Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 13.08.2003, Blaðsíða 42
ÍÞRÓTTIR 42 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ  STEVE Bruce, knattspyrnustjóri Birmingham, mun á næstu dögum skrifa undir nýjan fimm ára samning við félagið. Bruce náði frábærum ár- angri með nýliða Birmingham á síð- asta tímabili þegar liðið endaði í 13. sæti í ensku úrvalsdeildinni. Birming- ham hefur verið duglegt að fá nýja leikmenn í sumar en tólf nýir leik- menn mæta til leiks með liðinu þegar deildin byrjar um næstu helgi.  BARCELONA hefur fengið varnar- manninn Mario að láni frá Valladolid. Mario er 21 árs gamall og ef hann stendur sig vel hjá Barcelona kaupir liðið hann líklega eftir næsta tímabil. Hann er annar varnarmaðurinn sem kemur til liðs við Barcelona en Rafael Marquez gekk til liðs við félagið fyrr í sumar.  DAVE Jones, knattspyrnustjóri Wolves, mun að öllum líkindum ganga frá kaupum á franska miðju- manninum Olivier Echouafni frá Rennes. Jones hefur þegar fengið sjö nýja leikmenn til liðs við sig en Úlf- arnir leika nú í efstu deild í fyrsta skipti í 19 ár.  WBA verður að greiða Stoke 300.000 pund eða sem svarar 38 millj- ónum króna fyrir James O’Connor, nái hann að spila 30 leiki fyrir félagið. Sérstakur félagaskiptadómstóll enska knattspyrnusambandsins ákvað þetta. Nái O’Connor að vinna sér sæti í írska landsliðinu þarf WBA að greiða Stoke 50.000 pund til við- bótar.  ROMAN Abramovich hinn rússneski eigandi Chelsea segir í við- tali við breska blaðið The Sun að hann geri sér grein fyrir því að velgengni Chelsea á knattspyrnuvellinum verði ekki til á einni nóttu þrátt fyrir að fé- lagið hafa sankað að sér afburða- knattspyrnumönnum. Abramovich, sem hefur keypt nýja leikmenn fyrir um 9 milljarða íslenskra króna, segir að tíma geti tekið að stilla liðið saman og menn verði að vera þolinmóðir.  RÚMENINN Dan Petrescu, fyrr- um bakvörður hjá Chelsea, hefur lof- að stuðningsmönnum Lundúnaliðsins að landi sinn, Adrian Mutu, eigi eftir að skora mörg mörk fyrir félagið á komandi tímabili en Chelsea innsigl- aði samning við Mutu í fyrradag og greiddi Parma 15,8 milljónir punda. „Mutu er mjög hæfileikaríkur. Hann er fljótur, mikill markaskorari og er ákaflega sparkviss,“ segir Petrescu.  MUTU er 24 ára gamall og skoraði 18 mörk fyrir Parma í ítölsku A-deild- inni á síðustu leiktíð og varð annar markahæsti leikmaður deildarinnar á eftir Christian Vieri.  EVERTON hefur gengið frá kaup- um á kínverska landsliðsmanninum Li Tie. Tie, sem var í láni hjá Everton á síðustu leiktíð, hann gerði þriggja ára samning við þá bláklæddu. FÓLK Hluti íslenska hópsins heldur ut-an á sunnudag en það verður ekki fyrr en síðdegis á mánudaginn sem allur hópurinn kemur saman í Þórs- höfn þar sem sex úr 18 manna landsliðs- hópnum verða í eld- línunni með liðum sínum á sunnu- dag. Arnar Grétarsson, Arnar Þór Viðarsson, Rúnar Kristinsson og Marel Baldvinsson leika á sunnudag með Lokeren á móti Standard, Eið- ur Smári Guðjohnsen með Chelsea gegn Liverpool og Hermann Hreið- arsson leikur sinn fyrsta leik fyrir Charlton þegar liðið mætir Man- chester City. Tilbúnir með varaplan „Jú, auðvitað er maður með í maganum hvernig strákunum reiðir af en við verðum bara að taka á því ef eitthvað kemur upp. Við erum með varaplan og erum tilbúnir í að kalla menn í hópinn ef eitthvað fer úrskeiðis. Við vonumst eftir því að strákarnir sem spila á sunnudegin- um verði allir í góðu standi þegar þeir koma til Færeyja,“ sagði Ás- geir í samtali við Morgunblaðið. Ásgeir og Logi Ólafsson völdu á dögunum 18-manna hóp en Ásgeir segir að þeir séu með nokkur nöfn á blaði til vara ef einhver forföll kunna að verða í hópnum. Pétur H. Marteinsson er líklega á blaði landsliðsþjálfaranna en Ásgeir sá Pétur leika mjög vel fyrir Stoke á móti Derby um liðna helgi og sagð- ist Ásgeir vona að Pétur fengi að spreyta sig áfram hjá liðinu. Ásgeir sagði að undirbúningurinn fyrir þennan mikilvæga leik gegn Færeyingum væri ekki sá allra heppilegasti en við þessu væri ekk- ert að gera. „Við hefðum að sjálfsögðu kosið að fá allan hópinn saman á sunnu- daginn í stað þess að fá hluta hans á mánudaginn eftir að hafa verið bú- inn að spila leik á sunnudeginum. Undirbúningurinn riðlast óhjá- kvæmilega og æfingarnar fyrir leik- inn verða færri en við hefðum kosið. Ég á ekki von á að við getum æft all- ir saman fyrr en á þriðjudeginum þar sem við viljum fara hægt í sak- irnar með strákana sem spila á sunnudag.“ Það hefur ekki komið til tals að fá leiknum hjá Lokeren frestað eða færðan til þar sem fjórir landsliðs- menn eru til staðar? „Það er bara ekkert hægt. Við hefðum getað fengið frestun á leikn- um ef hann hefði verið á leikdegi hjá okkur en svo er ekki. Þegar spilað er helgina á undan landsleik er ekk- ert hægt að hrófla við hlutunum. Ég hef samt engar áhyggjur af þessum leikmönnum sem eiga leik á sunnu- deginum. Þeir eru vanir svona törn- um og eiga að vera vel undirbúnir. Auðvitað geta komið upp meiðsli en hvað líkamlegt form varðar þá held ég að þeir verði klárir í átökin við Færeyinga.“ Lárus Orri ætti að verða klár Lárus Orri Sigurðsson varð fyrir meiðslum í baki í leik með WBA á móti Walsall á laugardag en Ásgeir er vongóður um að Lárus verði klár í slaginn fyrir Færeyjaleikinn. „Við töluðum við Lárus í gær. Það kom í ljós að taug í baki hans klemmdist og hann hefur verið í meðferð hjá hnykkjara. Við munum fylgjast með gangi mála hjá honum í vikunni en við gerum fastlega ráð fyrir því að hann verði í lagi.“ Þegar 18 manna-hópurinn sem þeir Ásgeir og Logi Ólafsson völdu fyrir átökin við Færeyinga er skoð- aður kemur í ljós að tveir leikmenn hafa lítið spilað í sumar, Árni Gaut- ur Arason og Jóhannes Karl Guð- jónsson. Árni fékk að vísu að spreyta sig í deildarleik með Rosen- borg á dögunum en hann hefur að mestu vermt varamannabekkinn og framtíð Jóhannesar Karls er í lausu lofti hjá Real Betis. Jóhannes lék æfingaleik með Dortmund fyrir skömmu en hefur lítið leikið meira en það. Skoðum Jóhannes „Ég er svekktur yfir stöðu Jó- hannesar og þetta getur sett strik í reikninginn að hann skuli ekki vera búinn að koma sér í leikform. Við vitum hins vegar alveg hvaða kar- akter Jói hefur að geyma og við munum skoða ástand hans þegar við komum saman.“ „Við sem stýrum liðinu og strák- arnir gerum okkur vel grein fyrir mikilvægi leiksins við Færeyinga. Með sigri skjótumst við í toppsæti riðilsins og eigum í vændum tvo úr- slitaleiki við Þjóðverja. Það er því mikið í húfi og ég trúi ekki öðru en að menn leggist á eitt og sæki þau stig sem eru í boði í Færeyjum. Það er alveg ljóst að við verðum að hafa fyrir hlutunum og það er engin spurning í mínum huga að við erum að fara út í mjög erfiðan leik. Fær- eyingum hefur fleygt fram og við vitum að þeir koma til með að leggja allt í sölurnar til að leggja okkur að velli. Þá hefur dreymt um það í mörg ár að sigra Ísland og ég tala nú ekki um í stórkeppni á borð við þessa. Við Logi settum okkur mark- mið þegar við tókum við liðinu að fá níu stig út úr leikjunum tveimur við Færeyjar og Litháen og í versta falli sjö. Sex stig eru komin í hús og það er góður möguleiki að fá fullt hús en til þess verðum við að ná fram góð- um leik í Þórshöfn. Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari um viðureignina við Færeyinga í Þórshöfn Undirbúningurinn ekki sá heppilegasti ÁSGEIR Sigurvinsson, lands- liðsþjálfari í knattspyrnu, segist krossleggja fingur og vonast til þess að landsliðsmennirnir sleppi heilir frá leikjum helgar- innar en eftir rétta viku mætast Íslendingar og Færeyingar í undankeppni Evrópumótsins í Þórshöfn í Færeyjum. Leikurinn er Íslendingum ákaflega mikil- vægur en með sigri skjótast þeir upp fyrir Þjóðverja í efsta sæti riðilsins en Íslendingar og Þjóðverjar eiga eftir að leiða saman hesta sína tvívegis, á Laugardalsvelli 6. september og í Þýskalandi 11. október. Guðmundur Hilmarsson skrifar Morgunblaðið/Arnaldur Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson. TVEIR landsliðsmenn Færeyja, Jákup á Borg og Fróði Benjamin- sen, eru í leikbanni og leika því ekki með Færeyingum gegn Íslend- ingum Evrópuleikinn í Þórshöfn miðvikudaginn 20. ágúst. Henrik Larsen, landsliðsþjálfari Færeyja, hefur valið einn nýliða í lands- liðshóp sinn, Tór-Ingar Akselsen úr HB og þá hafa Hans Fróði Hansen úr B68 og Helgi L. Petersen, NSÍ, verið valdir á ný í hópinn. Landsliðshópur Færeyja er þannig skipaður, að verkverðir verða Jákup Mikkelsen, Partick Thistle og Jens Martin Knudsen, NSÍ Aðrir leikmenn: Óli Johannesen, TB Jóhannis Joensen, FS Vágar Jón Rói Jacobsen, Brøndby Hans Fróði Hansen, B68 Pól Thorsteinsson, B36 Atli Danielsen, KÍ Súni Olsen, GÍ Tór-Ingar Akselsen, HB Julian Johnsson, ÍA Jann Ingi Petersen, B68 Rógvi Jacobsen, HB Hjalgrím Elttør, KÍ Helgi L. Petersen, NSÍ Christian Høgni Jacobsen, Vejle Andrew av Fløtum, HB John Petersen, B36. Færeyingar hafa leikið tvo leiki heima í EM. Skotar náðu þar jafn- tefli á elleftu stundu, 2:2, og Þjóð- verjar fögnuðu sigri með tveimur mörkum á lokamínútunum, 2:0. Tveir Færeyingar verða í leikbanni TVEIR leikmenn úr úrvalsdeild karla voru í gær úrskurðaðir í eins leiks bann af aga- nefnd KSÍ vegna fjög- urra gulra spjalda. Það voru þeir Gestur Gylfason úr Grindavík og Guðfinnur Ómars- son úr Þrótti. Báðir taka þeir bannið út í 14. umferð deildar- innar, Gestur gegn FH á sunnudaginn og Guðfinnur gegn Fylki á mánudaginn. Sex leikmenn úr 1. deild fengu bann og auk þess Guðjón Björnsson, aðstoðarþjálfari HK, sem var úrskurðaður í tveggja leikja bann. Leikmennirnir eru Andri Sveinsson og Edilon Hreinsson úr Haukum og Ólafur Gunnarsson úr Stjörnunni vegna fjög- urra gulra spjalda og þeir Olgeir Sigurgeirsson, Breiðabliki, Árni Thór Guðmundsson, Leiftri/ Dalvík, og Stefán Egg- ertsson, HK, vegna brott- vísana. Þá voru tveir leikmenn úr úrvalsdeild kvenna úr- skurðaðir í eins leiks bann vegna brottvísana. Það voru þær Guðrún Sveins- dóttir úr FH og Guðrún Inga Sívertsen úr Þrótti/Haukum en þær taka báðar út bannið í leikjum liða sinna í kvöld. Gestur og Guðfinnur í banni í 14. umferðinni Gestur Gylfason REIKNAÐ er með að um 20.000 manns verði á Britannia- leikvangnum í Stoke í kvöld þegar heimamenn í Stoke taka á móti Englandsmeisturum Manchester United í vináttuleik, sem er jafnframt er fjáröflunarleikur. Þetta verður lokahnykkur í undirbúningi Manchester United fyrir leiktíðina en liðið tekur á móti Bolton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeild- arinnar á laugardaginn. Sir Alex Ferguson mun væntanlega tefla fram sínu sterkasta liði til að byrja með en hann mun svo gera breytingar á liði sínu þegar á leikinn líður. Ef að líkum lætur fær Pétur Hafliði Marteinsson að spreyta sig gegn Ruud Van Nistelrooy og samherjum hans í Unit- ed-liðinu, en Pétur átti mjög góðan leik þegar Stoke lagði Derby í fyrstu umferð 1. deildarinnar um liðna helgi, 3:0. Spurn- ingin er hvort að Pétur Hafliði feti í fót- spor Guðna Bergssonar, fyrrverandi fyr- irliða Bolton, og haldi Van Nistelrooy niðri? Lokaundirbúningur Man. Utd gegn Stoke Pétur Hafliði Marteinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.