Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 41
DAGBÓK
Dagskrá:
Fimmtudagur, 21. ágúst 2003:
Kl. 8.30: Skráning þátttakenda hefst.
Kl. 10.45: Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, setur ráðstefnuna.
Karlakórinn Fóstbræður syngur nokkur lög. Stjórnandi Árni Harðarson.
Kl. 11.45: Hádegisverður.
Kl. 13.30: Ráðstefnuerindi - tveir vinnuhópar:
Vinnuhópur I: Rätten til domstolsprövning när
forvaltningen är passiv.
Framsögumaður: Dr. Outi Suviranta (Finnlandi).
Andmælandi: Eiríkur Tómasson (Ísland).
Fundarstjóri: Claes Nilas (Danmörku).
Vinnuhópur II: Uavhengige forvaltningsorganer.
Framsögumaður: Eivind Smith (Noregi).
Andmælendur: Anders Lindbom (Svíþjóð) og
Kristján Andri Stefánsson (Íslandi).
Fundarstjóri: Matti Niemivuo (Finnlandi).
Kl. 16.00: Lok fyrri ráðstefnudags.
Kl. 19.30: Hátíðarkvöldverður á Hótel Selfossi.
Danshljómsveit og skemmtiatriði.
Skemmti- og skoðunarferðir maka og annarra sem ekki taka þátt í vinnuhópum
hefjast kl. 13.00. Farið frá Hótel Selfossi.
Föstudagur, 22. ágúst 2003:
Kl. 10.00: Ráðstefnuerindi - þrír vinnuhópar:
Vinnuhópur III: Offentligt erstatningsansvar -
udvikling i det sidste år.
Framsögumaður: Jakob R. Möller (Íslandi).
Fundarstjóri: Skúli Magnússon (Íslandi).
Vinnuhópur IV: Avtalet som styrmedel i offentlig sektor - faror och
möjligheter ur konstitutionellt perspektiv.
Framsögumaður: Thomas Bull (Svíþjóð).
Andmælandi: Dr. Olli Måenpåå (Finnlandi).
Fundarstjóri: Annemor Kalleberg (Svíþjóð).
Vinnuhópur V: Ombudsmandens tilsyn med kommunerne.
Framsögumaður: Hans Gammeltoft-Hansen (Danmörk).
Andmælendur: Arne Fliflet (Noregi)
og Tryggvi Gunnarsson (Ísland).
Fundarstjóri: Hans Ragnemalm (Svíþjóð).
Kl. 12.15: Hádegisverður.
Kl. 13.30: Almennt efni og umræður:
Almennt efni: Den Europeiske Menneskerettighetskonvensjon m.v. -
utfordringer for de nasjonale forvaltningsorganer.
Framsögumaður: Sven Ole Fagernæs (Noregi).
Fundarstjóri: Björn Friðfinnsson (Ísland).
Kl. 15.15: Ráðstefnuslit.
Kl. 17.00: Skemmti- og skoðunarferð fyrir þátttakendur og maka.
Kvöldverður á Stokkseyri.
Heimasíða ráðstefnunnar: www.congress.is/naf. Þar er hægt að
nálgast allar upplýsingar og skrá sig til þátttöku. Einnig er hægt að
senda rafpóst á birna@congress.is og robertrs@hi.is
Dagskrá 27. almenna ráðstefna
Norræna stjórnsýslusambandsins
(Nordisk Administrativt Forbund),
Hótel Selfossi, 21.-22. ágúst 2003.
EFTIRLIT MEÐ STJÓRNSÝSLUNNI: RÉTTARÚRRÆÐI
OG RÉTTARÖRYGGI
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Þig skortir ekki athyglis-
gáfur, sem að sama skapi
auka á vit þitt. Þú hefur mikið
siðferðisþrek og íhugar þætti
lífsins vandlega. Þú hneigist
til lista og þín bíður hlutverk
lærimeistara eða leiðtoga.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Í dag sækir á þig löngun til
daðurs og glens. Af þeim sök-
um skaltu gæta þess að gefa
þér tíma til notalegrar einveru.
Farðu í bíó, íþróttir eða hittu
vin.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú færð góðar hugmyndir í dag
um hvernig þú getur fegrað
umhverfi þitt. Gerðu það sem
þú getur en ekki kaupa hús-
muni í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hraður lífstíll þinn heldur þér
á þönum í dag. Ekki gera stór-
innkaup eða taka mikilvægar
ákvarðanir í dag því hlutirnir
eru á iði.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þó að í dag sé dagur sköpunar
er dagurinn fjárhagslega nei-
kvæður. Ekki fallast á nokkurn
hlut í dag og ekki skrifa undir
samninga.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Í dag er slæmur dagur til að
versla. Það sem þú getur gert
eða átt frumkvæðið að mun lík-
lega valda vonbrigðum. Svo ef
þú kaupir eitthvað mun það
varla koma þér að notum í
framtíðinni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Dagurinn í dag hentar vel til
rannsókna og sköpunar. En
dagurinn hentar illa til að gera
skuldbindingar, sérstaklega
við fjölskyldumeðlimi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ef þú fæst við hóp fólks í dag
skaltu ekki fallast á skilafresti
eða markmið. Hikaðu ekki við
að ræða málin en bíddu til
morgundagsins með ákvarð-
anir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Aðrir gefa orðum þínum gaum
í dag því þú ert í sterkri stöðu í
starfi. Það er áríðandi að sjá að
í dag er ekki dagurinn til að
taka mikilvægar ákvarðanir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Á þig sækir ferðalöngun og
vilji til að taka þátt í útgáfu-
málum, fjölmiðlun og fást við
framandi lönd. Þó að tímasetn-
ingin sé góð skaltu forðast
ákvarðanir um þessi mál.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú einbeitir þér að skriffinsku
og fjármálum í dag, eins og
skuldum, tryggingamálum,
lánum og erfðamálum. Gættu
þess bara að skrifa undir mik-
ilvæg skjöl í dag.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Samræður við förunauta þína
eru mikilvægar í dag. Í dag er
rétti tíminn til að tjá hug sinn,
en ekki samþykkja nokkurn
hlut.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Haltu áfram að leggja hart að
þér við vinnuna og skipulegðu
þig heima og í vinnunni. Ef þú
þarft að kaupa eitthvað til að
ná þessum markmiðum, bíddu
þá með það til morgundagsins.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HALLGRÍMUR PÉTURSSON
Atburð sé ég anda mínum nær,
aldir þó að liðnar séu tvær.
Inn í dimmt og hrörlegt hús ég treð.
Hver er sá, sem stynur þar á beð?
Maðkur og ei maður sýnist sá.
Sár og kaun og benjar holdið þjá,
blinda hvarma baða sollin tár,
berst og þýtur yfir höfði skjár.
Hár er þétt og hrokkið, hvítt og svart,
himinhvelft er ennið, stórt og bjart,
hvöss og skörp og skýrleg kinn og brún,
skrifað allt með helgri dularrún.
– – –
Matthías Jochumsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
50 ÁRA afmæli. Fimm-tugur er í dag, mið-
vikudaginn 13. ágúst, Bjarni
M. Guðmundsson, Garða-
braut 3, Akranesi. Hann og
eiginkona hans Þórlína
Sveinbjörnsdóttir taka á
móti gestum á Hlöðum á
Hvalfjarðarströnd laugar-
daginn 16. ágúst frá kl. 20.
90 ÁRA afmæli. Mar-grét Þórunn Helga-
dóttir frá Þyrli í Hvalfirði,
Árskógum 8, er níræð í dag,
miðvikudaginn 13. ágúst.
Eiginmaður hennar Ragnar
Þorgrímsson, frá Laugar-
nesi, lést árið 2000. Hún
verður með heitt á könnunni
fyrir ættingja og vini frá kl.
16 á afmælisdaginn, í saln-
um, Árskógum 6–8. Hún af-
þakkar gjafir og blóm, en
hlýtt handtak er velþegið.
LÍKINDAFRÆÐIN
kemur oft á óvart. Suður
spilar þrjú grönd og þarf
fjóra slagi á líflitinn, sem er
K9 í blindum og ÁGxxx
heima.
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ Á863
♥ Á53
♦ K9
♣8732
Suður
♠ K4
♥ K62
♦ ÁG643
♣K54
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 tígull
Pass 1 spaði Pass 1 grand
Pass 2 grönd Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Vestur kemur út með
laufdrottningu og austur
tekur með ás og spilar laufi
um hæl. Suður dúkkar, fær
næsta slag á laufkóng, en
austur hendir hjarta.
Jæja, nú er að fara í tíg-
ulinn. Á að taka á kónginn
og svína gosanum eða spila
litlu á níuna?
Fjórir slagir nást aldrei
ef liturinn brotnar illa, 6-0
eða 5-1. Þeim möguleikum
má því henda út um
gluggann. Ennfremur fást
alltaf a.m.k. fjórir slagir í
3-3 legunni. Samanburð-
urinn snýst því um 4-2 leg-
una. Byrjun á D10xx. Ef
austur á slíkan lit verður að
taka kónginn og svína gos-
anum, en ef hann er í vestur
þarf að spila á níuna. Þessi
lega sléttast því út.
Þá er 10x og Dx. Þar
koma fjórar legur við sögu
og þær eru settar upp í AV
hér að neðan:
Norður
♠ Á863
♥ Á53
♦ K9
♣8732
Vestur Austur
(1) 10x (1) Dxxx
(2) Dx (2) 10xxx
(3) 10xxx (3) Dx
(4) Dxxx (4) 10x
Suður
♠ K4
♥ K62
♦ ÁG643
♣K54
(1) Báðar leiðir skila 4
slögum.
(2) Nauðsynlegt að spila
litlu á níuna.
(3) Báðar leiðir skila 4
slögum.
(4) Hvorug leiðin skilar
fjórum slögum (það vantar
áttuna).
Niðurstaðan er því sú að
rétt er að spila litlu á níuna
og það ræðst af möguleika
(2). Líkur á fjórum slögum
eru annars 68%.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 g6 3. d4 Bg7
4. dxc5 Da5+ 5. Rc3 Bxc3+
6. bxc3 Dxc3+ 7. Bd2 Dxc5
8. Bd3 d6 9. 0-0 Rf6 10. Bh6
Rbd7 11. Hb1 Rg4 12. Bg7
Hg8 13. Bd4 Dh5 14. Be2
Dh6 15. Bb5 f6 16. h3
Rge5 17. Bxe5 fxe5
18. Dd5 Hf8
Staðan kom upp í
stórmeistaraflokki
alþjóðlegs skákmóts
í Árósum í Dan-
mörku sem lauk fyr-
ir skömmu. Pólska
skákkonan Johanna
Dworakowska
(2.382) hafði hvítt
gegn Karsten Ras-
mussen (2.437).
Svartur hafði ásælst
peð snemma tafls og
látið undir höfuð
leggjast að sinna liðsskipan
sinni. Hvítur refsaði honum
fyrir þetta með snotrum
hætti. 19. Rxe5! dxe5 20.
Hfd1 Hf6 21. Bxd7+ Bxd7
22. Dxd7+ Kf8 23. Dxb7
He8 24. Dxa7 Df4 25. f3
Hc6 26. Hb8 Df7 27. Da8
Hxb8 28. Dxb8+ Kg7 29.
Dxe5+ og svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
NÝLEGA héldu þrjár ungar stúlkur hlutaveltu á Ak-
ureyri til styrktar barnadeild FSA og söfnuðust 5.571
kr. Á myndinni eru tvær stúlknanna, Bryndís Pálína
Jóhannsdóttir og Eydís Ósk Jóhannsdóttir, en á mynd-
ina vantar Ölmu Karen Sverrisdóttur.
HLUTAVELTA
Þá það, frú mín góð. Þetta
var mín sjúkdómsgrein-
ing. Hvernig hljóðar þín?
KIRKJUSTARF
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir
taka við fyrirbænum í síma 520 9700.
Hallgrímskirkja. Morgunmessa kl. 8.
Hugleiðing, altarisganga, léttur morgun-
verður.
Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl.
11. Súpa og brauð borið fram í Setrinu
kl. 12. Brids í Setrinu kl. 13–16. Kvöld-
bænir kl. 18.
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl.
10 undir stjórn Aðalbjargar Helgadóttur.
Gönguhópurinn Sólarmegin leggur af
stað frá kirkjudyrum kl. 10.30 alla mið-
vikudagsmorgna undir stjórn Arnar Sig-
urgeirssonar. Öllu fólki velkomið að
slást í hópinn.
Óháði söfnuðurinn: Fjölskylduferð í Við-
ey kl. 18.30. Mæting á bryggju í Sunda-
höfn með nesti.
Neskirkja: Fyrirbænamessa kl. 18.
Prestur sr. Örn Bárður Jónsson.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta
kl. 12.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í
dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir
hjartanlega velkomnir. Tekið á móti fyrir-
bænaefnum í kirkjunni í síma
567 0110.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar í safn-
aðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 10–12.
Hittumst og spjöllum. Heitt á könnunni
og djús fyrir börnin. Allir foreldrar vel-
komnir með eða án barna.
Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj-
unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyr-
irbænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í
Ljósbroti Strandbergs.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgn-
ar í dag kl. 10–12.
Lágafellskirkja. AA-fundur kl. 20.30 í
Lágafellskirkju. Unnið í 12 sporunum.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar
í síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Lofgjörð, lestur orðsins, fróð-
leikur og samvera. Allt ungt fólk velkom-
ið.
Kristniboðssalurinn, Samkoma í kvöld
kl. 20.
„Sælir eða vansælir“. Lúk. 6,20–26,
ræðumaður Birna G. Jónsdóttir.
Kaffiveitingar eftir samkomuna. Allir
hjartanlega velkomnir.
Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21.
Safnaðarstarf