Morgunblaðið - 01.12.2003, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. DESEMBER 2003 C 49
Nýjar íbúðir fyrir 50 ára og
eldri Vorum að fá í sölu 4ra hæða lyftu-
hús með 20 íbúðum fyrir 50 ára og eldri í
Klapparhlíð í Mosfellsbæ. Sérinngangur er
í hverja íbúð af svalagangi með glerskerm-
un. Innangengt er í bílageymslu með 16
bílastæðum. Húsið er einangrað að utan
og klætt með bárumálmklæðningu og
harðviði. 2ja herbergja íbúðir eru 90 fm,
verð frá 13,3 m. 3ja herbergja íbúðirnar eru
107-120 fm, verð frá 15,4 m. Íbúðirnar
verða afhentar í september 2004.
Hulduhlíð - 2ja herb. Rúmgóð 66
fm 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli með
sérinngangi. Stórt svefnherbergi, baðherbergi m.
kari, sérþvottahús, geymsla sem nú er notuð sem
svefnherbergi, ágæt stofa og eldhús með borð-
krók og fallegri innréttingu. Góð staðsetning, stutt
í skóla og leikskóla. Íbúðin er í leigu og afhendist í
maí 2004. Verð kr. 10,5 m.
Dalatangi - einbýli m. aukaíb.
361 fm einbýlishús á 2 hæðum ásamt 52,5 fm bíl-
skúr, með möguleika á aukaíbúð. Aðalhæðin er
155 fm auk bílskúrs og skiptist í eldhús, stofu,
sjónvarphol, 4-5 svefnherb., baðherb., gestasal-
erni og þvottahús. Kjallarinn er 207 fm með sér-
inngangi og 4 herbergjum, baðherbergi m. sturtu,
stofu og stórri geymslu. Steypt bílaplan og ver-
önd með heitum potti. Verð kr. 33,5 m.
Hlíðarás - einbýli/tvíbýli Stórt og
mikið 407 fm einbýlishús á tveimur hæðum með
tvöföldum bílskúr. Fallegt einbýli í botnlanga við
óbyggt svæði með gríðarmiklu útsýni yfir Mos-
fellsbæ. Hugmyndir eru um að skipta húsinu í
tvær 150 fm íbúðir auk 44 fm bílskúrs og kjallara
undir bílskúr. Verð 29,5 m. Áhv. 16,0 m.
Jörfagrund - endaraðhús 145
fm endaraðhús ásamt 31 fm innbyggðum bílskúr
á stórri hornlóð með miklu útsýni á Kjalarnes. Í
íbúðinni eru 3 mjög stór svefnherbergi, baðher-
bergi m. kari, sérþvottahús, stór og björt stofa og
gott eldhús með borðkrók. Stór og mikil lóð er af-
girt með góðri girðingu, timburverönd er við stofu
og eldhús. Verð kr. 16,9 m. Áhv. 8,5 m. í húsbr.
Þverholt - 4ra herb. *NÝTT Á
SKRÁ* Vorum að fá 118 fm 4ra herbergja
íbúð á 2. hæð í 3ja hæða fjölbýli við Þverholt í
miðbæ Mosfellsbæjar. 3 góð svefnherbergi,
mjög stórt eldhús, stórt þvottahús, baðher-
bergi með kari og stór stofa og borðstofa.
Parket á stofu/borðstofu, en dúkur á öðrum
gólfum. Hagstætt verð á rúmgóðri eign. Verð
kr. 12,6 m. Til afhendingar strax.
Súluhöfði - efri hæð í 2býli Er-
um með 181,7 fm íbúð á 2 hæðum í tvíbýlishúsi
ásamt 41 fm bílskúr innst í botnlanga við golfvöll-
inn í Mosfellsbæ. Á aðalhæð er gert ráð fyrir
stofu, eldhúsi, borðstofu, 2 svefnherbergjum,
baðherbergi, þvottahúsi og geymslu og á neðri
hæð eru tvö svefnherbergi og sjónvarpshol. Hús-
ið er í byggingu í dag, tæplega tilbúið til innrétt-
inga og selst í því ástandi. Verð kr. 21,9 m.
Blesabakki Erum með gott 8 hesta hús í 4
eininga hesthúsi í Mosfellsbæ. Rýmið er 60 fm
miðjubil, með fjórum 1 hesta stíum (1,6x2,5) og 2
tveggja hesta stíum (2,3x2,5) ásamt kaffistofu,
hlöðu og spónageymslu. Mögulegt er að breyta
húsinu í 10 hesta hús. Verð 4,7 m.
Brekkuhjalli - sérh. með
bílsk. Sérlega glæsileg 130,2 fm efri sér-
hæð ásamt 30,6 fm bílskúr með glæsilegu út-
sýni við Brekkuhjalla í Kópavogi. 3 góð svefn-
herbergi, stór stofa, borðstofa og glæsilegt
eldhús, baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf
m. sturtu og baðkari. Gegnheilt merbau-park-
et er á íbúðinni og innfelld halogen-ljós í loft-
um. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni til suðvest-
urs yfir Kópavoginn. Verð kr. 24,4 m.
VANTAR EIGNIR Í MOSFELLSBÆ
• Erum með ákveðinn kaupanda að einbýlis- eða tví-
býlishúsi í Tanga- eða Holtahverfinu, með 5-6 svefn-
herbergjum og 35-50 fm bílskúr.
• Erum með ákveðinn kaupanda að 3ja herbergja
íbúð á 12-13 m. Óskum eftir 3ja herbergja íbúð á
jarðhæð með bílskúr á Fálkahöfða, Blikahöfða eða
Björtuhlíð fyrir hjón á besta aldri.
• Höfum ákveðinn kaupanda að litlu raðhúsi í Mos-
fellsbæ, helst í Víðiteig, Dalatanga, Bugðutanga eða
Grundartanga.
Arnartangi - raðhús m. bílskúr
*NÝTT Á SKRÁ* 94 fm raðhús á einni hæð
ásamt 28 fm bílskúr í gróinni götu. 2-3 svefn-
herbergi, baðherbergi m. sturtu, saunabað,
sérþvottahús, eldhús með innréttingu úr hlyni
og stór stofa/borðstofa. Fallegur og gróinn
suðurgarður með timbuverönd. Góður 28 fm
bílskúr með 3ja fasa rafmagni. Verð kr. 14,8
m. Áhv. 3,9 m. í Byggsj. rík. 4,9%.
Hjallahlíð - 2ja herb.
Rúmgóð 64 fm 2ja herb. íbúð á jarðhæð í 2ja
hæða fjölbýli með sérinngangi og sérgarði.
Íbúðin skiptist í forstofu, stórt svefnherbergi
með góðum skáp, baðherbergi m. sturtu,
sérþvottahús og góða geymslu, nú notuð
sem barnah., stofu og eldhús með fallegri
innrétt. og borðkrók. Góð afgirt og hellulögð
verönd í suður. Verð kr. 10,4 m. Áhv. 4,2 m.
Fálkahöfði - parhús m. bílskúr
*NÝTT Á SKRÁ* Sérlega glæsilegt 160 fm
parhús á einni hæð með bílskúr á fallegum
stað. 3 góð svefnh., baðh., flísalagt í hólf
gólf, eldhús með glæsilegri kirsuberjainnrétt.,
stór stofa með arni, sólstofa og gestasalerni
m. sturtu og þvottahús og 30 fm innbyggður
bílskúr. Rauð eik og flísar á gólfum og innfelld
halogen-ljós í loftum. Falleg eign á vinsælum
stað. Verð kr. 24,5 m.
Grenibyggð - parhús m. bílskúr
Erum með 112,4 fm parhús á einni hæð
ásamt 28 fm bílskúr innst í botnlanga í gróinni
götu í Mosfellsbæ. Íbúðin skiptist í 2 góð
svefnherbergi, vinnuherbergi, flísalagt bað-
herbergi m. baðkari og sturtu, eldhús m. góð-
um borðkrók og stóra og bjarta stofu/sól-
stofu. Rúmgóður bílskúr og hellulagt bílaplan
m. snjóbræðslu. Verð kr. 18,5 m.
N
ý fasteignasala, Nethús,
hefur verið opnuð í
Bæjarlind 6 í Kópa-
vogi. Eigendur hennar
eru Elín D. W. Guðmundsdóttir,
löggiltur fasteignasali, Linda
Björk Stefánsdóttir viðskipta-
fræðingur og Ragnar Thoraren-
sen, löggiltur fasteignasali. Auk
þeirra starfar á stofunni Halldór
Jensson sölustjóri.
„Það sem er nýtt við þessa
fasteignasölu er það, að þarna er
seljendum gefinn kostur á að
gera meira sjálfir varðandi sölu
eigin fasteignar gegn umtalsvert
lægri söluþóknun,“ segja þau
Ragnar, Elín og Linda.
„Við erum með mjög fullkomna
gagnvirka heimasíðu þar sem fólk
getur sjálft skráð sig inn með
eign til sölu og ræður hvort það
skráir inn upplýsingar um eign-
ina ásamt myndum eða lætur
sölumann alveg um þessa þætti.
Þessar upplýsingar frá seljanda
berast síðan í lokaðan gagna-
grunn. Þegar starfsfólki Nethúsa
berst tilkynning um nýja eign er
haft samband við seljanda innan
sólarhrings. Við komum alltaf á
staðinn og skoðum eignirnar eins
og lög gera ráð fyrir. Síðan er
lýsing eignarinnar yfirfarin og
bætt inn frekari upplýsingum.
Eignin fer ekki inn á netið til
sölumeðferðar fyrr en hún hefur
verið yfirfarin af fasteignasöl-
unni. Upplýsingar um eignina
birtist á heimasíðu Nethúsa
ásamt því að vera á vefnum hjá
Morgunblaðinu og Habil.is.
Síminn gegnir líka alltaf sínu
hlutverki og það er ekkert því til
fyrirstöðu að fólk hringi einfald-
lega til okkar og óski eftir að fá
sölumann til að skoða og taka
myndir. Fólk greiðir með
greiðslukorti 15 þúsund króna
skoðunar- og skráningargjald
þegar það setur eign sína í sölu.
Fasteignasalan mun fella niður
umrætt skoðunar- og skráning-
argjald í desember. Heimasíðan
er læst og vottuð og öruggt að
greiða í gegnum hana.
Lág söluþóknun
Söluþóknunin er svo aðeins 1%
af söluverði eignarinnar.
Áhugasamur kaupandi getur
prentað út ítarlegt söluyfirlit af
netinu og hringt beint til seljand-
ans ef hann vill skoða eignina.
Þar með er einn þáttur í hefð-
bundnu ferli fasteignasalans út af
borðinu hjá okkur, það er að
svara fyrirspurnum um eignina.
Við erum með þessu að gefa
fólki tækifæri til að gera meira
sjálft og spara sér þannig pen-
inga.
Með þessu fyrirkomulagi höf-
um við meiri tíma og erum með
fleiri hæfa aðila til að sjá um gerð
og frágang kauptilboða, kaup-
samninga og annan skjalafrágang
sem tengist sölunni. En innan
fasteignasölunnar starfa tveir
löggiltir fasteignasalar og einn
viðskiptafræðingur.
Þessi tegund fasteignasölu
vel þekkt erlendis
Þessi tegund fasteignasölu er
vel þekkt annars staðar í heim-
inum. Við teljum að þetta sé ágæt
viðbót við þá þjónustu sem hér
þekkist í fasteignasölu. Það verða
margar nýjungar á heimasíðu
okkar eins og t.d. sú að seljendur
geta sjálfir valið hvort og hvenær
þeir vilja auglýsa í dagblöðunum.
Þeir greiða auglýsinguna fyrir-
fram með kreditkorti sínu í gegn-
um heimasíðuna okkar og velja
hvort þeir vilja auglýsa í Morg-
unblaðinu eða Fréttablaðinu. Á
eigin heimasvæði inni á heima-
síðu Nethúsa getur svo seljandi
fylgst með því hversu margir
hafa skoðað eignina á netinu og
hversu mikið og oft hann hefur
auglýst í blöðunum.
Fasteignasalan er opin frá
klukkan 9 til 17 mánudag til
fimmtudags en frá 9 til 16 á
föstudögum, síminn er 575-8800.“
Ný fasteignasala – Nethús
F.v. Linda Björk Stefánsdóttir, Ragnar Thorarensen, Elín D.W. Guðmunds-
dóttir og Halldór Jensson hjá hinni nýju fasteignasölu Nethúsum.
Fasteignasalan Nethús
er ný af nálinni og boðar
líka ýmsar nýjungar í
starfi sínu samkvæmt
því sem eigendur henn-
ar, þau Elín D. W. Guð-
mundsdóttir, Linda Björk
Stefánsdóttir og Ragnar
Thorarensen sögðu í
samtali við Fasteigna-
blaðið
Nú líður að þeim tíma þegar jóla-
sveinar fara að gera sig heima-
komna í tilveru Íslendinga. Jóla-
sveinar eru vættir sem tengjast
jólunum í íslenskri þjóðtrú. Þeirra er
fyrst getið í rituðum heimildum á
17. öld og þá höfðu þeir ekki vin-
gjarnlega ímynd, voru taldir barna-
fælur og synir Grýlu og Leppalúða.
Á 19. öld voru þeir ýmist taldir 9
eða 13 og höfðu á sér mjög illt orð.
Fyrir hundrað árum ímyndaði fólk
sér jólasveina í bændafötum þess
tíma en á síðustu öld fengu þeir á
sér æ útlendara yfirbragð, þ.e. svip-
mót Nikulásar sem færði börnum
gjafir. En þrátt fyrir breytt útlit
hafa íslenskir jólasveinar haldið
tölu og nöfnum. Þessi jólasveinn er
heimagerður og er varðveittur í Ár-
bæjarsafni.
Morgunblaðið/Sverrir
Heimatilbúinn
jólasveinn