Morgunblaðið - 08.09.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.09.2003, Blaðsíða 1
BURÐARÁS ehf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf. keyptu á laugardag samtals 12,5% hlut í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna fyrir einn milljarð króna í tengslum við sölu á eignarhlut sínum í SÍF. Bréf fyrir 3,5 milljarða króna í SÍF skiptu um eigendur á laugardag og hafa tveir nýir hluthafar eign- ast rúmlega 33% í SÍF. Ljóst er að ekkert verður af samruna SH og SÍF á næstunni og fagnar Ólafur Ólafsson, varaformaður stjórnar SÍF, því að breytt eignarhald fé- lagsins færi starfsmönnum starfsöryggi í kjölfar mikils óróa vegna samrunahugleið- inga. Burðarás ehf. seldi allan sinn hlut í SÍF, 16,5%, og keypti í kjölfarið 7,5% hlut í SH fyrir 650 milljónir króna og jók þar með eignarhlut sinn í félaginu, en fyrir átti Burðarás 19,6%. Að sögn Friðriks Jóhanns- sonar framkvæmdastjóra Burðaráss hafði félagið áhuga á að styrkja stöðu sína í SH sem einu af leiðandi fyrirtækjum í útflutn- ingi á sjávarafurðum. Sjóvá-Almennar tryggingar áttu engan hlut fyrir í SH þegar félagið keypti 5% hlut að verðmæti 400 milljónir í framhaldi af sölu á hlut sínum í SÍF. Einar Sveinsson forstjóri Sjóvár-Almennra sagði ástæðuna fyrir kaupunum þá, að félagið teldi SH eiga framtíð fyrir sér og myndi skapa verðmæta- aukningu sem Sjóvá-Almennar hygðust njóta góðs af. Ólafur Ólafsson, varaformaður stjórnar SÍF, sagði það koma til greina að kaupa eða sameinast Coldwater Seafood, dótturfélagi SH í Bandaríkjunum, en tekur fram að slíkt yrði aldrei gert nema á jafnréttisgrundvelli. „SÍF myndi aldrei taka þátt í minnihluta- sameiningu í Bandaríkjunum,“ sagði hann. Ólafur sagði það þá ekki hafa verið til umræðu hjá stjórn SÍF að selja SH verk- smiðju SÍF sem starfrækt er í Virginíufylki í Bandaríkjunum. Burðarás og Sjóvá-Almennar tryggingar keyptu 12,5% hlut í SH Keyptu fyrir milljarð króna  Bréf fyrir/4 STOFNAÐ 1913 242. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Stemmning á Ljósanótt Hljómar tóku þátt í stemmning- unni á Ljósanótt Suðurnes 10 Þýski landsliðsþjálfarinn hellti sér yfir fjölmiðla Íþróttir 4 Leikrit eftir Christie Óþekkt verk Agöthu Christie komið í leitirnar Fólk 33 BÓKMENNTAHÁTÍÐ í Reykjavík var sett í gær í Norræna húsinu og stendur í viku. Nóbelsverðlauna- höfundurinn José Saramago frá Portúgal er einn fjölmargra höf- unda sem sækja hátíðina og flutti hann ræðu við athöfnina. Tómas Ingi Olrich mennta- málaráðherra setti hátíðina og önn- ur erindi fluttu Gro Kraft forstjóri Norræna hússins, Thor Vilhjálms- son rithöfundur og Stefán Jón Haf- stein formaður menningarmála- nefndar Reykjavíkurborgar. Dagskrá hátíðarinnar hófst síðan strax í gærkvöldi í Iðnó er nokkrir höfundar lásu úr verkum sínum. Í dag mun Silja Aðalsteinsdóttir eiga samtal við japanska rithöfundinn Haruki Murakami í Norræna hús- inu kl. 12 og kl. 15 hefjast pall- borðsumræður um breskar heims- bókmenntir. Upplestur höfunda úr verkum sínum í Iðnó er síðan á dag- skrá í kvöld. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Nóbelsverðlaunahafinn Jose Saramago við opnun Bókmenntahátíðar í Norræna húsinu í gær. Bók- mennta- hátíðin sett Útnefnir eftir- mann Abbas YASSER Arafat Palestínu- leiðtogi útnefndi í gær for- seta palestínska þingsins, Ahmed Qurei, eftirmann Mahmouds Abbas, sem sagði af sér embætti forsætisráð- herra í fyrradag, að því er palestínskir embættismenn greindu frá. Qurei hafði í gærkvöldi enn ekki formlega samþykkt að taka við emb- ættinu. Hann er hófsamur og nýtur trausts meðal Ísraela. Ísraelskar herþotur gerðu í gærkvöldi eld- flaugaárás á heimili herskás Hamas-liða á Gazasvæðinu, og sögðu sjónarvottar og hjúkr- unarliðar að tíu manns hefðu særst.  Leiðtogar Hamas/14 Ramallah. AFP. Ahmed Qurei Stuðningur frá Þýskalandi „ÉG HEF fengið margar hringingar frá fyrrverandi félögum í þýska boltanum og þessir fyrrverandi meðspilarar mínir hafa ekki aðeins óskað mér til hamingju heldur finnst þeim frammistaða okkar frábær og vona að við komumst áfram,“ segir Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari í knatt- spyrnu. Ísland og Þýskaland gerðu markalaust jafntefli í Evrópukeppni landsliða á Laug- ardalsvellinum á laugardag og mátti silf- urliðið frá heimsmeistarakeppninni í fyrra í raun þakka fyrir að fá stig í leikn- um. Ásgeir Sigurvinsson segir að margir félagar sínir í Þýskalandi geri sér grein fyrir stöðunni og hann hafi fundið fyrir góðum stuðningi í Þýskalandi. „Gamlir þýskir landsliðsmenn, sem hafa spilað tugi landsleikja fyrir Þýskaland, segjast krossa fingur fyrir okkur og ég á von á að sjá þá í Hamborg 11. október, því þeim finnst gaman að halda með okkur,“ segir Ásgeir.  Skammarleg/B1 GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti bað þegna sína að búast við frekari fórnum í viðleitninni við að koma á stöðugleika í Írak er hann ávarpaði þjóðina frá Hvíta húsinu í gærkvöldi, eða skömmu eftir mið- nætti í nótt að íslenskum tíma. Samkvæmt tilkynningu sem Hvíta húsið gaf út í gærkvöldi sagði Bush m.a. í ávarpinu að Bandaríkjamenn myndu „verja því sem þörf krefði“ til að sigur ynnist í stríðinu gegn hryðjuverkastarf- semi. „Meginvígstöðvarnar“ í því stríði væru nú í Írak. „Óvinir frelsisins berjast þar af örvænt- ingu – og þar verður að leggja þá að velli.“ Forsetinn sagði ennfremur: „Markmið okkar í Írak eru þrjú. Að leggja hryðjuverkamenn að velli, afla stuðnings annarra ríkja við að tryggja frelsi Íraks og að- stoða Íraka við að axla ábyrgð á vörnum sínum og framtíð.“ Þjóðaröryggisráðgjafi forsetans, Condoleezza Rice, sagði í gær að forsetinn myndi í ávarpinu greina frá því hversu miklum fjármunum þyrfti að verja í áframhaldandi hersetu og enduruppbyggingu í Írak. Fjölmiðlar sögðu að forset- inn myndi fara fram á allt að sjö- tíu milljarða dollara til verkefn- isins, og þar af færu fjórir milljarðar á mánuði einungis í her- setuna. Bush hefði ennfremur ákveðið að falast eftir aðstoð Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Írak, og gefið Col- in Powell utanríkisráðherra fyr- irmæli um að styðja nýja ályktun á vettvangi SÞ er gerði samtökunum kleift að gegna þar stærra hlut- verki. SÞ gæfist nú „tækifæri til að axla aukna ábyrgð“ á uppbygg- ingarstarfinu í Írak. „Verjum því sem þarf“ George W. Bush Bandaríkjaforseti. Bush segir „meginvígstöðvar“ stríðsins gegn hryðjuverkum nú vera í Írak Washington. AFP, AP. Fúkyrði Völlers ÞÖRFIN fyrir bandarískt herlið í Írak og á öðrum vígstöðvum í stríð- inu gegn hryðjuverkum mun líklega hafa í för með sér að draga þurfi úr herafla Bandaríkjamanna annars staðar og gætu Bosnía, Kósovó, Sín- aí-skagi og Ísland verið þar á meðal, að því er bandaríska dagblaðið Free Lance-Star í Fredericksburg í Virg- iníu hefur eftir Richard B. Myers, yfirmanni bandaríska herráðsins. Myers sagði að á tuttugustu öld- inni hefði verið skynsamlegt að verulegur fjöldi hermanna væri í kaldastríðsherstöðvum á borð við stöðina á Íslandi, en væri það ef til vill ekki á tuttugustu og fyrstu öld- inni „í ljósi nýrrar stöðu í öryggis- málum“ og álagsins á bandarískan herafla vegna verunnar í Afganist- an og Írak. Gæti þýtt sam- drátt varnarliðs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.