Morgunblaðið - 13.08.2003, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 9
Nýjar
vörur
SÍMI 562 1166 - 587 8044
25% afsláttur af
barnamyndatökum
til 1. september
RÁÐHERRA vísinda- og tæknimála
í framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins, Philippe Busquin, er hér á
landi í boði Tómasar Inga Olrich
menntamálaráðherra til að kynna sér
rannsóknir sem íslenskir vísinda-
menn leggja stund á. Í fréttatilkynn-
ingu frá menntamálaráðuneytinu
segir að íslenskir vísindamenn hafi
getið sér góðan orðstír með þátttöku
í rammaáætlunum Evrópusam-
bandsins um rannsóknir og
tækniþróun á undanförnum árum.
Á fundi Busquin með menntamála-
ráðherra verður rætt um strauma og
stefnur í vísinda- og tæknisamvinnu
Evrópusambandsins sem Íslending-
ar taka þátt í á grundvelli samnings
um Evrópska efnahagssvæðið. Einn-
ig ræða þeir stöðu Íslands í hagkerfi
sem byggt er á þekkingu og rann-
sóknum og þátttöku Íslands í rann-
sóknaráætlunum ESB.
Þá mun Busquin hitta
iðnaðarráðherra í heim-
sókninni.
Heimsækir fyrirtæki
og vísindastofnanir
Dagskrá heimsóknar
Busquins verður fjöl-
þætt og tengjast heim-
sóknir hans á vísinda-
stofnanir og í fyrirtæki
verkefnum sem íslensk-
ir vísindamenn taka
þátt í eða stjórna. Efnt
verður til sérstakra
kynninga í erfða- og
heilbrigðisrannsóknum,
á rannsóknum í matvælaframleiðslu,
sjálfbærri orkuvinnslu – vinnslu jarð-
varma og nýtingu vetnis sem orku-
bera, rannsóknum á áhrifum veður-
farsbreytinga á
umhverfi hafsins og
fiskveiðistjórnun. Þá
verður sérstaklega
kynnt vetnisstöð Skelj-
ungs í Ártúnsholti, en
stöðin er liður í einu
stærsta verkefni ESB
sem Íslendingar taka
þátt í og stýrt er af Ís-
lenskri NýOrku ehf.
Busquin mun m.a.
heimsækja Íslenska
erfðagreiningu, Marel,
Bláa lónið, Svartsengi,
rannsóknastöð Haf-
rannsóknastofnunar-
innar á Stað við
Grindavík og Rannsóknastöðina í
Sandgerði.
Heimsókninni lýkur föstudaginn
15. ágúst.
Vísinda- og tæknimála-
ráðherra ESB á Íslandi
Philippe Busquin
HAFNARSTJÓRN Akraness hef-
ur mælt með því að verða við
beiðni fyrirtækisins Stjörnugríss
hf. um 1.500 fermetra lóð undir
fóðurskemmu á fyllingu við Faxa-
bryggju. Lagt er til að skipulags-
og umhverfisnefnd bæjarins taki
erindið til umfjöllunar og að breyt-
ing á deiliskipulagi vegna fyrirhug-
aðrar byggingar verði gerð sam-
hliða áformaðri breytingu á lóð við
Ferjubryggju.
Geir Gunnar Geirsson hjá
Stjörnugrís sagðist í samtali við
Morgunblaðið vonast til þess að
lóðarumsóknin fengi jákvæða um-
fjöllun hjá Akranesbæ þannig að
framkvæmdir gætu hafist sem
fyrst, eigi síðar en í byrjun næsta
árs. Stjörnugrís hefur undanfarið
ár flutt inn fóður til svínakjöts-
framleiðslu og leigt í því skyni
skemmu í Hafnarfirði. Með því að
reisa slíka skemmu á Akranesi og
taka fóðrið þar á land er ætlunin
að vera nær framleiðslustað, sem
eru Melar í Melasveit, þar sem
grísaeldið fer fram.
Um sex þúsund tonn af svína-
fóðri eru flutt inn árlega hjá
Stjörnugrís og sagðist Geir Gunn-
ar ekki reikna með að fleiri aðilar
kæmu að þeim innflutningi eða að
fóðurmagnið yrði aukið, enda eng-
in áform uppi um frekari fram-
leiðslu á svínakjöti.
Stjörnugrís vill reisa fóður-
skemmu á Akranesi
NÍUHUNDRUÐ og áttatíu Íslend-
ingar voru starfandi hjá varnarlið-
inu um síðustu mánaðamót sam-
kvæmt yfirliti frá varnarmála-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Þann 31. maí sl. var fjöldi íslenskra
starfsmanna 944 og hefur fjölgað
um 36 í sumar umfram þá sem létu
af störfum. Þar af eru 710 karlar og
270 konur. Frá áramótum hefur Ís-
lendingum hjá varnarliðinu fjölgað
um 74.
Að sögn Péturs Jóhannssonar,
framkvæmdastjóra atvinnu- og
hafnarsviðs Reykjanesbæjar, skýr-
ist aukningin fyrst og fremst af
sumarráðningum varnarliðsins.
Engin íslensk tæknimenntuð
kona hjá varnarliðinu
Stærsti einstaki hópur starfs-
manna hjá varnarliðinu eru iðnaðar-
menn, eða 184 starfsmenn, þar af
176 karlar. Flestar konur gegna
skrifstofu- og verslunarstörfum, 112
alls. Alls starfa 158 íslenskir
slökkviliðsmenn á varnarsvæðinu,
þar af eru 3 konur. 116 karlmenn
eru í stjórnunarstöðum hjá varnar-
liðinu en íslenskar konur í samskon-
ar störfum eru 43. Fjörutíu og fimm
íslenskir verkfræðingar og annað
tæknimenntað fólk starfar hjá varn-
arliðinu en í þeim hópi er engin
kona.
Þegar litið er á ráðningar Íslend-
inga það sem af er þessu ári kemur
í ljós að fleiri hætta en hefja störf
fyrstu þrjá mánuði ársins. Í apríl
snýst þróunin við og í maí hófu 60
Íslendingar störf hjá varnarliðsins
og 43 í júní. Í júlímánuði hófu sjö
manns störf en ellefu hættu störf-
um.
980 Íslendingar hjá
varnarliðinu
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
www.fyrirtaekjasala.is
FYRIRTÆKJASALA
ÍSLANDS
Síðumúla 15 • Sími 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930