Morgunblaðið - 13.08.2003, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 47
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Kvikmyndir.com
SV. MBLHK. DV
YFIR 24.000 GESTIR!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
www.regnboginn.is
Framhaldið
af hinni
frábæru
Legally
Blond
sem
sló í
gegn!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. Sýnd kl. 6, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.40.
YFIR 30.000
GESTIR!
Fyndnasta mynd sumarsins
frá leikstjóra
Liar Liar og Ace Ventura
Ef þú gætir verið
Guð í eina viku,
hvað myndir þú gera?
J I M C A R R E Y
B R U C E
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 7, 9 og 11.
www.laugarasbio.is
Ef þú gætir verið
Guð í eina viku,
hvað myndir þú gera?
Fyndnasta mynd
sumarsins
frá leikstjóra
Liar Liar og Ace Ventura
J I M C A R R E Y
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.10.
Miðaverð 500 kr.
Sýnd kl. 5. Ísl. tal.
B R U C E
Best fyrir – Lífið er aðeins…
þessar stundir
athyglisverð og
bara skrambi fín
plata þar sem
ákefð og greini-
legur áhugi flytj-
enda fyrir því
sem þeir eru að
gera bætir upp þá litlu hnökra
sem eru á heildarmyndinni. (AET)
Coral – Coral
Fyrir utan það
allt gefur platan
sem heild sterk-
ar vísbendingar
(þá sérstaklega
lög eins og „The
Coriolis… “ og
„The Big Bang“) um að Coral eigi
góða möguleika á að beita sér enn
frekar í rokkheimum og það af
krafti. (AET)
KK og Magnús Eiríksson – 22
ferðalög
Maður er þakk-
látur fyrir að fá
þetta tækifæri til
að læra að meta
þessar lummur
að nýju og heyra
hvað það var
upphaflega sem gerði þær að þeim
Íslandslögum sem þær eru. (SG)
Land og synir
Í heild stendur
platan nefnilega
glæsilega. Óðal
feðranna er lág-
stemmt og metn-
aðarfullt popp-
verk, nánast án
slagara, en aftur á móti drekk-
hlaðin næmum og vel frambornum
popplögum sem vinna á í róleg-
heitunum. (AET)
Maus – Musick
Frábær plata,
sem enginn unn-
andi góðrar tón-
listar ætti að láta
framhjá sér fara.
Vonandi skilja
útlendingar það
líka og gera Maus-menn fræga og
ríka. Þeir eiga það skilið. Fjórar
og hálf af fimm mögulegum. (ÍPJ)
Mínus – Halldór Laxness
Á eftir að teljast
til merkari
platna í íslenskri
rokksögu. Verð-
ugur fyrsti hand-
hafi rokknóbels-
verðlaunanna.
Íslandsklukka íslenska rokksins.
(SG)
Óskar Guðna – Lífsins línudans!
Lífsins línudans! er ágætasti vitn-
isburður um hið
séríslenska al-
þýðupopp sem
einatt er kær-
komin viðbót í
hérlenda dæg-
urlagaflóru.
(AET)
Ýmsir – Íslandslög 6
…má í raun
segja að sýrópið
sé oftast nær
hamið… Sú stað-
reynd og sú
heildaráferð plöt-
unnar skilar
betra og meira sannfærandi safni
Íslandslaga en oftast áður. Góður
árangur það. (AET)
Ja-Man Allstars –
In The Dub Zone
Mannskapurinn á skífunni er frá-
bær, nokkrir af bestu tónlistar-
mönnum þess tíma á Jamaíka.
(ÁM) Liars – They Threw Us
All in a Trench and Stuck
a Monument On Top
Aðra eins frumraun hef ég ekki
heyrt síðan Clinic sendi frá sér
sína fyrstu skífu fyrir fjórum ár-
um. Frábær plata. (ÁM)
Philip Jeck – Viny’l’isten
Hápunktur plötunnar er samstarf
þeirra Jecks og van Bebbers sem
er sérdeilis vel heppnað, frumlegt
og ævintýralegt í senn. (ÁM)
Radiohead –
Hail To The Thief
Markvissari tilraunamennska, ag-
aðri og þar af leiðandi meira gef-
andi. Örugglega ein af bestu plöt-
um ársins. (SG)
Savina Yannatou –
Terra Nostra
Raddfimleikar Yannatou eru
hreint ótrúlegir. Legg hérmeð
fram ósk um að Savina Yannatou
verði fengin hingað á Listahátíð –
það væri happafengur. (ÁM)
Shalabi Effect –
The Trial of Saint-Orange
Séð hef ég tónlist sveitarinnar lýst
sem austrænni sýru og á köflum á
sú lýsing býsna vel við. (ÁM)
Steely Dan –
Everything Must Go
Everything Must Go er frábær
plata, skyldueign fyrir aðdáendur
svo og unnendur góðrar tónlistar.
Dan lifi! (AET) GÓÐAR HLJÓMPLÖTUR
TÓMAS J. Sigurðsson er nafn sem
ekki er þekkt í íslenskri tónlist en
hann sendir nú frá sér í fyrsta sinn,
svo ég viti til, lög og texta sem hann
gefur út á eigin spýtur. Ekki veit ég
hvort lögin eru uppsafnað efni eða
glæný en óhætt er að segja að hér er
farið vel af stað, því lagasmíðarnar
eru bæði sérstæðar og áheyrilegar
og eiga fullt erindi við áheyrendur.
Rödd Tómasar
vekur fyrst athygli,
hrjúf og ópússuð
og til að gefa hug-
mynd um hvernig
hún hljómar þá
minnir hún stund-
um á Bubba eða Bob Dylan – án þess
að verið sé að líkja eftir þeim sér-
staklega. Tónlistin er líka nokkuð í
þessum anda, dálítið blúsað og lág-
stemmt rokk, með dálitlum kántrí-
keim, lög sem snúast ekki um söng-
væn viðlög og allir-saman-nú-fjör
heldur er farið af stað með sögu sem
fylgt er til enda. Tómas hefur fengið
til liðs við sig valinkunnan hóp
manna; KK, Eyþór Gunnarsson, Ás-
geir Óskarsson, Orra Harðar. og
fleiri góða menn, sem færa lög hans í
vandaðan búning án þess þó að
áferðin verði of slétt og felld. Sér-
staklega er allur gítarleikur góður og
í ýmsum litbrigðum, gefur sumum
lögum trega þar sem þar á við eins og
í „Systa“ þar sem sést að skrápurinn
er ekki eins harður og virðist í fyrstu
vera, eða hljómar rifinn og grófur í
samræmi við óþægilegar staðreynd-
irnar í „Stéttarvitund“. Eins og sjá
má af titlinum Textar og lög, er lögð
jöfn áhersla á textana sem og lögin,
og fylgir textabók með (til baga að ís-
lensku stafirnir þ og ð prentast ekki
sem gerir lesturinn dálítið erfiðan og
synd að slíkt gerist því að öðru leyti
er allur frágangur vandaður). Text-
arnir eru eins og röddin, hráir og
óheflaðir og það er líka það sem gef-
ur þeim kraft. Hér fæst innsýn í líf
sem meðaljóninn verður ekki var við
eða kærir sig ekki um að þekkja, sög-
ur af götunni, fólki utangarðs, ófegr-
að og blátt áfram frá sjónarhóli þess
sem lifað hefur „stríðin fimm“ en
annars verður Tómasi reyndar
margt að yrkisefni (t.d. hið „hetju-
lega“ afrek Þorgeirs Hávarðssonar
þegar hann hjó smalann). Löggan
fær líka sneið til sín eins og í hinum
hæðna söng „Steravaktinni“, þar
sem segir: „Sýndu nú í þér litli minn
löggutöggur, vertu löggusnar og lög-
gusnöggur“. Skuggahliðar mannlífs-
ins eru yfirleitt í forgrunni og verður
oft úr ansi kröftugur söngur: „Ég er
rándýr í frumskógi, ég er á veiðum á
steppunni, ég er í felum í rjóðrinu,
það er blóðlykt í loftinu“ („Góðær-
ið“). Þótt lagasmíðarnar og yrkisefn-
in komi í sjálfu sér ekki á óvart þá
eru hlutirnir vel gerðir og þess virði
að leggja eyrun við. Meira en for-
vitnilegur diskur frá óþekktu og
sjálfsagt líka mjög óþekku, alþýðu-
skáldi.
Tónlist
Lifað stríð-
in fimm
Tómas:
Textar og lög
Höfundur gefur út sjálfur
Öll lög nema tvö eru eftir Tómas J. Sig-
urðsson, sem syngur og leikur á gítar.
Honum til aðstoðar eru m.a. KK á skrið-,
kassa- og rafgítar, Ragnar Örn Eiríksson,
Ásgeir Óskarsson trommur, Haraldur Þor-
steinsson bassi, Eyþór Gunnarsson
hljómborð og slagverk. Hörður Óttarsson
sá um upptökur og Orri Harðarson hljóð-
blöndun. Einnig eru tvö lög á disknum
sem eru eftir Einar Friðjónsson og Bjarna
Þóri Þórðarson.
Steinunn Haraldsdóttir
GRAND rokk er að verða einn af
helstu tónleikastöðum landsins, þá
sérstaklega hvað nýjar sveitir og upp-
vaxandi varðar. Tónleikaröðin Rokk á
Grand rokk hefur þannig um langa
hríð verið fínasti vaxtarbroddur og
síðasta helgi var stútfull af áhuga-
verðu efni, þar sem t.d. Ensími og
200.000 naglbítar léku á laugardeg-
inum og Trabant á föstudeginum.
Undirrituðum fannst hins vegar til-
valið að taka netta stikkprufu á
fimmtudagskvöldinu þar sem fjórar
tiltölulega nýtilkomnar sveitir voru
auglýstar. Hér voru á ferðinni The
Flavors, ný popp-/rokksveit sem var/
er með myndband í spilun um þessar
mundir (að ég held); Tenderfoot, en
þeir leggja fyrir sig rokkskotna þjóð-
laga-/sveitatónlist (lag komið í spilun
á Rás 2); The Moody Company sem
er verkefni á vegum Krumma Björg-
vins úr Mínus og að lokum Fritz, sig-
urvegarar prufulaga- eða „demo“-
keppni tónlistartímaritsins Sánd.
Þegar á hólminn var komið forfölluð-
ust svo tvær þær síðarnefndu. Hins
vegar léku tveir aðrir fyrir auglýstan
tíma; Rúnar Sigurbjörnsson, fyrrum
Náttfari, lék á gítar og erlent par sem
ég kann ekki að nefna lék víst einnig.
Sex atriði í pottinum en aðeins tvö til
umfjöllunar. Jæja. Þau tvö sem undir-
ritaður sá og heyrði voru þó vel þess
virði að leggja eyrun við eins og lesa
má um hér á eftir.
Nýbylgju-sveitatónlistin hefur
lengi vel verið það áhugaverðasta sem
í gangi er í erlendri neðanjarðartón-
list (eða það sem kallað er „alt.co-
untry“). Maður hefur því stundum
grátið það að ungt og ferskt nýbylgju-
fólk héðan leggi ekki slíkt fyrir sig (að
vísu hafa Hudson Wayne og Örkuml
staðið sig ágætlega í þeim pælingum).
Tilkoma Tenderfoot gæti kannski
breytt þessu eitthvað og veitt fleirum
innblástur. Hér var komin lágstemmd
sveit; skrýdd kontrabassa, kassagít-
urum og lágværum trommuleik. Eng-
an kannaðist ég við í sveitinni, að vísu
var trommuleikarinn eitt sinn í Ston-
ed og Bee Spiders. Tónlistin melódísk
og angurvær þjóðlaga-/sveitatónlist
eins og áður segir og bara skrambi vel
framreidd. Skuggar Neil Young og
Tim Buckley dönsuðu í kringum þá
félaga og einkanlega mátti greina
áhrif þess síðarnefnda í söngnum. Það
verður spennandi að fylgjast með
Tenderfoot á næstunni, oftsinnis tók-
ust þeir félagar vel á flug í „fílingn-
um“.
Það var sömuleiðis „bragð“ að leik
The Flavors (föttuðuð þið þennan?).
Þetta voru víst fyrstu tónleikar sveit-
arinnar og mér sýndist ég greina
þarna a.m.k. einn meðlim úr grugg-
sveitinni geðþekku In Bloom. Svo
voru þarna þungavigtarmennirnir
Pálmi Sigurhjartarson og Kristján
Edelstein. Tónlistin vönduð og
dramatísk rokktónlist, með slettu af
gruggi. Lögin flókin að uppbyggingu
og metnaðurinn afar greinilegur. Og
þrátt fyrir pínu byrjunarskrekk virt-
ust lagasmíðarnar – svo og sveitin –
furðu langt á veg komnar og greini-
legt að það á ekki að tjalda til einnar
nætur. Fágað rokk Flavors kallaði
fram ýmsar sveitir í hugann (lág-
stemmd útgáfa af Bon Jovi, Creed?)
en ég verð að segja að nálgun Flavors
er algerlega hennar eigin og þar var
hvarvetna smekklega að verki staðið.
Líkt og með Tenderfoot er vel þess
virði að veita framtíðarsporum Flav-
ors athygli. Þá vil ég að lokum geta
gítarleiks Kristjáns Edelstein sem
lyfti lögunum oft og tíðum.
Hástemmt –
lágstemmt
Tónleikar
Grand rokk
The Flavors og Tenderfoot
The Flavors og Tenderfoot léku á Grand
rokk, fimmtudaginn 7. ágúst 2003.
Arnar Eggert Thoroddsen
Morgunblaðið/Arnaldur
The Flavors, að vonum sáttir eftir vel heppnaða jómfrúartónleika.