Morgunblaðið - 13.08.2003, Page 10

Morgunblaðið - 13.08.2003, Page 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ RÁÐSTEFNAN Hugur og hönd í heimi tækninnar, sem haldin er á vegum norrænu vinnuvistfræði- félaganna, hefur heppnast mjög vel en í gær voru veitt tvenn verð- laun í tengslum við hana. Verð- launin eru veitt árlega en þetta er í fyrsta skipti sem þau koma í hlut íslenskra aðila. Leikskólar Reykjavíkur hlutu verðlaun sem eru veitt stofnun sem hefur unnið ötult vinnuvernd- arstarf. Að sögn Þórunnar Sveins- dóttur, formanns VINNÍS áhuga- félags um vinnuvistfræði, hafa Leikskólar Reykjavíkurborgar haft viljann til þess að bæta starfs- umhverfi sitt og fylgt því mjög vel eftir. Ágústa Guðmundsdóttir, meist- aranemi við Háskóla Íslands, hlaut námsverðlaun en þau eru veitt ein- staklingi sem hefur unnið faglega vinnu við bætt vinnuumhverfi. Ágústa sá um rannsóknarvinnuna fyrir Leikskóla Reykjavíkur en í hennar niðurstöðum kemur fram að ánægja starfsfólks leikskóla hefur aukist umtalsvert frá því að skipulagsvinna við bætt vinnuum- hverfi hófst. Fyrsta sinn á Íslandi Þetta er í 35. sinn sem norrænu vinnuvistfræðifélögin halda ráð- stefnu og í fyrsta sinn sem hún er haldin á Íslandi enda hefur Ísland aðeins verið í félagsskapnum frá árinu 1998. Að sögn Þórunnar eru ráðstefnugestir ótrúlega ánægðir en ráðstefnunni lýkur í dag. „Hér eru í kringum 200 manns frá 16 löndum víðs vegar um heiminn. Við erum með sex aðal- fyrirlesara en samtals eru 92 fyr- irlestrar á ráðstefnunni.“ Fyrir- lesarar hafa komið inn á ýmsa þætti vinnuvistfræðinnar, s.s. áhrif upplýsingatækni á líðan starfs- manna, áhrif breytinga og hag- ræðingar á vinnustöðum, streitu og króníska verki, þátttöku og fræðslu starfsmanna, hönnun út frá vistfræðilegu sjónarhorni og stöðu vinnuverndar. Þórunn bendir á að Norður- löndin eru hátt skrifuð á sviði vinnuvistfræði svo að aðrar þjóðir sækja hingað þekkingu. „Þetta virðist vera málefni sem vekur áhuga og umræðu. Við erum lítið land og þurfum að nýta okkur reynslu annarra svo það er mikils virði fyrir okkur að fá tækifæri til að halda ráðstefnuna.“ Þórunn segir mikilvægt að vinnuvistfræði verði tekin meira inn í hinar ýmsu greinar háskól- ans og að boðið verði upp á mast- ersnám. Auk þess sé mikilvægt að góð fræðsla sé á vinnustöðum. „Við erum ekki að tala um að gera alla að sérfræðingum heldur að fólk hafi ákveðna grunnþekkingu. T.d. að stjórnendur og þeir sem hanna vinnustaði þekki það sem skiptir máli fyrir vinnuumhverfi, heilsu og vellíðan.“ Norrænu ráðstefnunni um vinnuvistfræði lýkur í dag Leikskólar Reykja- víkur verðlaunaðir Morgunblaðið/Árni Sæberg Jan Axelsson og Þórunn Sveinsdóttir, t.h., afhentu Bergi Felixsyni og Ágústu Guðmundsdóttur verðlaunin. Á STJÓRNARFUNDI Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) í fyrradag var ákveðið að leggja fyrir bæjarstjórráð sveitarfé- laganna tillögu um að greitt yrði með tónlistarnemendum á framhalds- og háskólastigi fram að áramótum. Á þeim tíma verður reynt að ná sam- komulagi við ríkisvaldið um að greiða fyrir þessa kennslu og vísað til þess að sveitarfélögum beri að greiða fyrir nám á grunnskólastigi en ríkinu á framhaldsskólastigi. Stjórnendur Reykjavíkurborgar ákváðu einhliða að hætta að greiða fyrir kennslu nemenda í tónlistar- námi, sem koma úr öðrum sveitar- félögum, í haust. Greiðir borgin því eingöngu fyrir tónlistarnám nem- enda með lögheimili í Reykjavík burtséð frá því í hvaða sveitarfélagi viðkomandi nemandi stundar námið. Þessi ákvörðun hefur valdið nokk- urri óánægju meðal forystumanna annarra sveitarfélaga, sem segja að byrjað sé á vitlausum enda og nem- endur séu skildir eftir í óvissu. Fyrst hefði átt að ná samkomulagi um skiptingu kostnaðar og hafa samráð um framkvæmdina við önnur sveit- arfélög áður en forystumenn Reykjavíkurborgar tóku þessa ákvörðun. Námsmenn settir í klemmu Jónmundur Guðmarsson, bæjar- stjóri á Seltjarnarnesi og stjórnar- maður í SSH, segist ósáttur við það að námsmenn hafi verið settir í þessa klemmu. Ákvörðun um að greiða með tónlistarnemendum fram að áramótum hafi fyrst og fremst verið tekin með hagsmuni þeirra að leið- arljósi. Með því sé ekki fallist á skyldu sveitarfélaganna til að greiða fyrir þetta nám. Sigurður Geirdal, formaður SSH og bæjarstjóri í Kópavogi, segir mál- ið flókið og að þetta snúi að öllum sveitarfélögum á landinu. Mjög mis- jafnt sé eftir skólum hve dýrt þetta nám sé og geti munað hundruðum þúsunda króna. Þetta séu einka- stofnanir og sveitarfélögin hafi hing- að til greitt kennslukostnað sama úr hvaða sveitarfélagi nemendur hafi komið. Hann segir að þessi mál hafi ekki verið stokkuð upp mjög lengi og á því séu margir fletir sem þurfi að leysa. Reykjavíkurborg hafi aftur á móti valið að fara sínar leiðir án þess að hafa samráð við önnur sveitar- félög og byrjað sé á öfugum enda sem bitni nú á nemendum. Þetta eigi að leysa á vettvangi Sambands sveitarfélaga þar sem nefnd með þátttöku menntamálaráðuneytisins sé nú að störfum. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu funda um tónlistarnám Greiða fyrir tónlistar- nám fram að áramótum FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA skipaði í gær Ingibjörgu Broddadóttur tímabundið í stöðu framkvæmdastjóra Jafnréttis- stofu. Ingibjörg tekur við af Val- gerði H. Bjarnadóttur sem hefur gert samkomulag við félags- málaráðherra um að láta af störfum. Ingibjörg mun sinna starfinu þar til nýr framkvæmdastjóri verður ráðinn en embættið er nú þegar laust til umsóknar. Reikn- að er með að nýr framkvæmda- stjóri geti tekið til starfa 1. októ- ber næstkomandi. Að því er fram kemur í frétta- tilkynningu frá félagsmálaráðu- neytinu er það von ráðuneytisins að með þessari ákvörðun geti starfsemi Jafnréttisstofu haldið áfram með eðlilegum hætti. Nýr framkvæmda- stjóri Jafnréttisstofu RANNSÓKNASTOFA í næringar- fræði við Landspítala – háskóla- sjúkrahús og Háskóla Íslands er einn þátttakenda í evrópska rann- sóknarverkefninu „SEAFOODplus“ sem sagt var frá í Morgunblaðinu á föstudag. Tveimur rannsóknum er stjórnað af Íslend- ingum, annars vegar af Guðjóni Þorkels- syni hjá Rannsókna- stofnun fiskiðnaðar- ins, og hins vegar af Ingu Þórsdóttur, prófessor hjá Rann- sóknastofu í næring- arfræði. Rannsóknin sem Inga stýrir tekur til heilsu ungra evr- ópskra fjölskyldna með áherslu á heilsu mæðra og barna. Sömuleiðis er leitað leiða til að sporna við ofþyngd og offitu- vanda meðal yngri fullorðinna. Áætlaður kostnaður við rannsókn- ina, sem sótt er um til Evrópusam- bandsins, er um 200 milljónir króna, og er um fjórðungur þeirr- ar upphæðar ætlaður til Rann- sóknastofu í næringarfræði. Aðeins þrjár næringar- fræðirannsóknir Inga Þórsdóttir prófessor og Ingibjörg Gunnarsdóttir, sem er í doktorsnámi í næringarfræði, ásamt samstarfsfólki þeirra, skipu- lögðu sameiginlega næringarfræði- lega rannsókn í Danmörku, Ír- landi, Spáni, Portúgal og Íslandi í samstarfi við þarlenda vísinda- menn. Áherslur rammaáætlunar Evr- ópusambandsins eru heilsan, hvernig mat- ur hefur lýðheilsu- fræðileg áhrif og hvernig megi með hollum lífsháttum minnka tíðni al- gengra sjúkdóma og auka vellíðan. Þrátt fyrir það eru að sögn Ingu Þórsdóttur að- eins þrjú rannsókn- arverkefni innan „SEAFOODplus“ sem tengjast næring- arfræðinni. „Rann- sóknin á næringu og heilsu ungra evr- ópskra fjölskyldna, með áherslu á fisk og fiskneyslu, var metin sem mjög mikilvæg og hlaut jákvæða um- fjöllun hjá Evrópusambandinu,“ sagði Inga í samtali við Morgun- blaðið. Að sögn Ingu hafa áherslur op- inberra rannsóknaráætlana í Evr- ópu og Bandaríkjunum færst meira í átt að rannsóknum sem miða að því að bæta heilsu og að- stæður fólks. Samstarf milli iðn- aðarrannsókna og heilbrigðisrann- sókna færist í vöxt og því er samstarf Rannsóknastofu í nær- ingarfræði og Rannsóknarstofnun- ar fiskiðnaðarins mikilvægt skref í átt að góðum rannsóknum á hvað stýrir og stjórnar hollustu og gæð- um fisks og fiskafurða. SEAFOODplus rannsóknarverkefnið Rannsaka heilsu og næringu ungra fjölskyldna Inga Þórsdóttir ÁLFYRIRTÆKIÐ Alcoa reiknar með að starfsmenn Fjarðaáls í Reyð- arfirði geti tekið þátt í sjálfboðaliða- verkefnum sem fyrirtækið hefur byrjað með síðastliðin tvö ár. Á síð- asta ári tóku yfir fimm þúsund starfsmenn Alcoa þátt í verkefnum sem þessum í meira en eitt hundrað samfélögum í ríflega 20 löndum víða um heim þar sem fyrirtækið starfar. Fyrir vikið greiddi Alcoa alls nærri 90 milljónir króna til margs konar góðgerðarmála á þessum stöðum. Jake Siewert, aðaltalsmaður Alcoa, sagðist í samtali við Morgun- blaðið telja fullvíst að þessum verk- efnum yrði komið á fót hér á landi eftir að Fjarðaál tæki til starfa árið 2007, líkt og annars staðar þar sem Alcoa væri til staðar. Um tvenns konar verkefni er að ræða, annað nefnist Bravo og hitt „Alcoans Coming Together In Our Neighbourhoods“, skammstafað ACTION. Hið síðarnefnda gengur út á það að hópur tíu starfsmanna eða fleiri leggi ýmsum félagasamtök- um og stofnunum lið í einn dag og Alcoa reiðir þá fram rúmar 200 þús- und krónur, eða þrjú þúsund dollara, til viðkomandi aðila. Verkefnin sem styrkt voru með þessum hætti í fyrra voru allt frá því að kenna nemendum og kennurum brunavarnir í skóla í smábæ í Brasilíu til gróðursetningar trjáplantna í Swansea á Bretlands- eyjum. Alls voru greiddar rúmar 50 milljónir króna í fyrra vegna ACT- ION. Bravo-verkefnið miðast við ein- staka starfsmenn Alcoa þar sem greiddar eru um 20 þúsund krónur fyrir hvern þeirra sem vinnur meira en 50 stundir á ári í þágu einhvers málefnis. Alls unnu starfsmennirnir í um 100 þúsund klukkustundir í fyrra og Alcoa greiddi nálægt 40 milljón- um króna fyrir verkefni eins og að gefa heimilislausum heitar máltíðir, þjálfa hunda fyrir blinda, vernda vatnsból og leiðbeina unglingum á glapstigum. Starfsmenn álvers Alcoa í Reyðarfirði Gefst kostur á að vinna sjálfboðaliðastörf

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.