Morgunblaðið - 13.08.2003, Page 31
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 31
Elskulega mamma
og amma okkar var
fædd hinn 13. ágúst og
í tilefni af því langar
okkar að minnast
hennar með þessum ljóðum:
Þerraðu tárin þess er grætur,
þvoðu kaun hins særða manns.
Sendu inn í sérhvert hjarta
sólargeisla kærleikans.
(Höf. ók.)
Elskulega amma njóttu
eilíflega Guði hjá,
umbunar þess, er við hlutum
ávallt þinni hendi frá.
Þú varst okkar ungu hjörtum,
eins og þegar sólin hlý
vorblómin með vorsins geislum
vefur sumarfegurð í.
Hjartkæra amma, far þú í friði,
föðurlandið himneskt á,
þúsundfaldar þakkir hljóttu
þínum litlu vinum frá.
Vertu sæl um allar aldir,
alvaldshendi falin ver,
inn á landið unaðsbjarta,
englar Drottins fylgi þér.
(Höf. ók.)
Kristín og Guðný.
Elsku mamma mín. Mig langaði
að senda hér gamalt ljóð sem ég fann
í kommóðuskúffunni þinni. Ljóð sem
hafði verið gert fyrir þig er þú varðst
fimmtug.
SIGRÚN
STEFÁNSDÓTTIR
✝ Sigrún Stefáns-dóttir fæddist í
Landbrotum í Kol-
beinsstaðahreppi í
Hnappadalssýslu 13.
ágúst 1940. Hún and-
aðist 18. apríl síðast-
liðinn og var útför
hennar gerð í kyrr-
þey frá Garðakirkju
25. apríl.
Þú ert móðir mín vænsta
og besta,
þú ert vorkoman lífinu í
og vináttuböndin ei bresta
þó baði okkur mótlætis
ský.
En öll él birtir upp um síðir
og sólin á móti oss hlær
svo baða okkur geislarnir
blíðir
er göngum við stíginn við
tvær.
Og brátt munu bjöllurnar
hljóma,
ég býð þér í afmælisdans
og síðustu söngraddir óma
söngraddir almúgans.
(Sigríður Klingenberg.)
Ég veit að þér líður vel núna,
mamma mín, og það er það eina sem
skiptir máli.
Þín dóttir,
Sesselja Sigríður.
Elsku amma mín hefði orðið 63
ára í dag.
Minningarnar streyma í gegnum
huga minn og ég veit varla hvar ég á
að byrja. Þó að við værum ekki oft
sammála lærði ég rosalega mikið af
henni. Líf hennar var ekki alltaf
dans á rósum, en alltaf hafði hún yfir
sér þennan drottningarþokka.
Amma hafði sérstakt dálæti á hröfn-
um. Ég man að hún sankaði stund-
um að sér svínaspiki til að færa
hröfnunum og þá var viðkvæðið hjá
henni alltaf: „Guð launar fyrir hrafn-
inn.“ Það var eins og með hrafninn
að enginn fór út svangur frá ömmu.
Við vorum ekki alltaf sammála í póli-
tískum umræðum og stundum varð
okkur heitt í hamsi í þeim viðræðum.
En amma hafði skýrar skoðanir á
öllu. Hún smjaðraði ekki fyrir nein-
um og lét fólk hafa það óþvegið, ef
því var að skipta. Hún var fædd í
ljónsmerkinu, falleg, hnarreist og
skoðanamikil. Í mínum huga er
heimurinn svo sannanlega fátækari
án hennar.
Ég vildi ég gæti og mætti svo margt,
sem mér finnst að þyrfti að gera,
sem gæti engan skaðað, og gott er og
þarft,
en Guð hefur samt látið vera.
Þá skyldi ég létta þau mannanna mein,
sem meiningarlaust er að bera,
og kasta af brautinni burtu þeim stein,
sem beið þar, en átti ekki að vera.
(Sigurður Jónsson.)
Sigrún Erla.
Okkur langar að skrifa svo margt
um þig, elsku amma Rúna, en orðin
standa í hálsinum og tárin hrynja
niður kinnar okkar. Þú sem gafst
okkur svo mikla hlýju og fölskva-
lausa vináttu. Þú hefðir átt afmæli í
dag og hugsum við öll hlýtt til þín.
Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér,
– hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sæludraumur hár,
minn sáttmáli við Guð um þúsund ár.
(H. Laxness.)
Kveðja.
Þín dóttir og barnabörn,
Marta, Stefán og Arna.
✝ Ásta Kristjáns-dóttir Wiium
fæddist í Fagradal í
Vopnafirði 16. desem-
ber 1920. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Skjóli hinn 4. ágúst
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru
Kristján Wiium Níels-
son, f. 23. apríl 1881,
d. 1. júní 1932, og
Oddný Wiium Sveins-
dóttir, f. 26. maí 1884,
d. 2. maí 1976, þau
voru bændur í Fagra-
dal. Ásta var næst-
yngst fimm systra, þeirra Svein-
bjargar Ingileifar, f. 22. febrúar
1907, Þórdísar, f. 23. maí 1910, og
Guðbjargar Ólafar, f. 29. júlí 1914
en þær eru báðar látnar, og Elsu
Kristínar, f. 29. desember 1923.
Ásta fluttist til Reykjavíkur í
seinna stríði og lærði saumaskap
hjá Henný Ottóson auk þess að
vinna í blómabúðinni Flóru. Hún
hélt síðar saumanámskeið í Vest-
mannaeyjum, á Seyðisfirði og fleiri
stöðum.
Hinn 29. desember 1948 giftist
Ásta Hauki Snorrasyni, f. 14. júlí
1917, frá Eskifirði. Foreldrar hans
voru Snorri Jónsson, kaupmaður á
Eskifirði, f. 2. júlí 1885, d. 8. janúar
1959, og Stefanía Stefánsdóttir,
húsmóðir, f. 14. september 1891, d.
4. febrúar 1981. Ásta
og Haukur eignuðust
fimm börn. Þau eru:
1) Oddný Halla, f. 25.
apríl 1949, sambýlis-
maður hennar er Sig-
urður Jónsson. 2)
Snorri, f. 20. júlí
1950, fyrrverandi
eiginkona hans er
Hulda Ragnarsdóttir
og synir þeirra eru
Ragnar, Haukur og
Atli, sambýliskona
Snorra er Soffia E.
Egilsdóttir. 3) Stefán
Örn, f. 30. janúar
1954, sambýliskona hans er Helga
Rúna Gústafsdóttir og dætur
þeirra Hrefna, Berglind Sunna og
Birna. 4) Margrét Hafdís, f. 27.
ágúst 1956, eiginmaður hennar er
Friðrik Þ. Stefánsson og sonur
þeirra Elvar Örn. 5) Ásta Kristín, f.
10. júní 1964, sonur Ástu og Ugga
Jónssonar er Egill, sambýlismaður
hennar er Kristján G. Arngríms-
son og dóttir þeirra Margrét
Kristjánsdóttir.
Ásta vann sem saumakona með
húsmóðurstarfinu lengi framan af
en seinni árin ýmis störf hjá heil-
brigðisstofnunum, síðast á geð-
deild Borgarspítalans í Arnarholti.
Útför Ástu verður gerð frá Há-
teigskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Með örfáum orðum langar mig að
kveðja þig, elsku mamma mín. Mig
langar til að þakka þér fyrir allar þær
góðu minningar sem þú hefur gefið
mér. Þegar ég var barn varst þú allt-
af til staðar fyrir okkur systkinin,
reiðubúin að hugga og kæta. Ég sofn-
aði út frá röddinni þinni eða suðinu í
saumavélinni þar sem þú sast við að
sauma föt á okkur systkinin eða kjól á
einhverja frúna. Ég vaknaði aftur að
morgni við röddina þína eða suðið í
saumavélinni eða ryksugunni þar
sem þú varst að þrífa. Þú varst alltaf
til staðar. Þú tókst mig í fangið og
huggaðir ef ég var sorgmædd og
bentir mér á jákvæðu og skoplegu
hliðarnar á málunum. Þú kenndir
mér að sauma á brúðurnar mínar og
síðar á sjálfa mig. Í fyrsta skiptið sem
ég fór til útlanda fórst þú með mér og
við skemmtum okkur konunglega
saman. Við fórum líka oft saman í
göngutúra og þá þurfti ég að hafa
mig alla við því þú varst svo frá á fæti.
Þú varst mikill náttúruunnandi og
fannst ekkert betra en að ganga um
heiðar og dali. Þegar við fórum sam-
an í ferðalög hér heima áttir þú til að
gleyma þér í gönguferð uppi á ein-
hverri heiðinni og ég man alltaf hvað
ég varð fegin þegar þú komst aftur.
Síðustu árin varstu mikið veik en
þrátt fyrir það var alltaf stutt í kímn-
ina og stríðnina og alltaf gátum við
fundið hvað þér þótti vænt um okkur.
Mig langar líka til að þakka þér,
elsku mamma, fyrir allar góðu minn-
ingarnar sem þú hefur gefið drengn-
um mínum sem alltaf var svo velkom-
inn hjá ykkur pabba og fyrir þá hlýju
og þann heiðarleika sem ég veit að þú
átt stóran þátt í að rækta með hon-
um.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson.)
Þegar mér gekk illa að sofna sem
barn hafðir þú þessa ljúfu bæn yfir og
straukst ennið á mér. Þá ég leið inn í
draumalandið. Með henni langar mig
að kveðja þig, elsku mamma.
Ég vil biðja góðan Guð að styrkja
föður minn, systkini mín, fjölskyldur
okkar og alla ástvini.
Takk fyrir allt.
Margrét Hafdís.
Mamma mín.
Ég hefi þekkt marga háa sál,
ég hefi lært bækur og tungumál
og setið við lista lindir.
En enginn kenndi mér eins og þú
hið eilífa og stóra, kraft og trú,
né gaf mér svo guðlegar myndir.
(M. Joch.)
Þakka þér fyrir, mamma, minning
þín lýsir mér og mínum.
Ásta Kristín.
ÁSTA KRISTJÁNS-
DÓTTIR WIIUM
MINNINGARGREINUM þarf
að fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar og
hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til að
þetta komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum.
Formáli
minning-
argreina
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
INGA P. SÓLNES,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
mánudaginn 11. ágúst síðastliðinn.
Júlíus Sólnes, Sigríður María Sólnes,
Gunnar Sólnes, Margrét Kristinsdóttir,
Jón Kr. Sólnes, Halla Baldursdóttir,
Inga Sólnes, Jón Sigurjónsson,
Páll Sólnes, María Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona, systir, móðir, tengdamóðir
og amma okkar,
RAGNHILDUR GESTSDÓTTIR,
Snældubeinsstöðum,
Reykholtsdal,
lést á Dvalarheimili aldraða Borgarnesi mið-
vikudaginn 30. júlí síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Helgi Magnússon,
Jóhannes Gestsson,
Gestur Helgason, Anna Karen Kristinsdóttir,
Þóra Helgadóttir, Jón Dan Einarsson,
Arnheiður Helgadóttir, Árni Múli Jónasson,
Magnea Helgadóttir, Guðjón Guðmundsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og tengda-
móðir,
GUÐLAUG SIGRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR,
Þórunnarstræti 134,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánu-
daginn 11. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánu-
daginn 18. ágúst kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Minningarsjóð F.S.A.
Gunnlaugur Guðmundsson,
Jóhanna Kristín Gunnlaugsdóttir, Gestur Geirsson,
Anna Soffía Gunnlaugsdóttir, Friðrik G. Guðnason.
Móðir okkar,
SIGURLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Brúnastöðum,
Skagafirði,
sem andaðist fimmtudaginn 31. júlí sl., verður
jarðsungin að Víðimýri föstudaginn 15. ágúst
og hefst athöfnin kl. 14.00.
Sigurður Sigurðsson,
Stefán Oddgeir Sigurðsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓN MAGNÚSSON
frá Geirastöðum,
Kleppsvegi 132,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu, Reykjavík, þriðjudaginn
12. ágúst.
Jarðarförin auglýst síðar.
Kristín H. Aspar,
Kristbjörg Jónsdóttir, Jón G. Sigurjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.