Morgunblaðið - 13.08.2003, Síða 34
MINNINGAR
34 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Bragi Rafn Guð-mundsson fædd-
ist í Reykjavík 24.
janúar 1928. Hann
lést í Fredrikshavn í
Danmörku 7. ágúst
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Jó-
hanna Sigurðardótt-
ir húsmóðir, f. 27.2.
1896, d. 14. septem-
ber 1961, og Guð-
mundur Valdemar
Tómasson bifreiða-
stjóri, f. 13.9. 1896,
d. 3 4. 1987. Bragi
var sjöundi í röð 12
systkina, en börn þeirra Jóhönnu
og Guðmundar eru: Margrét f.
29.3. 1919, d. 1997, Sigríður
Fjóla, f. 6.9. 1920, Unnur Hrefna,
f. 13.3. 1922, d. 1996, Jóhannes
Hörður, f. 28.10. 1923, d. 29.10.
1998, Dóra Björg, f. 3.2. 1925,
Valdemar Númi, f. 17.6. 1926, d.
14.3. 1972, Bragi Rafn, f. 24.1.
1928, d. 7.8. 2003, Hafdís Hanna,
f. 2.11. 1930, Auður Berþóra, f.
1.11. 1931, Skarphéðinn, f. 29.4.
1933, Ragnheiður Erna f. 17.2.
1935, Elísa Edda, f. 11.7. 1936.
Árið 1948 gekk Bragi að eiga
fyrri konu sína, Lilian Agnetu
Mörk, f. í Þórshöfn í Færeyjum
25. maí 1926. (Þau skildu 1961).
Saman áttu þau sjö börn. Þau eru:
1) Valdimar, búsettur á Selfossi,
f. 31.8. 1948, kvæntur Hafdísi
Marvinsdóttur og eiga þau fjóra
syni og þrjú barnabörn. 2) Jó-
hannes Hörður, búsettur í Eng-
landi, f. 6.1. 1950, kvæntur El-
ísabeth Bragason hann á fjögur
börn og þrjú barna-
börn. 3) Jóhanna
Sigurbjörg, búsett í
Texas, f. 6.8. 1953,
gift Joseph Mond-
rago hún á þrjú
börn og þrjú barna-
börn. 4) Jón Sverrir,
búsettur í Reykja-
vík, f. 24.5. 1955,
kvæntur Ragnheiði
Viðarsdóttur, hann
á þrjú börn. 5) Ester
Sunrid, búsett í Dan-
mörk, f. 17.10. 1957,
gift Lars Rokjær,
hún á þrjú börn. 6)
Ingibjörg Rakel, búsett í Reykja-
vík, f. 16.8. 1959. 7) Ari Mörk, bú-
settur í Reykjavík, f. 1.5. 1961,
kvæntur Lísu Bragason og eiga
þau eitt barn.
Seinni kona Braga var Guðrún
Andrésdóttir, f. í Fredrikshavn í
Danmörku 19. nóvember 1935, d.
29. mars 1989. Þeirra börn eru: 1)
Ragnar Rafn, búsettur í Noregi, f.
14.5. 1961, og á hann tvö börn. 2)
Hafsteinn, búsettur í Brasilíu, f.
23.1. 1963, kvæntur Lenu Braga-
son og eiga þau fjögur börn.
Bragi Rafn ólst upp í Reykjavík
og bjó þar lengst af og einnig í
Hveragerði. Hann fór ungur að
aka vörubíl og vann lengi við
akstur hjá Vegagerðinni en var
einnig til sjós. Árið 1977 fluttist
hann með seinni konu sinni til
Danmerkur og bjó í Fredrikshavn
upp frá því.
Útför Braga var gerð frá
Fladestrandskirke í Fredriks-
havn þriðjudaginn 12. ágúst.
Þegar við bræður fréttum lát föð-
ur okkar sl. fimmtudag, 7. ágúst,
ákváðum við strax að vitna í minn-
ingargrein til kvæðis Jóns Helgason-
ar, Áfangar, þar sem segir:
Séð hef ég skrautleg suðræn blóm
sólvermd í hlýjum garði;
áburð og ljós og aðra virkt
enginn til þeirra sparði;
mér var þó löngum meir í hug
melgrasskúfurinn harði,
runninn upp þar sem Kaldakvísl
kemur úr Vonarskarði.
En það var þannig með pabba að
seinasta aldarfjórðunginn sem hann
lifði bjó hann erlendis, fjarri fjöllum
og ósnortinni íslenskri náttúru, sem
var honum mjög kær. Þegar fundum
okkar bar saman hafði hann jafnan á
hraðbergi hendingar og kvæði þar
sem stórbrotinni náttúru Íslands er
lýst og Áfangar voru í sérstöku
uppáhaldi hjá honum. Töfrum Ís-
lands hafði hann kynnst óvenju vel á
fyrri helmingi ævi sinnar þegar hann
vann hjá Vegagerðinni á vegheflum
og snjóplógum og síðar sem flutn-
ingabílstjóri og fór með vélar og efni
víða um land um vegi og vegleysur.
Einnig vann hann lengi við virkjana-
framkvæmdir á hálendinu þannig að
staðir þeir sem nefndir eru í Áföng-
um voru honum vel kunnir. Þá
þekkti hann sjómennskuna býsna vel
því marga túra fór hann á Græn-
landsmið og til Nýfundnalands.
Hann var t.d. á togaranum Jóni
Baldvinssyni er hann strandaði við
Reykjanes, en þar björguðust allir
giftusamlega.
Pabbi hafði iðulega samband sím-
leiðis við börn sín hér uppi á Íslandi
og innti eftir líðan ættingja og vina,
spurði um ganginn í fótboltanum og
veiðinni, en þar var hann sérstaklega
áhugasamur og fylgdist vel með afla-
brögðum. Dýrmætar minningar eig-
um við bræður er við dvöldum með
pabba á fjöllum við veiðar í nóttlausri
veröld. Þær stundir eru ógleyman-
legar enda mörg atvik þar efra inn-
bundin í rím og stuðla, því hann átti
auðvelt með að kasta fram stökum á
góðum stundum. Þá var hann ótrú-
lega fróður um landið, staðhætti og
sögu jafnt í óbyggðum og í byggð og
hafði gaman af að miðla því. Tengdi
það gjarnan skemmtilegum frásögn-
um af atburðum sem höfðu hent
hann á ferðum sínum.
Eftir að hann flutti út með seinni
konu sinni kom hann nokkrum sinn-
um heim til Íslands í stuttar heim-
sóknir. Þá voru fagnaðarfundir.
Einnig voru þau einstaklega elsku-
leg heim að sækja og stóð heimili
þeirra opið öllum vinum og vanda-
mönnum.
Seinustu misserin í lífi pabba voru
honum erfið, aleinn dvaldi hann veik-
burða fjarri ættingjum og vinum, en
ekki var kvartað. Hann bar þrautir
sínar í hljóði og við slíkar aðstæður
er dauðinn líkn.
Nú þegar kveðjustundin er runnin
upp hefðum við auðvitað viljað eyða
meiri tíma með föður okkar en raun
varð á, en atvikin höguðu því svo að
þess var ekki kostur. Við kveðjum
hann með virðingu og þökk og send-
um ástvinum hans öllum samúðar-
kveðjur.
Valdimar og Jón Sverrir
Bragasynir og fjölskyldur.
BRAGI RAFN
GUÐMUNDSSON
Þó að ég vissi, að
Jóna Kristín væri hald-
in alvarlegum sjúk-
dómi, kom mér andlát
hennar á óvart. Ég var
staddur í flugvél til
Stokkhólms 25. júlí, er ég las andláts-
fregn hennar í Morgunblaðinu. Hún
lést í Landspítalanum tveimur dögum
á undan réttra 70 ára. Varð það ein-
mitt þremur vikum fyrir andlát sitt.
Ekki varð henni aldurinn að meini,
fremur en mörgum sem við lesum um
í blöðunum við leiðarlok.
JÓNA KRISTÍN
BJARNADÓTTIR
✝ Jóna KristínBjarnadóttir
fæddist í Bæ í Hrúta-
firði 2. júlí 1933. Hún
lést á líknardeild
Landspítala í Landa-
koti 23. júlí síðastlið-
inn og var útför
hennar gerð frá Há-
teigskirkju 1. ágúst.
Kynni mín af Jónu
Kristínu voru orðin
nokkur. Ég var ná-
granni hennar í höfuð-
borginni og einnig fé-
lagsmaður í hópi, sem
hún veitti forstöðu um
skeið, Kvöldvökufélag-
inu Ljóði og Sögu, og
starfaði um fjóra ára-
tugi; stofnað 1961. Jóna
stjórnaði lengi kór, sem
varð til innan félagsins
og nefnist Kvöldvöku-
kórinn. Hefur hann
mikið látið að sér kveða,
bæði innan félagsins
Ljóðs og Sögu og á opinberum vett-
vangi. Kórinn sendi frá sér tvo geisla-
diska, 1995 og 2000. Bera þeir heitin
„Blíður sunnanblær“ og „Gullnu
vængir“ Eru á þeim alls 35 valin lög,
innlend og erlend. Jóna Kristín safn-
aði saman völdu söngfólki, körlum og
konum, og vann merkilegt menning-
arstarf, sem ekki gleymist. „Sumir
deyja og síðan ekki söguna meir, –
aðrir með söng, er aldrei deyr“, orti
Þorsteinn Valdimarsson skáld eftir
vin sinn, Inga T. Lárusson tónskáld.
Með söngstjórn Kvöldvökukórsins og
útgáfu fyrrnefndra geislaplatna hefur
Jóna Kristín reist sér óbrotgjarnan
minnisvarða. Einmitt meðan ég er að
skrifa þessi minningarorð um mæta
konu og lífsstarf hennar, hlýði ég á
söng Kvöldvökukórsins, og rifjast þá
upp ótal góðar stundir, þegar Jóna
Kristín kom fram með kórinn sinn og
skemmti félagsmönnum Ljóðs og
Sögu. Mikið starf liggur að baki jafn
fáguðum og tilþrifamiklum söng og
Kvöldvökukórinn flutti um tvo ára-
tugi. Söngstjórinn var vel menntaður
á sínu listasviði og hugsjónin djörf og
lifandi. Dugnaður Jónu Kristínar var
einstakur og áhuginn ríkur. Hann
lyfti undir kórfélagana að gera jafn
vel og raun ber vitni. Mikill mann-
skaði hefur orðið við andlát Jónu
Kristínar Bjarnadóttur. Hún lifir hins
vegar í verkum sínum og í hugum
samstarfsfólks um langt árabil.
Hennar verður því lengi minnst.
Blessuð sé minning hennar.
Auðunn Bragi Sveinsson.
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minn-
ing@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og
grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi
þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að
símanúmer höfundar og/eða sendanda
(vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem
pláss er takmarkað getur þurft að fresta birt-
ingu greina, enda þótt þær berist innan hins
tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á
mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist
formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á
útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera
lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bil-
um) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksenti-
metrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi.
Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN JÓNSSON
fyrrv. verkstjóri hjá Eimskip,
Austurbyggð 17,
Akureyri,
sem lést mánudaginn 4. ágúst, verður
jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn
15. ágúst kl. 13.30.
Guðný Jónsdóttir, Knútur Óskarsson,
Oddný H. Jónsdóttir, Jón H. Lárusson,
Karla H. Karlsdóttir,
afabörn og langafabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma
og systir,
ÁLFHILDUR GUNNARSDÓTTIR,
Núpskötlu,
Melrakkasléttu,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Húsavík,
að kvöldi þriðjudagsins 5. ágúst sl.
Útförin fer fram frá Snartarstaðakirkju fimmtu-
daginn 14. ágúst kl. 14.00.
Haraldur Sigurðsson, Hulda Berglind Valtýsdóttir,
Jón Sigurðsson, Hrafnhildur Einarsdóttir,
Vigdís Valgerður Sigurðardóttir, Eiríkur Kristjánsson,
Kristbjörg Sigurðardóttir, Óli Björn Einarsson,
ömmubörn, langömmubörn
og Halldóra Gunnarsdóttir.
Elskuleg sambýliskona mín og móðir,
SIGURLAUG GUÐJÓNSDÓTTIR,
Asparfelli 2,
Reykjavík,
sem varð bráðkvödd á heimili sínu, verður
jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn
15. ágúst kl. 15.00.
Eyjólfur Þorsteinsson,
Haukur Haraldsson og fjölskylda.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT SIGRÚN BJARNADÓTTIR,
Akraseli 18,
andaðist á heimili sínu 8. ágúst sl.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 15. ágúst nk. kl. 15.00.
Nanna Mjöll Atladóttir,
Gyða Björk Atladóttir,
Edda Hrönn Atladóttir, Arnór Sighvatsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
GUÐRÚN SUMARLIÐADÓTTIR,
Vesturbergi 143,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 14. ágúst kl. 13.30.
Kristín Hinriksdóttir og fjölskylda,
Ragnheiður Hinriksdóttir, Örn Andrésson og fjölskylda.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og
afa,
ÓLA JÓHANNESAR SIGURÐSSONAR,
Hauksstöðum,
Jökuldal.
Guðný Guðmundsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
LEGSTEINAR
Mikið úrval af legsteinum
og fylgihlutum
Sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, sími 587 1960
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít