Vísir - 13.03.1981, Blaðsíða 27

Vísir - 13.03.1981, Blaðsíða 27
Föstudagur 13. mars 1981 27 VÍÉÍR Tökum i umboðssölu allar gerðir ai skíðavörum iyrir börn og íullorðna. Seljum einnig hin heimsþekktu skíði, DYNASTAR og ATOMIC. Eí þú viit kaupa eða selja, komdu þá tii okkar. UMBOÐSSALA MEÐ SKÍÐA VÖRUR OG HLJÓMFLUTNINGSTÆKI M GRENSÁSVEGI50 108 REYKJAVÍK SÍMI: 31290 „Nóg af tuskum í póli- tíkinni” — Helgarvidtal vid Pál Pétursson á Höllustödum ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Amma gaf mér ann Viðtal Danny Shouse Churchill hitti ekki Hitler! Kynlífs- hvellur í Washington Pat Benatar i Helgar- poppi Eitt iííið ietters-bréf irá Brésnéf Foringi innrásarinnar i Afganistan hefur skrifað bréf um kjarnorkuvopn, m.a. til Gunnars Thoroddsens, sem er forsætisráðherra i landi þar sem engin kjarorkuvopn eru til. Maðurinn, sem sagöi að engu hefði skipt þótt vorið í Tékkó- siavakíu hefði kostað þriðju heimstyrjöldina, hefur skrifað bréf til forustumanna i Vestur- Evrópu og biður þá að fjarlægja kjarnorkuvopn svo hægt sé án teljandi ahættu að taka þau i félag við Tékkóslóvakiu. Og þjóðarleiðtoginn, sem lætur fjármagna hryðjuverk, saman- ber ummæli Alexander Haig, heldur að traust manna sé slíkt á ráðamönnum Sovétrikja, að hann sé þess umkominn að fara að stjórna umræðum um kjarn orkuvopnalaust belti i Vestur- Evrópu. Bréf Brésnéfs til manna i Vestur-Evrópu er svona ámóta fimbulfamb og ef Bandarikin færu að skrifa bréf til austantjaldslanda og biöja þau að fjarlægja eitthvað af hergögnum Varsjárbandalags- ins vegna þess að kjarnorku- vopn þess ógnuðu lífi fólks i Vestur-Evrópu. Enginn ástundar margvislegt áreiti um þessar mundir annar en Brésnéf bréfritari. Hann er með puttana í Afganistan. Hann er með puttana i oliuiöndunum. Hann er með puttana á Kúbu og i E1 Salvador, og hryðjuverka- menn eru sagðir eiga nokkra fjárvon hjá rikiskassa Sovét- ríkjanna. Það er þvi nauðsyn- legt fyrir svona striðsjálk og undirróðursmann að skrifa öðru hverju bréf til aö biðja þær þjóðir, sem eru meira og minna vopnlausar, að fara nú ekki að taka upp á þvi að birgja sig upp með kjarnorkuvopnum. Svona bréf eru skrifuð handa Marlu Þorsteinsdóttur, eða hvað þær nú heita friðardúfurnar miklu, sem eru búnar að berjast i þrjátiu ár fyrir friði með þeim árangri, að Rússar eru nú I Afganistan, Pólland er á vonar- völ vegna árásarhættu, Suður- Amerika stendur i bióðugum byltingum með vopnum frá kommúnistum og hryðjuverka- menn eiga nóg fé. En Brésnef bréfritari er ekki að skrifa út i loftið. Aður en hann sendiGunnari Thoroddsen ,og fleiri forsætisráöherrum á Norðurlöndum þaö bréf sem fjallar um kjarnorkuvopnin, hefur hann áreiöanlega verið búinn að skrifa annað bréf til vina og vandamanna á Norður- löndum, og liklega fleira en eitt. 1 þvi bréfi hefur hann hvatt liðs menn sina til að hefja áróður fyrir k ja rnorkuvopnalausu svæði á Norðurlöndunum. Um það bera umræður á siðasta þingi Norðurlandaráðs vitni. Og það var auðvitað sjálfsagt að taka undir þau tilmæli vegna þess að a.m.k. hvað tsland snertir, eru engin kjarnorku- vopn til. Við viljum þau ekki og þurfum ekki að láta Brésnef segja okkur þaö. Þá vill svo undarlega til, að áður en Brés- néf bréfritari sendir Gunnari linu er búið að reka nokkurn áróðurm.a. I rikisfjölmiðlunum hér gegn ógnum og hættu af kjarnorkuvopnum. Það viröast þvi margir fá skilaboð frá Brésnéf.þegar mikið liggur viö að veikja varnir Vestur-Evrópu. Þaö á ekki einasta viö island heldur hin Norðurlöndin og Bretland, en þaðan kom þáttur um kjarnorkustrið og varnir gegn þvi — raunar eftir aö allir voru dauðir. Brésnéf bréfritari skrifar sýnilega ekki opinber bréf til eflingar vopnamætti Sovétrikj- anna nema vera áður búinn að skrifa marium sinum skil- merkilega um starfshætti og áróður til undirbúnings jarö- veginum. Kotrikin á Noröur- löndum taka ekki upp hjá sjálfum sér að fara að ræða kjarnorkumál. Þaö þarf enginn að segja manni. Abendingin kemur fyrst frá kórstjóranum með tónsprotann. Og svo þegar búið er að kjafta dálitið um málið og sýna nokkrar myndir, þar sem allir eru dauðir, kemur sjálfur frelsari mannkynsins og friöarvinurinn mikii og segir sem svo I bréfi að það sé alveg ófært aö hafa Vestur-Evrópu fulla af kjarnorkuvopnum, og það við landamæri rikjasam- steypu sem vill ekki nema frið, nema þegar þarf að laga til I Afganistan eða hreinsa út vorið i Tékkóslóvakiu og verkalýðs- klikuna I Póllandi. Svarthöföi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.