Morgunblaðið - 08.09.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.09.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ EKKI SAMRUNI SH OG SÍF Burðarás ehf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf. keyptu á laugardag samtals 12,5% hlut í Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna fyrir einn millj- arð króna í tengslum við sölu á eign- arhlut sínum í SÍF. Bréf fyrir 3,5 milljarða króna í SÍF skiptu um eig- endur á laugardag og hafa tveir nýir hluthafar eignast rúmlega 33% í SÍF. Ljóst er að ekkert verður af samruna SH og SÍF á næstunni. Báturinn gjörónýtur Draumur Kjartans Jakobs Haukssonar um að róa í kringum landið varð að engu í bili í gærdag þegar bát hans hvolfdi yfir hann við Rekavík á norðanverðum Vest- fjörðum og rak upp í brimgarðinn með þeim afleiðingum að hann er gjörónýtur. Kjartan slapp frá óhappinu með skrámur og mar. Yfir 300 karlmenn sektaðir Yfir þrjú hundruð karlmenn í Sví- þjóð hafa verið dæmdir til að greiða fjársekt, þ.e. ákveðinn hluta af tekjum sínum, vegna brota á lögum þar í landi sem kveða á um bann við kaupum á vændi, en brotin geta varðað fésektum eða fangelsisvist í allt að sex mánuði. „Verjum því sem þarf“ George W. Bush Bandaríkja- forseti flutti ávarp til bandarísku þjóðarinnar í gærkvöldi og sagði m.a. að Bandaríkjamenn myndu „verja því sem þörf krefði“ til að sig- ur ynnist í stríðinu gegn hryðju- verkastarfsemi. Meginvígstöðvarnar í því stríði væru nú í Írak. Eftirmaður Abbas Yasser Arafat Palestínuleiðtogi útnefndi í gærkvöldi Ahmed Qurei, forseta palestínska þingsins, eft- irmann Mahmouds Abbas, forsætis- ráðherra Palestínumanna, er sagði af sér á laugardaginn. Útiloka ekki hert eftirlit Íranar segjast ekki útiloka að þeir muni heimila Alþjóðakjarnorku- málastofnuninni að hafa eftirlit með kjarnorkuvinnslustöðvum í landinu. Þýskt dagblað segir þá þegar vera farna að vinna að smíði kjarnorku- sprengju. 2003  MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A „KAHN VIRÐIST VERA VOÐALEGA PIRRUÐ TÝPA“ / B4 EINS og áður hefur komið fram var Pétur Guð- mundsson fyrsti Evrópubúinn sem lék í NBA- deildinni árið 1981 er hann gekk til liðs við Port- land en aðeins þrír leikmenn frá Norðurlöndum hafa leikið fram að þessu í NBA. Þeir eru, auk Péturs, norski landsliðsmaðurinn Torgeir Bryn sem lék með L.A. Clippers 1989-1990, Finninn Hanno Mottola sem var í herbúðum Atlanta. Jón Arnór Stefánsson gæti því orðið fjórði Norður- landabúinn til þess að leika í NBA. Athygli vekur að Danir og Svíar eru enn ekki búnir að feta þessa leið en Svíar telja sig eiga leikmann sem er samningsbundinn New York Knicks, Maciej Lampe sem er frá Rågsved í Stokkhólmi. Hinsvegar er Lampe með tvöfalt ríkisfang og hefur leikið með pólska landsliðinu og telst því vart vera sænskur á þessum vettvangi. Lampe er samningsbundinn Real Madrid en hefur samt sem áður ekki leikið með liðinu undanfarið. Aðeins þrír frá Norð- urlöndum í NBA Þýsku fjölmiðlarnir eru á einumáli um að Þjóðverjar hafi sloppið með skrekkinn á Laugar- dalsvelli. Götublaðið Bild sagði að boðið hefði verið upp á pyntingafót- bolta. „Silfurhafarnir úr HM á Ís- landi – þetta átti að verða skyldu- sigur. En varð 0:0 af sorglegustu gerð,“ sagði í blaðinu. Blaðið segir að tvær sóknir hjá þýska liðinu í fyrri hálfleik hafi verið of lítið og rekur síðan hvert marktækifæri Ís- lendinga á fætur öðru: „Sannleik- urinn er bitur, en það er hrein heppni að við skyldum ekki tapa leiknum.“ Netzeitung.de segir að leikurinn hafi verið bakslag í sókninni eftir sæti á EM: „Með mikilli heppni tókst silfurhöfunum úr síðustu heimsmeistarakeppni að bjarga sér og hanga á jafntefli gegn Íslandi þar til leikurinn var úti,“ sagði í miðlinum. Í fréttaskeyti frá þýsku frétta- stofunni dpa segir að Þjóðverjar hafi valdið vonbrigðum á öllum sviðum knattspyrnunnar gegn „vík- ingunum, sem í besta falli tilheyra öðrum flokki í alþjóðlegri knatt- spyrnu“ og engin ástæða sé til bjartsýni gegn Skotum í Dortmund á miðvikudag og Íslendingum í Hamborg 11. október. Með tveimur heimasigrum geti þýska liðið hins vegar tryggt sér miða á EM í Portúgal á næsta ári. Síðan er rak- ið að þýska liðið hafi reyndar verið betra í fyrri hálfleik, en það hafi ekki skilað sér í marktækifærum og í seinni hálfleiknum hafi liðið einnig misst stjórn á gangi leiksins og hvað eftir annað verið í nauð- vörn, meðal annars hafi liðið tvisv- ar þurft að bjarga á línu á 53. mín- útu, fyrst Frank Baumann og Christian Wörns í sameiningu skoti Lárusar Orra Sigurðssonar eftir að Oliver Kahn hafði misst af knett- inum og strax á eftir þegar Wörns bjargaði eftir skalla Heiðars Helgusonar. Það hafi verið heppni fremur en leikskilningi að þakka að þýska liðið skyldi ekki lenda undir. Talað er um að Rudi Völler þjálfari hafi látið lið sitt spila upp á jafn- tefli fremur en að leika til sigurs. Knattspyrnutímaritið Kicker sagði að áhorfendum hefði í upp- hafi verið boðið upp á megrunar- fæði af hálfu beggja liða. Leiftrandi hugmyndir hafi vantað í sóknarleik þýska liðsins og eins og leikurinn hafi spilast verði landsliðið að gera sér eitt stig að góðu. Paul Breitner, sem á árum áður gerði garðinn frægan með Bayern München og þýska landsliðinu, skrifar í dálki sínum í Bild að jafn- tefli sé pínleg úrslit. „Ég er nánast orðlaus og það er ekki lítið,“ skrifar Breitner. „Auðvitað geta andstæð- ingar á borð við Íslendinga verið óþægilegir (ekki síst þegar þeir leika á heimavelli), en á þessu stigi riðlakeppninnar ætti það aldrei nokkru sinni að duga til þess að ná stigi af liðinu okkar. Þótt við getum enn náð fyrsta sætinu í riðlinum verðum við að átta okkur á því að klukkuna vantar ekki lengur fimm mínútur heldur tíu sekúndur í tólf. Þetta snýst ekki lengur bara um farmiðann til Portúgal 2004, heldur að takmarka skaðann, sem þegar er orðinn. Það var hrein kvöl að fylgjast með þessum 90 mínútum.“ Morgunblaðið/Árni Torfason Íslenska landsliðið í knattspyrnu náði þeim glæsilega árangri að gera jafntefli við silfurlið síðustu heimsmeistarakeppni, Þjóðverja, á Laugardalsvelli, 0:0. Gríðarleg stemmning var á áhorfendapöllunum á meðal þeirra rúmlega 7.000 sem áttu þess kost að vera á vellinum og fögnuðu þeir íslenska landsliðinu vel að leikslokum. Skammarleg frammistaða gegn fótboltadvergnum ÞÝSKA landsliðið fær slæma útreið í þýskum fjölmiðlum eftir lands- leikinn á laugardag. „Rudi, þetta var ekkert annað en hryllingur,“ stóð í dagblaðinu Bild. „Boðið upp á núll gegn fótboltadvergnum Ís- landi,“ hljóðaði fyrirsögn á vefsíðu sjónvarpsstöðvarinnar ARD. „Skammarleg frammistaða í 0:0 leik á Íslandi,“ var fyrirsögn vef- miðilsins Netzeitung.de. „Þrátt fyrir sorglegan 0:0 leik á þýska liðið enn möguleika á sæti í EM,“ skrifaði Süddeutsche Zeitung. „Þýska liðið veldur vonbrigðum á Íslandi,“ stóð í Der Spiegel. Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 22/24 Suðurnes 10 Bréf 26 Vesturland 12 Dagbók 28/29 Erlent 13/14 Leikhús 30 Listir 16/17 Fólk 30/33 Forystugrein 18 Bíó 30/33 Umræðan 20 Ljósvakar 34 Hestar 21 Veður 35 * * * HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra segir að endurskoða þurfi stuðningsaðgerðir í landbún- aði í ljósi þess sem er að gerast á alþjóðlegum vettvangi og eðlilegt sé að fara að huga að und- irbúningi í því efni, en of snemmt sé að segja til um hvað gerist á fundi Alþjóðaviðskiptastofn- unarinnar, WTO, í Cancún í Mexíkó í vikunni. Stefnt sé að því að draga úr framleiðslutengdum stuðningi við landbúnað og leggja af útflutnings- styrki og því þurfi hagræðingu í landbúnaði hér- lendis og meiri samkeppnishæfni. Halldór Ásgrímsson segir að auka þurfi hag- kvæmni í sauðfjárrækt hér á landi, en á opnum fundi Framsóknarflokksins á Egilsstöðum fyrir helgi sagði hann að því miður væru ekki vaxt- armöguleikar í sauðfjárræktinni. Hins vegar bæri að viðhalda henni og skipuleggja þannig að bændur í sauðfjárrækt gætu haft sem bestar tekjur. Hann segir að breytingar í slátruninni skipti miklu máli en síðan þurfi að stækka búin og skapa bændum betri möguleika til að hafa aðr- ar tekjur þar sem ekki er hægt að auka fram- leiðsluna. „Það má búast við því að niðurstaða náist um ramma sem síðan verði unnið eftir, en ég á ekki von á því að það náist endanleg niðurstaða hér í Cancún,“ segir Halldór Ásgrímsson. „En það er alveg ljóst að það stefnir í það að samningarnir geri ráð fyrir því að draga úr framleiðslutengdum stuðningi við landbúnað og einnig að leggja af hverskonar útflutningsstyrki.“ Halldór Ásgrímsson segir að þróunarríkin sæki mjög fast á um að komast meir inn á vest- ræna markaði með landbúnaðarvörur sínar og þau ríki sem séu með mest frjálsræði á þessu sviði eins og Bandaríkin, Ástralía og fleiri hafi líka sótt fast á um breytingar. Evrópusambandið hafi gengið langt til móts við kröfur Bandaríkja- manna og búast megi við því að ekki verði gengið skemur í niðurstöðunni en það skref sem Evrópu- sambandið hafi þegar stigið. „Það þýðir einfald- lega það að það verður dregið úr framleiðslu- tengdum stuðningi og við munum sjá meira frjálsræði í innflutningi á næstu árum. Það er al- veg ljóst að það mun jafnframt gerast á Íslandi. Landbúnaðurinn verður því að mæta þessum nýju aðstæðum með því að hagræða og ná meiri samkeppnishæfni.“ Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra á fundi WTO í Mexíkó Auka þarf hagræðingu og samkeppnishæfni í landbúnaði ÍSLANDSDEILD Amnesty International efnir í dag til þögullar mótmælastöðu til stuðnings fórnarlömbum mannréttindabrota í Kína. Mótmælin eru í tilefni af heimsókn Luos Gans, eins æðsta ráðamanns í Kína, til Íslands. Safnast verður sam- an við Þjóðmenningarhúsið á Hverfisgötu tíu mínútur í tólf og hvetja aðstandendur alla, sem tök hafa á, til að mæta tímanlega og mótmæla mann- réttindabrotum kínverskra stjórnvalda. Heimsækir Alþingi og ráðherra Luo Gan mun í dag meðal annars heimsækja Alþingi og hitta Guðmund Árna Stefáns- son, starfandi forseta Alþing- is. Einnig hittir Luo Gan Björn Bjarnason dómsmála- ráðherra í Þjóðmenningar- húsinu og Davíð Oddsson for- sætisráðherra í Ráðherrabústaðnum. Í hádeginu verður síðan í Þjóðmenningarhúsinu hádeg- isverðarboð til heiðurs Luo Gan, í boði dómsmálaráð- herra. Seinni hluta dagsins fer Luo Gan í skoðunarferðir á Nesjavelli og Þingvelli þar sem snæddur verður kvöld- verður í Hótel Valhöll í boði forseta Alþingis. Á morgun lýkur síðan dvöl Luos Gans á Íslandi með heimsókn í Hæstarétt og Ráðhús Reykjavíkur. Þögul mót- mæli vegna heimsóknar Luos Gans Elínborg Guðmundsdóttir á Blönduósi er eitt hundrað ára í dag. Þennan dag fyrir hundrað árum leit hún dagsins ljós á Kringlu í Torfalækjarhreppi og bjó þar fyrstu 19 ár ævi sinnar. Í samtali við Morgunblaðið sagði Elínborg að sér liði vel og leiddist aldrei. Heyrnin er farin að bila og síðustu sex árin hefði sjón- in verið lítil. Hún hefur verið rólfær alveg fram á þennan dag en fyrir viku fékk hún kvef og hefur þurft smá aðstoð síðan. Elínborg giftist Jóni Einarssyni frá Þverá í Norður- árdal í A-Hún árið 1923 og saman áttu þau dótturina Önnu sem nýlega er látin. Mann sinn missti Elínborg árið 1978. Barnabörnin eru sex og fjöldinn allur af barnabarnabörnum. Eftir að þau Jón giftust bjó El- ínborg á Blönduósi, fyrst í húsi sem kallað var „lík- kistan“ en síðan í Jónshúsi sem nú er horfið. Elínborg sagðist hafa verið handlagin og stundaði mikið saumaskap. Einnig var hún ráðskona í vega- vinnu í mörg ár og ennfremur ráðskona hjá Snorra Arnfinnssyni vert á Hótel Blönduósi. Spurð að því hvernig henni hefði tekist að lifa svona lengi sagði Elínborg. „Ég var vel upp alin, fékk alltaf nýmjólk og heimagerðan hollan mat og síðast en ekki síst bjó ég á glaðsinna heimili.“ Elínborg sagði kímin að líklega gæti hún prjónað „en ég nenni því bara ekki.“ Þegar hún var spurð að því hvernig dagur í lífi eitt- hundrað ára gamallar konu liði sagði Elínborg. „Dag- urinn er liðinn áður en ég veit af. Ég á auðvelt með að rifja upp liðna tíð, til dæmis man ég ungmenna- félagsfundina í gamla daga, þá var margt af ungu fólki hér á Blönduósi.“ Einnig fer hún í gegnum heilu skáldsögurnar í hug- anum. Lífshlaupið hefur verið gott og það hefur farið vel. „Barnabörnin vildu halda upp á afmælisdaginn minn en ég vildi ekkert vesen, bara heitt á könnunni en krakkarnir hlýddu mér ekki.“ Þegar hún var spurð að því hvað hún ætlaði að lifa lengi, sagði þessi fallega, jákvæða gamla kona: „Ég er ekki búin að semja við Herrann um það.“ Elínborg Guðmundsdóttir á Blönduósi 100 ára Mér líður vel og leið- ist aldrei Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Elínborg Guðmundsdóttir er 100 ára í dag. Hún dvelur nú á heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi. Blönduósi. Morgunblaðið. KAYAKKLÚBBURINN stóð á laugardaginn fyrir Kayakmaraþoni, þar sem rónir voru rúmir fjörutíu kílómetrar, frá Geld- inganesi í Grafarvogi til Hvammsvíkur í Hvalfirði. Lagt var af stað klukkan tíu á laugardagsmorgun úr Geldinganesi og fengu keppendur að staldra við á tveimur áningarstöðum á leiðinni, til þess að rétta úr sér. Tólf keppendur tóku þátt í maraþoninu og var keppt í þremur flokkum, tveimur flokkum karla og einum kvennaflokki og gekk mótið vel, enda aðstæður prýðilegar. Í A flokki karla sigraði Sveinbjörn Kristjánsson, sem bætti brautar- metið um fimmtán mínútur og lauk ferðinni á fjórum klukkutímum og sautján mínútum. Í B flokki karla sigraði Halldór Sveinbjörnsson, á fjórum klukkutím- um og fjörutíu og átta mínútum. Í Kvennaflokki sigraði síðan Fann- ey Pálsdóttir sem kom í mark á fimm klukkutímum og fimmtíu og þremur mínútum. Vel var tekið á móti þátttakendum þegar þeir lentu í Hvammsvík, enda mikið þrekvirki að baki og gerðu þátt- takendur, fjölskyldur þeirra og vinir sér glaðan dag í fallegu umhverfi Hvalfjarðarins, grilluðu og léku sér saman fram eftir kvöldi. Bætti brautarmetið í Kayakmaraþoni Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.