Vísir - 29.10.1980, Qupperneq 3
3
Miðvikudagur 29. október 1980
VÍSIR
„Frækornið” heitir verslun, sem Sjöunda dags aðventistar hafa opnað ■
að Skólavörðustig 16IReykjavik. Þar eruá boðstólum bækurfrá Bóka- ■
forlagi aðventista á tslandi, og bækur, rit og hljómpiötur og aðrar ■
vörur útgáfufyrirtækja aðventista erlendis. Myndin var tekin i nýju ■
versluninni. ■
Samið vlð SovétríKín um olíukaup 1981: !
RÚSSAR GAíII EKKI I
SELT ÞA SVARTOLÍU í
SEM IIM VAR REOIÐ i
„Höfum staðið í
töluverðu stríði
við kerfið”
- segir Garðar Eðvaldsson, framkvæmda
stjóri Sæbergs á Eskifirði
„Við hér á Söltunarstöðinni
Sæberg tökum sildina beint upp
úr bátunum inn á færibönd
hérna, það er enginn milliliður
þar, hvorki bill eða kassi eða'
neith annað”, sagöi Garðar Eð-
valdsson, framkvæmdastjóri á
Eskifirði i viðtali við Visi. „Það
er bannað að gera þetta svona,
sildin skal fara upp á bil, hún
skal fara yfir vigt og hún skal
sturtast einu sinni eða tvisvar,
áður en hún kemst i tunnurnar.
Það eru reglurnar frá herra Jó-
hanni. Viö höfum staðið i tölu-
verðu striði við þetta kerfi,
vegna þess að við tökum sildina
á land á þann besta mögulega
hátt, sem hægt er. Það vilja
menn ekki almennilega sætta
sig við".
Visi höfðu borist fréttir af, að
þegar Jóhann Guömundsson
forstjóri Framleiðslueftirlits
sjávarafurða var á ferð um
Austfirði um helgina, til að
brýna fyrir saltendum nauðsyn
þess að fara eftir reglunum, hafi
hann lokað stöð Garðars, Sæ-
bergi, sem er minnst fjögra
söltunarstöðva á Eskifirði.
Astæðan var sögð sú að þaö væri
ekki aðstaða til að geyma tunn-
urnar inni meðan sildin væri að
verkast i þeim. Garðar var
spurður hvort þar væri rétt með
farið. „Þaö er nú of gróft sagt,
held ég”, sagöi hann. „Hitt er
rétt aö viö erum i vandræöum
með húsnæði undir þessa sÐd,
eins og kannski vel flestir aðrir.
En hann gaf nú ekki skipun um
að loka þessu, þótt það geti
kannski óbeint oröið þannig.
Það er hugsanlegt aö ég neyðist
til að loka vegna þessa, en það
er ekki þar meö sagt að þvi hafi
verið lokað”. —SV
Gerður hefur verið samningur
um kaup á oliuvörum frá Sovét-
rikjunum á næsta ári.
Samningurinn gerir ráð fyrir,
að keypt séu 100 þúsund tonn af
gasoliu, 70 þúsund tonn af bensini
og 110 þúsund tonn af svartoliu á
árinu 1981.
,,Er hér um að ræða heldur
meira magn af gasoliu en afgreitt
verður frá Sovétrikjunum i ár en
nokkru minna magn af bensini og
svartoliu. Sérstök áhersla var
lögð á að fá keypt meiri svartoliu,
en sovéska oliufélagið taldi sig
ekki geta nú skuldbundiö sig til að
fullnægja áætluðum þörfum
okkar á næsta ári. Verðviðmiðun
og önnur skilyrði eru að mestu
óbreytt frá gildandi samningi
nema hvað verðálag vegna gæða
svartoliunnar er hækkaö”, segir I
fréttatilkynningu frá viðskipta-
ráðuneytinu.
Kdnnun á aðbúnaði og tiollustuliáttum:
í HrelnlætisaDstaða i
i ekkl fyrir hendi I i
mörgumlyrlrlækjumi
IHreinlætisaðstaða viröist vantaði þessa aðstöðu með öllu. |
vera i lágmarki i fjölda is- Þá vekur athygli að stór hluti j
I lenskra fyrirtækja, og sums vinnuvélastjóra reyndist rétt- j
I staðar alls ekki fyrir hendi, ef indalaus og eins vantaði mikið |
| marka má könnun á aöbúnaöi, upp á að öryggisbúnaður við j
j hollustuháttum og öryggi, sem hraðfrystingu I frystiklefum |
j nýlega var gerð á vegum væri fullnægjandi.
j öryggis- og Heilbrigðiseftirlits Varöandi hollustuhætti kom i i
■ rikisins, að beiðni rikisstjórnar- ljos, að hávaðavörnum var viða ■
• innar. verulega ábótavant, svo og ■
Náði könnun þessi til 158 birtu, lýsingu, loftræstingu. .
! fyrirtækja með 733 vinnustöðum Reyndist nokkurra lagfæringa á J
J (vinnurýmum) og 8241 starfs- þessum þáttum þörf i um helm- J
J manni. ingi þeirra fyrirtækja, er könn- J
Samkvæmt niðurstöðum uð voru, og er það að sögn verri •
J hennar fyrir öll fyrirtækin útkoma, en búist hafði verið við I
J kemur I ljós, að mjög slæmt fyrir könnunina.
» ástand er ríkjandi varðandi Segir loks i niðurstöðunum, að I
I búnings- og fataherbergi. mikið vanti á að aðbúnaöur I
I Reyndist, ástandið i 44% tilfella starfsmanna i sumum starfs- I
I óviðunandi og 59% bæði óviðun- greinum standist þær kröfur er j
I andi og ábótavant. Varðandi gerðar séu i gildandi lögum og j
j þvotta- og baðklefa reyndist reglugerðum s.s. i byggingar- j
j ástandið óviðunandi i 76% til- iðnaði og fiskiðnaöi.
fella, en i fjölda fyrirtækja —JSS
NÁMSTEFNA UM SÖLU
Á ERLENDUM MÖRKUÐUM
Námstefna Stjórnunarfélags
Islands um sölu á erlendum
mörkuðum verður haldin á
fimmtudaginn, en meöal fyrirles-
ara er Erik Windfeld-Lund, fram-
kvæmdastjóri markaðsdeildar
Félags danskra iönrekenda, og
mun hann gera grein fyrir skipu-
lagi og söluaðferðum danskrar
útflutningsverslunar.
Af öðrum fyrirlestrum á ráö-
stefnunni má nefna, að Þórhallur
Asgeirsson, ráðuneytisstjóri,
fjallar um hlutverk stjórnvalda
viö útflutningsverslun, Jónas H.
Haralz, ráðuneytisstjóri, ræðir
um fjármögnun og bankaþjón-
ustu við útflutning, Úlfur Sigur-
mundsson, framkvæmdastjóri,
um ráögjafastarfsemi við útflutn-
ing, Þráinn Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri, um söluform við
útflutningsverslun, og Sigurgeir
Jónsson, aðstoðarbankastjóri,
um framtiðarútflutningsmögu-
leika tslendinga.
Þá fjalla þeir Eyjólfur ísfeld
Eyjólfsson, Friðrik Pálsson,
Ottar Yngvason og Sigurður
Markússon um sölu sjávarafurða,
en á eftir verða pallborðsum-
ræöur um málið.
Námstefna þessi er ætiuð fram-
kvæmdastjórum og sölustjórum
útflutningsfyrirtækja og öðrum
þeim, sem starfa viö eða áhuga
hafa á skipulagi útflutningsversl-
unar, segir i fréttatilkynningu frá
Stjórnunarfélaginu.
Afrikultiálpin 1980:
Haia safnað
80 milijónum
„80 milljónir hafa nú safnast á
vegum Rauða Kross tslands til
hjálpar bágstöddum á hörm-
ungarsvæðunum i
Austur-Afriku”, segir i fréttatil-
kynningu frá Afrikuhjálpinni.
Sem dæmi um gang söfnunar-
innar má nefna, að á Akureyri
söfnuöust um 7.2 milljónir, á
Ólafsfirði um 1.8 milljónir, i Vest-
mannaeyjum um 2 milljónir, á
Patreksfirði um 800 þúsund, á
Dalvik um’ 2.6 milljónir og á
Siglufirði um 1.5 milljón króna.
Þá afhentu starfsmenn álversins I
Straumsvik 1.4 milljónir króna.
Söfnuninni erekki enn lokið alls
staðar á landinu, og giróreikn-
ingurinn er enn opinn, segir i
fréttinni.
Niösterku
EXQUISIT
þrihjólin
fást i
he/stu
leikfanga-
vers/unum
um /anc/ allt
Heildsölubirgðir:
Ingvar Helgason
Vonarlandi v/ Sogaveg, Simi 33560
Stúlkur, okkar dagur er
fimmtudagur ,
Skipholt 37, simi 8S670