Morgunblaðið - 08.09.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.09.2003, Blaðsíða 10
SUÐURNES 10 MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ REYKJANESBÆR var í hátíð- arbúningi fyrir og um helgina í tilefni menningar- og fjölskylduhátíð- arinnar Ljósanætur. Dagskráin var fjölbreytt og vel sótt, ekki síst á laug- ardag, en hátíðin dregur nafn sitt af kvöldi þess dags. Upphaflega varð Ljósanótt til fyrir fjórum árum þegar Steinþór Jónsson hótelstjóri ákvað að hafa smá tilstand í kringum það þegar hann kveikti á lýsingu Bergsins, útilistaverki sem hann hafði forgöngu um að koma upp. Síðan hefur hátíðin vaxið ár frá ári og er orðin ein stærsta bæjarhátíðin. Ljósanótt hefur orðið svo mikilvæg í bæjarlífinu á þessum stutta tíma að allt árið fer í undirbúning hennar. Framkvæmdum á vegum bæj- arfélagsins lýkur á þessum tíma og ýmsir atburðir sem hjá öðrum dreif- ast yfir árið eru settir á Ljósanótt. Í ár var nyrðri hluti Hafnargötunnar í Keflavík tekinn í notkun eftir gagn- gerar endurbætur. Er það einmitt við þann hluta götunnar sem flestir list- viðburðirnir eru og útihátíðarhöldin. Auk útlitsbreytinga á sjálfri göt- unni hefur verið komið upp nýrri götulýsingu og nýr hátíðarfáni bæj- arins settur á ljósastaurana. Skapar þetta skemmtilega umgjörð. Í dagskránni eru öllu til tjaldað sem til er. Verslanir eru opnar og stemmning á Hafnargötunni eins og á hátíðarstundum í erlendum stór- borgum. Markaðir, tónlist og götu- leikarar, fjöldi leiktækja fyrir börnin, í loftinu eru þyrlur á sveimi og list- flugvél, bátar og sjókettir á sjónum, fornbílar, slökkviliðsbílar, mótorhjól og hestar með kerru á götunum. Og ekki vantar fólkið, fjöldi fólks á sveimi. Fjöldi listsýninga er í Reykja- nesbæ á Ljósanótt. Mér telst til að hátt í eitt hundrað myndlistarmenn, ljósmyndarar og handverksfólk hafi verið að sýna afrakstur vinnu sinnar á sýningum nú. Þá kemur einnig fram fjöldi tónlistarfólks og annars lista- fólks. Ljósanótt er því sannkölluð menningarhátíð þótt annars konar skemmtanir séu einnig áberandi. Ágætis veður var um miðjan dag á laugardag. Á sjötta tímanum þynntist hópurinn verulega, þá fór fólkið heim til að horfa á landsleik Íslendinga og Þjóðverja eða út að borða. Þegar dag- skráin byrjaði aftur upp úr klukkan 20 var kominn strekkingur af sjónum og smá skúrir. Fólk var því lengi að koma sér á kvöldskemmtunina. Það var ekki fyrr en Bæjarstjórn- arbandið, skipað fimm bæj- arfulltrúum, kom fram sem upphit- unarhljómsveit fyrir Hljóma að það fór að fjölga aftur. Mikill mannfjöldi var kominn á útihátíðarsvæðið við Hafnargötu þegar Hljómar skemmtu við góðar undirtektir og klukkan tíu var síðan kveikt á lýsingunni á Berg- inu og efnt til stórfenglegrar flug- eldasýningar og undir leikin tónlist Gunnars Þórðarsonar, meðal annars Gamli bærinn minn. Þá var hámark- inu náð og hópurinn fór aftur að þynnast. En áfram var dagskrá fram á nótt á skemmtistöðunum. Enginn vill taka ábyrgð á tölum um fjölda gesta. Á síðasta ári var slegið á að gestir hefðu verið 20-25 þúsund. Efa- semdaraddir heyrast um að það geti hafa verið. Sama er uppi á teningnum nú. Steinþór Jónsson, formaður Ljósanefndar, segir að mönnum beri saman um að fleiri hafi verið á Hafn- argötunni um miðjan daginn nú en í fyrra. Erfiðara sé að bera saman fjöldann á kvöldskemmtuninni vegna þess að nú hafi hátíðarsvæðið verið stærra. En hann telur að gestir hafi verið fleiri en síðast og segir það ekki koma á óvart að þrátíu þúsund manns sé nærri lagi. Ljósanóttin fór vel fram, að sögn lögreglu. Eitthvað var um pústra og töluvert um að lögreglan þyrfti að hafa afskipti af unglingum sem ekki máttu vera úti vegna aldurs og sumir einnig undir áhrifum áfengis. Steinþór og Árni Sigfússon bæj- arstjóri segjast ánægðir með hvernig til tókst. „Þetta var einstaklega vel heppnuð hátíð. En auðvitað varð svip- legt fráfall Vilhjálms Ketilssonar skólastjóra, eins af máttarstólpum samfélagsins, okkur mikið áfall,“ sagði Árni. Vegna andláts Vilhjálms felldi Ljósnefnd niður skrúðgöngu sem til stóð að hafa í gær, á leik UMFN og Keflavíkur í 1. deildinni í knattspyrnu. Einnar mínútu þögn var við upphaf leiksins og knatt- spyrnumennirnir léku með sorg- arbönd en Vilhjálmur var í svokölluðu Gullaldarliði ÍBK. Öllu tjaldað sem til er á Ljósanótt Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Góð stemmning var við útisviðið við Myllubakka þegar Hljómar komu fram í gamla bænum sínum, Keflavík. Reykjanesbær Mikill fjöldi gesta var á Ljósanótt sem náði hámarki með tónleikum Hljóma, lýsingu Bergsins og flugeldasýningu. Helgi Bjarnason upplifði stemmninguna. Fjölbreytilegt mannlíf var á Hafnargötu en hestvagn eina ökutækið. „ÞEIR komu Bítlabænum á kortið,“ er letrað á hellu sem komið hefur ver- ið fyrir í gangstétt við verslunina Hljómval við Hafnargötuna í Kefla- vík. Stjörnuspor Reykjanesbæjar er tileinkað Hljómum frá Keflavík, ís- lensku Bítlunum, sem eiga 40 ára starfsafmæli í byrjun næsta mánaðar. Fjölmenni safnaðist um staðinn þegar Engilbert Jensen, Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíusson og Er- lingur Björnsson afhjúpuðu fyrsta Stjörnuspor Reykjanesbæjar. Auk framangreindrar áletrunar eru þar eiginhandaráritanir Hljómanna fjög- urra. Árni Sigfúson bæjarstjóri sagði af þessu tilefni að þegar ákveðið hefði verið, að hugmynd Hilmars Braga Bárðarsonar, að gera Stjörnuspor Reykjanesbæjar hefði strax verið litið til Hljóma. Þeirra fjörutíu ára litríki og farsæli ferill væri Reykjanesbæ mikil hvatning til að hlúa að tónlist- inni enn frekar og að þess mundu sjást merki þegar fram liðu stundir. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Mannfjöldi safnaðist í kringum íslensku bítlana, Engilbert Jensen, Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíusson og Erling Björnsson, þegar þeir afhjúpuðu fyrsta Stjörnuspor Reykjanesbæjar, í gangstéttinni við Hljómval. „Þeir komu Bítlabænum á kortið“ Reykjanesbær „ÞETTA er skemmtilegt, það blundar auðvitað smá hégóma- girnd í okkur,“ sagði Rúnar Júl- íusson þegar hann var spurður um Stjörnuspor Reykjanesbæjar. Aðspurður viðurkenndi Rúnar að hann hefði fengið væga stjörnutilfinningu við að sjá nafnið sitt í gangstéttinni. Rúnar sagði ekki mikla hættu á að hann stigi oft fæti á helluna, hún væri dálítið úr leið fyrir sig. Hann gengi alltaf með sjávarsíðunni í daglegum göngu- ferðum sínum, til þess að ná sér í súrefni fyrir daginn, eins og hann orðar það. Rúnar kvaðst ánægður með Ljósanæturhátíðina. Til dæmis kæmi fjöldi brottfluttra Kefla- víkinga og dveldi í bænum í fjóra daga. „Þetta er skemmti- legur viðburður og fer vaxandi. Svo er búið að taka virkilega vel til í bænum, fegra hann og snyrta,“ sagði Rúnar. Sjálfur tekur hann virkan þátt í Ljósanótt. Í ár voru Hljómar aðalnúmerið á kvöldskemmt- unni, frumfluttu lög af vænt- anlegum geisladiski Hljóma í bland við eldri lög á útisviðinu við Hafnargötu. Fengu þeir hlýj- ar mótttökur hjá þeim fjölda gesta sem hátíðina sótti. Þá var Rúnar með upptöku- heimili Geimsteins opið alla há- tíðisdagana og Hljómar áttu tón- list við kvikmynd sem sýnd var alla hátíðina. Það var því í nógu að snúast hjá tónlistarmann- inum. Fékk væga stjörnu- tilfinningu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.