Morgunblaðið - 01.02.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 31. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Sá stóri á
hvíta tjaldið
Tim Burton hefur alltaf liðið eins og
útlendingi í eigin heimalandi 30
Tímarit, Heimastjórn og Atvinna
Tímarit | Lífsdans Heiðars Konur eru gullnáma heimsins
Heimastjórn | Morgunn nútímans Dálæti Davíðs á Hannesi Hafstein
Atvinna | Draumastarfið Útgjöld vegna atvinnuleysis
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 300
AÐ minnsta kosti 11 létust þegar eldur kom
upp á dvalarheimili aldraðra í bænum Udd-
ingston, austur af Glasgow í Skotlandi, í
fyrrinótt. Óttast var í gærmorgun að tala
látinna ætti eftir að hækka, og sagði tals-
maður slökkviliðs bæjarins að „fjölmargir
hefðu látist“.
Húsið var tveggja hæða og í því voru 43
herbergi. Að minnsta kosti 40 manns munu
hafa verið inni er eldurinn kom upp.
11 létust í bruna
Uddingston í Skotlandi. AFP.
EVRÓPURÁÐIÐ hefur ákveðið að láta út-
setja „Óðinn til gleðinnar“, sem kemst
næst því að vera þjóðsöngur Evrópu, með
ýmsum nýstárlegum hætti til að hressa
upp á ímynd sína og vekja áhuga hjá unga
fólkinu.
Þetta tónverk Beethovens verður leikið
í nútímalegri útsetningu, til að mynda í
djass-, trans-, hipp-hopp eða teknóstíl, á
ýmsum samkomum á vegum Evrópuráðs-
ins. Nýju útgáfurnar verða gefnar út á
geisladiski.
Óður fyrir
unga fólkið
Strassborg. AFP.
DANMÖRK og Ísland eru einu
löndin á Evrópska efnahagssvæð-
inu þar sem engin ákvæði eru í
lögum sem miða að því að tak-
marka sérstaklega samþjöppun á
fjölmiðlamarkaði. Í þessum tveim-
ur löndum yrði því að beita al-
mennum samkeppnislögum til að
stemma stigu við einokun og fá-
keppni. Að baki þeim búa hins
vegar sjónarmið um neytenda-
vernd fremur en um tjáningar- og
skoðanafrelsi.
Eins og segir í grein eftir Pál
Þórhallsson, lögfræðing hjá Evr-
ópuráðinu, hafa öll önnur ríki á
Evrópska efnahagssvæðinu talið
ástæðu til að tryggja fjölbreytni í
fjölmiðlun með því að takmarka
samþjöppun með lögum. Sum
þeirra hafa sett sérákvæði í sam-
keppnislög sem gera kleift að
grípa fyrr inn í samþjöppun á fjöl-
miðlamarkaði en ella. Í Noregi
hafa t.d. verið sett sérlög um eign-
arhald á fjölmiðlum þar sem sér-
stakri stofnun er falið eftirlit með
öllum meiri háttar eignatil-
færslum og að grípa inn í ef
ástæða er til.
Einnig er algengt að í útvarps-
lögum séu skilyrði um að ekki beri
að veita einum aðila fleiri en eitt
leyfi á hverjum markaði. Að auki
koma svo oft ákvæði um hámarks-
markaðshlutdeild, annaðhvort
miðað við veltu fyrirtækja eða út-
breiðslu fjölmiðils. Loks er ekki
óalgengt að víxleignarhald milli
ólíkra fjölmiðlageira sé takmarkað
þannig að einn aðili geti ekki náð
yfirburðastöðu bæði á dagblaða-
og ljósvakamiðlamarkaði.
Í greininni segir að Evrópuráð-
ið telji að öflugt og sjálfstætt rík-
isútvarp sé vænleg leið til að
tryggja lágmarksframboð gæða-
efnis og þannig þjóna sömu mark-
miðum og löggjöf sem takmarkar
samþjöppun eignarhalds.
Ákvæði um samþjöppun á fjölmiðlamarkaði innan EES
Danmörk og Ísland einu
löndin án takmarkana
Fjölbreytni/10
GEORGE W. Bush
Bandaríkjaforseti mun
spá metfjárlagahalla á
árinu, að andvirði 521
milljarður dollara, þegar
hann kynnir fjárlaga-
frumvarp sitt á morgun,
að sögn heimildarmanns
AFP í bandaríska stjórn-
kerfinu. Reynist þetta
rétt gæti það veikt stöðu
Bush í baráttunni við demókrata fyrir for-
setakosningarnar í nóvember.
Fjárlagahalli síðasta árs var 375 milljarð-
ar dollara og fjárlagaskrifstofa þingsins
spáði því á dögunum að hallinn ykist í 477
milljarða dollara í ár og minnkaði síðan í 362
milljarða á næsta ári.
Metfjárlagahalla
spáð vestra
Washington. AFP.
Bush
FÉLAGAR í karnivaldanshópi í
Úrúgvæ, „Murga“, taka þátt í
opnunarskrúðgöngu karnivalsins
þar í landi, er hófst nú um
helgina.
Hátíðin mun standa í rúman
mánuð, og er þetta lengsta
karnivalið sem haldið er í heim-
inum.
Reuters
Karnival í Úrúgvæ
ÞÓTT sala á geðdeyfðarlyfjum á Íslandi hafi marg-
faldast á árunum 1975–2000, aukist úr 8,4 dag-
skömmtum á hverja þúsund íbúa í 72,7 skammta, hef-
ur lýðheilsa landsmanna ekki batnað. Örorka vegna
þunglyndis og kvíðaröskunar hefur ekki minnkað á sl.
25 árum og innlögnum á sjúkrahús vegna sjúkdóm-
anna hefur fjölgað á tímabilinu 1989–2000. Hér er því
þörf á betri meðferð vegna þunglyndis.
Þetta er helsta niðurstaða rannsóknar Tómasar
Helgasonar, yfirlæknis geðdeildar Landspítalans,
Helga Tómassonar, dósents við Háskóla Íslands, og
Tómasar Zoëga yfirlæknis sem birt er í dag í nýjasta
hefti breska geðlækningablaðsins, The British
Journal of Psychiatry. Rannsóknin var gerð til að
kanna áhrif söluaukningar geðdeyfðarlyfja á lýð-
fjölgað árlega um 5,4% meðal fullorðinna, þegar tillit
hefur verið tekið til mannfjölgunar. Á sama tímabili
hafi plássum fyrir geðsjúka á sjúkrahúsum fækkað.
Í greininni segir að aukin sala geðdeyfðarlyfja
hafi ekki haft áhrif á fjölda sjálfsmorða á Íslandi og
telja greinarhöfundar ólíklegt að samdráttur í sölu
lyfjanna myndi hafa áhrif á sjálfsmorðstíðni.
Í greininni kemur fram að þótt ný kynslóð geð-
deyfðarlyfja hafi komið á markaðinn á undanförnum
5–10 árum og vitundarvakning orðið vegna þung-
lyndis, hafi kostnaður samfélagsins aukist og áhrif á
lýðheilsu verið takmörkuð. Þá er bent á að kostn-
aður við meðferð þunglyndissjúklinga á Íslandi hafi
verið um 18,6 milljónir dala árið 1998 og um 27%
þess kostnaðar hafi verið vegna geðdeyfðarlyfja.
heilsu, með því að nota tölur um sjálfsmorð, örorku
og innlagnir og útskrifanir af sjúkrahúsum.
Sala geðdeyfðarlyfja aukist
um 16,4% á ári frá 1989
Í greininni kemur fram að sala geðlyfja hafi frá
1989 aukist um 16,4% á ári og vegur þyngst sala
nýrra þunglyndislyfja, sem komu á markað hér
1988. Á tímabilinu 1989–2000 jókst sala á þunglynd-
islyfjum um 388% og á öðrum geðlyfjum, aðallega
svefnlyfjum, um 92%. Kostnaður vegna aukinnar
sölu þunglyndislyfja jókst á sama tímabili um 461%.
Í greininni segir að þrátt fyrir aukna sölu hafi inn-
lögnum á sjúkrahús vegna þunglyndis fjölgað meira
en nemur útskriftum. Á tímabilinu hafi innlögnum
Grein í The British Journal of Psychiatry um notkun geðdeyfðarlyfja á Íslandi
Aukin lyfjanotkun ekki
haft áhrif á lýðheilsu
MOHAMMAD Khatami Íransfor-
seti viðurkenndi í gær að þrátefli
væri í deilu umbótasinnaðra þing-
manna og íhaldssinna vegna banns
við framboði fjölmargra frambjóð-
enda í væntanlegum kosningum.
Hafa stjórnvöld varað við að ekki
sé víst að hægt verði að halda
kosningarnar, og fjölmargir þing-
menn kváðust í gær vera komnir á
fremsta hlunn með að segja af sér
og afboða þátttöku í kosningunum.
Það er hið svonefnda Varð-
mannaráð, 12 manna eftirlitsnefnd
sem skipuð er af ajatollanum Ali
Khameini, æðsta leiðtoga landsins,
og eitt helsta vígi íhaldsaflanna í
landinu, sem hefur útilokað um
2.500 frambjóðendur frá kosning-
unum, er halda á síðar í mánuðin-
um. Upphaflega hafði ráðið mein-
að 3.600 manns um framboð því að
þeir hefðu gerst brotlegir við
kosningalagaákvæði um skuld-
bindingar við íslam og viðhorf
Khameinis.
Khatami afdráttarlaus
„Ríkisstjórnin mun ekki halda
kosningar nema þær geti farið
eðlilega fram,“ hafði ríkisfrétta-
stofan IRNA eftir Khatami í gær,
er hann lagði sveig að grafhýsi aja-
tollans Ruhollah Khomeini, leið-
toga írönsku byltingarinnar, í til-
efni 25 ára afmæli byltingarinnar.
Abdolvahed Mussavi-Lari, inn-
anríkisráðherra landsins, sagði að
deila íhaldsaflanna og umbóta-
sinna þýddi að ógerlegt væri að
halda þingkosningar 20. febrúar.
Umbótasinnaðir þingmenn, sem
margir hafa verið í setuverkfalli í
þinginu frá 12. janúar vegna
bannsins, sögðu í gær að Varðliða-
ráðið hefði ekki létt banni af nægi-
lega mörgum frambjóðendum.
Þrátefli í írönskum
stjórnmálum
Óvíst hvort
kosningar
geta farið
fram
Teheran. AFP.
♦♦♦
♦♦♦