Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 16
ERLENT
16 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
PALESTÍNSKU harðlínusamtökin
Hamas sögðust í gær hafa staðið
fyrir sjálfsmorðstilræði sem varð
Ísraela að bana við landtökubyggð-
ina Ariel á Vesturbakkanum í gær.
Nokkrum klukkustundum fyrr féll
Ísraeli í árás sjálfsmorðingja í bæn-
um Rosh Ha-Ayin í grennd við Tel
Aviv. Talsmenn Palestínustjórnar
fordæmdu sjálfsmorðsárásirnar en
sögðu jafnframt að Ísraelsstjórn
hefði átt upptökin að því að rjúfa
vopnahléið er hún hefði sl. föstudag
sent hermenn til að ráðast á Hamas-
liða í Nablus. Fjórir Palestínumenn
féllu í þeim átökum og einn ísr-
aelskur hermaður.
„Við erum á móti aðgerðum af
þessu tagi en það er augljóst að það
eru Ísraelar sem eiga að sýna meiri
ábyrgðartilfinningu og binda enda á
aðgerðir sínar á Vesturbakkanum
og Gaza,“ sagði ráðherra öryggis-
mála í Palestínustjórn, Mohammad
Dahlan. Hann minnti á árás Ísr-
aelshers á Nablus. „Þið hljótið að
vita að slíkar aðgerðir ala af sér of-
beldi og hvetja til andsvara af hálfu
Palestínumanna,“ bætti hann við.
Frestað að sleppa
föngum úr haldi
Hringt var í fréttamann AFP-
fréttastofunnar í gær og skýrt frá
aðild Hamas að tilræðinu við Ariel.
Sprengjumaðurinn hefði verið 21
árs gamall maður, Islam Yusef
Ekfeshi, frá Nablus. Ekki er enn
vitað hvaða samtök stóðu fyrir til-
ræðinu í Tel Aviv eða hver tilræðis-
maðurinn var.
Ísraelar frestuðu þegar að láta
lausa 69 palestínska fanga sem ætl-
unin hafði verið að fengju frelsi í
gær. „Við getum ekki leyst palest-
ínska fanga úr haldi meðan Palest-
ínustjórn gerir ekkert til að halda
aftur af hryðjuverkamönnum,“
sagði Danny Naveh, heilbrigðis-
málaráðherra Ísraels.
Talsmaður ríkisstjórnarinnar
sagði að sendar hefðu verið viðvar-
anir til Palestínustjórnar um að
hætta væri á hryðjuverkaárásum en
ekkert hefði verið aðhafst. Ísraelar
krefjast þess að Abu Mazen, for-
sætisráðherra Palestínustjórnar,
leggi til atlögu gegn Hamas, Ísl-
amska Jihad og öðrum hryðjuverka-
samtökum en hann óttast að afleið-
ingin geti orðið borgarastyrjöld á
svæðum Palestínumanna.
Þrátt fyrir atburðina á föstudag
lýsti talsmaður Hamas því yfir að
samtökin myndu áfram virða
þriggja mánaða vopnahlé sem nú
hefur staðið að nafninu til í hálfan
annan mánuð. Margir óttast að
átökin undanfarna daga geti valdið
því að friðarumleitanirnar sem
kenndar eru við tillögur stórveld-
anna og Sameinuðu þjóðanna, Veg-
vísi til friðar, renni út í sandinn. Er
bent á að vopnaður armur Hamas,
Essedine al-Qassam-herdeildirnar,
hafi þegar heitið hefndum fyrir
árásina í Nablus og virðist nú hafa
efnt það fyrirheit.
Sjálfsmorðsárásir
ógna friðarferlinu
Reuters
Ísraelskir björgunarmenn kanna aðstæður á vettvangi eftir tilræði í stórmarkaði við bæinn Ha-Ayin í grennd við
Tel Aviv. Sjálfsmorðssprengjumaður grandaði þar sjálfum sér og Ísraela í gær.
Talsmenn Palest-
ínustjórnar segja
Ísraela hafa átt
upptökin með því
að ráðast á bæki-
stöð Hamas-liða
í Nablus
Jenín, Gazaborg, Jerúsalem. AFP.
SAKSÓKNARI á Indónesíu krafðist
í gær 15 ára fangelsisdóms yfir
múslimaklerknum Abu Bakar
Bashir á þeim forsendum að sannað
væri að hann færi fyrir íslömsku
hryðjuverkasamtökunum Jemaah
Islamiyah er ynnu að því að steypa
Indónesíustjórn.
Vitni báru að Bashir sé „emírinn“
í Jemaah Islamiyah, sem vilji stofna
íslamskt ríki á Indónesíu, að sögn
Hasans Madanis saksóknara. Sam-
tökin eru sögð tengjast al-Qaeda og
hafa staðið að sprengjutilræðum á
Balí í október í fyrra er urðu 202 að
bana og ennfremur tilræðinu við
Marriott-hótelið í Jakarta þar sem
11 manns létust, auk fjölda annarra
blóðugra tilræða í landinu.
Bashir neitar því að Jemaah
Islamiyah-samtökin séu til. Í út-
varpsviðtali í gær sakaði hann
bandarísku leyniþjónustuna, CIA,
um að hafa sviðsett tilræðin á Balí
og í Jakarta til að koma óorði á ísl-
am.
Dómarar hafa ekki enn kveðið
upp úrskurð sinn, og þeim er ekki
skylt að fara að kröfu saksóknarans
finni þeir Bashir sekan um landráð,
en hámarksrefsing fyrir þau er 20
ára fangelsi.
Jemaah Islamiyah-samtökin hafa
sett á fót sérstaka sveit 10-15
sjálfsmorðstilræðismanna, að því er
indónesíska fréttatímaritið Tempo
greindi frá í gær. Maður að nafni
Mustofa, sem handtekinn hafi verið
í lögregluaðgerðum í byrjun júlí,
hafi játað að hafa tekið þátt í að
þjálfa „dauðasveitina“. Í frétt
Tempo kom ekki fram hvort aðeins
væri um að ræða eina 10–15 manna
sveit, eða fleiri sveitir sem hver um
sig hefði þetta marga meðlimi.
Fréttin var byggð á heimildum frá
lögreglunni, og sagði heimildar-
maðurinn að meðlimir dauðasveit-
anna væru „vopnaðir, og sérfræð-
ingar í sprengjusmíð“.
Krefjast 15 ára fangelsisdóms
Jakarta. AFP.
Reuters
Indónesíski múslimaklerkurinn Abu Bakar Bashir heldur á ákæru sem gef-
in var út á hendur honum í gær en hann er talinn vera sekur um landráð.
MIKIÐ magn af olíu, eða sem
nemur meira en hundrað
milljón tunnum, fannst á
bændajörð í Hampshire á
Englandi í gær og er talið að
um sé að ræða mikilvægasta
olíufund í Bretlandi í tvo ára-
tugi.
Talsmenn olíuleitarfyrir-
tækisins Pentex Oil UK segja
að olían á svæðinu sé 30%
meiri en í stærstu olíulind
þeirra í landinu sem er í
Stockbrigde auk þess sem
fundurinn sé mikill hvati fyrir
bresk olíuleitarfyrirtæki, að
því er fram kemur á fréttavef
BBC. Fyrirtækið hefur stýrt
forkönnun á svæðinu þar sem
verið er að athuga hvort hægt
verði að hefja olíuvinnslu.
Fyrirtækið vonast til að geta
hafið olíuvinnslu við lok árs-
ins ef niðurstöður rannsókna
reynast jákvæðar.
Mikið
magn olíu
finnst í
Bretlandi
VIÐRÆÐUR um lausn á deilum um
kjarnorkuvopn Norður-Kóreu-
manna munu fara fram í Peking
þann 27.–29. ágúst nk. að því er
AFP-fréttastofan hafði eftir
rússneskum diplómötum í gær.
Aðstoðarforsætisráðherrar sex
þjóða, Bandaríkjamanna, S-Kóreu-
manna, Japana, Kínverja, Rússa og
N-Kóreumanna, koma til með að
taka þátt í viðræðunum.
N-Kóreustjórn hafði þar til fyrr í
þessum mánuði neitað að ræða við
Bandaríkjamenn um deilumál
ríkjanna nema í tvíhliða viðræðum
og hafði þar að auki krafist þess að
Bandaríkin gerðu griðasamning þar
sem því væri heitið að gera ekki árás
á landið.
Norður-Kór-
eu-viðræður
í lok ágúst
Peking. AFP.