Vísir - 03.12.1980, Blaðsíða 5

Vísir - 03.12.1980, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 3. desember 1980 VÍSIR 5 Umbótasinnar ofan á í mið- stjðrn pðlskra kommúnista - Harðiinumenn úr æðsta ráðinu í gær Fyrrum hershöfðingi i pólska hernum, eitt sinn talinn næst- valdamesti maður Póllands, hef- ur nú aftur verið settur til æðstu embætta eftir mikið uppgjör mn- an kommúnistaflokksins pólska, þar sem umbótasinnar virðast hafa borið hærri hlut. Hinn 66 ára gamli Mieczyslaw hershöfðingi tekur nú sæti sitt aft- ur i æðstaráðinu, tiu árum eftir að honum var varpað út i kuldann, rúinn öllum áhrifum. Um leið var fjórum harðlínumönnum vikið úr ráðinu á stormasömum mið- stjórnarfundi flokksins i gær- kvöldi. Er það fjórða hreinsunin i æðsta ráðinu á þessu ári. Allir þessir voru áður nánir samstarfs- menn Edwards Giereks, en 140 manna miðstjórnin skipaði Gierek og samherjum hans (þ.á.m. Edward Babiuch fyrrum forsætisráðherra) að segja af sér þingmennsku. En á meðan þessi átök áttu sér staðinni i fundarsal miðstjórnar- innar i Varsjá, brugðust vestur- lönd við fréttum af viðbúnaði Sovétrikjanna og Varsjárbanda- lagsins, sem þóttu benda til þess að innrás i Pólland væri i aðsigi, með þvi að itreka fyrri viðvaranir sinar til Sovétstjórnarinnar gegn Kania, leiðtogi pdiska kommún- istafiokksins, hefur hreinsað æðstaráðið og miðstjórnina af harðlinumönnum og tryggustu Moskvuvinum. ihlutun i málefni Póllands. A fundi æðstu manna Efna- hagsbandalags Evrópu var sam- þykkt að bjóða Póllandi efna- hagsaðstoð, og Sovétstjórnin al- varlega vöruð við að hlutast i málefni Póllands. Er þaö i fyrsta sinn, sem EBE-rikin taka sameiginlega afstöðu til ástands- ins i Póllandi. — Samtimis itrek- aði Bandarikjastjórn sinar fyrri aðvaranir til Moskvustjórnarinn- ar, og sagði Edmund Muskie utanrikisráðherra, að Moskvu væri að sinu mati orðið vel ljóst, hvað innrás mundi kosta. Þótt á miðstjórnarfundinum i Varsjá væri gengið svo langt að samþykkja að rannsaka atferli Piotr Jaroszewicz, sem lengi var forsætisráðherra .landsins. — og hefur verið álitinn tryggasti fylgismaður Moskvustjórnarinn- ar i Varsjá — var að öðru leyti mikið fjallað um verkföllin i sum- ar og þá pólitisku ólgu, sem fylgt hefur stofnun hinna nýju, óháðu verkalýðssamtaka, Einingar. Hreinsunin innan miðstjórnar- innar þykir opna leiðina til betri samvinnu við forystu Einingar, sem segist hafa verið hingað til knúin til harðráða vegna pólitisks illvilja harðlinuráða- manna. Hver ræðumaður á fætur öðrum sté i pontu og fordæmdi öfgamenn innan Einingar og æsingarað- gerðir þeirra, eins og setuverkföll og mótmælaaðgerðir. Kom fram, að margir kviðu þvi, að þessi til- raun Pólverja til aukins lýðræðis i verkalýðsmálum væri að fara úr böndum. Moczar hershöfðingi, sem sagt er, að hafi notað 10 ára „útivist” sina til þess að safna saman upp- lýsingum um spillingu embættis- manna i valdatið Giereks, hvatti menn i ræðu sinni til þess að gæta stillingar og hófsemi. Þessi eld- heiti þjóðernissinni, sem fyrir þá sök vakti eina tið tortryggni Moskvu, sagðist sannfærður um, að Pólverjar gætu einir leyst sin vandamál. Bar hann blak af „bernskubrekum” Einingar og kenndi um ungæðishætti og reynsluleysi þeirra, sem þar væru i forystu — enda allir ungir menn, sem þar væru á ferð. Kall- aði hann samtökin heilbrigða hreyfingu og lýsti það sannfær- ingu sina, að hún mundi á morgun eða hinn daginn losa sig við ævin- týraöfl úr samtökunum. Ungir og óreyndir fullhugar úr vcrkalýðshreyfingunn „ævintýraöflin”. i, sem flokksforystan vonast til að iosi sig við KW|UJ!■ : HmSk ' v i.ymlíí:' , Ifc m íl™ . ||Sl EkKja Maos veit engin svör i yfirheyrslunum Jiang Qing, ekkja Maos for- manns var f gær yfirheyrð fyrir réttinum, sem fjallar um glæpi fjórmenningaklíkunnar. Var hún einkum spurð um falskan áburð á Liu Shaoqi, fyrrum forseta Klna og konu hans og ofsóknirnar A hendur þeim. Ekkjan virtist fjarræn á svip I vitnastúkunni og eins og með hugann annars staðar en öllum spurningum svaraði hún: „Ég veitþaðekki. ..Ég veit þaöekki”. Liu Shaoqi var æðsti embættis- maðurinn sem féll i valinn i menningarbyltingunni. Fallinn i ónáð veiktist hann og dd i fangelsi 1969. Hann var endurreistur fyrr á þessu ári og veitt full uppreist æru i minningarathöfn sem fram fór I mai. — Ekkja hans sætti likamsárás og fangelsun i menningarbyltingunni en hagur hennar hefur verið bættur, eftir að Deng Xiapping, varaformaöur kom til valda eftir daga Maos. HERIR JORDANIU 0G SYRLANDS ENN Í VWBRAGBSSTOBU Sýrland hefur lagt fram skil- yrði sin fyrir lausn deilunnar við Jórdanfu en vaknaðar eru nú von- ir um að mestu hættunni á styrj- öld milli rikjanna hafi verið bægt frá f bili. f Amman bar talsmaður kon- ungs á móti þvf að Hussein hefði skriflega viðurkennt réttmæti skilmáia Sýrlendinga. Hinsvegar væri hann móttækilegur fyrir öll- um raunhæfum tillögum um lausn þessarar tilgangslausu þrætu. Það var háttsettur sendifúlltriii frá Saudi Arabiu, sem bar skil- mála Sýrlendinga á milli. Var honum vel tekið af Hussein sem hefur þá nú til athugunar. Ekki hefur frést af frekari liðs- drætti við landamæri rikjanna siðustudaga. Jórdaniumenn hafa nú um helming herafla sins við landamærin, þar sem Sýrlending- ar hafa um 30 þúsund manna liö. ísraelsmenn í næturárás í S-Libanon ísraelsk vikingasveit hjó strandhögg á slóöum Palestinu- skæruliða skammt norður af hafnarbænum Sidon i Suður- Libanon i nótt. Talsmenn fsraelshers f Tel Aviv seg ja.að fallbyssubátar hafi haldið uppi skothriö á stöðvar Palestínuskæruliöa I landi meöan vfkingasveitin geröi snöggt áhlaup upp á land. Landgöngu- liðamir eru sagðir hafa eyöilagt tvo liðsflutningabila skæruliða og fellt alla.sem í þeim voru. Arásin er ein af fjölmörgum sem fsraelsmenn hafa gert á bækistöövar Palestfnuskæruliöa f Libanon til þess aö hindra þá i undirbúningi árása inn í ísrael. Olíuskipiö Tania, sem strandaöi viö Frakklandsstrendur. inn... gengu'r fljótt og hreinlega” Þannig talar hver? Þiö gætuö aldrei getið upp á þvi. Sá er nefni- leea Christian Barnad, prófessor frá Suöur-Afriku, hjartaskurö- læknir og brautryöjandi í hjarta- igræöslu meö fleiru. Nýiar reglur um oiíuskip öryggisráöstafanirogregiurtil þess að hindra ollumengun I höfn- um og viö strendur voru efst á baugi á ráöstefnu, sem hófst i fyrradag i Paris. Hana sækja samgöngum álaráöherrar EBE-rikjanna niu, svo og Grikk- lands, Noregs, Sviþjóðar, Spánar og Portúgals. Þcssi fjórtán lönd. sem öll liggja aö Noröursjónum, Ermar- sundi og Miöjaröarhafinu, hafa' yfir að ráöa 36% kaupskipafiota heims. Frakkar efndu til ráöstcfnunn- ar.en þeir hafa oröiö illilega fyrir oliumengun viö sinar strendur vegna óhappa oliuskipa. Tii umræðu er, aö oliuskip á ferö um Ermarsund hliti sér- stakri siglingastjórn úr landi, likt og flugvélar inni á flugumsjónar- svæöum. Eins liggja i loftinu strangari reglur um hafnsögu- mannsskyldur olfuskipa og meira eftirlit meö leka úr þeim. Þjófar höföu á brott meö sér úr Rómarútibdi Christieuppboös- haldaranna fornmuni og listgrípi úr silfri og gulli fyrir um 700 milljónir króna. Gripir þessiráttu aö fara á upp- boö á fimmtudaginn, og hafa ver- iö til sýnis alla siöustu viku. Um helgina var brotist inn I sýningar- saUnn og þrátt fyrir næturveröi, þjófabjöllukerfi og annan viöbún- aö, siuppu þjófarnir óséöir. Spánn í flskvelðldeiiu Vlð EBE Gramir fiskimenn stöövuöu flutningabfla á mánudag, sem fluttuinn fisk frá EBE-löndunum. Vildu þeir meö þvi mótmæla þvi, aö EBE hefur tekiö aftur leyfi, sem spænskir togarar höföu til kolmiuinaveiða á miöum EBE- landanna. Efnahagsbandalagiö tilkynnti f síöustu viku, aö spænskir togarar heföu veitt upp i kvóta sinn fyrir áriö 1080, og leyfiö rynni dt 1. desember. Stjórnin í Madrid mót- mælti og hótaöi aö draga dr inn- flutningi a fiski frá EBE-löndum. Var tilkynningin þá afturkölluö og leyfissviptingunni frestaö. Þjöfahjöilur og verfilr voru tíl llllls

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.