Morgunblaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 2003 C 47
Eldri borgarar
GRANDAVEGUR LYFTA
Fyrir 60 ára og eldri er til sölu mjög góð
þriggja herb. íbúð á fjórðu hæð í vin-
sælu lyftuhúsi. Vandaðar innréttingar,
yfirbyggðar svalir, þvottahús í íbúð.
Mikil sameign, húsvarðaríbúð, veislu-
salur ofl. 21034
Einbýlishús
JÓRUSEL
Vorum að fá í sölu áhugavert einbýlis-
hús. Möguleiki á tveimur íbúðum í hús-
inu. Vandaðar innréttingar og gólfefni.
Mjög vel við haldið hús. Verð 28,0 m.
7888
Raðhús
BIRKIGRUND AUKAÍBÚÐ
Vorum að fá í sölu mikið endurnújað
raðhús með auka íbúð í kjallara. Húsið
stendur á afar skjólsælum stað í jaðri
Fossvogsdals. Eign sem vert er að
skoða. Ásett verð 22,4 m. 6585
RÉTTARSEL
Erum með í einkasölu fallegt raðhús á
tveimur hæðum ásamt frístandandi bíl-
skúr. Arinn í stofu og verönd. Parket á
gólfum. Ný uppgerð eldhúsinnrétting
með nýjum eldunartækjum. Rúmgóð
herbergi. Gott skápapláss. Íbúðin er
laus. Ásett verð 23,0 m. 6584
Opið
mán.-fim.
kl. 9-12 og 13-18
fös. kl. 9-12 og 13-17
Sýnishorn úr söluskrá.
Sjá mikinn fjölda eigna og
mynda á fmeignir.is og
mbl.is
Sölumenn FM aðstoða.
EIRHÖFÐI HEIL HÚSEIGN
Til sölu þetta glæsilega hús
við Eirhöfða í Reykjavík. Um
er að ræða allt húsið sem er
þrjár hæðir. Húsið hefur m.a.
að hluta verið nýtt fyrir mat-
vælaframleiðslu, auk skrif-
stofu aðstöðu o.fl. Hér er um
að ræða vandað glæsilega staðsett hús með frábæru útsýni og
frágenginni lóð. Hús sem gefur marga möguleika varðandi notk-
unn. Góð aðkoma m.a. góðar innkeyrsludyr á jarðhæð.Góð að-
staða fyrir gáma. Teikningar og nánari uppl. á skrifstofu F.M. Sjá
einnig fmeignir og mbl.is 9445
SÆTÚN 4
Til sölu Sætún 4. Um er að
ræða rúmlega 600 fm at-
vinnuhúsnæði. Húsnæðið
gæti allt verið í leigu ef það
hentaði. Fyrir liggur að á
þessari lóð verði byggt um-
talsvert stærra hús og gerir það þessa eign mjög áhugaverðan
fjárfestingakost fyrir rétta aðila. Nánari uppl. á skrifstofu FM. 9418
2ja herb. íbúðir
VEGHÚS
Vorum að fá í sölu mjög fallega 74 fm
íbúð á jarðhæð í fallegu fjölbýli. Þvotta-
hús innaf eldhúsi. Hellulögð verönd.
Íbúð sem vert er að skoða. Ásett verð
10,9 m. 1813
Atvinnuhúsnæði
KAPLAHRAUN HAFNARFJ.
Erum með í sölu nýlegt 497 fm atvinnu-
húsnæði á tveimur hæðum. Malbikað
bílastæði. Góðar innkeyrsludyr og góð
skrifstofuaðstaða. Stórir gluggar á
framhlið hússins. Nánari uppl. á skrif-
stofu FM. 9467
BAKKABRAUT
Um er að ræða iðnaðarhúsnæði sam-
tals 2,918 fm Var áður vélsmiðja Gils.
Stórir vinnslusalir. Skrifstofur ásamt að-
stöðu fyrir starfsfólk. Fimmtán tonna
hlaupaköttur er í húsinu. Stórar inn-
keyrsludyr. Góð aðkoma að húsinu.
Nánari uppl. á skrifstofu FM. 9481
Hesthús
HAFNARFJÖRÐUR HESTHÚS
Vorum að fá í sölu í nýju hesthúsi góða
10 hesta einingu með öllum þægindum
m.a. kaffistofu, snyrtingu og sturtu.
Góðar innréttingar og gott útigerði. Frá-
bærar reiðleiðir í næsta nágrenni.
Áhugaverð eign með góða staðsetn-
ingu. Verðhugmynd 7.8 millj. Nánari
upplýsingar á skrifstofu F.M. Sjá einnig
fmeignir.is og mbl.is 12183
HESTHÚS HEIMSENDI 5 KÓPA-
VOGI
Til sölu nýlegt hesthús á þessum vin-
sæla stað. Um er að ræða allt hesthús-
ið. Húsinu er skipt í fimm sjálfstæðar
einingar. Nánar tiltekið þrjár átta hesta
einingar, eina fjórtán hesta einingu og
eina þrettán hesta einingu. Húsið er allt
með vönduðum innréttingum, (stíur) loft
upptekin og klædd litaðri járnklæðn-
ingu. Kjallari er undir öllu húsinu, loft-
hæð þar um 2,20 cm. Gott gerði við
húsið einnig rampur eða innkeyrsla í
kjallarann. Sjá nánari uppl. og myndir á
fmeignir.is og mbl. is. 12194
VANTAR - VANTAR
Vegna mikillar sölu að undanförnu bráðvantar
allar stærðir af eignum á söluskrá.
SAUÐÁRKRÓKUR ÍBÚÐ
Til sölu góð fjögurra herb. íbúð á annari hæði í sex íbúða fjölbýli á
Sauðárkróki. Íbúðin er 115 fm að stærð. Stórar svalir. Áhugaverð
íbúð á góðu verði. Hagstætt lán áhvílandi. Nánari uppl. á skrifstofu
FM. Sjá einnig á fmeigni.is og mbl.is. 14364
MIÐ GARÐAR
Til sölu jörðin Mið-Garðar í Kolbeinsstaðarhreppi á Snæfellsnesi.
Um er að ræða vel uppbyggða jörð m.a. með íbúðarhúsi frá 1980
og myndarlegu fjósi byggðu 1984 með mjaltargryfju. Við fjósið er
um 300 fm hlaða frá sama tíma. Á jörðinni er í dag aðallega búið
með geldneyti. Jörð sem býður uppá marga möguleika. Nánari
uppl. á skirfstofu FM. Sjá einnig fmeignir.is og mbl.is. 101044
Hæðir
SAFAMÝRI SÉRHÆÐ
Vorum að fá í einkasölu fallega sérhæð
ásamt bílskúr á þessum vinsæla stað.
Ný eldhúsinnrétting. Gólfefni: parket og
dúkur. Eignin er laus til afhendingar.
Nánari uppl. á skrifstofu. Ásett verð
21,5 m. 5494
4ra herb. og stærri
UNUFELL
Vorum að fá í einkasölu snyrtilega fjög-
urra herb. íbúð á þriðju hæð. Þvottahús
í íbúðinni. Nýlegur linoleum dúkur á
gólfum. Verð 10,9 m. 3825
BÚSTAÐAVEGUR
Vorum að fá í einkasölu fjögurra herb.
íbúð á efri hæð með sér inngangi. Háa-
loft er yfir íbúðinni, með möguleika á
stækkun. Flísar og parket á gólfum.
Nánari uppl. á skrifstofu FM. 3833
ÁLFTAHÓLAR
Vorum að fá í einkasölu 132 fm íbúð
ásamt 19 fm bílskúr. Tengt fyrir þvotta-
vél í íbúð. Parket og flísar á gólfum.
Laus til afhendingar. Búið að taka allt
húsið í gegn að utan. Yfirbyggðar 20 fm
svalir. Nánari uppl. á skrifstofu. 3836
3ja herb. íbúðir
EFSTASUND SÉRINNGANGUR
Vorum að fá í sölu rúmgóða þriggja
herb. íbúð í góðu þríbýlishúsi. Parket
og teppi á gólfum. Eign sem vert er að
skoða. Ásett verð 11,5 m. 21126
HÁTÚN
Vorum að fá í sölu íbúð á þriðju hæð í
lyftuhúsi. Rúmgóðar vistaverur. Eldri
eldhús innrétting. Snyrtileg sameign.
Ásett verð 11,9. 21127
BÁRUGRANDI
Vorum að fá í sölu mjög góða ca 90 fm
þriggja herb. íbúð ásamt stæði í bíla-
geymslu. Íbúðin er á þriðju hæð og er
vel skipulögð og rúmast mjög vel.
Vandaðar innréttingar og parket á gólf-
um. Baðherbergi flísalagt og tengi fyrir
þvottavél. Gott leiksvæði fyrir framan
húsið. Ásett verð 14,7 m. 21128
Þ
eir eru ótrúlega víða. Sama
hvort þú kemur inn í Bón-
us eða Nóatún, bíla-
geymsluna undir blokk-
inni, á bílaverkstæðið til að láta lappa
upp á bílinn, alls staðar eru þeir.
Þarna hanga þeir upp undir lofti
blásandi og hvæsandi, sumstaðar
krímugir af ryki og þaðan af verri
óhreinindum, stundum háværir og
skrækjandi, í besta falli veitandi yl til
þurfandi starfmanna og kúnna.
Það má halda langan fyrirlestur
um hvort hitablásarar eru heppilegir,
þægilegir, fallegir eða ljótir hitagjaf-
ar, það væri hægt að koma af stað
mikilli rökræðu um þessa hlunka, en
sleppum því með öllu.
Þetta eru svo algeng hitatæki að
þau hljóta að vera með eindæmum
vinsæl.
Ræðum málið út frá því að hita-
blásarar eru staðreynd á fjölmörgum
vinnustöðum af næstum því öllum
gerðum.
En stundum er hörmung að sjá þá,
þeir skila hitanum slaklega um leið
og þeir eyða og sóa heita vatninu, oft
skítugir upp fyrir haus.
En þetta er ekki þeim sjálfum að
kenna. Þeir komu tandurhreinir frá
skapara sínum í fallegum kassa, fag-
urlega lakkaðir, það stirndi á þá.
Þeir voru festir upp, tengdir við
heitt vatn og rafmagn, settir í gang.
Síðan ekki söguna meir og árin
líða, fimm ár, sex ár eða miklu fleiri.
Þá er þeim formælt af öllum sem
undir þeim vinna, þeir gefa engan
hita, eru skítasafnarar og skítadreif-
arar, það verður þeirra orðspor.
Allt er þetta satt, en það er ekki
þeim að kenna.
Enginn hefur hugsað um þá, eng-
inn hefur litið eftir þeim, enginn hef-
ur tekið eftir þeim. Ekki fyrr en þeir
geta ekki meira og gefast upp.
Og enginn skilur neitt.
Til varnar öskubusku
En hvað þarf til að hitablásari skili
sínu hlutverki sómasamlega og end-
ist eins og af honum má krefjast?
Fyrir það fyrsta þarf að setja hann
á réttan stað, tengja hann rétt og um-
fram allt; setja á tenginguna rétt
stýri- og stillitæki.
Á heitu leiðsluna að blásaranum á
að setja segulloka, þann loka og mót-
orinn sem knýr viftuna á að tengja
við hitastilli, sem stýrir því hvenær á
að blása og hvenær heitt vatn á að
renna inn í blásarann.
Í öðru lagi þarf að setja hitastýrð-
an loka á bakrennsli vatnsins frá
blásaranum sem tryggir að ekki
renni of heitt vatn út af honum, í
þeim ventli eða öðrum þarf að vera
hægt að stilla hámarksrennslið.
Ef þetta er gert tryggir það að
hitablásarinn vinnur þegar þörf er á
og eyðir ekki meira af heitu vatni en
nauðsynlegt er.
Ef í umhverfi hitblásarans eru
mikil óhreinindi vegna þeirrar starf-
semi sem þar er þarf að taka blás-
arann niður ekki sjaldnar en þriðja
hvert ár og hreinsa hann. Umframt
allt verður að forðast að „spúla“
hann, taka fram slönguna og láta
vaða, því síður að nota þrýstiloft.
Með því hafa margir blásarar verið
eyðilagðir, þeir þola ekki slíka með-
ferð.
Það þarf að taka elementið úr
kassanum, hella yfir það leysiefni
fyrir olíu og önnur óhreinindi, skola
það síðan burt með heitu vatni, skola
rólega.
Alla hitablásara þarf að hreinsa,
það safnast óhreinindi í þá hvar sem
þeir eru.
Og þá er komið að þeirri reg-
inskyssu sem gerð er þegar hitablás-
arar eru tengdir.
Hún er sú að einangra ekki rörið
sem flytur heita vatnið að þeim.
Margir halda að það sé algjör óþarfi,
hitatapið fari út í það rými sem hita á.
En sá hiti, sem tapast úr rörinu,
kemur að litlu gagni. Varmaafköst
blásarans skerðast ótrúlega miðið við
hverjar 5°C sem vatnið kólnar áður
en það kemur inn í hann. Það er
geysimikill munur á hitagjöf blásara
sem fær í sitt element 70°C heitt vatn
eða 50°C.
Niðurstaðan er þessi; setja hita-
blásarann rétt upp, tengja hann rétt
með rétt völdum stýritækjum,
hreinsa hann reglulega eftir því um-
hverfi sem hann er í og umfram allt
að einangra vandlega rörið sem flyt-
ur til hans heita vatnið.
Hitablásarinn, lítilsvirt öskubuska
Lagnafréttir
eftir Sigurð Grétar Guðmundsson
pípulagningameistara/
sigg@simnet.is