Morgunblaðið - 08.09.2003, Síða 27

Morgunblaðið - 08.09.2003, Síða 27
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 27 m TÍMARITUMMAT&VÍN27062003 Næsta tölublað af tímaritinu m, sem fjallar um mat og vín, fylgir Morgunblaðinu laugardaginn 13. september nk. Stærð tímaritsins er 25x36. Pantanafrestur auglýsinga er til þriðjudagsins 9. september kl. 16. Hafðu samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1111 eða á augl@mbl.is Auglýsendur! 13 9 Í A IT UM A Í FÓLK lýsir yfir miklum áhyggjum af hvalveiða Íslendinga í vísinda- skyni, segir Clive Stacey, fram- kvæmdastjóri breskrar ferðaskrif- stofu, sem sérhæfir sig í Íslandsferðum. „Þegar tilkynnt var um hvalveiðar Íslendinga dróst að- sókn í ferðir til Íslands saman,“ seg- ir Stacey. „Það hefur haldið áfram síðan.“ Stacey kom hingað til lands til að reyna að fá samstarfsaðila sína til að sam- þykkja yfirlýs- ingu þess efnis að þeir styddu ekki ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að hefja aftur hval- veiðar. „Þetta eru viðskipti okkar og færir okkur lifibrauð. Við viljum ekki að fólk hætti að ferðast til Ís- lands og því reynum við að lág- marka skaðann með þessum hætti,“ segir Stacey. Fréttir af hvalveiðunum hafa haft mikil áhrif á ákvarðanir fólks að koma til Íslands að hans sögn. Margir urðu tvístígandi þegar starfsmenn ferðaskrifstofunnar hringdu í viðskiptavini til að stað- festa bókun eftir að veiðarnar fyrst hófust. Honum er helst umhugað um alla þá sem ekki hafa enn pantað ferð til Íslands en eru áhugasamir. Skilja ekki hvalveiðarnar Hann segir breskan almenning í raun ekki skilja forsendur veiðanna og sjá hvali í öðru ljósi en Íslend- ingar. Þetta séu skepnur sem ekki megi deyða og telja vísindaleg rök fyrir þeirri afstöðu sinni. Hvort sem sú afstaða sé rétt eða röng, og Sta- cey leggur áherslu á að hann er ekki að túlka sín sjónarmið heldur aðeins að segja frá hvernig fólk sem hann talar við upplifir þessa hluti, skipti ekki máli. Fólk vilji ekki fara til lands sem leggur stund á eitthvað sem er andstætt þeirra lífsviðhorf- um. Hægt sé að túlka slíkt sem samþykki við veiðarnar eða að minnsta kosti að horft sé fram hjá þeim. „Þar sem ég hef bæði búið og unnið á Íslandi get ég skilið af hverju þessar veiðar fara fram. Það er ekki málið,“ segir hann og telur að það myndi hjálpa ef íslensk stjórnvöld gerðu betur grein fyrir sjónarmiðum Íslendinga í Bretlandi. Þó sé málið ekki svo einfalt hvort það eigi að drepa hvali eða ekki. Vísindamenn geti fært rök fyrir að hvort tveggja sé rétt að gera. Af- staða fólks byggist á tilfinningum. Ísland er í augum Breta áhuga- verður staður segir Stacey og búi yfir ímynd hreinnar náttúru og um- hverfis. Þessi ímyndaruppbygging hafi staðið yfir í mörg ár og gengið mjög vel. „Þetta er örugglega það versta sem getur gerst í stöðunni,“ segir hann og því þurfi að finna leið í gegnum þessa erfiðu tíma. „Það getur verið mjög erfitt þar sem við fengum engan fyrirvara. Tilkynning barst um fyrirhugaðar hvalveiðar og viku síðar voru þær hafnar. Það var ekki haft neitt samráð.“ Nú þurfi að sannfæra fólk að það geti enn ferðast hingað þó það sé í grundvallaratriðum andsnúið hval- veiðum. Að fá samstarfsaðila hér á landi til að rita undir yfirlýsingu þess efnis, að þeir eru á móti því að hefja þessar veiðar, er einn liður í því. Það hafi borið þónokkurn ár- angur þó að margir séu viðkvæmir fyrir orðalagi yfirlýsingarinnar. Hann segir mikilvægt að öll helstu umhverfissamtök í Bretlandi hafa hvatt landa sína til að fara til Íslands og styðja þannig hvalaskoð- un. Vandamálið sé að í október hætti hvalaskoðunarferðir sem þýði þá að engir komi til Íslands. Því leggi ferðaskrifstofan áherslu á við viðskiptavini sína að samstarfsaðilar þeirra hér á landi styðji ekki þessar veiðar og ferðamennirnir leggi þeim lið með því að koma hingað yfir vetrarmánuðina. „Það er eina leiðin sem ég sé í augnablikinu yfir þenn- an hjalla,“ segir Stacey. Á Íslandi í þorskastríðinu Þegar hann var 18 ára vann hann á Flateyri, bæði til sjós og lands. Þá áttu Íslendingar í þorskastríði við Breta. Þegar hann sneri aftur flækt- ist hann í ferðamannaiðnaðinn sem hann hefur starfað við í 25 ár. Í 18 ár hefur hann rekið eigin ferðaskrif- stofu, Arctic Experience, og sérhæf- ir sig í ferðum Breta til Íslands. Hann segir að 75% af öllum tekjum fyrirtækisins komi af þessum ferð- um. Um 40 manns vinni að staðaldri hjá fyrirtækinu og þar af séu átta Íslendingar. Arctic Experince er staðsett suður af Londin í Surrey. Hann segir að viðskiptin hafi gengið mjög vel og á þessu ári komi á milli sjö og átta þúsund manns á vegum ferðaskrifstofunnar til Ís- lands. Viðskiptavinirnir séu frekar vel efnaðið og menntaðir og eyði talsverðum hluta launa sinna í ferðalög. Þar af leiðandi séu þeir líka meðvitaðir um þessar veiðar og ef þær samrýmist ekki gildismati þeirra sé nokkuð ljóst að þeir hætti við Íslandsheimsókn. Vill að Íslend- ingar mótmæli hvalveiðum Clive Stacey, framkvæmdastjóri Arctic Experience. GREINANDI ritmálspróf sem gengur undir heitinu GRP 14h er nú boðið til kaups í grunnskólum og framhaldsskólum af höfundum þess, Rannveigu G. Lund og Ástu Lárus- dóttur. Með prófinu er skimað eftir lestrar- og stafsetningarerfiðleikum, einkum umskráningarerfiðleikum en þau einkenni benda til dyslexíu. Prófið var áður notað við greiningar í grunn- og framhaldsskólum í Lestr- armiðstöð Kennaraháskóla Íslands. Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að niðurgreiða hvert próf fyrir kaupendur um 20 þúsund kr. en það er tæplega þriðjungur af sölu- verði þess. Fjárstyrkur ráðuneytis- ins miðast við niðurgreiðslu á allt að 80 prófum til loka marsmánaðar 2004 og sjá höfundar þess um alla umsýslu vegna niðurgreiðslu ráðu- neytisins. Þegar hafa verið seld eða staðfest kaup á 50 prófum. Fjögur námskeið hafa verið haldin í tengslum við sölu þess. Prófið sem í eru sjö verkefni er staðlað á 14 ára nemendum. Verk- efnin eru á geisladiski til útprentun- ar innan skóla. Prófinu fylgja tvö hefti með nákvæmum fyrirmælum og reglum um yfirferð og túlkun á niðurstöðum. Í söluverði er auk þess fræðileg handbók í fjórum köflum sem senn kemur út. Menntamála- ráðuneytið hefur ákveðið að styrkja höfunda vegna fullvinnslu og útgáfu hennar, segir í fréttatilkynningu. Námskeið eru fyrirhuguð vegna sölu prófsins í október. Nánari upp- lýsingar í síma og á netfanginu rlund@ismennt.is og fljótlega á slóð- inni htt//www.dyslexia.is Próf fyrir börn með lestrarerfiðleika

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.