Morgunblaðið - 13.08.2003, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 2003 49
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i.10 ára.
AKUREYRI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. B.i. 10 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5, 8 og 10. B.i. 10 ára.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6 OG 10.
Stórsmellur úr smiðju Jerry
Bruckheimer og Disney sem
stefnir hraðbyri að vera
vinsælasta mynd sumarsins
í USA.
98% aðspurðra í USA sem höfðu
séð myndina sögðu “góð”
eða“stórkostleg”!
í f
i
t tl !
SG. DVSG. DVÓ.H.T Rás2
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT RÁS 2
MBL
SG DVSG DV MBL
KVIKMYNDIR.IS
KVIK YNDIR.CO ÓHT RÁS 2
Þessi gamli góði
Opið 21.00-01.00 virka daga og 21.00-05.30 um helgar
Grensásvegi 7, sími 517 3535
Nýtt dansatriði
GÖMLU jaxlarnir í Brimkló hafa sem kunnugt
er gengið í endurnýjun lífdaga og verið á tón-
leikaför um landið frá byrjun mánaðarins. Síð-
ustu helgi lék hljómsveitin fyrir fullu húsi á
Players í Kópavogi og á föstudag er stefnan sett
á NASA við Austurvöll. Valinn maður er í
hverju hlutverki og fer Björgvin Halldórsson að
sjálfsögðu fremstur í flokki, en gamall Brimkló-
arliði leggur þeim að þessu sinni lið, í fyrsta
skipti í tvo áratugi.
Það er enginn annar en Sigurjón Sighvatsson
kvikmyndagerðarmaður sem mundar bassann á
ný. Í samtali við blaðið sagði Sigurjón að svo
skemmtilega hefði viljað til að hann er einmitt á
landinu um þessar mundir þegar Brimkló er á
tónleikaför: „Ég held það séu 20 ár síðan ég lék
með þeim síðast, en ég hef auðvitað spilað í
millitíðinni, bara ekki með Brimkló. Ég var
lengi vel með hljómsveit á Propaganda Films
sem tróð upp árlega auk þess að ég spilaði á
minningartónleikum Karls Sighvatssonar árið
1996 en þar var ég einmitt með Flowers og
Björgvini Halldórs.“
Þó að langt hafi liðið á milli tónleika segist
Sigurjón ekki hafa ryðgað að ráði: „Þetta er dá-
lítið eins og að læra að hjóla. Þetta kemur fljót-
lega aftur. En maður verður að æfa sig.“
Félagarnir munu taka gömlu góðu lögin:
„Auðvitað geta menn djammað ennþá, og það
kemur væntanlega eitthvað óvænt og ófyrir-
séð.“
Ekki er þó allt talið því von er á öðrum söngv-
ara af Brimklóarkynslóðinni og mun hann stíga
á svið og reyna að „slappa af“, eins og segir í til-
kynningu.
Hljómsveitin Moody Company hitar upp á
ballinu en þar eru við stjórnvölinn þeir Krummi
Björgvins úr Mínus og Franz Gunnarsson úr
Ensími en samvinna þeirra er gæluverkefni þar
sem þeir iðka allt annan tónlistarstíl en þann
sem fólk á að venjast hjá fyrrnefndum hljóm-
sveitum þeirra tveggja.
Kvikmyndagerðarmaðurinn dustar rykið af bassanum
Síðan eru liðin mörg ár: Brimkló í þá gömlu góðu. Sigurjón er fyrir miðju.
Sigurjón Sighvatsson
leikur með Brimkló
Tónleikar Brimklóar með Sigurjón Sig-
hvatsson innanborðs verða á NASA föstu-
daginn 15. ágúst.
JULIUS Nasso, fyrrum umboðsmaður
bandaríska kvikmyndaleikarans Stevens
Seagals, hefur gert samkomulag við
bandaríska saksóknara um að játa á sig
sakir vegna ákæru um að hann hafi leit-
að liðsinnis mafíunnar í New York við að
kúga fé út úr Seagal. Samkomulagið er
þó háð því að bandaríska dómsmála-
ráðuneytið fallist á það.
Í febrúar sl. bar Seagal vitni í rétt-
arhaldi yfir mafíuforingjanum Peter
Gotti og sex öðrum félögum í Gambino-
fjölskyldunni. Þótt Seagal væri þvert um
geð að koma í vitnastúkuna lýsti hann
því hvernig nokkrir úr hópi sakborning-
anna hefðu reynt að kúga út úr honum fé
en þá voru þeir Nasso skildir að skiptum.
Seagal sagði að Nasso hefði krafist
þess að fá greiddar 3 milljónir dala eftir
að þeir slitu viðskiptasambandi sínu og sagði einnig að Nasso hefði leitað til
Gambino-fjölskyldunnar til að fá hana til að hóta Seagal og innheimta féð.
Seagal kúgaður
Steven Seagal
STRÁKARNIR í Foo Fight-
ers þurfa ekki að halda uppi
stuðinu einsamlir í Laugar-
dalshöllinni 26. ágúst því
hljómsveitirnar My Morning
Jacket og Vínyll hita upp.
Er þetta sannkallaður bónus
fyrir þá sem þegar eiga miða
á tónleikana. Eins og greint
hefur verið frá varð uppselt
á tónleikana um leið og mið-
ar fóru í sölu í júlí en alls
seldust um 5.500 miðar á að-
eins fjórum tímum.
„Foo Fighters vildu endi-
lega kynna My Morning
Jacket fyrir Íslendingum,“
segir Kári Sturluson tón-
leikahaldari. „My Morning
Jacket hafa verið að spila
með Foo Fighters í Banda-
ríkjunum, hita upp fyrir þá á nýaf-
stöðnum Bandaríkjatúr. Hljóm-
sveitin er líka að hita upp fyrir Foo
Fighters á einhverjum tónleikum í
Evrópu um þessar mundir,“ út-
skýrir hann en My Morning Jacket
er fimm manna hljómsveit frá
Louisville í Kentucky, sem hefur
hlotið lof tónlistarblaða á borð við
NME að undanförnu.
Tónleikar Foo Fighters hérlend-
is eru hluti af Evróputúr sveitar-
innar en áður en hún heimsækir Ís-
land ferðast hún um
Bretlandseyjar og heldur eftir
Höllina til meginlandsins.
Kári segir að viðbótin sé fengur
fyrir landann. „Þetta setur meiri
svip á tónleikana. Þarna fáum við
að sjá allavega eina hljómsveit, sem
við vitum að er alveg frábær, Foo
Fighters. Og það er líka mikill
fengur að fá að kynn-
ast My Morning
Jacket líka, þó hún
hafi ekki verið mikið
í deiglunni hérna
heima. Gæti komið á
óvart,“ segir Kári
ánægður.
Foo Fighters
völdu Vínyl
„Síðan var spurn-
ing um hvort þarna
kæmi fram íslensk
hljómsveit og það
varð úr að þeir völdu
Vínyl í það hlutverk.
Það var stungið upp
á nokkrum hljóm-
sveitum en þeir vildu
endilega að Vínyll
myndi hita upp fyrir þá,“ segir
Kári.
„Þessi uppsetning, Foo Fighters,
My Morning Jacket og Vínyll gerir
það að verkum að þetta verður
bara stærri, flottari og skemmti-
legri konsert.“
Tónleikar Foo Fighters í Laugardalshöll 26. ágúst
My Morning Jacket
og Vínyll hita upp
Morgunblaðið/Sverrir
Fimmmenningarnir í Vínyl fá þann heiður að hita upp
fyrir Foo Fighters í Laugardalshöll síðar í mánuðinum.
www.foofighters.com