Morgunblaðið - 13.08.2003, Qupperneq 43
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 43
ENSKU meistararnir í Man-
chester United innsigluðu í gær
samning við portúgalska táninginn
Christiano Ronaldo og skrifaði
hann undir fimm ára samning við
félagið. Ronaldo, sem er 18 ára
gamall framherji, kemur til Man-
chester United frá Sporting
Lissabon og er hann fimmti leik-
maðurinn sem Sir Alex Ferguson
fær til liðs við sig fyrir tímabilið.
Hinir fjórir eru Eric Djemba-
Djemba, David Bellion, Tim How-
ard og Brasilíumaðurinn Kleberson,
sem einnig skrifaði undir fimm ára
samning í gær.
DAVE Jones, knattspyrnustjóri
Wolves, heldur áfram að safna liði
og ætlar að kaupa tvo nýja leik-
menn á næstu dögum. Olivier Echo-
uafni, miðvallarleikmaður hjá
franska liðinu Ranners, er við æf-
ingar hjá Úlfunum, sem vilja fá Lu-
cien Mettomo, varnarmann og
landsliðsmann Kamerún, frá Man-
chester City. Þá er miðherjinn Kris
Boyd, 21 árs, leikmaður skoska liðs-
ins Kilmarnock, við æfingar hjá
Wolves.
SÆNSKI handknattleiksmaður-
inn Stefan Lövgren hjá Kiel í
Þýskalandi meiddist illa á fæti á æf-
ingamóti um sl. helgi. Hann var
lagður inn á sjúkrahús og aðgerð
gerð. Lövgren, sem er 32 ára og
hefur leikið 215 landsleiki fyrir
Svía, verður frá keppni í fjórar til
sex vikur. Þess má geta að Kiel lék
til úrslita við Gummersbach á
mótinu og mátti þola tap, 30:28.
ROMAN Abramovic, eigandi
Chelsea, er langt frá því að vera
hættur að kaupa nýja leikmenn til
félagsins. Nú er Rússinn nýríki
sagður hafa augastað á landa sínum
Alexei Smertine, 28 ára gömlum
varnarmanni sem leikur með Bord-
eaux í Frakklandi. Franska íþrótta-
blaðið L’Equipe segir Abramovich
mikinn aðdáanda Smertine, sem á
að baki 29 landsleiki fyrir Rússa.
FJÓRIR fyrrverandi Evrópu-
meistarar verða í eldlínunni í kvöld í
3. umferð undankeppni Meistara-
deildar Evrópu í knattspyrnu sem
er síðasta hindrunin áður en að
riðlakeppninni kemur. Liðin fjögur
sem öll hafa hampað Evrópumeist-
aratitli eru Benfica, Celtic, Mars-
eille og Dortmund.
BENFICA, sem varð meistari
1961 og 1962, á erfiðan leik fyrir
höndum á móti Lazio í Róm. Dort-
mund, sem fagnaði sigri árið 1997, á
í höggi við Club Brügge í Belgíu.
Marseille, sem fagnaði sigri 1993,
fer til Austurríkis og leikur gegn
Austria Vín. Þá mætir Celtic, sem
varð Evrópumeistari bikarhafa
1967, MTK Budapest frá Ungverja-
landi.
FÓLK
Morgunblaðið/Kristján Bernburg
Íslensku landsliðsmennirnir hjá Lokeren ásamt Paul Put, þjálfara liðsins. Marel Baldvinsson, Arnar Grétarsson, Arnar Þór Við-
arsson, fyrirliði liðsins og Rúnar Kristinsson. Þeir leika tvo leiki með Lokeren áður en þeir mæta til landsleiksins í Færeyjum.
Leikmenn Chelsea héldu fráLondon í gær Slóvakíu. Með í
för voru flestar skærustu stjörnur
liðsins, en eins og flestir vita hafa
margir nýir leikmenn bæst í leik-
mannahóp Chelsea frá því Rússinn
Roman Abramovich keypti félagið.
Frakkarnir William Gallas og
Emmanuel Petit verða ekki með
þar sem þeir eru meiddir. Heldur
ekki Króatinn Mario Stanic og Hol-
lendingurinn Boudewijn Zenden, en
þeir hafa verið á sjúkralistanum.
Það kemur ekki að sök því leik-
mannahópur Lundúnaliðsins er gíf-
urlega öflugur enda búið að fjár-
festa í nýjum leikmönnum fyrir um
9 milljarða króna.
Stuðningsmenn Chelsea bíða
mjög spenntir eftir því að sjá Arg-
entínumanninn Juan Sebastian
Veron í sínum fyrsta leik fyrir fé-
lagið, eins og Joe Cole. Claudio
Ranieri, knattspyrnustjóri Chelsea,
hefur úr vöndu að ráða með að stilla
upp byrjunarliði enda mannvalið
mikið.
Leikmannahópur Chelsea í leikn-
um í kvöld er þannig skipaður:
Carlo Cudicini, Glen Johnson,
Marcel Desailly, Frank Lampard,
Jimmy Floyd Hasselbaink, Joe
Cole, Damien Duff, Geremi, Mario
Melchiot, Wayne Bridge, Juan Seb-
astian Veron, Eiður Smári Gudjo-
hnsen, John Terry, Jesper Gronkja-
er, Carlton Cole, Ambrosio.
Það er skammt stórra högga á
milli hjá Chelsea en á sunnudag
mætir liðið Liverpool á Anfield í 1.
umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Zilina-liðið lék stífan varnarleik
þegar það sló út Maccabi Tel Aviv
frá Ísrael á dögunum. Leikmenn
liðsins fögnuðu sigri heima, 1:0, en
jafntefli varð í seinni leiknum, sem
fór fram í Búdapest í Ungverja-
landi, 1:1. Þjálfari Zilina er Milan
Lesivky og er hann fjórði þjálfari
liðsins á einu ári, þannig að einhver
undiralda er í herbúðum þess.
Besti leikmaður liðsins undanfar-
in ár, Marek Mintál, var seldur til
Nürnberg í Þýskalandi fyrir nokkr-
um vikum, en í stað hans kom Bras-
ilíumaðurinn Orshtes Junior Alves,
sem var keyptur frá Santos.
Það er ekki reiknað með að leik-
menn liðsins verði erfið fyrirstaða
fyrir leikmenn Chelsea.
Hvað gerir
Chelsea í
Slóvakíu?
Reuters
Eiður Smári Guðjohnsen er hér kominn fram hjá Sinisa Miahjl-
ovic, leikmanni Lazio, í æfingaleik í sumar í Róm, en Miahjlovic
tók til þess ráðs að fella Eið Smára.
EIÐUR Smári Guðjohnsen og félagar hans í „milljarðaliði“ Chelsea
verða í eldlínunni í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í Slóvakíu
kvöld en þá mæta þeir MSK Zilina í fyrri leik liðanna í 3. umferð
undankeppni Meistaradeildarinnar. Leikurunn fer fram í Zilina, sem
er þriðja stærsta borg Slóvakíu með um 870 þús. íbúa og er um 150
km norðaustur af Bratislava, við landamæri Póllands. Leikið verður
á Pod Dubnom-vellinum, sem tekur aðeins 6.311 áhorfendur.
SKÍÐASAMBAND Íslands hefur
gert samning við sænska skíða-
sambandið fyrir hönd Dagnýjar
Lindu Kristjánsdóttur um að hún
æfi með sænska heimsbikarliðinu
í vetur. Dagný er þegar búin að
vera við æfingar í Sviss og er hér
í stuttu stoppi. Dagný fer af landi
brott á morgun og kemur ekki til
landsins fyrr en um jól vegna æf-
inga og keppni sem fram undan
er.
Á nýútkomnum heimslista
alþjóðaskíðasambandsins hefur
Dagný stórbætt stöðu sína og er
fremst Íslendinga. Hún er númer
86 í risastórsvigi, 101 í bruni og
207 í stórsvigi.
Dagný æfir
með Svíum í
vetur
ÞAÐ er ljóst að Steve McManam-
an, fyrrverandi landsliðsmaður
Englands og Liverpool, á ekki
lengur framtíð fyrir sér hjá Real
Madrid. Búið er að tilkynna hon-
um að hann sé ekki inn í framtíð-
arplaninu á Bernabeu. Jorge
Valdano, ráðgjafi hjá Real, segir
að liðið bíði eftir að selja nokkra
leikmenn áður en nýir verða
keyptir, en það er ljóst að Spán-
armeistararnir þurfa á sterkum
varnarmanni að halda til að koma
inn fyrir Fernando Hierro, fyrr-
verandi fyrirliða, sem fékk ekki
nýjan samning eftir sl. keppnis-
tímabil. Real var búið að tryggja
sér Argentínumanninn Gabriel
Milito, en hann féll síðan á lækn-
isskoðun.
Miklar líkur eru á að McMan-
aman, 31 árs miðvallarleikmaður,
haldi heim á ný. Everton og Man-
chester City vilja fá hann til sín.
McManaman og nokkrir aðrir
leikmenn Real sem fóru með liðinu
í Asíuferðina, fengu ekki að
spreyta sig og þá var ljóst að þeir
áttu enga framtíð fyrir sér. Allt frá
því að hann fór frá Liverpool í júlí
1999, án þess að Liverpool fengi
krónu fyrir hann, hefur McMan-
aman átt í erfiðleikum með að
tryggja sér fasta stöðu í liði Real
og nú þegar David Beckham er
kominn til Real, er framtíð
McManaman ráðin.
Spánverjinn Pedro Munitis, sem
er einnig miðvallarleikmaður, á
heldur ekki framtíð fyrir sér hjá
Real og ljóst að þeir félagar haldi
á braut á næstu dögum.
Real vill losna við McManaman