Morgunblaðið - 01.02.2004, Side 4

Morgunblaðið - 01.02.2004, Side 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ FROST ACTIVITY Ólafur Elíasson Námskei› fyrir börn og fullor›na. Björgólfi Thor Björgólfssyni og Samson Eignarhaldsfélag, er sannur hei›ur a› veita s‡ningunni brautargengi. Allt um kring – Listsmi›jur Listsmi›ja fyrir 10 - 12 ára. Laugardag 7. febrúar kl. 10.30 – 15 Hi› sanna e›a myndin af sannleikanum – Listsmi›ja fyrir 13 - 15 ára Laugardag 21. febrúar kl. 10.30 – 15 Listsmi›ja fyrir alla fjölskylduna Sunnudag 15. febrúar kl. 13 – 15 FULLBÓKA‹ Sunnudag 22. febrúar kl. 13 - 15 R‡mi og tími /Sta›ur og stund – Dagur á safninu Námskei› fyrir listunnendur. Sunnudag 22. febrúar kl. 10.30 – 15 Skráning á námskei›in er í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi, í síma 590 1200 og um netfang fraedsludeild@reykjavik.is - Sjá nánar á www.listasafnreykjavikur.is FRAMKVÆMDIR á Austurlandi ganga skaplega og eru flest verk á vegum verktaka í jarðgangagerð, jarðvinnu og vegagerð á áætlun, þó að vetrarríki hamli að einhverju leyti framkvæmdum um þessar mundir. Af framkvæmdum í Kárahnjúka- virkjun er það að frétta að bormenn eru senn hálfnaðir með aðkomu- göngin en frárennslisgöngin eru styst á veg komin. Hjáveitugöngum fyrir Jöklu lauk seint á síðasta ári og aðkomugöngum 1 á Teigsbjargi er einnig lokið, en þau eru 1.258 m löng. Samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun hafa rúmir 800 m af 2.800 m heildarlengd aðganga 2 við Axará nú verið boraðir og tæpir 300 m af 2.650 m í aðgöngum 3 í Glúms- staðadal. 160 m hafa verið boraðir af 39.756 m löngum aðrennlisgöngum frá Hálslóni og komnir eru 172 þús- und rúmmetrar af efni í stíflufyll- ingu Kárahnjúkastíflu, en alls verð- ur efnisfyllingin 8,5 milljónir rúmmetra. Unnið að gerð þriggja jarð- ganga samtímis í Fljótsdal Fosskraft vinnur nú að gangagerð í Fljótsdal, þar sem stöðvarhús Kárahnjúkavirkjunar verður stað- sett. Stöðvarhúsið verður staðsett í sprengdum helli neðanjarðar, um 1 km undir Teigsbjargi. Að stöðvar- hellinum og aðlægum neðanjarðar- helli fyrir spenna verða grafin þrenn nánast lárétt jarðgöng, aðkomu- göng, kapalgöng og frárennslisgöng og tvenn um 400 m löng lóðrétt göng. Þá verða grafin allnokkur hliðar- og tengigöng milli jarðganga og neðan- jarðarhella. Nú er unnið að gerð þriggja jarð- ganga samtímis og er búið að grafa um 440 m af um 1.000 m löngum að- komugöngum, um 330 m af 1.000 m löngum strengjagöngum og rúma 100 m af 1.100 m löngum frárennsl- isgöngum. Verkið mun nokkuð á eft- ir áætlun, þar sem framkvæmdir hófust seinna en ætlað var. Bergið þykir gott til jarðgangagerðar og lík- legt að áætlun verði náð síðar í vetur. Fáskrúðsfjarðargöng brátt hálfnuð Í Fáskrúðsfjarðargöngum er búið að sprengja 1.395 m í Reyðarfirði og 1.338 m í Fáskrúðsfirði, samtals 2.753 m, eða 48% af heildarlengd jarðganganna. Samkvæmt upplýs- ingum frá Ístaki voru afköst síðustu viku 131 m, 55 m í Reyðarfirði og 76 m í Fáskrúðsfirði. Gangagröftur hef- ur gengið vel Fáskrúðsfjarðarmegin og þar er einnig unnið við fyllingar og samsetningu stálplöturæsis í Hrossadalsá. Mjög slæmur kafli hefur verið Reyðarfjarðarmegin og verkið geng- ið hægt. Þar hefur verið tveggja metra misgengi og mikið um styrk- ingar, bæði boltun og ásprautun til að tryggja öryggi, en nú er þessum misgengiskafla að ljúka og verkið komið á skrið aftur. Göngin eiga að vera tilbúin haustið 2005. Á annan tug verkefna í vegagerð Hvað vegamál varðar segir Sveinn Sveinsson í áætlanadeild Vegagerð- arinnar fjórtán aðgreind verkefni framundan á Austurlandi eins og meðfylgjandi tafla sýnir. Nýlokið er útboði jarðganga undir Almannaskarð ásamt vegskálum og vegagerð á Hringvegi báðum megin ganganna. Þau verða 1.146 m löng, steinsteyptir vegskálar 162 m og vegagerð um 4,1 km. Verkinu skal vera lokið 15. júní árið 2005 og eru tilboð nú til skoðunar hjá Vegagerð. Eigi verður rætt um framkvæmd- ir eystra að ekki sé minnst á vaxandi fjölda nýbygginga, einkum í Fjarða- byggð og á Austur-Héraði. Eru tugir einbýlishúsa, fjölbýlishús og töluvert verslunarrými í byggingu á þessum stöðum og meira væntanlegt, þar sem lóðaeftirspurn er mikil. Framkvæmdir á Austurlandi ganga vel Ljósmynd/K.M. Litskrúðugt tveggja metra hátt misgengi í Fáskrúðsfjarðargöngum: Í næstu viku verður búið að bora hálfa leið í gegn.                                                        !"    #    !  $      !  %     & "   # $   %   '     # !    &&  $ # " ($       )% * + !   ""$  # % $   ($       )% * + !   $   '  ' %         )% * + !   ,$  "#  "# ($       )% * + !     ( $   ' -$     !    * .* )% *   ! &  $  # ')$   /   &!  $/    ,   &    # *    !"    0%    1  2 % +     *    0 !   !,  3  %   0/ ! %   +       &  !"             %   0%   4 *  +  #  +    ,# 5 !# /      3  %   0/ +  %     &    # %     *$# '   !      4         !, 6  1  2 %  +7  %+      * )%  0/0  %   %  /*8  +   JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, segist hafa vilja til þess að koma til móts við þá sem greiða þurftu lækniskostnað að fullu meðan á deilu sérfræðilækna og Trygg- ingastofnunar ríkisins stóð á fyrstu vikum ársins, en út- færsla þar að lútandi muni ekki liggja fyrir fyrr en á mánudag. Í Morgunblaðinu á fimmtu- dag var sagt frá ungu fólki sem þurfti að greiða að fullu fyrir eyrnabólguaðgerð sem sjö ára sonur þess fór í 7. janúar síðast- liðinn. Foreldrarnir þurftu að greiða 21 þúsund kr. fyrir að- gerðina og höfðu fengið þau svör frá TR að aðgerðin yrði ekki endurgreidd. Morgunblað- ið hefur upplýsingar um annað slíkt tilfelli, en þar var um að ræða aðgerð sem framkvæmd var 5. janúar síðastliðinn og kostaði 168 þúsund kr. og höfðu fengist þau svör frá TR að um engar endurgreiðslur yrði að ræða í því tilviki. Ekki viðurkenning á greiðsluskyldu „Ég er á því að koma til móts við þá sem hafa verið með út- gjöld af þessu. Ég býst við að það liggi fyrir á mánudaginn hvernig við tökum á því,“ sagði Jón. Hann sagðist hafa hug á því að koma málum þannig fyrir að hægt yrði að taka á þessum til- fellum, en með því væri hann ekki að viðurkenna greiðslu- skyldu Tryggingastofnunar í þessum efnum. Um væri að ræða sérstaka aðgerð af þessu tilefni, en ekki væri um marga einstaklinga að ræða. Fyrir lægju fjármunir til að mæta þessu og hann þyrfti bara að klára hvernig það yrði gert. Endurgreiðslur vegna mikils lækniskostnaðar Útfærsla tilbúin á mánudag STJÓRNIR Ámundakinnar ehf. og Ístex hf. hafa undirrit- að samning um flutning á ull- ardeild Ístex hf. til Blönduóss. Þessi fyrsti samningur Ámundarkinnar ehf. er um að leigja Ístex hf. húsnæði fyrir ullardeildina þ.e. ullarmóttöku og ullarþvott næstu tuttugu árin. Jafnframt var undirrit- aður samningur milli Ámun- dakinnar ehf. og Sparisjóðs Húnaþings og Stranda um kaup á 770 fermetra iðnaðar- húsnæði að Efstubraut 2. Ámundakinn ehf vinnur jafn- framt að undirbúningi 600 fer- metra viðbyggingu við Efstu- braut 2 hvar verður aðalvinnslusalur ullarþvotta- stöðvarinnar. Ámundakinn ehf. er nýstofn- að félag sem samanstendur af nokkrum sveitarfélögum og fyrirtækjum í A-Hún. og hefur að markmiði að eignast og annast rekstur á húsnæði til að leigja fyrirtækjum fyrir starf- semi sína. Stefnt er að því að starfsemi ullarþvottarstöðvar- innar hefjist í lok júní og áætl- að er að með þessum samningi verði til um 10 ársverk. Jóhannes Torfason, bóndi á Torfalæk, er framkvæmda- stjóri Ámundakinnar ehf. Ullar- þvottastöð hefur starf- semi í júní RUNÓLFUR Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, gagn- rýndi í ræðu við útskrift á Bifröst í gær þau sjónarmið talsmanna Há- skóla Íslands að Há- skólinn byggi við skerta samkeppnis- stöðu og knappar fjár- veitingar og sagði mál- futninginn rakalausan. Runólfur vísaði í yf- irlit sem menntamála- ráðuneytið hefur tekið saman um fjámögnun og rekstur háskóla árið 2001 þar sem fram kemur að HÍ fékk 851 þúsund krónur í ríkis- framlag á nemanda en Bifröst fékk 433 þús- und, lægst allra ís- lenskra háskóla. Þegar sjálfsaflatekjur háskól- anna voru lagðar við ríkisframlagið voru heildartekjur HÍ á nemanda á því ári 1.297 þúsund en heildartekjur Bifrastar voru 788 þúsund krónur. „Yfir hverju er Háskóli Íslands að kvarta? Í hverju felst hin skerta samkeppnisstaða hans? Í svipaðri stöðu eru flestar ríkisháskólarnir. Þeir fá flestir ríflegar fjárveitingar samanborið við Bifröst eða Háskól- ann í Reykjavík.“ Fram kom í erindi rektors að um væri að ræða nýjustu upplýs- ingar sem lægju fyrir en að menntamálaráðu- neytið ynni nú að sam- bærlegri úttekt fyrir árið 2002. Fá 35 m.kr. af þremur milljörðum „Hér er forvitnilegt að skoða fjárlög ársins 2004 og kanna hvernig fjármagni til háskóla- rannsókna er skipt á fjárlögum. Þar er varið um 3,3 milljörðum króna af skattfé al- mennings til háskólarannsókna. Því er skipt þannig að sjáfseignarstof- anir á háskólastigi fá samtals 35 milljónir króna. [...] Þetta er hin raunverulega samkeppnisstaða sjálfstæðra háskóla gagnvart rík- isháskólunum,“ sagði Runólfur. Ríkisframlag á nemanda í HÍ helmingi hærra Rektor á Bifröst gagnrýnir sjónar- mið HÍ um knappar fjárveitingar Runólfur Ágústsson TVÖ framboð bárust til formanns stjórnar Félags bókagerðarmanna en framboðsfrestur rann út 16. janúar sl. Sitjandi formaður, Sæmundur Árna- son, býður sig fram en auk þess býður fram í formannssæti Þór Agnarsson. Sæmundur hefur gegnt starfi for- manns frá árinu 1994. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Félags bókagerðarmanna hefur kjörnefnd verið skipuð til að sjá um kosninguna og er kosið til tveggja ára. Atkvæðaseðlar hafa verið sendir til félagsmanna og verða þeir að hafa borist kjörnefnd fyrir 11. febrúar. Fundur með frambjóðendum í for- mannssæti verður haldinn í félags- heimili þeirra á Hverfisgötu í dag. Tveir í framboði til formanns FBM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.