Morgunblaðið - 08.09.2003, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 33
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT RÁS 2
SG DV
MBL
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT RÁS 2
SG DV
MBL
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.30, og 8.15. B.i. 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 10
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50. Með íslensku tali.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.
BASIC SINBAD SÆFARI ÁSTRÍKUR OG KLEOPATRATOMB RAIDER
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.
YFIR 39.000 GESTIR! YFIR 39.000 GESTIR!
98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina
sögðu “góð” eða“stórkostleg”!
98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina
sögðu “góð” eða“stórkostleg”!
Skonrokk FM 90.9
Skonrokk FM 90.9
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
Með
íslensku
tali
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP KL. 5, 7.45 OG 10.15.
ÁLFABAKKI
Synd kl. 4 og 6. Ísl tal
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8. Enskt tal
Sýnd áklukkutímafresti
KVIKMYNDIR.IS
LEIKRIT eftir Agöthu Christie,
glæpasagnahöfund og skapara belg-
íska einkaspæjarans Hercule Poirot,
fannst á dögunum eftir að hafa legið
týnt í meira en sjötíu ár. Þetta kemur
fram á fréttavef BBC.
Christie skrifaði mörg leikrit á
löngum ferli sínum sem rithöfundur,
meðal þeirra er það leikrit sem lengst
hefur verið flutt í heiminum, Músa-
gildran, eða The Mousetrap.
„Nýja“ leikritið, „Leyndarmál
skorsteinanna“, er njósnasaga frá
1925 og lá óhreyft í hvelfingum
Bresku þjóðarbókhlöðunnar. Leikrit-
ið segir frá miklum njósnaglæfrum í
evrópskum stjórnmálum á fjórða ára-
tug tuttugustu aldar og er talið frekar
frábrugðið hefðbundnum reyfurum
Christie. Vertigo Mystery Theater í
Calgaryborg í Kanada áformar að
frumsýna „Skorsteinana“, eins og
leikritið heitir nú, strax í október.
Gleymt leikverk
Agöthu Christie finnst
KVIKMYNDIN Nói albínói var
sýnd fyrir troðfullu húsi á kvik-
myndahátíðinni í Toronto á
föstudaginn. Var þar að sögn
viðstaddra mikið hlegið og
glaðst yfir hinni sérstöku mynd
og mikið spurt eftir sýninguna.
Leikstjóri myndarinnar Dag-
ur Kári og aðalleikarinn Tómas
Lemarquis mættu til Toronto
til að kynna myndina og var
þeim dæmalaust vel tekið og
höfðu bíógestir margs að
spyrja.
Kvikmyndahátíðin í Toronto
er sú stærsta í heimi á eftir há-
tíðinni í Cannes og fylgir henni
gríðarlegur fjöldi fjölmiðla-
fólks og fagfólks úr kvik-
myndageiranum.
Morgunblaðið/Jón E. Gústafsson
Dagur Kári og Tómas ræða við áhugasaman bíógest um Nóa albínóa.
Dagur Kári og Tómas
heimsækja Toronto
Reuters
Rússneski leikstjórinn Andrey Zvyagintsev og leikararnir Ivan Dobronr-
avov og Konstantin Lavronenko tileinkuðu gullna ljónið hinum unga Vlad-
imir Garin, sem lést sviplega skömmu eftir að tökum myndarinnar lauk.
RÚSSNESKA kvikmyndin „Endur-
koman“ („Vozvraschenie“) var sig-
ursæl á kvikmyndahátíðinni í Fen-
eyjum á dögunum. Hlaut hún bæði
Gullna ljónið, aðalverðlaun hátíðar-
innar og verðlaun fyrir bestu kvik-
mynd í fullri lengd.
Endurkoman fjallar um tvo unga
rússneska drengi sem fara í af-
drifaríka veiðiferð með föður sínum
eftir að þeir og hann hafa verið að-
skildir í tíu ár. Er þetta fyrsta
mynd leikstjórans Andrey Zvyag-
intsev, sem tileinkaði verðlaunin
einum af þremur aðalleikurum
myndarinnar, hinum fimmtán ára
Vladimir Garin, sem dó skömmu
eftir gerð myndarinnar.
Meðal annarra verðlaunahafa var
meðal annars Sean Penn, sem hlaut
verðlaun sem besti karlleikari fyrir
hlutverk dauðvona háskólaprófess-
ors í myndinni „21 grams“. Þegar
hann var spurður hvernig þetta
væri borið saman við Óskarsverð-
launin sagði hann að þetta væri
mjög ólíkt, því þarna væri verið að
verðlauna myndir sem hann nyti
þess að taka þátt í og skapa. „Ofan
á það má bæta að þegar ég labbaði
inn spurði mig enginn í „hverjum“
ég væri.“
Dómnefndarmenn voru sammála
um að gríðarlegt framboð góðra
mynda hefði gert þeim afar erfitt
fyrir með val á hinum ýmsu verð-
launahöfum. Þetta var sextugasta
kvikmyndahátíðin sem haldin er í
Feneyjum og er Feneyjahátíðin sú
elsta í heimi.
Rússneskur harmleikur
sigursæll á Feneyjahátíðinni