Morgunblaðið - 08.09.2003, Page 36

Morgunblaðið - 08.09.2003, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga Halldór Ásgrímsson Einkafram- kvæmd flýtir Sundabraut „ÉG tel það vera eðlilegast að skipuleggja þetta mannvirki sem einkaframkvæmd og ég sé að fjár- málaráðherra er jafnframt þeirrar skoðunar,“ seg- ir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra um lagn- ingu Sundabrautar. Halldór telur að rétt sé að fara að undirbúa mál- ið svo hægt sé að fara að skipuleggja það með hvaða hætti þetta mannvirki verði byggt. Halldór segir að tiltölulega lítið fjármagn sé til þessara framkvæmda á langtímaáætlun í vega- gerð og einkaframkvæmd flýti því aðgerðum. Hún greiði líka fyrir því að meira fjármagn verði til staðar í aðrar framkvæmdir eins og hafi gerst þeg- ar ráðist hafi verið í Hvalfjarðargöngin. Hann bendir jafnframt á að nú sé stefnan að draga úr öðrum framkvæmdum en virkjanaframkvæmdum og sjá þurfi fyrir endann á þeim áður en ráðist verði í nýjar stórframkvæmdir. „Framkvæmdum eins og Siglufjarðargöngunum var frestað af þeirri ástæðu og það verður að vera samkvæmni í því,“ segir utanríkisráðherra. Fræuppskera með lakara móti FRÆUPPSKERA Landgræðslu ríkisins er nú hafin, en þó fræþroski sé fyrr á ferðinni en í meðalári er uppskeran með lakara móti, sér- staklega hjá lúpínu og beringspunti. Uppskeran veldur að vissu leyti vonbrigð- um án þess þó að vera miklu lakari en í fyrra, segir Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri, en hjá Landgræðslunni höfðu menn vonast eftir góðri uppskeru eftir gott gróðursumar. „Af hverju uppskeran á Suðurlandi er léleg af lúpínu og beringspunti vitum við ekki, hugsanlega vilja þessar tegundir meira harð- ræði í veðurfari,“ segir Sveinn. Fræþroski er um tveimur vikum fyrr í ár en í meðalári. MARGT var um manninn í Hraunsrétt í Aðaldal í gær og sumir höfðu við orð að fleira fólk væri en fé. Hraunsréttardagurinn er hátíðisdagur í augum margra og réttin er orðin 170 ára, svo þar liggja margra spor. Á myndinni má sjá Böðvar Baldursson bónda í Ystahvammi með son sinn, Arnþór Mána, sem var að fara í sínar fyrstu réttir. Bæði ungir og gamlir voru duglegir að draga féð og ekki er að sjá annað en að sá litli skemmti sér vel. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Í fyrsta sinn í réttunum HAFIN er vinnsla á beitukóngi í Grundarfirði. Það er útgerðarmaðurinn Ásgeir Valdimarsson sem hefur í sumar verið að koma upp aðstöðu til vinnslu á beitukóngi. Vélarnar til vinnslu á beitukóngnum fékk Ásgeir frá Bretlandi þar sem þær höfðu verið í notkun. Beitukóngurinn er veiddur í gildrur sem egndar hafa verið fyrir hann víðsvegar um Breiðafjörð og agnið er hakkaður karfi. Að sögn Ásgeirs er hann með um 2000 gildrur í sjó og um fjórðungur þeirra dreginn í einu. „Við erum að vinna þetta 2 – 3 tonn á dag,“ sagði Ásgeir „og miðum við að vinnslu sé lokið fyrir hádegi.“ Það eru 8 manns sem starfa við beitukóngsvinnsluna, 5 í landi og 3 á sjó en Ás- geir gerir út bátinn Garp til beitukóngsveið- anna. Skelfiskurinn er lausfrystur og síðan er honum pakkað í öskjur og seldur til Kóreu. Þar fæst, að sögn Ásgeirs, alveg þokkalegt verð fyr- ir fiskinn. „En gengið hefur reyndar ekki verið okkur nógu hagstætt,“ segir Ásgeir að lokum. Gert er ráð fyrir að vinnslu verði haldið úti fram í nóvember en hefjist síðan aftur næsta vor. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Konurnar við bandið fylgjast með að fiskurinn sé hreinn og heill áður en hann fer í frystinguna. Veiðir beitukóng í Breiðafirði Grundarfirði. Morgunblaðið. DRAUMUR Kjartans Jakobs Haukssonar um að róa í kringum landið varð að engu í bili í gærdag þegar bát hans hvolfdi yfir hann og rak upp í brimgarðinn með þeim afleiðingum að hann er gjörónýtur. Kjartan slapp frá óhappinu með skrámur og mar. Atvikið varð þegar bátur Kjart- ans lá við akkeri við Rekavík á norðanverðum Vestfjörðum á milli klukkan 15 og 16 í gær. „Ég var að hvíla mig þegar ég sleit akkerið og þá rak mig á fleygiferð upp í brimgarðinn. Við átökin við að reyna að komast þar út braut ég árarnar. Þá var nú fátt eftir og ég lenti í brimskafli sem hvolfdi bátnum yfir mig. Svo skolaði okk- ur bara í brimið,“ sagði Kjartan í samtali við Morgunblaðið eftir að hann kom til Bolungarvíkur í gær. Kjartan er óslasaður en er lemstraður og marinn eftir óhapp- ið. „Ég er með verki í baki og hálsi og einhverjar skrámur.“ Bátur Kjartans er brotinn og gjörónýtur eftir að hafa velkst í briminu. „Ég var í marga klukku- tíma í dag að reyna að bjarga hon- um úr briminu en honum hvolfdi alltaf yfir mig aftur.“ „Ég er rosalega svekktur, draumurinn er á enda í bili. En ég er ekki búinn að gefast upp og fer beint í að smíða annan bát,“ segir Kjartan, sem segist staðráðinn í að láta þetta ekki buga sig. Kjartan lagði af stað í hringferð sína frá Reykjavík 21. ágúst og reiknaði með að verða sex vikur á leiðinni. Hann var búinn að und- irbúa ferðina í þrjú ár og æfa sig fyrir hana í tvö ár, en ferð Kjart- ans var tileinkuð hreyfihömluðum og ferðalögum þeirra og farin til styrktar Sjálfsbjörgu. „Fyrst og fremst er ég fegin að hann er í lagi,“ segir Björk Árna- dóttir, kynningar- og félagsmála- fulltrúi Sjálfsbjargar. „En nú er ekkert fyrir höndum annað en að undirbúa næstu ferð.“ Hraðbjörgunarbátur björgun- arsveitarinnar Ernis frá Bolung- arvík, Gísli Hjalti, hóf leit í gær þegar Tilkynningaskyldan hafði ekki heyrt frá Kjartani á tilskild- um tíma. Björgunarsveitarmenn fundu bátinn um kl. 19 í gær.                                    Morgunblaðið/Þorsteinn J. Tómasson Kjartan J. Hauksson lagði af stað frá Bolungarvík í fyrradag. Komst skrámaður í land eftir að hafa brotið báðar árarnar Bát Kjartans Haukssonar hvolfdi og rak upp í brimgarðinn Yfir 4000 manns í fjarnámi FJÖLDI þeirra sem stunda fjarnám hefur fimmfaldast á síðustu fjórum árum. Þetta kom fram í máli Tómasar Inga Olrich, menntamála- ráðherra, sem setti viku símenntunar í gær. Þema viku símenntunar í ár er fjarnám. Nú stunda alls 4.070 nemendur fjarnám í landinu og skiptist sá fjöldi jafnt á milli fram- haldsskóla- og háskólastigsins. Menntamála- ráðherra sagði þetta vera gífurlegan vöxt. Stöðugar framfarir í upplýsingatækni yrðu til þess að fjarnám mundi aukast enn frekar á næstu árum, ekki síst sem tækifæri fyrir fólk á landsbyggðinni til að stunda nám í heima- byggð. Árleg vika símenntunar stendur yfir frá 7. til 13. september um allt land, en hún er nú haldin í fjórða sinn. Flosa var sleppt í gær FLOSA Arnórssyni stýrimanni, sem sætti gæsluvarðhaldi og farbanni í Sameinuðu arab- ísku furstadæmunum fyrir ólöglegan vopna- burð 24. apríl, var sleppt úr haldi í gær. Var hann kominn út á flugvöll í Dubai í gærkvöldi og beið eftir flugvél til Istanbúl, sem fara átti í loftið kl 23:30. Frá Istanbúl flýgur Flosi til Kaupmannahafnar og þaðan til Íslands. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.