Morgunblaðið - 22.01.2004, Síða 22
AKUREYRI
22 FIMMTUDAGUR 22. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Við hjá fasteign.is höfum verið beðnir um að leita
eftir einbýli á Seltjarnarnesi fyrir þrjá ákveðna
kaupendur.
Verðhugmynd er allt að 50 millj. Sterkar greiðslur í
boði og langur afhendingartími ef þess er óskað.
Allar nánari uppl. gefur Ólafur Finnbogason í
síma 6-900-820 eða 5-900-800.
Einbýli á Seltjarnarnesi
ÓSKAST
SÍMI 5 900 800
Ólafur
Finnbogason
sölumaður.
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Garðabær | Þingmenn Sjálfstæð-
isflokks í Suðvesturkjördæmi heim-
sóttu í gær Garðabæ og fóru meðal
annars í tvo af skólum bæjarins.
Þingmennirnir, þau Árni M. Mat-
hiesen sjávarútvegsráðherra,
Bjarni Benediktsson, Gunnar Birg-
isson, Sigríður Anna Þórðardóttir
og Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, nýskipaður mennta-
málaráðherra, heimsóttu einnig
bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í
Garðabæ og forystumenn Sjálf-
stæðisflokksins í sveitarfélaginu.
Ásdís Halla Bragadóttir, bæj-
arstjóri Garðabæjar, segir heim-
sóknina hafa heppnast afar vel.
„Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru
á ferð um kjördæmið þessa dagana
og í dag komu þeir í heimsókn í
Garðabæ,“ segir Ásdís, en sá háttur
var hafður á að bæjarfulltrúar fóru
með þingmönnum um sveitarfélagið
og fóru yfir helstu mál sem eru á
döfinni í Garðabæ. „Menntamálin
voru ofarlega á baugi og sér-
staklega ánægjulegt að fá tækifæri
til að sýna nýjum mennta-
málaráðherra hvað hér er að ger-
ast. Meðal annars var í þessari
stuttu heimsókn farið í Fjölbrauta-
skóla Garðabæjar og barnaskóla
Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum.
Svo vonumst við til að geta boðið
henni fljótlega til að skoða leik- og
grunnskóla sem Garðabær rekur.“
Foreldrar í Garðabæ
öfundsverðir
Ásdís Halla segir ferðina hafa
heppnast afar vel, mennta-
málaráðherra og þingmennirnir
hafi verið mjög áhugasamir um
málefni Garðbæinga, „og þá sér-
staklega um frjálst val, sem felst í
því að við viljum að foreldrar barna
í Garðabæ geti valið þann leik- eða
grunnskóla sem hentar barninu
þeirra best án tillits til búsetu,“
segir Ásdís Halla.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra segir heim-
sóknina hafa verið afar fróðlega og
skemmtilega og gaman að heim-
sækja bæjarfélögin. „Það er kjör-
dæmavika í gangi hjá okkur þing-
mönnunum í Suðvesturkjördæmi og
við höfum verið að heimsækja bæj-
arfélögin og okkar fólk í þeim,“ seg-
ir Þorgerður. Þingmennirnir hafa
nú heimsótt Hafnarfjörð, Bessa-
staðahrepp, Garðabæ og Seltjarn-
arnes og eiga eftir að líta inn hjá
Mosfellsbæ og Kópavogi. Þorgerður
segir einstakt hvað vel hafi verið
tekið á móti þingmönnunum, mót-
tökurnar hafi verið afar hlýlegar.
„Fyrir mig sem menntamálaráð-
herra var þessi dagur mjög
skemmtilegur. Við heimsóttum með-
al annars Fjölbrautaskólann í
Garðabæ, þar sem skólameistari
hefur nýtt sér það svigrúm sem er
innan laganna varðandi útskrift
stúdenta eftir þrjú ár. Það er geysi-
leg fjölbreytni innan skólaveggja
FG.
Síðan heimsóttum við þetta merka
frumkvöðlastarf sem er í samvinnu
Barnaskóla Hjallastefnunnar og
Garðabæjar undir forystu Mar-
grétar Pálu. Það var mjög gaman að
sjá hvað krakkarnir voru allir glaðir
og ánægðir með sitt umhverfi og
það sem þau voru að gera. Maður
heillast líka svo af þessum hug-
sjónaeldmóð sem maður varð var við
þarna í dag.
Foreldrar barna í Garðabæ eru
öfundsverðir að hafa slíka valkosti í
skólastarfi,“ segir Þorgerður að lok-
um.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks heimsækja Garðabæ
Mikill áhugi á frjálsu vali
Morgunblaðið/Kristinn
Kát og frískleg börn: Þorgerður Katrín heilsaði upp á börnin í Barnaskóla
Hjallastefnunnar og þótti ánægjulegt að sjá hvað þau voru glöð og ánægð.
Kópavogur | Bæjaryfirvöld í Kópa-
vogi vinna nú að skipulagningu reits
fyrir öldrunarþorp í Vatnsendalandi,
en þar hefur Hrafnista sótt um leyfi
til að byggja hjúkrunarheimili ásamt
ýmsum búsetumöguleikum fyrir
eldra fólk, svo sem íbúðum í fjöl-
býlishúsum, einbýlishúsum og rað-
húsum.
Ekki er enn komin nákvæm stað-
setning á þorpinu, en reiknað er með
að því verði fundinn staður í Vatns-
endahlíð sunnan Vatnsendavegar.
Staðsetningin býður upp á mikla
möguleika, að sögn forsvarsmanna
Kópavogsbæjar, enda mikið útivist-
arsvæði, golfvöllur og sundlaug í
næsta nágrenni.
Vilja öldr-
unarþorp
í Vatns-
endalandi
LIÐSMENN Slökkviliðsins á Akur-
eyri veittu húsráðendum í Hafnar-
stræti 3 aðstoð við að hreinsa snjó af
þaki hússins í gær. Sunnanáttinn
sem þá var ríkjandi gerði að verkum
að snjórinn fór að bráðna og víða
varð vatnselgur á götur og dæmi um
að vatn hafi tekið að flæða. Þannig
fóru slökkviliðsmenn í tvö útköll í
fyrrakvöld og fyrrinótt þar sem vatn
hafði gert usla. Nokkurt tjón varð í
bílskúr í Glerárhverfi þar sem vatns-
inntak hafði frostsprungið og vatnið
leitaði inn í skúrinn. Hitt tilvikið var
á Oddeyri en slapp til án tjóns. Gríð-
armikill snjór var í bænum eftir lát-
lausa nokkurra daga snjókomu í lið-
inni viku. Hann tók að bráðna í gær
og því mátti víða sjá fólk vera að
hreinsa hann af þökum. Sigurður L.
Sigurðsson, varðstjóri hjá Slökkvi-
liðinu á Akureyri, sagði að mikið
væri um að klaki hefði sest í rennur
og því væri nokkur vinna við að
höggva hann, en aðgerðir við Hafn-
arstræti hefðu tekist vel, þó svo að
erfitt hefði verið að athafna sig úr
körfubíl slökkviliðsins.
Morgunblaðið/Rúnar Antonsson
Nóg var að gera hjá slökkviliðsmönnum við að hreinsa snjó af þökum íbúð-
arhúsa í Innbænum á Akureyri í hlákunni í gær.
Aðstoða við að
hreinsa snjó af þaki
FJÖLSKYLDAN Berndtsen sem er
ættuð frá Noregi mun næstu laug-
ardagskvöld þjóna gestum á veit-
ingastaðnum Græna hattinum og
kappkosta að láta þeim líða vel á
meðan þeir gæða sér á smáréttum
af hlaðborði. Það eru leikarar í
Leikfélagi Húsavíkur sem fara með
hlutverk hinna norsku fjölskyldu-
meðlima og um er að ræða leikþátt
sem heitir Þjónn í súpunni í leik-
stjórn Maríu Sigurðardóttur.
Fyrsta sýning verður nú á laug-
ardag, 24. janúar, kl. 20.
„Þessi fjölskylda hefur áratuga
langa reynslu af veisluhöldum og
hefur meira að segja þó nokkrum
sinnum séð um veislur fyrir Olav
konung og Sonju drottningu, að
ógleymdri erfidrykkjunni fyrir
Keikó,“ segir í frétt um sýninguna.
Á þjónalistanum er að finna marg-
ar gerðir þjóna, þeir eru úrillir,
glaðir, hortugir, ástleitnir, veikir,
gervilegir og svo er einn í súpunni
að sjálfsögðu og geta gestir valið
um mismunandi þjónustu; góða,
slæma, fleðulega, hortuga, hraða,
undarlega, hlýlega, grunsamlega,
háværa, draugalega, feimna,
snobbaða og jafnvel enga. Þá er
sérstök þjónusta í boði fyrir afmæl-
isbörn, brúðhjón, árshátíðarhópa,
saumaklúbba og klíkur af ýmsu
tagi, segir einnig í fréttinni.
Það eru þau Elín Ásbjarn-
ardóttir, Gunnar Jóhannsson, Hilm-
ar Valur Gunnarsson, Hjálmar Bogi
Hafliðason, Jóhann Kristinn Gunn-
arsson, Sigurður Illugason, Sólveig
Skúladóttir og Vigfús Sigurðsson
sem fara með hlutverk Berndtsen-
fjölskyldunnar.
Fyrsta sýning er nú á laugardag
sem fyrr segir en ætlunin er að
bjóða upp á þessa sýningu nokkur
næstkomandi laugardagskvöld á
Græna hattinum.
Þjónn í súpunni á
Græna hattinum