Morgunblaðið - 08.09.2003, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 29
DAGBÓK
FÁKAR
Í morgunljómann er lagt af stað.
Allt logar af dýrð, svo vítt sem er séð.
Sléttan, hún opnast sem óskrifað blað,
þar akur ei blettar, þar skyggir ei tréð.
– Menn og hestar á hásumardegi
í hóp á þráðbeinum, skínandi vegi
með nesti við bogann og bikar með.
Betra á dauðlegi heimurinn eigi.
– Brúnirnar þyngjast. Þeir harðna á hvarm.
Það hrökkva af augunum neista él.
Riðullinn þyrpist með arm við arm.
Það urgar í jöxlum við bitul og mél.
Þeir stytta sporin. Þeir stappa hófum
og strjúka tauma úr lófum og glófum.
Höfuðin lyftast. Hin lifandi vél
logar af fjöri undir söðulsins þófum.
– – –
Einar Benediktsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
60 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 8. sept-
ember, er sextug Hope
Knútsson, iðjuþjálfi og að-
gerðasinni, Æsufelli 4,
Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Einar Knútsson,
viðhalds- og eftirlitsstjóri
hjá Flugleiðum. Búið er að
halda upp á afmælið.
60 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 8.
september, er sextugur
Níls Nílsen, Hringbraut
45, Reykjavík. Eiginkona
hans er Edda Hulda
Waage. Þau munu eyða
deginum með börnum,
tengdabörnum og barna-
börnum.
Í SVEITAKEPPNI er
óhætt að reyna slemmu
sem veltur á einni svíningu.
Ágóðinn ef slemman stend-
ur er jafn mikill og tapið ef
hún fer niður. Slemma sem
byggist á því að önnur af
tveimur svíningum heppn-
ist er því mjög góð:
Norður gefur; AV á
hættu.
Norður
♠ ÁD
♥ G54
♦ K106
♣86532
Suður
♠ 6
♥ ÁD2
♦ ÁG92
♣ÁKDG9
Vestur Norður Austur Suður
-- Pass Pass 1 lauf
Pass 2 lauf Pass 6 lauf
Pass Pass Pass
Vestur trompar út gegn
sex laufum og austur fylgir
lit. Hvernig er best að
spila?
Augljós leið er að svína
fyrst fyrir hjartakóng og
reyna síðan að finna tígul-
drottninguna. Það er nóg
að annað heppnist og á því
eru góðar líkur. En spilið
býður upp á meira. Segjum
að legan sé þessu lík:
Norður
♠ ÁD
♥ G54
♦ K106
♣86532
Vestur Austur
♠ 108743 ♠ KG952
♥ K1063 ♥ 987
♦ D4 ♦ 8753
♣74 ♣10
Suður
♠ 6
♥ ÁD2
♦ ÁG92
♣ÁKDG9
Besta spilamennskan er
þessi: Sagnhafi aftrompar
vestur, tekur spaðaás og
trompar drottninguna.
Spilar svo tígultvisti á
kónginn og sexunni til baka
á gosann. Svíningin mis-
heppnast, en þar eð vestur
á ekki tígul til verður hann
að spila sér í óhag: hjarta
upp í gaffalinn eða spaða í
tvöfalda eyðu. Og þá verð-
ur hjartasvíningin óþörf.
Með þessu er sagnhafi í
grundvallaratriðum að spila
upp á svíningarnar tvær,
auk þess sem hann vinnur
slemmuna þegar vestur á
tíguldrottningu aðra.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. c4 Rf6 2. Rc3 e5 3. Rf3
Rc6 4. g3 Bc5 5. Bg2 d6 6. d3
h6 7. a3 a6 8. b4 Ba7 9. 0–0
0–0 10. Bb2 Bg4 11. h3 Be6
12. Hc1 Dd7 13. Kh2 Hab8
14. e3 b5 15. Rd2 Re7 16. e4
Re8 17. f4 exf4 18. gxf4 f5
19. Rd5 bxc4 20.
Rxc4 fxe4 21. dxe4
Rxd5 22. exd5 Bf5
23. Ra5 Bb6 24. Rc6
Ha8 25. He1 Hf7 26.
Dd2 Rf6 27. a4 a5 28.
bxa5 Bc5
Staðan kom upp í
landsliðsflokki Skák-
þings Íslands sem
lauk fyrir skömmu í
Hafnarborg í Hafn-
arfirði. Hannes Hlíf-
ar Stefánsson
(2.560) hafði hvítt
gegn Jóni Viktori
Gunnarssyni (2.411). 29.
Hxc5! dxc5 30. Re5 Dxa4
31. Rxf7 Kxf7 32. d6 Hd8
33. Bd5+ og svartur gafst
upp. Atkvöld Taflfélagsins
Hellis hefst kl. 20.00 8. sept-
ember í félagsheimilinu
Álfabakka 14a. Ljúffeng
verðlaun eru í boði og til-
valið er að liðka puttana rétt
fyrir skákvertíð vetrarins.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Þessar duglegu stúlkur, Guðrún Stella Sæberg Þóris-
dóttir og Hanna Birgitta Harðardóttir, söfnuðu 2.200
kr. til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra
barna.
Morgunblaðið/Ragnhildur
HLUTAVELTA
KIRKJUSTARF/ÞJÓNUSTA
Laugarneskirkja. Opinn 12 spora fund-
ur í safnaðarheimilinu kl. 18. Allt fólk
velkomið. Vinir í bata. Kynningarfundur
kl. 20. Tækifæri til að koma og huga að
þátttöku í þessu einstaka starfi. Geng-
ið inn um aðaldyr safnaðarheimilisins.
Aðgangur og öll þátttaka ókeypis.
Neskirkja. 6 ára starf kl. 13.30. Uppl.
og skráning í síma 511 1560.
Seljakirkja. KFUK 9–12 ára kl. 17.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir
16 ára og eldri kl. 20–22.
Lágafellskirkja. Bænastund í Lága-
fellskirkju kl. 20. Þórdís djákni þjónar
og tekur við bænarefnum í síma 691-
8041 alla daga frá kl. 9–16. Al-Anon-
fundur í Lágafellskirkju kl. 21.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
17.30 æskulýðsfélag fatlaðra, eldri
hópur. Hulda Líney Magnúsdóttir og
sr. Þorvaldur Víðisson.
Borgarneskirkja. TTT-starf kl.
15.30–16.30.
Safnaðarstarf
Eldri borgara starf
og mömmumorgnar
í Hallgrímskirkju
VETRARDAGSKRÁ eldriborg-
arastarfsins hefst þriðjudaginn 9.
september. Leikfimi við allra hæfi-
,undir stjórn sjúkraþjálfara, alla
þriðjudaga og föstudaga kl. 13:00.
Súpa og brauð á eftir, spilað á spil
og spjall og alltaf heitt á könnunni.
Vinaheimsóknir í boði, upplýsingar
veittar í síma 510 1034.
Mömmumorgnar/ foreldra-
morgnar hefjast miðvikudaginn 10.
september. Allir velkomnir.
Alfa-námskeið
í Neskirkju
MÁNUDAGINN 9. september kl. 20
fer fram kynning á Alfa-námskeið-
inu sem nýtur mikilla vinsælda víða
um lönd. Námskeiðið hefst svo viku
síðar, þriðjudaginn 16. september
kl. 19. Kennt verður 10 þriðjudaga í
röð kl. 19-22 og farið í helgarferð
að Skálholti 11.-12. október.
Á námskeiðinu verður fjallað um
grundvallaratriði kristinnar trúar.
Ræddar verða spurningar sem
þessar: Stenst kristindómurinn?
Hver var Jesús Kristur? Hvers
vegna dó hann? Hvernig er hægt að
öðlast trúarvissu? Hvernig og hvers
vegna ætti ég að lesa Biblíuna?
Hvernig get ég lært að biðja? Leið-
beinir Guð okkur? Hver er heilagur
andi? Hvernig get ég varist hinu
illa í lífinu? Læknar Guð fólki í dag?
Hvers vegna er kirkjan til og hvaða
hlutverki gegnir hún? Hvernig get
ég gert sem mest úr lífi mínu það
sem eftir er?
Hvert kvöld hefst með málsverði,
því næst er fyrirlestur og loks um-
ræður í hópum og stutt helgistund.
Skráning fer fram í Neskirkju í s.
511 1560 eða með netpósti á nes-
kirkja@neskirkja.is. Námskeiðið
sjálft er ókeypis en greitt er fyrir
máltíðir, vinnubók og ferðina í
Skálholt. Umsjón með námskeiðinu
hefur sr. Örn Bárður Jónsson.
Alfa-námskeiðið er kjörið handa
öllum þeim sem vilja fræðast um
kristna trú og skoða rök hennar
andspænis margskonar hug-
myndafræði samtímans. Á kynning-
arkvöldinu verður sagt frá nám-
skeiðinu, innihaldi þess og
skipulagi og fluttur verður einn
dæmigerður fyrirlestur. Að svo
búnu verður boðið uppá veitingar
og umræður. Þá verður einnig
hægt að skrá sig á kynningarkvöld-
inu.
Morgunblaðið/Arnaldur
Hallgrímskirkja.
LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRA-
HÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími
543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og
símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10–
16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369.
LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin lækn-
isþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08–17. Uppl.
í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laeknalind.is
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S.
533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr.
Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif-
stofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
Neyðarnúmer fyrir
allt landið - 112
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu til styrktar Rauða krossi Íslands og
söfnuðu 5.137 kr. Þær eru Karólína Vilborg Káradóttir, Elín Pálmadóttir
og Halldóra Kristín Hjartardóttir.
Morgunblaðið/Kristinn
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Þú hefur sterkar skoðanir
og þörf fyrir að koma þeim á
framfæri. Þér líður þó best í
fámenni. Ef þú leggur hart
að þér á komandi ári muntu
uppskera á næstu tveimur
árum.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Dagurinn í dag er ekki hent-
ugur til innkaupa. Keyptu
bara það nauðsynlegasta og
frestaðu öðrum innkaupum
til morguns.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert óvenju frjó/r í hugsun
í dag. Skrifaðu niður hug-
myndir þínar en bíddu með
ákvarðanatökur til morguns.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Dagurinn mun einkennast af
veikindum og töfum. Forð-
astu að setja markið of hátt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Forðastu ónauðsynleg fjár-
útlát í dag. Bíddu með inn-
kaup til morguns og notaðu
daginn þess í stað til sam-
vista við fólk.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu ekki freistast til
ónauðsynlegra fjárútláta í
dag. Það er hins vegar ekk-
ert að því að kanna úrvalið
og velta fyrir sér ólíkum
möguleikum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Byrjaðu vikuna á rólegu nót-
unum. Bíddu með mik-
ilvægar ákvarðanir til morg-
uns.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Farðu varlega í að fram-
kvæma þær hugmyndir sem
þú færð í dag. Gefðu þér
tíma til að melta hlutina. Það
er líklegt að þeir líti öðruvísi
út á morgun.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er hætt við að viðræður
við foreldra þína og aðra
fjölskyldumeðlimi fari í
hringi. Forðastu að skuld-
binda þig. Bíddu til morguns
með að taka endanlegar
ákvarðanir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Farðu vel yfir ferðaáætlanir
þínar og þau verkefni sem
fyrir liggja. Það er hætt við
mistökum í dag. Láttu því
lítið fyrir þér fara og ætlaðu
þér ekki um of.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Forðastu umfangsmikil inn-
kaup í dag. Þú getur kynnt
þér úrvalið en bíddu til
morguns með að ganga frá
kaupunum. Þú munt ekki sjá
eftir því.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Dagurinn er eitthvað rugl-
ingslegur. Þú ættir að láta
mikilvæg verkefni bíða og
leyfa þér að hugsa málin í
rólegheitum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú ættir að fara í langan há-
degismat og snemma heim
úr vinnunni. Þig langar ekki
til að sökkva þér ofan í vinn-
una og þú ættir að virða það.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira
lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmæl-
istilkynningum og/
eða nafn ábyrgð-
armanns og síma-
númer. Fólk getur
hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík