Morgunblaðið - 13.08.2003, Síða 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Verð á mann frá 19.500 kr.
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IC
E
21
53
5
0
5.
20
03
STJÓRN Orkuveitu Reykjavíkur
samþykkti í gær að hækka gjald-
skrá á heitu vatni um 5,8% og rúm-
lega 1% á rafmagni. Sjálfstæðis-
menn í stjórninni greiddu atkvæði
gegn hækkununum.
Guðmundur Þóroddsson, for-
stjóri Orkuveitunnar, segir að af-
koma OR fyrstu sex mánuði ársins
hafi ekki verið viðunandi, en milli-
uppgjör fyrirtækisins var lagt fram
í gær. Hagnaður fyrirtækisins nam
575 milljónum króna en var á sama
tíma í fyrra 2.077 milljónir sem var
skýrt af miklum gengishagnaði.
Rekstrarhagnaður í ár, þ.e. tekjur
fyrir fjármagnsliði og afskriftir,
var 240 milljónir sem er 65 millj-
ónum króna betri árangur en í
fyrra. Eigið fé OR er um 38,2 millj-
arðar króna. Arðsemi eigin fjár var
1,5% sem telst almennt ekki góð
niðurstaða í rekstri fyrirtækis.
Aðspurður hvort fyrirtækinu sé
illa stjórnað segir Guðmundur það
ákvörðun stjórnar og eigenda hve
mikil arðsemin eigi að vera. „Und-
anfarin ár hefur frekar verið horft
til verðlækkana en aukinnar arð-
semi. Það er hlutur sem eigendur
ákveða en það er ekki þægileg
staða að hafa svona lítið uppá að
hlaupa. Svona lág arðsemi á eigin
fé er erfið. Til að mynda er erfitt
að mæta sveiflum eins og þessum,“
segir Guðmundur og vísar til
minnkandi tekna vegna minni
orkunotkunar sem leiðir til þess að
hækka þarf gjaldskrá notenda.
„Ef við værum að keyra á fimm
til tíu prósent arðsemi eigin fjár þá
væri miklu minna mál að taka
svona sveiflur.“
Ekki hægt að draga
saman í rekstri
Tekjur Orkuveitunnar voru 450
milljón krónum lægri á fyrri hluta
ársins en áætlanir gerður ráð fyrir.
Stjórnendur horfðu fram á að dag-
legur rekstur skilaði ekki nægum
tekjum upp í fjárfestingar og arð
og á því þurfti að taka að sögn
Guðmundur. Ekki sé hægt að
draga saman í rekstri fyrirtækisins
enda hafi mikið verið hagrætt und-
anfarin ár. Það endurspeglist í þró-
un orkuverðs, sem hafi ekki fylgt
almennum verðlagshækkunum.
Hann segir eðli starfseminnar
þannig að fyrirtækið verður að
vera reiðubúið að mæta miklum
kuldaköstum sem vari í allt að
mánuð. Gert sé ráð fyrir að hækk-
un hitastigs nú sé bara hluti af
nokkurra ára sveiflu. Svo gangi
breytingin til baka. Þar sem 90% af
starfseminni sé fastur kostnaður,
sem verði ekki breytt vegna tíma-
bundinna sveiflna, sé erfitt að
draga starfsemina fljótt saman.
Viðskiptavinir geri þá kröfu að OR
geti selt þá orku sem þeir óski eftir
þegar kalt sé í veðri. Allur viðbún-
aður miðist við það.
Hækkun þrátt fyrir
jákvæð ytri skilyrði
Guðlaugur Þór Þórðarson, borg-
arfulltrúi og stjórnarmaður í Orku-
veitu Reykjavíkur, segir þessa
hækkun þurfa að koma til þrátt
fyrir hagstæð ytri skilyrði. Fjár-
magnskostnaður hafi lækkað um
425 milljónir það sem af er árinu
vegna hagstæðrar gengisþróunar.
Eigið fé fyrirtækisins haldi áfram
að rýrna sem nemi um 4,4% á milli
ára.
Hann segir ekki lengra síðan en í
júní að gjaldskrá fyrir heitt vatn og
rafmagn var hækkuð um 3,4%, en
hún tók gildi 1. júlí sl. Í því ljósi
séu þessi viðrögð nú furðuleg því
ekkert hafi breyst síðan þá.
Fjárfestingar veikja fjárhag
Sjálfstæðismenn lögðu fram bók-
un á stjórnarfundinum í gær þar
sem segir að óvarlegar fjárfesting-
ar í Línu.Neti og tengdum fyrir-
tækjum ásamt byggingu höfuð-
stöðva, sem hafi farið langt
umfram áætlun, séu þegar farnar
að veikja fjárhag OR verulega.
Þessar fjárfestingar nemi sex til
sjö milljörðum króna og ljóst sé að
leggja verði meiri fjármuni til
þessara verkefna.
Guðlaugur segir að lagt hafi ver-
ið til að seldar yrðu eignir eins og
höfuðstöðvar, dótturfyrirtæki og
eignarhlutur í fyrirtækjum og sölu-
andvirðið yrði að mestu nýtt til að
lækka skuldir Orkuveitunnar.
Samhliða því verði horfið frá þeirri
stefnu að fjárfesta í rækjufyrir-
tækjum, tölvufyrirtækjum, mynd-
bönkum og öðru sambærilegu.
Næg verkefni séu á hefðbundn-
um sviðum Orkuveitunnar.
Afkoma OR ekki
sögð viðunandi
Lítil arðsemi
eigin fjár fyr-
irtækisins
!
"#
#$
#"
#%
#
#
%#$
%#"
%#%
Stjórn Orkuveitunnar hækkar gjaldskrá á heitu vatni og rafmagni
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum í gær að veita Ísaksskóla 55
milljóna króna styrk vegna uppsafn-
aðs rekstrarhalla. Einnig var sam-
þykkt að heimila Fræðsluráði að af-
skrifa um fjórtán milljóna
fyrirframgreitt framlag vegna
launaskuldbindinga skólans. Þá
samþykkti borgarráð að veita Tjarn-
arskóla tveggja milljón króna styrk
til niðurgreiðslu skammtímaskulda.
Ánægð með afgreiðslu
borgarráðs
Í bókun minnihlutans kom fram að
minnihlutinn samþykkti tillöguna en
teldi að um lágmarksframlag væri að
ræða. Fulltrúar R-listans tóku fram
að rekstrarframlög borgarinnar til
þessara tveggja skóla og Landakots-
skóla hafi hækkað um 200% síðan
borgin tók við rekstri grunnskóla frá
ríkinu.
Edda Huld Sigurðardóttir, skóla-
stjóri Ísaksskóla, kveðst ánægð með
afgreiðslu borgarstjórnar. „Ég er
ánægð með þessa afgreiðslu. Annað
væri vanþakklæti. Mér þykir ljóst að
það verði miklu auðveldara að sigla
inn í næsta skólaár með þennan
pakka að baki heldur en hefur verið
undanfarin ár þegar við höfum verið
að hefja starfsemi á haustin með
stóran skuldapakka á bakinu,“ segir
Edda Huld.
Hún segir að rekstrarforsendur
skólans hafi breyst mikið eftir að
samþykkt var síðasta vor að auka
framlag borgarinnar upp í 303 þús-
und á hvern nemanda í einkareknum
grunnskólum. Þrátt fyrir þetta er
lágmarkskostnaður við barn í grunn-
skólakerfinu um 370 þúsund. „Ég er
ánægð með að borgin skyldi drífa
þetta í gegn og gera rekstrarfor-
sendur skólans allt aðrar en verið
hefur,“ segir hún.
Framlög vegna fimm
ára barna hækkuð
Á borgarráðsfundinum var einnig
samþykkt að hækka framlög til
einkarekinna grunnskóla fyrir fimm
ára gömul börn. Framlagið var áður
12.500 krónur á mánuði en verður
23.000 eftir breytinguna sem er
sama upphæð og borgin greiðir með
leikskólavist barna á sama aldri.
Stuðningur við Ísaksskóla og Tjarnarskóla
71 milljónar styrk-
ur til einkarek-
inna grunnskóla
VARÐSKIPIÐ Týr er þessa dag-
ana í viðgerð í Slippstöðinni á
Akureyri. Anton Benjamínsson
verkefnastjóri sagði að Slipp-
stöðin hefði verið með hagstæð-
asta tilboðið þegar ríkiskaup
bauð verkið út.
„Það sem var boðið út var
slippstaka, botnhreinsun, málun
og fleiri viðgerðir á varðskipun-
um Tý og Ægi. Við byrjuðum á
að taka Ægi í klössun, en nú er
hann tilbúinn og Týr kom í stað-
inn og verður hann tilbúinn á
morgun [í dag]. Þetta er bara
hefðbundið eftirlit og ýmsar lag-
færingar, ekkert stórvægilegt,“
sagði Anton.
Morgunblaðið/Ásgrímur Örn
Varðskipið Týr í kvínni í Slippstöðinni á Akureyri.
Viðgerð á Tý að ljúka
MAÐURINN sem féll af
hestbaki í Hítardal í Borg-
arfirði á mánudagskvöld ligg-
ur enn á gjörgæsludeild
Landspítala – háskólasjúkra-
húss í Fossvogi. Að sögn
læknis á vakt er hann með al-
varlega áverka.
Ökumaður vélhjólsins, sem
lenti í árekstri við jeppabif-
reið á Sprengisandsleið í
fyrradag, er einnig mikið
slasaður, en hann var í aðgerð
alla fyrrinótt, að sögn vakt-
hafandi læknis. Var gert ráð
fyrir því að hann færi á gjör-
gæsludeild eftir aðgerðina.
Útskrifuð af gjörgæslu
Spænsku ferðamennirnir
þrír, hjón og tengdadóttir
þeirra, hafa verið útskrifaðir
af gjörgæsludeild og að sögn
læknis á vakt eru þau á bata-
vegi. Ferðamennirnir voru
fluttir á gjörgæsludeild eftir
að jeppi sem þeir voru í
ásamt þremur öðrum valt
skammt frá brúnni yfir Hrútá
milli Kvískerja og Jökulsár.
Ung kona beið bana í slysinu.
Enn á
gjörgæslu-
deild
Á BORGARRÁÐSFUNDI í gær
lögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins fram fyrirspurn vegna útboða
á vegum Vélamiðstöðvar Reykja-
víkur, Strætisvagna Reykjavíkur
og Malbikunarstöðvarinnar í
september 1996. Fram kemur í
fyrirspurninni að 0,4% munur hafi
verið á hæsta og lægsta tilboði; en
innkaupin námu rúmlega 114
milljónum króna.
Óskað er svars við spurning-
unni: „Með hvaða hætti hyggst
Reykjavíkurborg leggja fram
kröfugerð sína ef niðurstaða Sam-
keppnisstofnunar verður sú að
olíufélögin hafi haft með sér sam-
ráð um tilboðsgerð í ofangreindu
útboði borgarinnar?“
Þá óska sjálfstæðismenn eftir
því að öll gögn Innnkaupastofn-
unar Reykjavíkurborgar vegna
þessa máls verði send borgarráðs-
fulltrúum.“
Minnihluti í borgarráði
Óska upplýsinga
vegna útboðs