verið höfð að leiðarljósi í því starfi. Tryggingamiðstöðin TM bendir á í sínum and- mælum að ekkert af gögn- unum sem Samkeppnis- stofnun byggir niðurstöðu sína á varðandi starfsábyrgð- artryggingar sé komið frá fé- laginu. TM tekur í sama streng og SÍT varðandi minnisblað sem fannst hjá Íslenskri endurtryggingu og hafnar túlkun Samkeppnisstofnunar algerlega. Félagið kann- ast ekki við að það hafi nokkurn tíma sammælst um samkomulag um að stunda ekki harða samkeppni á þessu sviði vátryggingar. Minnisblaðið sé samið af einum manni, óundirritað, sé TM óviðkomandi og efni þess félaginu ókunnugt með öllu, enda aldrei borið undir TM til samþykktar eða synjunar. TM gerir athugasemd við vinnubrögð Samkeppnis- stofnunar vegna ályktana sem stofnunin dregur af bréfi SÍT til allsherjarnefndar Alþingis. Staðreyndin sé sú að þarna var verið að hafna því að tryggja ásetn- ingsbrot, sem frumvarp um starfsábyrgðartryggingar lögmanna gerði ráð fyrir að féllu undir trygginguna en þekktist ekki í öðrum starfsábyrgðartryggingum. Ekkert íslenskt vátryggingarfélag hafi verið á þessum tíma tilbúið að tryggja gegn slíkum brotum. Hér hafi SÍT aðeins verið að svara erindi Alþingis eftir að alls- herjarnefnd leitaði eftir athugasemdum frá fagaðila. Sjóvá-Almennar Í áliti Sjóvár-Almennra kemur fram að það sé ekk- ert undarlegt að skilmálar í starfsábyrgðartrygg- ingum hafi verið svipaðir hjá öllum vátryggingafélög- unum þar sem tilgreint er í reglugerðum hvað á að tryggja, hverjar vátrygging- arfjárhæðirnar eigi að vera, hvaða tjón er bætt o.s.frv. Því sé einfaldega lítið svigrúm í skilmálagerðinni til frávika þegar lögboðnar vátryggingar séu annars veg- ar þar sem um efni þeirra vátrygginga fari í meg- inatriðum að lögum. Rétt sé að umræður hafi farið fram innan vébanda SÍT um skilmálagerð en af og frá sé að SA hafi tekið þátt í samráði varðandi fjárhæð ið- gjalda. SA kannast ekki við að hafa komist að samkomulagi við önnur vátryggingafélög á grundvelli minnisblaðs, sem Bjarni Þórðarson, forstjóri Íslenskrar endur- tryggingar skrifaði, um að efna ekki til samkeppni á þessu sviði enda vandséð hvaða hag félögin hefðu af slíku. Þá segir að Bjarni hafi sjálfur talið að fulltrúar félaganna hefðu komist að þessari niðurstöðu. Einnig kemur fram að handskrifað minnisblað sem fannst við húsleit hjá Íslenskri endurtryggingu sýni svart á hvítu að það var alls ekki samráð milli félag- anna í sölu starfsábyrgðartrygginga. Blaðið sýni ekki annað en að kjörin voru mismunandi hjá vátrygginga- félögunum að því er varðaði starfsábyrgðartryggingar lögmanna. Upplýsingar um fjárhæð iðgjalda, vátrygg- ingafjárhæð, eigin áhættu ofl. sem komi fram á minn- isblaðinu séu ekki viðskiptaleyndarmál hjá SA. Allir geti fengið upplýsingar um þessi atriði með einu sím- tali til SA enda forsenda samkeppni að þessar upplýs- ingar liggi á lausu svo hægt sé að bera saman kjör fé- laganna. Vátryggingarfélag Íslands Í andmælum VÍS segir að ýmislegt í gögnum málsins bendi til þess að á milli tryggingafélaganna hafi ver- ið hörð samkeppni um verð og viðskiptavini á sviði starfsábyrgðartrygginga. Þó hugtakið samkeppni kunni að hafa afmarkaða og af- dráttarlausa þýðingu í huga starfsmanna Samkeppn- isstofnunar sé ekki þar með sagt að sama gegni um aðra þá sem ekki hafi það beinlínis að atvinnu að fjalla um samkeppnismál. Tilvitnuð orð kunni að hafa aðra merkingu í huga þess sem ritaði minnisblað sem fannst hjá Íslenskri endurtryggingu hf en í huga sér- fræðinga Samkeppnisstofnunar. Jafnvel sérfræðingar eigi það til að nota með ónákvæmum hætti hugtök sem hafi að lögum ákveðna merkingu. Ummæli um sam- keppni í minnisblaði verði að lesa í samhengi við annað sem fram komi. VÍS færir svipuð rök og hin félögin fyrir tilurð bréfs SÍT til allsherjarnefndar Alþingis í tilefni af frum- varpi til laga um starfsábyrgðartryggingar lögmanna. Þá segir að orðalag bréfsins „full ástæða sé til að ætla“ sýni að það sé beinlínis rangt með farið í frumskýrslu Samkeppnisstofnunar þar sem komi fram að „ekkert aðildarfélaganna hyggist bjóða tiltekna tryggingu“. Þá kemur fram að fundur framkvæmdaráðs VÍS sé innanhúsfundur en ekki samráðsvettvangur fleiri tryggingafélaga eins og ályktanir Samkeppnisstofn- unar virðist óneitanlega gera ráð fyrir. Engin sam- staða náðist um það á fundinum að félögin tækju sig saman um að tryggja ekki ásetningsbrot. Með öðrum orðum hafi hugmynd um ólögmætt samráð verið bein- línis hafnað á fundi VÍS. Andmæli vegna starfsábyrgðartrygginga Ekki sammælst um minni samkeppni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.