Morgunblaðið - 13.08.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Kæru línusjómenn, gjörið svo vel að láta reiði ykkar bitna á sjávarútvegsráðherranum.
Ráðstefna um sjálfútleggjandi steypu
Steypan flýtur
eins og vökvi
ALÞJÓÐLEG ráð-stefna um sjálfút-leggjandi steypu
fer fram dagana 18.–20.
ágúst næstkomandi á
Nordica Hotel. Sjálfút-
leggjandi steypa er nýjung
í steinsteypu og væntan-
lega það sem koma skal í
framtíðinni. Dr. Ólafur
Haraldsson Wallevik er
deildarstjóri steinsteypu-
deildar Rannsóknarstofu
byggingariðnaðarins sem
stendur fyrir ráðstefnunni.
Hvað er sjálfútleggjandi
steypa ?
„Sjálfútleggjandi steypa
er ólík hefðbundinni
steypu að því leyti að hún
flýtur algjörlega út eins og
vökvi. Það þarf engan svo-
kallaðan titrara við að
leggja hana niður sem gerir hana
umhverfisvæna að því leyti að erf-
iðisvinna er nánast úr sögunni við
niðurlögn steypu. Einnig er hún
einsleitari sem gerir gæði hennar
betri og endingu hennar lengri.
Þessi steypa er ein mesta bylting
sem orðið hefur í steinsteypu-
tækni á síðastliðinni hálfri öld en
hún kemur upphaflega frá Japan.
Þar voru byggð fjölmörg mann-
virki úr slíkri steypu þegar iðnað-
ur landsins tók kipp árið 1990.“
Inniheldur steypan sömu efni
og venjuleg steypa?
„Að samsetningu er hún mjög
svipuð venjulegri steypu fyrir ut-
an það að í hana þarf meira af fín-
efni og nota þarf öðruvísi blönd-
unarefni. Þegar spara á fínefni er
notað það sem heitir „stabiliser“ á
ensku sem er oft sama efnið og
notað er sem sósuþykkir. Helsti
ókostur steypunnar er sá að hún
er örlítið dýrari, en á móti kemur
sparnaður við niðurlögn. Það þarf
einfaldlega að setja ventil á mótið
og dæla síðan steypunni í, þessu
má líkja við að fara á bensínstöð og
biðja um að fylla hann, takk!“
Hefur steypan verið notuð hér á
landi?
„Steypan hefur verið notuð við
viðgerðir á stærri mannvirkjum,
t.d. Borgarfjarðarbrú, Stykkis-
hólmsbrú og Þjórsárbrú og Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar. Steypu-
stöðvarnar eru farnar að selja
talsvert magn af steypunni í plötu-
steypur sem mun auðveldara er að
steypa úr heldur en venjulegri
steypu. Sjálfútleggjandi steypu
þarf ekki að pumpa, draga út,
víbra o.s.frv. eins og þarf að gera
við venjulega steypu.“
Hentar steypan íslenskum að-
stæðum?
„Íslendingar voru með þeim
fyrstu til að taka þátt í rannsókn-
um og þróun á sjálfleggjandi
steypu. Þó lausn sé nú í sjónmáli
hefur það verið vandkvæðum
bundið að búa til íslenska lausn því
íslenska fylliefnið, basaltið okkar,
er svo blöðrótt; það drekkur eins
og Íslendingur. Við gerð mann-
virkja úr slíkri steypu höfum við
því að hluta til þurft að nota norsk-
an stein sem fylliefni, hinn sama
og almennt er notaður
við malbikun stærri
gatna.“
Mun sjálfleggjandi
steypa taka við af
venjulegri steypu?
„Nýjungar þurfa alltaf vissan
aðlögunartíma en með tilliti til
gæða hennar ætti þetta að vera
steinsteypa framtíðarinnar. Þetta
er aðallega viðskiptapólitískt mál
þar sem deilt er um hvar eigi að
spara. Verktakar vilja oftast að
sparnaðurinn verði strax á morg-
un en venjulega þarf dálítinn að-
lögunartíma þar til virkileg hag-
kvæmni kemur í ljós. Það sem
gerir sjálfútleggjandi steypuna
svo mikið betri er að hún er ekki
breytileg í mannvirkinu og settar
eru hærri kröfur til fylliefna henn-
ar. Í raun ættu slíkar kröfur einnig
að eiga við venjulega steypu. Það
er svo auðvelt að gera einhvern
veginn steypu með einhvern veg-
inn sandi, steini og sementi en það
er list að gera góða steypu.“
Hvaða þjóðir nota sjálfleggjandi
steypu?
„Í dag standa Svíar, Hollend-
ingar og Íslendingar fremstir Evr-
ópubúa í notkun slíkrar steypu.
Sjálfútleggjandi steypa er ekki
stór hluti af steypuframleiðslu á
Íslandi í dag þó svo að nokkuð sé
búið að byggja úr henni. Aftur á
móti erum við hér á Íslandi
fremstir meðal jafningja í svokall-
aðri flotfræði og höfum hannað
sjálfútleggjandi steypu fyrir fyr-
irtæki víðs vegar um heim.“
Hvernig verður ráðstefnan upp-
byggð?
„Ráðstefnan hefst með tveimur
tveggja daga, alþjóðanámskeið-
um. Hið fyrra hefst í dag og er um
flotfræði sjálfútleggjandi steypu.
Hið seinna sem er praktískt nám-
skeið verður haldið á föstudag og
laugardag en á sunnudeginum eru
fundahöld. Valgerður Sverrisdótt-
ir iðnaðar- og viðskiptaráðherra
setur síðan ráðstefnuna formlega
klukkan 8:45, mánudaginn 18.
ágúst á Nordica Hotel.
Ráðstefnan stendur í
þrjá daga og verða flutt
yfir 110 erindi um efnis-
eiginleika, þróunarað-
ferðir, endingu og notk-
un sjálfútleggjandi
steypu í mannvirkjum. Á mánu-
deginum er fyrirhugað að steypu-
stöðvar komi og steypi í gagnsæ
mót fyrir aftan hótelið. Í lok ráð-
stefnunnar verður farið í
heimsókn í húsakynni Rann-
sóknarstofnunar byggingar-
iðnaðarins þar sem aðrar
steypugerðir verða til sýnis.
Skráning fer fram á www.ibri.is/
scc.“
Ólafur Wallevik
Dr. Ólafur Haraldsson Walle-
vik er fæddur árið 1958 í Reykja-
vík. Hann er menntaður trésmið-
ur auk þess að hafa
doktorsgráðu í verkfræði frá
Þrándheimi en þaðan lauk hann
námi árið 1990. Ólafur hefur
starfað sem deildarstjóri stein-
steypudeildar Rannsóknarstofu
byggingariðnaðarins síðan 1991,
sérsvið hans er íblöndunarefni
og efniseiginleikar hágæða-
steypu. Hann hefur haldið yfir 20
námskeið í yfir 10 löndum víða
um heim um floteiginleika og
sjálfútleggjandi steinsteypu.
Sambýliskona Ólafs er María
Knudsen.
Íslendingar
framarlega í
flotfræði.
HÚN Pálína Gísladóttir var að
koma í Sandvíkurfjöru í fyrsta
sinn um síðustu verslunar-
mannahelgi. Sandvíkurfjara er
náttúruperla í einkaeigu í landi
Bergs og liggur á milli Krossness
þar sem Krossnesviti stendur og
norðurenda fjallsins Stöðvar.
Aðeins nokkrir kílómetrar eru
frá þorpinu í Grundarfirði út í
Sandvík og tekur innan við 10
mínútur að aka þessa leið. Land-
eigendur veittu fúslega leyfi fyrir
því að Pálína fengi að líta þessa
ótrúlega sandströnd og stuðla-
bergsklettana augum ásamt fjöl-
skyldu sinni.
Pálína, sem fædd er árið 1929,
var einn af frumbyggjum Grund-
arfjarðarkaupstaðar þegar þétt-
býli tók að myndast þar fyrir 60
árum og hefur búið þar samfellt
síðan. Hún var fengin til þess að
setja hátíðina Á góðri stund í
Grundarfirði síðustu helgina í júlí
og í ávarpi hennar kom fram að á
þessum tíma, eða í kringum 1940,
voru íbúar í Eyrarsveit 415 tals-
ins.
Af þeim búa 45 manns í Grund-
arfirði í dag, ýmist á sjötugs- eða
áttræðisaldri. Íbúar Grundar-
fjarðar 1. des. sl. voru 964.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Fjórir ættliðir í Sandvíkurfjöru. Lengst til hægri er Pálína, næst henni er Jóhanna H. Halldórsdóttir, dóttir hennar,
síðan Dagfríður Gunnarsdóttir, dóttir Jóhönnu, og lengst til vinstir er Gunnar Andri Pétursson dóttursonur Jóhönnu.
Í Sandvíkurfjöru í fyrsta sinn
Grundarfirði. Morgunblaðið.
ÞAÐ sem af er árinu hafa 45 ein-
staklingar sótt um hæli á Íslandi en
engum hefur verið veitt dvalarleyfi. Í
byrjun ágúst í fyrra var þessi fjöldi
67. Í langflestum tilvikum er sótt um
hæli af pólitískum eða efnahagsleg-
um ástæðum.
Allt árið í fyrra voru lagðar fram
117 umsóknir um hæli hér á landi og
var það tvöföldun umsókna frá árinu
2001. Fimm af þeim fengu dvalar-
leyfi en flestir drógu umsókn sína til
baka og yfirgáfu landið sjálfviljugir.
36 voru sendir til annarra landa á
grundvelli Dyflinar-samningsins
sem Ísland er aðili að.
Komi í ljós að hælisleitandi hafi
umsókn til meðferðar í öðru ríki eða
búið sé að afgreiða hana í því ríki er
heimilt samkvæmt Dyflinar-samn-
ingnum að senda hann aftur til þess
ríkis.
Samkvæmt upplýsingum frá Út-
lendingastofnun drógu margir af
hælisleitendunum í ár umsóknir sín-
ar til baka þegar þeim var gerð grein
fyrir þessum samningi. Þá hefur ver-
ið minna um endursendingar miðað
við árið 2002 þar sem hælisleitendur
hafa yfirgefið landið sjálviljugir.
Í fyrra komu flestir frá Rúmeníu
eða 39. Í ár hafa 12 Rúmenar þegar
beðið um hæli og átta Albanir. Í
fyrra óskuðu 10 Albanir um hæli og
15 Rússar. Enginn Rússi hefur hins
vegar óskað eftir hæli í ár.
Færri umsóknir um hæli í ár