Morgunblaðið - 31.12.2003, Síða 32
32 B MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Forgotten Lores - Týndi hlekkurinn
Fáir standa þeim félögum í Forgotten
Lores á sporði í rímnasnilld eins og
sannast hvað eftir annað á Týnda
hlekknum. Platan sem hægt er að
hlusta á ótal sinnum því sífellt er maður
að rekast á snjallar hendingar, kraftmik-
inn kveðskap og innblásinn flutning.
Ef síðasta ár var ár hiphopsins, hér á landi sem erlendis,þá má segja að rokkið hafi snúið aftur með látum árið2003. Hér á landi komu út prýðilegar rokkskífurólíkrar gerðar; Mínus, Brain Police, Dr. Gunni,200.000 Naglbítar og Hrafnaþing sendu frá sér plötur
sem spönnuðu allt frá hráum harðkjarna í grípandi laglínurokk.
Það var líka sitthvað í gangi í hiphopi, plötur komu út með
Skyttunum, Forgotten Lores, Chosen Ground, Ramses og
Hermigervli, víst færri plötur en á síðasta ári en því betri.
Ef mönnum finnst minna bera á hiphopi en áður hvað þá með
raftónlistina; útgáfa á slíkri tónlist er í skötu líki eftir góða tíma
undanfarin ár. Það er helst að BioGen hafi haldið mönnum við
efnið, en Einóma sendi líka frá sér afbragðs plötu sem gefin var
út af erlendu fyrirtæki. Svo var það Einar Örn sem blandaði öllu
saman, raftónlist, rokki og hiphopi, á áður óþekktan hátt.
Erlend tónlist hefur átt erfitt uppdráttar hér á landi und-
anfarin ár, dregur úr sölu á vinsældatónlist, poppi og rokki, og
einnig hefur orðið æ erfiðara að ná í nýja tónlist, minnir á gamla
daga þegar það tók mánuði eða ár að koma nýrri tónlist hingað
til lands. Þá kemur Netið til hjálpar, með aðstoð Netsins er
hægt að fylgjast með og síðan kaupa það sem eitthvað er varið í,
þannig færist plötuverslunin smám saman úr landi – aftur.
Mikið var á seyði í rokkinu ytra ekki síður en hér heima og
mörg dæmi um að hljómsveitir nýttu sér Netið til að koma sér á
framfæri, gáfu lög eða kynntu sig þar á annan hátt.
Hiphop blómstraði líka og ein söluhæsta plata ársins vestan
hafs var einmitt hiphop með 50 Cent. Kannski ekki það harðasta
sem hægt var að komast í, en prýðilegt engu að síður.
Erfiðara er að átta sig á danstónlistinni, en það var fullt að
gerast í harði klúbbamúsík og líka gróska í tilraunakenndari
tónlist, til að mynda frá Fennesz og Ekkehard Ehlers, aukin-
heldur sem kanadíski tónlistarmaðurinn Tim Hecker sendi frá
sér frábæra plötu. Reyndar skemmtileg tilviljun að á árslist-
anum að þessu sinni eru fjórar kanadískar hljómsveitir eða tón-
listarmenn, Tim Hecker, The Unicorns, Buck 65 og Frog Eyes.
Plötur ársins
Það má með sanni segja að rokkið hafi
snúið aftur á árinu 2003, bæði hér á landi
og erlendis að mati Árna Matthíassonar.
Hann tínir til helstu plötur ársins að sínu
mati, innlendar sem erlendar.200.000 Naglbítar - Hjartagull
Hjartagull 200.000 Naglbíta er tónlist
fyrir höfuð og hjarta, glæsileg rokkskífa
með hrífandi textum. Víst er yrkisefnið
dauðinn og vonleysi í sínum óteljandi
myndum, en skiptir ekki máli þegar það
er flutt af slíkum krafti og einlægni.
Björk - Live Box
Þessi fjögurra diska kassi með tónleika-
upptökum af sólóferli Bjarkar Guð-
mundsdóttur var sannkallaður hvalreki
fyrir aðdáendur hennar sem og þeim
sem ekki þekkja hana vel. Það besta við
boxið er þó að það gefur einkar gott yf-
irlit yfir feril Bjarkar þó fulllítið sé af
upptökum frá Debut-tónleikum.
Dr. Gunni - Stóri hvellur
Gunnar Lárus Hjálmarsson sneri aftur í
rokkið eftir allt of langa fjarveru og sendi
frá sér eina bestu rokkskífu ársins, upp
fulla af kímni og meinlegum textum.
Gunni hefur fráleitt mildast með ár-
unum þó lögin séu þéttari enda betur
samin, og söngröddin er geggjuð sem
forðum.
Sigtryggur og Steingrímur - Dialog
Líklega hafa flestir búist við slagverks-
fylleríi þegar spurðist að þeir Sigtryggur
Baldursson og Steingrímur Guðmunds-
son hygðust gera plötu saman, en því er
öðru nær. Mjög spennandi og skemmti-
leg plata sem steypir saman hug-
myndum úr ólíkum áttum og frá ólíkum
löndum.
Einar Örn - Ghostigital
Í umsögn um þessa fyrstu sólóskífu Ein-
ars Arnar Benediktssonar hafa menn
gjarna á orði að tónlistin sé óþægileg
ekki síður en aðlaðandi, erfið áheyrnar
ekki síður en heillandi. Sú lýsing á býsna
vel við, framúrskarandi plata listamanns
sem kannast ekki við að hann sé tónlist-
armaður.
Mínus - Halldór Laxness
Fáar hljómsveitir íslenskar hafa
tekið eins örum framförum og Mín-
us frá því þeir félagar komu sáu og
sigruðu í Músíktilraunum með
öskrandi harðkjarna. Síðan hefur
hljómsveitin breyst umtalsvert,
orðið þéttari og markvissari, að-
gengilegri, án þess þó að tapa hörk-
unni sem gerði hana svo áhuga-
verða. Mínus hefur staðið í ströngu undanfarna mánuði,
stefnir ótrauð á að leggja heiminn að fótum sér, og víst að fá-
ar hljómsveitir hérlendar eru líklegri til þess nú um stundir.
Halldór Laxness er hápunkturinn á ferli hljómsveitarinnar
hingað til, ágeng, hrá og heillandi plata. Plata ársins 2003.
Skytturnar - Illgresið
Sagan segir að þegar Skytturnar voru
búnar að taka upp plötu hafi þeir ákveðið
að taka hana upp aftur til að gera enn
betur. Það hefur og tekist með miklum
ágætum, frábær plata með lifandi undir-
leik og mjög flottum rímum. Hiphop-
plata ársins.
Sufjan Stevens ætlar sér að segja sögu
Bandaríkjanna í tónlist og byrjar á
Michigan, heimaríki sínu. Þetta er þriðja
sólóskífa Stevens og sú besta hingað til,
frábærlega tregafull rólyndisleg tónlist
með afskaplega pældum og vönduðum
textum.
Sufjan Stevens - Greetings From
Michigan, The Great Lake State
Bandaríska hljómsveitin The December-
ists hljómar eins og liðsmenn hennar
hafi alist upp við ána Mersey í Norður-
Englandi, tónlistin mjög bresk en þó með
ríkulegum skerfi að bandarísku vest-
urstrandarpoppi.
The Decemberists -
Her Majesty The Decemberists
KK & Maggi Eiríks - 22 ferðalög
Þeir félagar Kristján Kristjánsson og
Magnús Eiríksson eiga sérstakan heiður
skilinn fyrir að hafa dustað rykið af 22
rútubílalummum og endurnýjað þær af
svo innblásinni snilld að maður sér þær í
nýju ljósi. Mjög skemmtileg og einlæg
plata.
Frog Eyes - The Golden River
Sjaldan hef ég heyrt eins ævintýralegan
söng og á þessari plötu kanadísku
hljómsveitarinnar Frog Eyes; einskonar
blanda af Bowie, Cave og Waits. Þegar
við bætist að tónlistin er ekki síður
geggjuð er komin sérdeilis steikt og
skemmtileg plata.
Bang Gang - Something Wrong
Barði Guðmundsson er ekki bara ótrú-
lega afkastamikill heldur er hann óhemju
snjall tónlistarmaður og hugmyndaríkur.
Bang Gang hefur verið í örri þróun frá
því fyrstu lögin komu út fyrir sjö árum.
Something Wrong er bræðingur af ný-
bylgjulegu poppi, lounge-poppi og raf-
tónlist. Það lyftir plötunni að Barði skuli
syngja flest laganna sjálfur.
INNLENDAR
PLÖTUR
ERLENDAR
PLÖTUR
The Microphones - Mount Eerie
Phil Elverum er hæfileikamikill furðufugl.
Eftir að hafa haldið úti einni af skemmti-
legsutu hljómsveitum í bandarískri ný-
bylgju ákvað hann að leggja sveitina á
hilluna og byrja upp á nýtt. Þetta er því
síðasta plata The Microphones og fyrsta
plata Mt. Eerie, byrjar á tíu mínútum af
dynjandi trommutakti og leikur á allan
tilfinningaskalann.
The White Stripes - Elephant
Þó að þau Þau Jack og Meg White hafi
komist á samning hjá stórfyrirtæki
breyttu þau ekki útaf í tónlistinni, fóru
enn lengra í átt að einfaldleikanum, enn
nær frumrokkinu, og ekkert slegið af í
frumleika og krafti. Heyrst hefur að þau
séu væntanlega hingað til tónleikahalds
á næstu mánuðum sem væri mikill
happafengur.