Morgunblaðið - 05.08.2003, Blaðsíða 31
Zilberman (2.440). 32. g4!
Dc5 32. ...Bxg4 33. hxg6 og
hvítur vinnur. 33. Hde2
Hxd5 34. cxd5 Bxg4 35.
Dh4 g5 36. Dxg4 Rxf4 37.
Dd7 Hg8 38. Bg7+! Hxg7
39. Dd8+ og svartur gafst
upp enda fátt sem gleður
augað í stöðu hans eftir 39.
...Hg8 40. Dxf6+ Hg7 41.
h6.
1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6
4. Rf3 c6 5. Be2 dxe5 6.
Rxe5 Rd7 7. Rf3 g6 8. 0–0
Bg7 9. c4 Rc7 10. Rc3 0–0
11. Bf4 c5 12. dxc5 Re6 13.
Be3 Bxc3 14. bxc3 Rdxc5
15. Rd4 Bd7 16. Bf3 Hc8
17. He1 b6 18. Bh6
Rg7 19. De2 e6 20.
Had1 De7 21. g3
Hfe8 22. h4 e5 23.
Bd5 Kh8 24. f4 e4 25.
De3 f6 26. Hd2 Rf5
27. Rxf5 Bxf5 28.
De2 Hcd8 29. h5 Dd7
30. Dh2 Rd3 31. He3
Dd6
Staðan kom upp í
A-flokki skákhátíð-
arinnar í Pardubice í
Tékklandi. Andrei
Kovalev (2.554) hafði
hvítt gegn Yaacaov
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2003 31
DAGBÓK
Fitulausa pannan
Síon ehf. Smiðjuvegi 11, gul gata, Kóp. símar 568 2770 og 898 2865.
Tilvaldar brúðargjafir
20% aflsáttur í nokkra daga
Dönsk gæðavara - einstök ending
Glerkeramik húð
Steiking án feiti
Maturinn brennur ekki við
Þolir allt að 260° hita í ofni
http://www.micasa.is
Spænskt húsgagnaúrval
Nýuppgert atvinnuhúsnæði
í Auðbrekku 4 í Kópavogi
Um er að ræða 250 fm iðnaðarhúsnæði á
jarðhæð sem leigist helst undir verslun
eða léttan iðnað.
Upplýsingar gefur Kjartan Blöndal
í síma 588 1569 eða 694 1569.
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 588 5711 og 694 6103
SUMARNÁMSKEIÐ Í YOGA ÁGÚST
Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla
Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar.
Sértímar fyrir barnshafandi konur
Verð 7.000 – Því ekki að prófa!
ÁRNAÐ HEILLA STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Þú hefur ætíð ráð undir rifi
hverju og átt auðvelt með að
leysa úr hvers kyns vanda-
málum. Þú býrð yfir miklum
þokka og kemur ætíð
vel fyrir.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Sýndu þolinmæði í dag og
næstu daga. Þú gætir fundið
fyrir aukinni spennu í þínu
lífi. Hafðu ekki áhyggur því
þetta mun líða hjá.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það gæti legið illa á fjöl-
skyldumeðlimum þínum
vegna óleystra ágreinings-
efna heimafyrir. Reynið að
jafna ágreininginn sem allra
fyrst.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hafðu varann á við akstur og
gang í dag. Þú gætir misst
einbeitinguna við minnihátt-
ar truflanir. Vertu á verði!
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Staða himintunglanna gerir
það að verkum að þú ert eilít-
ið utan við þig í dag. Láttu
þetta ekki angra þig - þetta
líður hjá.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Í dag áttu það til að ýkja og
ofgera hlutina. Ekki gera úlf-
alda úr mýflugu vegna þess
að það þjónar engum til-
gangi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú verður að safna kröftum í
dag vegna þess að þú þarft á
þeim að halda í samskiptum
þínum við ættingja.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Forðastu að taka mikilvægar
ákvarðanir sem snerta fjár-
mál. Þú skalt ennfremur
forðast að sýna vini þínum ör-
læti. Það borgar sig ekki í
dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú hefur sterka löngun til
þess að ræða við yfirmenn
þína eða aðrar mikilvægar
persónur í dag. Láttu verða
af því - það mun ganga vel!
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það freistar þín að gefast upp
á einhverju í dag. Þú gætir
freistast til þess að sýna fífl-
dirfsku. Gættu þín og haltu
þínu striki.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hugsaðu þig tvisvar um áður
en þú tekur ákvörðun sem
snertir sameign eða sameig-
inlega hagsmuni. Ekki gera
eitthvað sem er þér á móti
skapi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Ef einhver valdamikil per-
sóna lofar þér einhverju í dag
skaltu samþykkja það. Búðu
þig þó undir vonbrigði - fólk á
það til að lofa upp í ermina á
sér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér getur orðið mikið úr
verki í vinnunni í dag. Þú
mátt þó búast við einhverju
mótlæti úr óvæntri átt.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
„ÉG sá þetta í beinni út-
sendingu á Netinu,“ sagði
Ásmundur Pálsson og
teiknaði upp eftirfarandi
stöðumynd:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 1042
♥ DG3
♦ D7
♣ÁD853
Vestur Austur
♠ Á9853 ♠ D7
♥ Á1087 ♥ 9642
♦ K86 ♦ Á102
♣4 ♣10976
Suður
♠ ÁG6
♥ K5
♦ G9543
♣KG2
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 tígull
1 spaði 2 lauf Pass 3 lauf
Pass 3 spaðar Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Útspil: spaðafimma.
Ásmundur var að bíða
eftir að mynda borð á OK-
vefnum og leit inn á annað
borð sem áhorfandi. Þar
voru ítalskir meistarar í
AV, annar þeirra Dano De-
Falco, sem var í austur. Ás-
mundur kannaðist ekki við
vestur, því miður, því það
voru tilþrif vesturs sem Ás-
mundi fannst til um.
Lítum nú á spilið. Sagn-
hafi á í sjálfu sér níu slagi –
tvo á spaða, tvo á hjarta og
fimm á lauf. En hann hefur
ekki svigrúm (tempó) til að
sækja slagina í hálitunum,
því vörnin verður fyrri til að
fría hvort heldur spaðann
eða hjartað. Dæmi: Suður
tekur spaðadrottninguna
með ás og spilar hjarta-
kóng. Vestur dúkkar ein-
faldlega og ef suður spilar
aftur hjarta, fríar vörnin
hjartalitinn áður en sagn-
hafi nær hinum spaða-
slagnum. Hið sama gildir
auðvitað um spaðann.
Sagnhafi sá þetta fyrir og
ákvað því að spila strax
laufunum fimm. DeFalco
henti hundunum „upp á við“
til að sýna styrk í tígli en
ekki hjarta, og vestur henti
tveimur hjörtum, einum
tígli og einum spaða. Vestur
má alls ekki henda þremur
hjörtum, því þá nær sagn-
hafi öllum hálitaslögum sín-
um í hús.
En nú fyrst byrjar ballið.
Suður spilaði hjartakóng og
fékk að eiga slaginn. Aftur
kom hjarta, sem vestur
fékk á ásinn. Spaðatían í
blindum er óþægileg. Ef
vestur spilar spaðaás, hend-
ir suður gosanum undir og
kemst inn á tíuna til að taka
níunda slaginn á hjarta. Og
lítill spaði gefur blindum
auðvitað líka innkomu. Hinn
óþekkti vestur fann réttu
lausnina – spila litlum tígli
undan kóngnum og De-
Falco kom með spaða til
baka. Þá gat vestur séð til
þess að blindur kæmist ekki
inn og spilið fór einn niður.
Þetta er bíómynd sem
vert er að horfa á.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
Feigur Fallandason
Mér er orðið stirt um stef
og stílvopn laust í höndum,
í langnættinu lítið sef,
ljós í myrkri ekkert hef,
kaldur titra, krepptur gigtar böndum.
Húmar að mitt hinzta kvöld,
horfi ég fram á veginn.
Gröfin móti gapir köld,
gref ég á minn vonarskjöld
rúnir þær, sem ráðast hinum megin.
Bólu-Hjálmar
LJÓÐABROT
80ÁRA afmæli. í dagþriðjudaginn 5. ágúst
er áttræður Aðalsteinn Eyj-
ólfur Aðalsteinsson, skipa-
smiður frá Hvallátrum á
Breiðafirði. Hann verður að
heiman á afmælisdaginn.
90 ÁRA afmæli. Níræðer í dag þriðjudaginn
5. ágúst Magnea Katrín
Hannesdóttir frá Stóru-
Sandvík, Stóragerði 36,
Reykjavík.
Hún tekur á móti ætt-
ingjum og vinum í veitinga-
húsinu Hafinu bláa við
Óseyrarbrú, sunnudaginn
10. ágúst kl. 12 á hádegi.
Ljósmynd/Studió Sissa
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman sunnudaginn 22. júní sl.
Svava Skaftadóttir og Abi Giddingo.
ÁRNAÐ HEILLA
Sumarferð VG á Strandir
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð boðar til sumarferðar á
Strandir 16. - 17. ágúst nk. Farið
verður með rútu frá Umferðar-
miðstöðinni um kl. 13:00 laugar-
daginn 16. ágúst og ekið sem leið
liggur norður Strandir. Verið er
að athuga með rútuferðir frá fleiri
stöðum á landinu. Stansað verður
á völdum stöðum, en stefnt að því
að koma til Evu og Ásbjarnar í
Djúpavík um kvöldmatarleytið.
Þar verður snætt og drukkið og
leikið og sungið eins og Vinstri
grænum er lagið. Morguninn eftir
skoða ferðalangar sitthvað mark-
vert norðan Djúpavíkur þar til
lagt verður af stað aftur heim á
leið. Nánar á www.vg.is.
Fjölskylduferð Útivistar í Bása
á Goðalandi Helgina eftir versl-
unarmannahelgi verður farin Fjöl-
skylduferð Útivistar í Bása á
Goðalandi. Þar eru börnin í fyrir-
rúmi og fá frítt í ferðina allt að
tólf ára aldri. Greitt er hálft far-
gjald fyrir unglinga á aldrinum
13-16 ára. Þannig vill Útivist gera
fólki kleift að fara með börnin í
frábæra ferð í Bása og njóta bæði
skemmtunar og náttúrufegurðar. Í
boði er síðdegishressing og
pylsuveisla við grillið. Krakkarnir
fara í kappleiki s.s. stígvélakast,
boðhlaup, plankagöngu og limbó,
hópleiki t.d. snúsnú, teygjutvist,
hlaupa í skarðið eða það sem
börnin og fararstjórar láta sér
detta í hug. Alltaf er farið í ratleik
með þrautum og spurningum fyrir
alla aldurshópa. Á meðan er for-
eldrum, ömmum, öfum og öðrum
boðið í gönguferð. Æfð eru
skemmtiatriði fyrir kvöldvöku þar
sem ótrúlegir brandarar og
nýstárlegir leikir hafa litið dagsins
ljós ásamt klassískum þrautum og
leikritum. Dagskránni lýkur með
söng og gleði við varðeldinn. Áður
en haldið er heim á sunnudegi fá
börnin lítinn grip til minningar um
ferðina.
Skógarblót á Akranesi
Skagamenn og fleiri ætla að
hittast í Skógræktinni á Akranesi
föstudaginn 8. ágúst og blóta
sumri, sprettu og gróðri jarðar.
Komið verður saman í
Skógræktinni klukkan 19:30 og
hefst blótið stundvíslega klukkan
20:00. Kjalnesingagoði helgar
blótið.
Á NÆSTUNNI
FRÉTTIR