Morgunblaðið - 08.09.2003, Síða 13

Morgunblaðið - 08.09.2003, Síða 13
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 13 auka við sáttmálann um bann við útbreiðslu kjarnavopna, en sam- kvæmt honum yrðu Íranir að heimila fulltrúum stofnunarinnar að koma fyrirvaralaust í eftirlits- ferðir í kjarnorkuvinnslustöðvar sínar. Íranir neita því að þeir séu að smíða sér kjarnavopn, en segjast þurfa að fá tiltekin atriði í viðauk- anum útskýrð nánar áður en þeir geti skrifað undir. Kharazi hvatti stjórnarmenn stofnunarinnar til að KAMAL Kharazi, utanríkisráð- herra Írans, segir að Íranir myndu ef til vill innan skamms fallast á hert eftirlit með kjarnorkuvinnslu- stöðvum í landinu ef takast myndi að taka af öll tvímæli í viðræðum við Alþjóðakjarnorkumálastofn- unina (IAEA). Fundur um Írans- málið hefst hjá stofnuninni í Vín í dag. IAEA nýtur alþjóðlegs stuðn- ings í viðleitni sinni til að fá Írana til að skrifa undir og fullgilda við- láta ekki undan þrýstingi frá Bandaríkjamönnum er fjallað verði um kjarnorkuáætlun Írana. Kvaðst hann vona að málið yrði rætt á fag- legum nótum, en ekki pólitískum. Bandaríkjamenn telja að Íranir fari ekki að sáttmálanum um bann við smíði kjarnavopna, og vonast til að á fundinum í Vín muni IAEA samþykkja harðorða ályktun þar sem skorað verði á þá að veita all- ar upplýsingar um kjarnorkuáætl- un sína. Ólíklegt er talið að IAEA lýsi því yfir að Íranir hafi brotið sáttmálann, en slík yfirlýsing gæti leitt til refsiaðgerða gegn Írönum. Samkvæmt fréttum þýska blaðs- ins Tagesspiegel am Sonntag í gær eru þegar um 90 íranskir vísinda- menn að vinna að smíði kjarnorku- sprengju að frumkvæði íranska varnarmálaráðuneytisins. Hefur blaðið eftir leyniþjónustumönnum að Íranir hafi keypt háspennurofa og háhraðamyndavélar sem nota eigi við kjarnorkutilraunir. Íranar útiloka ekki hert eftirlit með kjarnorkustöðvum sínum Teheran, Berlín. AFP. INNVIÐIR bandarísks þjóð- félags eru stórgallaðir og má víða finna sprungur, leka og göt, samkvæmt skýrslu verk- fræðinga sem rannsakað hafa 12 mismunandi kerfi í landinu, m.a. samgöngukerfi, vatnsveit- ur og rafkerfi. Skýrslan var gefin út á vegum bandaríska verkfræðingasambandsins. Skólar landsins fá verstu ein- kunnina en fram kemur að í þremur af hverjum fjórum skólum er aðstaðan ekki full- nægjandi fyrir skólabörn. Í skýrslu verkfræðinganna er skuldinni skellt á bágt efna- hagsástand, að lítið sé um rík- isstyrktar framkvæmdir, auk- inn mannfjölda og hryðjuverkaógnina en vegna hennar hafi miklum peningum verið veitt til öryggismála sem annars hefðu farið í fram- kvæmdir. STUTT Gallaðir innviðir Washington. AP. Hómer þekktastur TEIKNIMYNDAHETJAN Hómer Simpson virðist vera þekktasta andlit nútímans en heil 99% viðskiptavina HMV plötubúðarinnar í London þekkja Hómer karlinn í sjón en einungis 93% kannast við Jesú Krist, að því er fram kemur í Aftenposten. Hundrað viðskiptavinum verslunarinnar voru sýndar myndir af andliti frægs fólks og þeir síðan beðnir um að nefna þann sem var á myndinni. Í ljós kom að fleiri þekktu einnig rokkarann Marilyn Manson en Jesú en ekki fylgdi sögunni hvers konar mynd af Kristi var sýnd. Þá könnuðust 80% við rokkarann Courtney Love úr hljómsveitinni Hole en 79% þekktu fyrrverandi eiginmann hennar, söngvarann Kurt Cobain úr Nirvana. Leikkon- una Gwyneth Paltrow þekktu 79% en mann hennar, Coldplay-söngvarann Chris Martin, þekktu 69%. Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, getur líka verið ánægður því 98% þekktu andlit hans. Engar líkur á árekstri ENGAR líkur eru á að loft- steinn sem nýverið uppgötvað- ist rekist á jörðina innan ellefu ára, að því er haft er eftir stjörnufræðingum á fréttavef CNN. Frumrannsóknir höfðu bent til að möguleiki væri á slíkum árekstri. Nýjar upplýsingar hafa gert vísindamönnum kleift að spá um braut loftsteinsins af meiri nákvæmni en áður, og í ljósi þess er orðið ljóst að hætta á árekstri sé engin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.