Morgunblaðið - 13.08.2003, Side 48

Morgunblaðið - 13.08.2003, Side 48
48 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 10. B.i. 12. Kl. 6, 8 og 10.10. B i. 16. Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 6. ísl tal.Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 12.  SG. DVÓ.H.T Rás2  GH KVIKMYNDIR.COM  SG. DV KVIKMYNDIR.IS GULL MOLAR Hollywood Ending Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 10 ára. NÓI ALBINÓI RESPIRO Kl. 6. Ensk.texti/with english subtitles.  KVIKMYNDIR.COM  ÓHT RÁS 2  MBL  SG DVS V KVIKMYNDIR.ISI I .I KVIKMYNDIR.COM ÓHT RÁS 2 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10. B.i. 12. YFIR 42.000 GESTIR! ÁLFABAKKI Kl. 6 og 8. KEFLAVÍK Kl. 10. Sýnd með íslensku tali AKUREYRI Sýnd kl. 6. KRINGLAN Sýnd kl. 5.50 ÁLFABAKKI Kl. 3.45 og 5.50 KRINGLAN kl. 8 og 10.10. ÁLFABAKKI kl. 8 og 10. AKUREYRI Kl. 10. AKUREYRI Sýnd kl. 8. Stranglega bönnuð börnun innan 16 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. KRINGLAN kl. 5.50 og 8. 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina sögðu “góð” eða“stórkostlegKVIKMYNDIR.IS  SG. DV  SG. DVÓ.H.T Rás2  GH KVIKMYNDIR.COM ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.30, 6 og 8.30. B.i.12 ára. B.i. 16 ára KEFLAVÍK Sýnd kl. 8. MIKIÐ var látið með breska rit- höfundinn Hari Kunzru og fyrstu skáldsögu hans, The Impressionist, á síðasta ári. Markaðssetning á bókinni og höfundinum, sem er þekktur blaðamaður í Bretlandi, hófst nokkru áður en bókin kom út og fyrirfram var búið að selja útgáfuréttinn til margra landa og ekki leið á löngu þar til hún var komin út á sextán tungu- málum. The Impressionist er eiginlega skálkasaga, segir frá þrjótnum Pran Nath sem á erfitt með að fóta sig í indversku sam- félagi um þarsíð- ustu aldamót, þegar landið var enn undir stjórn Breta. Nath er kynblendingur sem á sér ævin- týralegan uppruna og lendir í miklum raunum. Snemma kemur í ljós að hann fellur ekki inn í indverskt sam- félag vegna uppruna síns og litarafts, er á mörkum tveggja heima og hafn- ar öðrum til að komast inn í hinn. Eft- ir að hafa lagt hart að sér til að verða Englendingur kemst hann að því um síðir að hann hefur glatað þjóðerni sínu og rótum, tilheyrir engum menningarheimi, er eiginlega ekki til nema sem spegilmynd af því sem hann telur menn helst vilja sjá. Það verður honum reyndar til bjargar undir lokin en áður á hann eftir að lenda í hremmingum, líkamlegum sem andlegum, í þremur heimsálfum. Kunzru er mikill sögumaður og segir einkar skemmtilega frá. Fjöl- margar persónur í bókinni eru ógleymanlegar og uppákomurnar sem hann lýsir óborganlegar. Skemmtunin hefst þegar í upphafi því getnaður Naths er ævintýralegur í meira lagi, einnig er vist hans hjá skoska prestinum geggjuð frásögn, dvölin hjá indverskum smákóngi er stórfurðuleg og svo má telja. Frá- sögnin dalar eilítið þegar Nath er við nám í Bretlandi, en síðan fer allt á flug þegar hann fer til Afríku í mann- fræðileiðangur. The Impressionist er ævintýraleg gamansaga sem vitnar óbeint í suma skemmtilegustu rithöfunda Breta á síðustu árum, Evelyn Vaugh, E.M. Forster og Salman Rushdie, og líkt og þeirra var og er siður er spéspegl- inum ekki síst brugðið upp til að sýna dekkri hliðar mannslífsins og afleið- ingar græðgi, fordóma og heimsku. The Impressionist eftir Hari Kunzru. Penguin gefur út. Árni Matthíasson Á mörkum tveggja heima Forvitnilegar bækur NÚ orðið gerast glæpasögur yfirleitt í hráu og harkalegu borgarumhverfi, í fátækrahverf- um og eiturlyfjabælum, eða þá í ímyndaðri enskri sveit, eða svo virðist í að minnsta flest- um sem lesa slíkar bækur að staðaldri. Þær bækur virðast og ganga best í menn sem eru með mest af blóði og kynlífi og því kemur þægilega á óvart sagnabálkur um miðaldra, þéttvaxna konu, Precious Ramotswe, sem fæst við hversdagleg vandamál sem sum eru þó all- framandleg og spennandi, ekki síst þegar hún tekur til við að greiða úr flækjunni. Alexander McCall Smith er hámenntaður maður og er nú prófessor við lagadeild Edin- borgarháskóla. Hann er fæddur og uppalinn í Zimbabwe, sem hét Suður-Rhodesia á þeim tíma, og menntaður þar og í Skotlandi. Hann starfaði um tíma í Botswana, tók þátt í að koma á legg lagadeild við Botswana-háskóla. Smith hefur verið gestaprófessor við ýmsa há- skóla, m.a. í Bandaríkjunum og á Ítalíu, en til viðbótar við prófessorsstöðuna í Edinborg er hann varaformaður Erfðavísaráðs Sameinuðu þjóðanna, formaður siðanefnda Breskra læknaritsins og í líftækninefnd UNESCO. Honum er þó meira til lista lagt; hann leikur á fagott og er liðsmaður í „Hræðilegu hljóm- sveitinni“ í Edinborg, The Really Terrible Orchestra, hljómsveit áhugamanna, en eigin- kona hans leikur á flautu í sömu sveit. Afkastamikill rithöfundur Smith er afkastamikill rithöfundur, hefur skrifað um fimmtíu bækur, og skrifar jöfnum höndum fræðibækur um lögfræðileg álitaefni og arfberarannsóknir, barnabækur og ýmis- konar skáldskap. Bækurnar um einkaspæjar- ann í Botswana eru nú orðnar fimm, sú fimmta kom út í sumar, en seinna á árinu kemur út fyrsta bókin í nýjum sagnabálki þar sem segir af ungri leynilögreglukonu í Edin- borg, Isabel Dalhousie. Söguhetja bókanna sem hér eru gerðar að umtalsefni er Precious Ramotswe, sem jafnan er kölluð Mma Ramotswe eins og siður er í heimalandi hennar, en þegar faðir hennar deyr selur hún 180 nautgripi hans og notar peningana til að stofna spæjaraskrifstofu, The No 1 Ladies’ Detective Agency, en í Botswana tala menn ensku og setswana jöfnum höndum. Hjálp með vandamál lífsins Sumir hafa líkt Mma Ramotswe við fröken Marple, söguhetju Agöthu Christie, en sú samlíking nær ekki langt; Mma Ramotswe rannsakar ekki morð eins og fröken Marple. Eins hún lýsir því sjálf: „Okkar hlutverk er ekki að leysa glæpi, við hjálpum fólki með vandamál lífsins.“ Vandamálin sem hún fæst við eru margvísleg; týnd börn, týndir eigin- menn, illa innrættir töframenn, spilling í tengslum við fegurðarsamkeppni, dularfullur læknir og svo má segja. Öll málin leysir hún af atorku og innsæi, skyggnist inn í hjörtu viðkomandi og leitar að vísbendingum í fasi þeirra og framkomu ekki síður en eftir verks- ummerkjum. Nokkuð er síðan fyrsta bókin, sem heitir einfaldlega The No 1 Ladies’ Detective Agency, kom út og vakti ekki ýkja mikla at- hygli. Útgefandinn var smáfyrirtæki í Skot- landi, einskonar útibú frá háskólaútgáfunni í Edinborg, en smám saman spurðust fréttir af bókinni út, aðallega fyrir tilstilli bóksala í litlum bókabúðum að því menn segja, því þeir miðluðu upplýsingum sín á milli um það hve lesendur hefðu kunnað að meta bókina og mælti hver við henni við sína kúnna. Smám saman jókst áhuginn og nú eru bækurnar komnar í dreifingu hjá stórfyrirtækjum vest- an hafs og austan og stendur víst til að gera kvikmynd um Mma Ramotswe sem Anthony Minghella (The English Patient, The Talented Mr. Ripley) hyggst leikstýra. Fyrirmyndir í raunveruleikanum Nokkrar sögupersónur í bókunum eiga sér fyrirmyndir í raunveruleikanum, en sjálf Mma Ramotswe á sér ekki beinlínis fyrirmynd; að því er Smith segir þá varð hún til er hann horfði á miðaldra konu eltast við hænu í smá- bænum Mochudi, úthverfi höfuðborgarinnar Gaborone, og er hún náði hænunni og sneri hana úr hálsliðnum segir Smith að kviknað hafi hjá sér hugmynd að aðalpersónu í bók sem væri glaðvær líkt og konan sem hann horfði á, útsjónarsöm og hefði „þjóðlegt“ vaxtarlag eins og hann orðar það svo smekk- lega. Smith lýsir Botswana svo hlýlega að flesta sem lesa bókina langar til að kynnast landinu frekar því þó þar sé talsverð fátækt að vest- rænum mælikvarða og alnæmi mjög útbreitt, rúmur þriðjungur þjóðarinnar er með alnæmi, ríkir pólitískur stöðugleiki í landinu og hefur gert frá því það öðlaðist sjálfstæði 1966. Efna- hagur landsins stendur líka í blóma, erlendar skuldir eru litlar og hagvöxtur mikill og stöð- ugur. Smith er líka í miklum metum í Botsw- ana og þá ekki bara fyrir bækurnar um Mma Ramotswe heldur einnig að hann kom á fót lagadeild Botswana-háskóla eins og getið er, en hann er líka höfundur lagasafna Botswana. Mma Ramotswe leysir málið Ný glæpasagnahetja, ef glæpasögur skyldi kalla, nýt- ur vaxandi vinsælda víða um heim. Árni Matthíasson segir frá Mma Ramotswe, þjóðlega vaxinni Botswanakonu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.