Morgunblaðið - 13.08.2003, Side 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FÓTBOLTINN er sívinsæl íþrótt
meðal ungu kynslóðarinnar. Hann
er einnig hin heilbrigðasta útivist
og alltaf þörf á nýjum völlum fyrir
börn að leika sér á. Íþrótta- og tóm-
stundaráð reykjavíkur opnaði í gær
sparkvöll, eða svonefndan batta-
völl, við Réttarholtsskóla, en batta-
völlur er gervigrasvöllur sem er í
handboltavallarstærð, með veggj-
um upp að ákveðinni hæð hringinn í
kringum völlinn. Á vellinum eru
bæði mörk og körfur. Ungir knatt-
spyrnukrakkar úr Víkingi léku
fyrsta leikinn og vígðu þannig völl-
inn til almennrar notkunar.
„Við opnuðum einn battavöll fyr-
ir tveimur árum við Austurbæjar-
skóla og hann hefur reynst okkur
afar vel,“ segir Steinþór Einarsson,
markaðsstjóri Íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur. Steinþór
segir áætlað að byggja fleiri batta-
velli á næstu árum. „Þetta er hugs-
að sem framtíðarleiksvæði fyrir
börnin. Reynslan af vellinum við
Austurbæjarskóla er góð, það er
engin mold og drulla sem krakk-
arnir eru að veltast upp úr þannig
að það er hægt að leika sér þarna
árið um kring. Þetta eru sem sagt
fjölnota útivistarvellir.“
Völlurinn er upphitaður og lýst-
ur með ljósakösturum sem stað-
settir eru á íþróttahúsi Réttarholts-
skóla. Áætlaður kostnaður við
völlinn var um sextán milljónir
króna.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Það skorti ekki einbeitinguna hjá þessum unga fótboltamanni og var ánægjan mikil með nýja íþróttavöllinn.
Ungir Víkingar sprikla og
sparka á nýjum battavelli
Reykjavík
BÓKASAFN Seltirninga var flutt
yfir á efri hæð verslunarkjarnans
við Eiðistorg þann 17. júní síðast-
liðinn. Síðan þá hefur aðsókn á
safnið verið gríðargóð og aukist til
muna frá því sem áður var. Safninu
er ætlað vaxandi þjónustuhlutverk
í bæjarlífi Seltjarnarnesbæjar og
var því eldra húsnæðið farið að
reynast nokkuð þröngt. Verslunar-
menn á Eiðistorgi hafa einnig lýst
yfir ánægju sinni með þessa viðbót
við þjónustukjarnann og fagna þeir
aukinni umferð almennings og þar
með auknum viðskiptum. Tala
sumir þeirra um að Eiðistorg hafi
gengið í endurnýjun lífdaga og
stemningin á torginu sé eins og
þegar það var vígt.
Aðsóknin að bókasafninu hefur í
raun verið langt umfram áætlanir
bókavarða og fjöldi nýrra lánþega í
sumar langt umfram það sem
venjulega gerist. Bæjaryfirvöld
telja að greinilega hafi myndast
þörf fyrir viðameira bókasafn á
Seltjarnarnesi og flutningurinn
hafi komið á hárréttum tíma. Gest-
ir sækja einnig meira í nýja og
breytta þjónustu sem er til staðar
eins og tölvu- og myndbandakost.
Efling safns og miðbæjar
Jónmundur Guðmarsson, bæj-
arstjóri Seltjarnarness, segist afar
ánægður með þessa þróun mála.
„Við fórum sérstaklega í þessa að-
gerð til þess að efla safnið og einnig
til þess að styrkja miðbæinn okkar,
sem hefur átt undir högg að sækja
undanfarin ár. Skemmst er frá því
að segja að bæjarbúar, og vænt-
anlega vesturbæingar líka hafa
tekið þessu einstaklega vel. Að-
sóknin hefur verið fram úr björt-
ustu vonum og gefur tilefni til þess
að ætla að efling bæði safnsins og
Eiðistorgsins hafi tekist vel.“
Morgunblaðið/Arnaldur
Aðstaða bókasafnsins hefur batnað til muna eftir flutninginn.
Aðsókn framar
björtustu vonum
Seltjarnarnes
Bókasafn Seltirninga flutt
MOSFELLINGAR verða að bíða
einhvern tíma með að halda upp á
16 ára afmæli Mosfellsbæjar, en
hátíðahöldum sem áttu að fara
fram síðasta laugardag var frestað
um óákveðinn tíma vegna veðurs.
Mikil dagskrá hafði verið undirbúin
og meðal annars átti að vera varð-
eldur og grill og ýmiss konar uppá-
komur, en veðrið á laugardaginn
setti strik í reikninginn og gerðu
áform Mosfellinga að engu. Þó-
nokkrir harðgerir Mosfellingar
höfðu mætt á afmælishátíðina, en
veðrið reyndist þeim ofjarl að
þessu sinni.
„Við verðum að fresta afmælis-
hátíðinni um einhvern óákveðinn
tíma,“ segir Linda Reynisdóttir,
þjónustustjóri Mosfellsbæjar, en
tekur þó fram að ekki muni líða
langur tími þar til haldið verður
upp á afmælið. „Við þurfum að taka
tillit til menningarnætur í Reykja-
víkurborg sem verður næstu helgi,
en síðan getum við væntanlega far-
ið að hugsa okkur gott til glóð-
arinnar. Þeir sem ekki mættu á
laugardaginn vegna veðurs þurfa
ekki að örvænta yfir því að hafa
misst af neinu, því þetta verður allt
gert með pomp og pragt þegar góð-
ur tími finnst og veðurguðirnir
verða okkur hliðhollir.“
Veðrið
seinkar
afmæl-
ishátíð
Mosfellsbær
SNEMMSUMARS
var opnuð í Mos-
fellsbæ heildsala sem
verslar með alls kyns
gjafa- og skreytingar-
vöru. Skrautfríður
Skreytiskjóða heitir
heildsalan og sérhæfir
hún sig í vörum fyrir
blómabúðir, útstilling-
arglugga verslana,
veitingastaði, veislu-
sali og aðra staði þar
sem aðlaðandi um-
hverfis er þörf.
Linda B. Sverris-
dóttir er eigandi
Skrautfríðar og tekur
hún að sér skreyting-
ar og útstillingar fyrir
fólk, félög og fyrir-
tæki. „Þetta er eitt-
hvað sem er búinn að
vera draumur í dálít-
inn tíma hjá mér, að
fara út í skreytinga-
geirann og lifa á því
að fegra umhverfi.
Mér þótti góð tilhugs-
un að hoppa út af
skrifstofunni og fara
að gera eitthvað skapandi.“
Skreytingaþjónusta
fyrir alla
Linda hefur sótt mörg nám-
skeið, meðal annars í skreytingum
og gluggaútstillingum og segist
hún hafa fundið sig í heimi skreyt-
inga og fegrunar. „Við opnuðum
hér 18. júní og síðan hafa viðtök-
urnar verið afar góðar auk þess
sem þetta hefur spurst mjög vel út
og fólk er sérstaklega forvitið um
þessa heildsölu.
Þótt ég þurfi að einskorða sjálfa
vörusöluna við önnur fyrirtæki,
stendur skreytingaþjónustan til
boða fyrir alla, einstaklinga jafnt
sem aðra aðila.“
Linda segir allt opið í skreyt-
ingum og miklar tískusveiflur ríkja
í þeim málum. „Allt er leyfilegt
þegar kemur að því að setja upp
áhugaverðar skreytingar, þrátt
fyrir að sumir hlutir komi og fari,
og þá er það fyrst og fremst til-
efnið og hugmyndaauðgin sem
ræður ferðinni.“
Hugmyndaauðgin
ræður ferðinni
Skreytingar Lindu eru af margvíslegum toga,
bæði litríkar og aðlaðandi.
Mosfellsbær
Heildsala með gjafa- og skreytinga-
vöru opnuð í Mosfellsbæ
ÁFORM eru uppi um nýtt útibú
Borgarbókasafns í Árbæjarhverfi.
Útibúið verður á efri hæð Hraunbæj-
ar 119.
Að sögn Önnu Torfadóttur borgar-
bókavarðar hafa íbúar Árbæjar beðið
eftir þessu safni í tvo áratugi og þörf-
in verið afar brýn. „Íbúar í hverfinu
hafa ýtt mikið á eftir þessu og sýnt
útibúinu mikinn áhuga.“ Árbæjarbú-
ar hafa um langa hríð þurft að nýta
sér þjónustu bókasafnsins í Gerðu-
bergi og Foldasafns í Grafarvogs-
kirkju, auk þess sem bókabíll hefur
þjónað hverfinu, en nú horfir til
breytinga á þessu ástandi.
Anna segir að hægt eigi að vera að
opna nýja útibúið snemma árs 2004,
ef allur undirbúningur gangi vel. „Það
þarf að kaupa bækur og annan safn-
kost auk innréttinga, tölva og tækja.
Húsnæðið er fallegt, gott og bjart
auk þess sem það er rúmgott, um 530
fermetrar og ætti því að geta þjónað
íbúum Árbæjar vel. Það er einnig í
þjónustukjarna, miðsvæðis í Árbæn-
um og aðgengið er mjög gott.“
Mikil breidd þjónustu
Í safninu verður hægt að fá mynd-
bönd, DVD-diska og tónlist að láni
auk þess sem netaðgangur verður í
boði eins og í öðrum söfnum Borg-
arbókasafnsins. „Við tölum oft um
raunbókasafnið sem eru bækurnar,
tímaritin og allt sem hægt er að taka
út, og síðan sýndarbókasafnið sem er
á Netinu, því þar má finna ógrynni
upplýsinga. Menn tala gjarnan um að
nútímabókasöfn séu blendingsbóka-
söfn, þ.e.a.s. bæði raun- og sýndar-
bókasöfn.“
Hlutverk bókasafna hefur þannig
víkkað mjög undanfarin ár og er starf
bókavarða orðið mun fjölbreyttara en
áður. „Flestir sem koma í fyrsta
skipti á bókasafn eru alveg steinhissa
á því úrvali þjónustu og upplýsinga
sem er í boði. Margir gera sér ekki
grein fyrir þeirri breidd sem er í
bókasöfnum í dag.“
Nýtt bóka-
safn í Árbæ
Reykjavík