Morgunblaðið - 08.09.2003, Síða 17
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 17
www.merkur.is
594 6000
Skútuvogi 12a, 104 R.
Bæjarflöt 4, 112 R.
EININGAHÚS
• Staðlaðar gámastærðir 10, 20 og 30ft.
• Möguleiki á yfirbreidd- og hæð
• Ótal notkunarmöguleikar
Frábær reynsla! - Hagstætt verð!
Fyrir íslenskar aðstæður
IS200
LEXUS STYRKIR SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
TO
Y
22
17
1
0
9/
20
03
LEXUS N†B†LAVEGI 6 SÍMI 570 5400 WWW.LEXUS.IS
VELKOMIN Á SINFÓNÍUDAGINN
H Á S K Ó L A B Í Ó , fi R I ‹ J U D A G 9 . S E P T E M B E R , K L . 1 5 . 0 0 - 1 7 . 0 0 .
KL. 15.00 UMRÆ‹UFUNDUR VINAFÉLAGS SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS.
KL.16.20 SPENNANDI KYNNING Á EFNISSKRÁ VETRARINS.
KL.16.30 fiÓRÓLFUR ÁRNASON, BORGARSTJÓRI, GERIR TILRAUN TIL A‹ STJÓRNA
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITINNI.
KL.16.45 ÖLLUM GESTUM BO‹I‹ UPP Á SVI‹ TIL A‹ SPYRJA HLJÓ‹FÆRALEIKARA,
SKO‹A HLJÓ‹FÆRIN OG FRÆ‹AST.
KOMDU OG NJÓTTU DAGSINS ME‹ OKKUR. VEITINGAR ERU Í BO‹I LEXUS.
ALÞJÓÐLEGT leikhúsverkefni sem Ilmur Stef-
ánsdóttir myndlistarkona og Valur Freyr Einarsson
vinna nú að hlaut nýverið styrk úr Menningarsjóði Evr-
ópu, Cultur 2000. Verkefnið nefnist CommonNonsense
og er auk þess styrkt af Norræna menningarsjóðnum
og Norrænu Leikhús- og Dansnefndinni, Teater og
dans í Norden.
CommonNonsense verður frumsýnt í Borgarleikhús-
inu í nóvember á þessu ári og er hugmyndin að sýning-
unni innblásin og sprottin upp úr jarðvegi sér-
kennilegra skúlptura eftir Ilmi, en hún gerir tilraunir
með því að nota hluti úr daglegu lífi á nýjan og óhefð-
bundinn hátt.
CommonNonsense er alþjóðlegt samstarf listamanna
frá 4 Evrópulöndum; Íslandi, Svíþjóð, Englandi og
Finnlandi. Leikstjóri sýningarinnar er John Wright og
að henni kemur hópur valinkunnra listamanna, ís-
lenskra og erlendra. Auk Ilmar og Vals eru í hópnum
þau Ásta Sighvats. leikkona, Stephen Harper leikari,
Lotta Danfors búningahönnuður, Johanna Salomaa
ljósahönnuður, Ásgerður Júníusdóttir söngkona, Sjón
skáld, Peter Engkvist dramatúrg og Snorri Freyr
Hilmarsson myndlistarmaður.
Heimildarmynd um samspil myndlistar og leikhúss
verður gerð í tengslum við sýninguna, framleidd af
Undralandi, Kvikmyndagerð. Einnig verður haldið
námskeið fyrir leikhúsfólk í kjölfar sýningarinnar í
Reykjavík, London og Stokkhólmi undir stjórn Johns
Wright. CommonNonsense er í samstarfi við Leikfélag
Reykjavíkur, Pero leikhúsið í Stokkhólmi og BAC í
London.
CommonNon-
sense hlýtur
Evrópustyrk
Ilmur Stefánsdóttir straujar brauðsneið.
Smásagnasafnið Auga Óðins – sjö
sögur úr norrænni goðafræði er kom-
ið út. Þar glíma sjö rithöfundar og jafn-
margir myndskreytar við óþrjótandi
sagnabrunn norrænnar goðafræði.
Sumir flytja viðfangsefnið til samtím-
ans, aðrir dvelja í goðheimum og enn
aðrir byggja brú þar á milli.
Höfundar sem eiga sögur í bókinni
eru: Adda Steina Björnsdóttir, Að-
alsteinn Ásberg Sigurðsson, Gunn-
hildur Hrólfsdóttir,
Iðunn Steinsdóttir,
Jón Hjartarson,
Kristín Steins-
dóttir og Kristín
Thorlacius. Myndir
gerðu: Anna
Cynthia Leplar, Ás-
laug Jónsdóttir,
Brian Pilkington,
Freydís Kristjánsdóttir, Jean Posocco,
Kristín Ragna Gunnarsdóttir og Sig-
rún Eldjárn.
Bókinni lýkur á hugtakasafni um
norræna goðafræði.
Í ritstjórn sátu Dr. Anna Heiða Páls-
dóttir (ritstjóri), Iðunn Steinsdóttir og
Sigþrúður Gunnarsdóttir.
Bókin er samstarfsverkefni Máls
og menningar og IBBY á Íslandi.
Barnamenningarsjóður styrkti útgáf-
una. Kápumynd gerði Kristín Ragna
Gunnarsdóttir en Anna Cynthia Leplar
sá um útlits- og kápuhönnun. Bókin er
196 bls., prentuð í Danmörku. Verð:
1.599 kr.
Goðafræði
Oddaflug eftir Guðrúnu Helgadóttur
er endurútgefin en hún kom fyrst út
árið 2000.
Um er að ræða fjölskyldusögu sem
nær yfir alla 20. öld. Þetta er saga
Katrínar Ketilsdóttur, manns hennar
og fjögurra dætra – og sonarins sem
þau misstu. Tilvera þeirra virðist í
föstum skorðum en ekki er allt sem
sýnist og undir
liggja óuppgerð,
sársaukafull mál.
Útgefandi er
Vaka-Helgafell.
Bókin er 239 síð-
ur, prentuð í Dan-
mörku. Kápu
hannaði Anna
Cynthia Leplar.
Verð: 1.599 kr.
Skáldsaga