Morgunblaðið - 13.08.2003, Side 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 45
VIGDÍS Guðjónsdóttir, frjáls-
íþróttakona úr HSK, kastaði spjótinu
52,32 metra á kastmóti FH á mánu-
daginn og er þetta lengsta kast árs-
ins. Sigrún Fjeldsted, FH, kastaði
48,10 metra á sama móti.
BERGUR I. Pétursson úr FH bætti
á mótinu eigið drengjamet í sleggju-
kasti, kastaði 63,36 metra en gamla
metið hans var 61,96 metrar.
LEEDS United hafa fengið sókn-
armanninn Lamine Sakho frá
Olympique Marseille að láni í eitt ár.
Sakho er 25 ára gamall og er fjórði
nýi leikmaðurinn sem gengur til liðs
við Leeds í sumar. Sakho er metinn á
360 milljónir íslenskra króna og ef
hann leikur vel með Leeds í vetur er
líklegt að liðið kaupi hann eftir tíma-
bilið.
CLAUDIO Lopez, sóknarmaður
Lazio, hefur gert nýjan samning við
liðið og hann er nú samningsbundinn
félaginu til ársins 2006. Lopez er 29
ára gamall Argentínumaður en Roma
og Valencia hafa verið á eftir honum.
PEDRO Munitis, leikmaður Real
Madrid, vill fara frá félaginu sam-
kvæmt upplýsingum umboðsmanns
hans. Munitis, sem er 28 ára gamall
Spánverji, hefur fengið mjög fá tæki-
færi með liðinu á undirbúningstíma-
bilinu.
GRAEME Souness, knattspyrnu-
stjóri Blackburn Rovers, er ekki
bjartsýnn á að Blackburn muni
ganga jafnvel og á síðustu leiktíð en
þá endaði liðið í sjötta sæti í ensku úr-
valsdeildinni. „Liðin sem enduðu fyrir
ofan okkur á síðasta tímabili eru með
miklu sterkari leikmannahópa en við.
Svo er lið eins og Tottenham sem var
fyrir neðan okkur sem getur náð góð-
um árangri í vetur. Markmið Black-
burn er einfaldlega að halda sæti sínu
í deildinni,“ sagði Souness.
BRASILÍUMENN tryggðu sér um
helgina sæti í handknattleikskeppni
Ólympíuleikanna í Aþenu á næsta ári
með því að sigra Argentínu, 31:30, í
tvíframlengdum úrslitaleik á Amer-
íkuleikunum í Dóminíska lýðveldinu.
Bruno Souza, leikmaður Göppingen í
Þýskalandi, skoraði sigurmarkið og
gerði 8 mörk alls í leiknum.
BRYAN Robson, fyrrverandi
knattspyrnustjóri Middlesbrough,
hefur áhuga á að taka við nígeríska
landsliðinu í knattspyrnu, segir í net-
miðli BBC.
ARVYDAS Sabonis, miðherji Port-
land Trail Blazers, er hættur að leika
í NBA-deildinni í körfubolta sam-
kvæmt upplýsingum frá umboðs-
manni hans. Sabonis tók þessa
ákvörðun vegna þess að hann vill eyða
meiri tíma með fjölskyldu sinni. Sa-
bonis gekk til liðs við Portland árið
1995; hann hefur skorað að meðaltali
12 stig og tekið 7,3 fráköst í leik með
liðinu í 470 leikjum.
FÓLK
HEIÐAR Helguson og félagar í Wat-
ford komust í gærkvöld í 2. umferð
enska deildabikarsins í knattspyrnu
með því að sigra Bournemouth, 1:0, í
framlengdum leik. Heiðar fór af
velli í lok fyrri hálfleiks framleng-
ingar og Scott Fitzgerald, sem leysti
hann af hólmi, skoraði sigurmarkið
tveimur mínútum síðar.
Lárus Orri Sigurðsson lék ekki
með WBA vegna meiðsla þegar lið
hans vann Brentford, 4:0, í bik-
arnum. Sama var að segja um Brynj-
ar Björn Gunnarsson; hann var ekki
með Nottingham Forest sem vann
Port Vale í vítaspyrnukeppni eftir
markalaust jafntefli.
Ívar Ingimarsson spilaði með
varaliði Wolves sem gerði jafntefli,
1:1, við Manchester City.
Watford í
2. umferð
Vala byrjaði á því að stökkvayfir 4,13 metra. „Þetta var
mjög gott stökk hjá mér þann-
ig að ég ákvað að sleppa 4,23
metrum og reyndi síðan við
4,33 en fann aldrei taktinn og
komst ekki yfir,“ sagði Vala í
samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Lágmarkið fyrir
HM í París
„Auðvitað eru það vonbrigði
að komast ekki á HM en ég á
eftir að keppa á tveimur mót-
um í sumar, annað þeirra er í
Sviss 23. ágúst og síðan í
Gautaborg 3. september. Ég
hef stokkið betur í sumar en ég
gerði í kvöld og er staðráðin í
að reyna að enda sumarið bet-
ur en þetta, ég tek ekki í mál að
enda svona,“ sagði Vala.
Sigurvegari í stangarstökki
kvenna í gær varð Yvonne
Buschbaum frá Þýskalandi,
stökk 4,53 metra og landa
hennar, Carolin Hingst, varð
önnur með 4,43 metra.
Magnús Aron Hallgrímsson
reyndi við lágmarkið í kringlu-
kasti, en kastaði illa og verður
ekki meðal keppenda á HM.
„Hann kastaði illa, einhverja
60 metra og gerði það kast
ógilt,“ sagði Vésteinn Haf-
steinsson um árangur Magnús-
ar Arons í gærkvöldi. Vésteinn
sagðist vonast til að Magnús
Aron héldi áfram að æfa í sum-
ar og fram á haust og reyndi að
kasta langt og sérstaklega
væri mikilvægt fyrir hann að
komast á einhver mót því hann
hefði æft mjög vel og kastað
langt á æfingum en næði síðan
ekki að sýna sitt rétta andlit í
keppni.
Björn Margeirsson, úr
Breiðabliki, keppti í 800 metra
hlaupi í Malmö og stóð sig vel,
hljóp á 1.51,50 og bætti tíma
sinn verulega, hljóp á 1.54,14 á
Meistaramótinu árið 2001.
Björn varð þriðji í B-úrslitum.
Íslandsmet Erlings Jóhanns-
sonar er 1.48,83; þeim tíma
náði hann í Osló 1987. Jón Dið-
riksson hljóp á 1.48,2 í Bonn
árið 1982 en þá var ekki notuð
rafeindaklukka þannig að Er-
lingur á Íslandsmetið en Björn
nálgast það óðfluga.
Tveir aðrir Íslendingar ætl-
uðu að keppa á mótinu; Sigur-
björn Árni Arngrímsson og
Kári Steinn Karlsson hugðust
báðir keppa í 3.000 metra
hlaupi. Á heimasíðu mótsins
fundust þeir ekki og ekki held-
ur í úrslitadálki fyrir 3.000
metra hlaupið.
„Tek ekki í
mál að enda
svona“
VALA Flosadóttir, stangarstökkvari úr ÍR, náði sér ekki á strik á frjálsíþróttamóti í
Malmö í Svíþjóð í gærkvöldi, stökk aðeins 4,13 metra. Þetta var síðasta tækifæri
hennar til að ná lágmarkinu fyrir heimsmeistaramótið í frjálsíþróttum sem hefst í París
í næstu viku en til að komast þangað þurfti hún að stökkva 4,40 metra. Magnús Aron
Hallgrímsson reyndi við lágmarkið í kringlukasti en tókst ekki að ná því og það er þar
með ljóst að Íslendingar eiga bara tvo fulltrúa meðal keppenda í París, Jón Arnar
Magnússon og Þóreyju Eddu Elísdóttur.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Magnús Aron Hallgrímsson náði ekki lágmarkinu fyrir HM í París í næstu viku.
Vala Flosadóttir náði sér ekki á strik í
Malmö í gærkvöld.
Ljósmynd/Gordons Förlag