Morgunblaðið - 13.08.2003, Qupperneq 44
ÍÞRÓTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
AIK hóf deildakeppnina í vormeð látum og eftir átta um-
ferðir var liðið á toppnum en held-
ur hefur hallað undan fæti hjá
Stokkhólmsliðinu. Liðið hefur að-
eins innbyrt fimm stig í síðustu
átta leikjum og hefur þar að leið-
andi sigið niður töfluna.
Mikil meiðsli hafa herjað á leik-
mannahóp AIK á tímabilinu og
það ásamt leikbönnum er skýr-
ingin á hversu hallað hefur undan
fæti hjá liðinu. Eins og fram kem-
ur annars staðar í blaðinu er
þekktasti leikmaður liðsins, Andr-
eas Andersson, á sjúkralistanum,
og þjálfari liðsins, Englendingur-
inn Richard Money, hefur nær
undantekningalaust þurft að gera
hrókeringar á liði sínu á milli
leikja.
Að mati sænskra sparkspekinga
hafa vandamál AIK-liðsins verið
mest á miðsvæðinu og eins hefur
markaskorunin verið áhyggjuefni
liðsins. Til að sporna við þessum
vandamálum fékk AIK tvo leik-
menn frá Ghana til liðs við sig á
dögunum, framherja og miðju-
mann, og er þeim ætlað að hressa
upp á sóknarleik liðsins. Kwame
Quanash er framherjinn sem kom
frá AIK og miðjumaðurinn er Der-
ek Boateng landsliðsmaður, sem
ekki kemur þó til að leika á móti
Fylkismönnum þar sem hann er
ekki orðinn löglegur.
Hefur leikið tvo
Evrópuleiki á Íslandi
AIK, sem kemur frá Solna, út-
borg Stokkhólms, hefur tvívegis
mætt íslenskum liðum í Evrópu-
keppninni. Í fyrra mætti það ÍBV í
UEFA-bikarnum og hafði AIK
betur í báðum leikjunum á móti
Eyjamönnum, 2:0, á heimavelli og
3:1 í Eyjum. Árið 1996 lenti AIK í
kröppum dansi á móti KR-ingum.
AIK vann 1:0 á Laugardalsvelli en
1:1 jafntefli varð niðurstaðan á
Råsunda, heimavelli AIK.
Mótherjar Fylkis á niðurleið?
SÆNSKA liðið AIK frá Stokkhólmi, andstæðingur Fylkismanna í
UEFA-bikarnum annað kvöld, hefur um árabil verið í fremstu röð í
sænsku knattspyrnunni og hefur tíu sinnum hampað meistaratitl-
inum, síðast 1998 og sjö sinnum bikarmeistaratitlinum, síðast
1999. AIK er sem stendur í sjötta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar
eftir 1:1 jafntefli við Halmstad í fyrrakvöld. AIK hefur 25 stig eftir 16
leiki og er tólf stigum á eftir forystusauðunum í Djurgården.
MAGNÚS Lárusson, kylfingur úr
GKj, tapaði á átjándu holu fyrir
Craig Vaugh á Meistara-
móti ungra áhugamanna
sem haldið er þessa dagana
í Liverpool. Magnús er þar
með úr leik en hann, ásamt
Inga Rúnari Gíslasyni,
þjálfara sínum, verður í
Bretlandi fram á sunnudag
og ætla þeir að bregða sér
aðeins í golf.
„Ég fer reyndar í átján
holu höggleik á morgun, en
það er mót fyrir þá sem
féllu út í fyrstu umferð-
inni,“ sagði Magnús í samtali við
Morgunblaðið í gær.
„Þetta var ekki minn dagur og
auk þess spilaði mótherjinn mjög vel
þannig að ég svekki mig ekkert á
þessu. Hann átti tvær holur
eftir níundu og hélt því þar
til hann vann fimmtándu og
átti þá þrjár. Ég vann næstu
tvær og hann átti því eina
þegar ein hola var eftir. Ég
hitti brautina vel og átti
góða möguleika á að jafna
en þá skellir hann sér fet frá
pinna og klárar þetta bara,“
sagði Magnús.
Keppendur á mótinu eru
256 og koma víða að úr
heiminum, en aldurs-
takmarkið er átján ár. Leikin er
holukeppni þar til tveir eru eftir á
sunnudaginn og þá lýkur mótinu.
Magnús úr leik
í Liverpool
Magnús
Lárusson
KNATTSPYRNA
3. deild karla A
Númi - Drangur.................................... 5:2
Staðan:
Víkingur Ó 13 11 2 0 47:12 35
Skallagr. 14 9 2 3 44:23 29
Númi 13 8 3 2 39:26 27
BÍ 13 6 2 5 26:28 20
Grótta 12 3 2 7 16:19 11
Drangur 13 3 1 9 22:43 10
Bolungarvík 13 2 2 9 29:46 8
Deiglan 13 2 2 9 24:50 8
Víkingur Ó. og Númi eru komin í 8-liða
úrslit.
3. deild karla B
Árborg - Hamar.................................... 4:2
Reynir S. - Afríka ................................. 8:1
Freyr - Ægir......................................... 1:0
Staðan:
Leiknir R. 13 12 1 0 64:10 37
Reynir S. 13 10 2 1 56:8 32
ÍH 13 7 1 5 32:28 22
Árborg 13 6 3 4 46:28 21
Freyr 13 6 0 7 19:42 18
Hamar 13 4 1 8 26:45 13
Afríka 13 1 1 11 12:52 4
Ægir 13 1 1 11 10:52 4
Leiknir R. og Reynir S. eru komin í 8-
liða úrslit.
3. deild karla C
Neisti H. - Hvöt .................................... 3:1
Vaskur - Magni ..................................... 0:1
Snörtur - Reynir Á. .............................. 1:1
Staðan:
Vaskur 14 10 1 3 39:19 31
Magni 14 8 3 3 39:20 27
Reynir Á 14 6 5 3 23:19 23
Hvöt 14 5 4 5 26:18 19
Neisti H. 14 4 2 8 30:42 14
Snörtur 14 0 3 11 16:55 3
Vaskur og Magni eru komin í 8 liða úr-
slit.
3. deild karla D
Huginn - Einherji ................................. 4:5
Leiknir F. - Neisti D. ........................... 3:6
Staðan:
Fjarðabyggð 14 10 0 4 39:15 30
Höttur 14 9 2 3 33:14 29
Huginn 14 6 0 8 30:37 18
Einherji 14 5 1 8 24:35 16
Neisti D. 14 5 1 8 23:41 16
Leiknir F. 14 5 0 9 31:38 15
Fjarðabyggð og Höttur eru komin í 8
liða úrslit.
Í 8 liða úrslitum mætast:
Númi - Vaskur
Magni - Víkingur Ólafsvík
Reynir S. - Fjarðabyggð eða Höttur
Höttur eða Fjarðabyggð - Leiknir R.
Það eina sem útkljá þarf í lokaumferð
3. deildar um næstu helgi er hvort
Fjarðabyggð eða Höttur vinnur D-riðil-
inn.
Intertotokeppni Evrópu
Úrslit, fyrri leikir:
Pasching - Schalke .............................. 0:2
Hamit Altintop 19., Victor Agali 47.
Heerenveen - Villarreal ...................... 1:2
Ballestreros 25. (sjálfsm.) - Calleja 13.,
Victor 44.
Perugia - Wolfsburg............................ 1:0
Bothroyd 39.
Sigurvegarar úr þessum viðureignum
komast í 1. umferð UEFA-bikarsins.
Meistaradeild Evrópu
Undankeppni 3. umferð, fyrri leikir:
Dynamo Kiev - Dinamo Zagreb.......... 3:1
Fedorov 32., Leko 38., Gusev 82. -
Kranjcar 41.
Grazer AK - Ajax ................................. 1:1
Pogatetz 56. - Sneijder 79.
Celta Vigo - Slavia Prag ..................... 3:0
Mostovoi 17., Jesuli 50., Edu 55.
UEFA-bikarinn
Forkeppni, fyrri leikir:
Haka - Hajduk Split ............................. 2:1
Valetta - Neuchatel Xamax.................. 0:2
Sarajevo - Sartid Smederevo............... 1:1
Svíþjóð
Hammarby - Sundsvall ........................ 5:0
Staðan:
Djurgården 17 12 1 4 40:16 37
Hammarby 17 10 4 3 29:16 34
Halmstad 17 9 3 5 29:19 30
Malmö 17 8 5 4 30:16 29
Örgryte 17 8 2 7 26:29 26
AIK 17 7 4 6 25:22 25
Helsingborg 16 7 3 6 16:23 24
Gautaborg 16 6 4 6 22:16 22
Örebro 17 6 4 7 20:24 22
Landskrona 17 5 6 6 17:22 21
Elfsborg 17 5 5 7 17:24 20
Sundsvall 17 2 7 8 15:27 13
Öster 17 3 4 10 15:29 13
Enköping 17 2 4 11 18:36 10
England
Deildabikarkeppnin, fyrsta umferð:
Barnsley - Blackpool ............................ 1:2
Bradford - Darlington.......................... 0:0
Bradford sigraði í vítaspyrnukeppni.
Bristol Rovers - Brighton .................... 0:1
Cambridge - Gillingham....................... 1:2
Cardiff - Leyton Orient........................ 4:1
Cheltenham - QPR ............................... 1:2
Chesterfield - Burnley ......................... 0:0
Burnley sigraði í vítaspyrnukeppni.
Colchester - Plymouth ......................... 2:1
Crewe - Wrexham ................................ 2:0
Doncaster - Grimsby ............................ 3:2
Huddersfield - Derby........................... 2:1
Lincoln - Stockport .............................. 0:1
Luton - Yeovil ....................................... 4:1
Macclesfield - Sheffield United ........... 1:2
Millwall - Oxford................................... 0:1
Northampton - Norwich....................... 1:0
Port Vale - Nottingham Forest ........... 0:0
Forest sigraði í vítaspyrnukeppni.
Preston - Notts County........................ 0:0
Notts County sigraði í vítaspyrnu-
keppni.
Rotherham - York ................................ 2:1
Scunthorpe - Oldham ........................... 2:1
Southend - Swindon ............................. 2:3
Torquay - Crystal Palace ..................... 1:1
Palace sigraði í vítaspyrnukeppni.
Tranmere - Bury .................................. 1:0
Walsall - Carlisle .................................. 2:1
Watford - Bournemouth....................... 1:0
Eftir framlengingu.
WBA - Brentford.................................. 4:0
Wigan - Hull ......................................... 2:0
Wycombe - Wimbledon ........................ 2:0
HANDKNATTLEIKUR
Evrópumót piltalandsliða, 18 ára og
yngri:
A-RIÐILL
Slóvenía - Ungverjaland....................30:27
Slóvakía – Þýskaland.........................29:30
Ísland – Rússland ..............................33:24
Staðan:
Þýskaland 4 4 0 0 126:115 8
Slóvenía 4 3 0 1 127:104 6
Ísland 4 3 0 1 119:105 6
Ungverjaland 4 1 0 3 105:115 2
Slóvakía 4 1 0 3 104:116 2
Rússland 4 0 0 4 97:121 0
Tvö efstu liðin komast í undanúrslit,
hin liðin leika um sæti fimm til tólf.
B-RIÐILL
Danmörk - Frakkland .......................37:31
Svíþjóð - Portúgal..............................24:23
Króatía – Serbía/Svartfjallaland ......32:33
Staðan:
Danmörk 4 3 0 1 120:104 6
Svíþjóð 4 3 0 1 101:89 6
Portúgal 4 2 0 2 108:105 4
Serbía/Svartf. 4 2 0 2 107:106 4
Frakkland 4 2 0 2 107:118 4
Króatía 4 0 0 4 100:121 0
Tvö efstu liðin komast í undanúrslit,
hin liðin leika um sæti fimm til tólf.
ARSENAL gekk í gær frá
nýjum samningum við
frönsku landsliðsmennina í
knattspyrnu, Patrick Vieira,
fyrirliða liðsins, og Robert
Pires. Vieira samdi við
Lundúnaliðið til ársins 2007
og Pires einu ári skemur.
Þar með var bundinn endi á
vangaveltur um framtíð
þeirra félaga sem hafa átt
stóran þátt í velgengni Ars-
enal á undanförnum árum.
„Mér líður mjög vel hjá
Arsenal og það var alltaf
stefnan hjá mér að skrifa
undir nýjan samning. Ég er
ánægður með að þetta mál sé
frá og þar með get ég farið
að einbeita mér að því sem
skiptir mestu máli, að spila
fótbolta og vinna til fleiri
verðlauna með Arsenal,“
sagði Vieira eftir undir-
ritunina í gær.
Pires tók í sama streng og
sagði að það væri sérlega
ánægjulegt að Arsenal skyldi
sækjast eftir kröftum sínum
áfram. „Það er mér mikil
viðurkenning, ég er mjög
ánægður með að vera leik-
maður Arsenal og er í góðu
sambandi við alla hjá félag-
inu,“ sagði Pires.
Vieira
og Pires
með nýja
samn-
inga
KNATTSPYRNA
Efsta deild kvenna, Landsbankadeild:
Akureyrari: Þór/KA/KS - KR ...................19
Kópavogur: Breiðablik - ÍBV....................19
Hlíðarendi: Valur - Þróttur/Haukar.........19
Kaplakriki: FH - Stjarnan.........................19
1. deild kvenna A
Grundarfjörður: HSH- Fjölnir .................19
1. deild kvenna B
Fáskrúðsf.: Leiknir F. - Einherji..............19
Vilhjálmsvöllur: Höttur - Fjarðabyggð....19
Í KVÖLD
Ísland byrjaði ekki vel gegnRússlandi og var undir nánast
allan fyrri hálfleik. Rússar voru
þremur mörkum yfir í hálfleik en
varnarleikur Íslendinga fyrir
leikhlé var slakur og markvarslan
eftir því. Íslensku strákarnir komu
betur stemmdir til leiks eftir hlé
og náðu að jafna metin í 17:17 en
þá voru um 22 mínútur til leiks-
loka.
Ísland komst svo í fyrsta sinn
yfir í leiknum þegar 13 mínútur
voru eftir, 21:20, og eftir það áttu
Rússar nánast aldrei möguleika á
að landa sigri. Íslensku strákarnir
skoruðu hvert markið á fætur öðru
á lokamínútunum á meðan rúss-
neska liðinu var nánast fyrir-
munað að komast í gegnum sterka
vörn Íslendinga. Lokatölur leiks-
ins, 33:24, eru ótrúlegar miðað við
það að Ísland var þremur mörkum
undir í hálfleik.
Ásgeir skoraði 11 mörk í
seinni hálfleik
Ásgeir Örn Hallgrímsson var
markahæstur Íslendinga með 11
mörk en ekkert þeirra kom í fyrri
hálfleik. Næstir í markaskorun
voru þeir Arnór Atlason með 7
mörk, Ragnar Hjaltested skoraði
5 mörk og Einar Ingi Hrafnsson
gerði 4 mörk. Markverðir Íslands
náðu sér ekki nægilega vel á strik
og vörðu þeir Pálmar Pétursson
og Björgvin Gústafsson aðeins 10
skot samtals.
Heimir Ríkharðsson, þjálfari Ís-
lands, segir að það komi ekkert
annað til greina en að sigra
Slóvena og leika til undanúrslita.
„Með sigrinum í kvöld eru við
öruggir um að leika að minnsta
kosti um fimmta sætið og það er
stórkostlegur árangur. Nú verður
algjör úrslitaleikur við Slóvena á
fimmtudaginn og niðurtalningin
fram að leiknum er hafin. Það
kemur ekkert annað til greina en
að sigra Slóvena og komast í und-
anúrslitin en það verður þó alls
ekki auðvelt,“ sagði Heimir í sam-
tali við Morgunblaðið.
Þegar hann var spurður um
leikinn gegn Rússum sagði Heimir
að íslensku strákarnir hefðu ekki
náð sér á strik fyrr en í síðari hálf-
leik.
„Við lékum ekki nægilega vel í
fyrri hálfleik. Sóknarleikurinn var
mistækur og vörnin fann sig alls
ekki. Í síðari hálfleik gerði ég
breytingu á uppstillingunni í sókn-
inni. Ég lét Árna Björn Þórarins-
son á miðjuna og það heppnaðist
mjög vel og sóknarleikurinn
hresstist mjög við það. Þegar við
náðum svo að jafna og komast yfir
í síðari hálfleik brotnuðu Rússarn-
ir fljótt og við völtuðum yfir þá.“
Frábær seinni
hálfleikur
gegn Rússum
ÍSLENSKA unglingalandsliðið skipað leikmönnum 18 ára og yngri
sigraði Rússland, 33:24, í úrslitakeppni Evrópumótsins í hand-
knattleik í Slóvakíu í gærkvöldi. Ísland var þremur mörkum undir í
hálfleik, 11:14, en liðið náði frábærum leikkafla um miðbik síðari
hálfleiks og sigldi þá fram úr rússneska liðinu. Ísland leikur við
Slóveníu á morgun og ef íslensku strákarnir sigra Slóvena munu
þeir leika til undanúrslita á mótinu. Ef Ísland gerir jafntefli eða tap-
ar mun liðið spila um fimmta til sjötta sætið.