Morgunblaðið - 01.02.2004, Side 8

Morgunblaðið - 01.02.2004, Side 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Spánskir dagar í Perlunni Spánskt fyrir sjónir í Perlu Það kemur Stefáni Á.Magnússyni sýn-ingarstjóra flest spánskt fyrir sjónir þessa dagana, enda skipuleggur hann nú Spánska daga sem haldnir verða í Perl- unni dagana 20. til 22. febrúar næstkomandi. Að sýningunni standa íslensk- ir og spánskir aðilar á sviði ferðamála, viðskipta, menningar, tísku, vína, matargerðarlistar, inn- réttinga og fleira. Morgun- blaðið hitti Stefán í Perl- unni í vikunni og ræddi við hann um sýninguna. Þú ert ekki óvanur slíku sýningarhaldi eða hvað? „Nei, þetta hefur verið mitt aðalstarf seinni árin, ásamt markaðsráðgjöf, ég hef haldið 40 til 50 sýningar af ýmsum toga, m.a. þjóðlegar sýn- ingar tengdar fjölda landa. Þetta er sérlega ánægjulegt og gefandi starf, maður kynnist mörgum og þetta er lifandi og spennandi.“ En hvernig bar þessa sýningu að? „Það var þannig, að í nóvember á síðasta ári komu hingað til lands spænskir eigendur fyrirtækisins TM International. Það er fyrir- tæki sem selur lóðir og byggir hús á Spáni, ekki síst fyrir erlenda að- ila og þess vegna þekktu þeir til Íslands. Fyrirtækið starfar eink- um á Alicantesvæðinu. Hingað komu þeir alfarið til að skoða landið og kynnast fólkinu. Ég var kynntur fyrir þessum mönnum í gegn um fasteignasöluna Laufás, sem er umboðsaðili fyrir TM Int- ernational hér á landi. Til tals kom að ég hafði sett upp fjölda sýninga í Perlunni og víðar og þessir menn reyndust hafa mikinn áhuga á því að kynna fyrirtæki sitt hér á landi. Út frá þessu spratt mikið hug- myndasamtal og útkoman var sú að saman myndum við standa að allsherjar Spánarkynningu í Perl- unni 20. til 22. febrúar. Þetta var fastmælum bundið, þeir fóru til síns heima og ég tók til óspilltra málanna strax í byrjun desem- ber.“ Er þetta ekki fremur stuttur fyrirvari á svo stóra sýningu? „Af hverju ætti maður að sitja og plana svona uppákomu í ár? Nei, þetta er eðlilegur meðgöngu- tími svona uppákomu. Þetta eru þrír dagar og þó að margir komi að þessu og í mörg horn sé að líta þá fer best á því að þetta sé áhlaupaverk, stutt og snarpt. Svo er það bara búið og mál að snúa sér að næsta verkefni.“ Segðu okkur nánar frá Spánsk- um dögum … „Ja, það má eiginlega segja að það komi mér allt spánskt fyrir sjónir þessa dagana. En grínlaust, þá er hér á ferðinni ein allsherjar Spánarkynning. Við munum leit- ast við að sýna hvað Spánn hefur upp á að bjóða almennt og þá ekki bara í jarðeignum og fasteigna- málum á vegum TM Internatio- nal. Þessir dagar verða í anda fyrri þjóðlegra daga sem ég hef staðið fyrir. Kynningin verð- ur einnig, auk við- skipta, á sviði ferða- mála, menningar, tísku, matar- og víns og innréttinga svo eitthvað sé nefnt.“ Hvernig verður sýningin byggð upp? „Sýnendur eru með bása og op- in svæði á fyrstu hæðinni. Einnig verða fundir og fyrirlestrar í ráð- stefnusal Perlunnar og spænskir aðilar munu leggja sitt af mörkum til að skapa ekta suðræna stemm- ingu, t.d. með flamencodansi, tón- list, myndlist, tískusýningum og fleira afþreyingarefni. Þá verða sérstakar ferðakynningar og ger- legt að ganga frá fasteignakaup- um á Spáni.“ Hverjir koma svona helst að þessu? „Auk mín og TM International og Laufáss, kemur hinn þekkti spænski banki Caja Murcia þarna að og kynnir starfsemi sína. Alic- anteborg er þátttakandi og sama er að segja um viðskipta- og ferða- málaskrifstofur Spánar, sem báð- ar senda fulltrúa sína. Sendiherra Spánar á Íslandi er einnig virkur og Sigríður Andersen, fyrir hönd Spænsk-íslenska verslunarráðs- ins. Það koma mun fleiri við sögu og ég hef orðið þess var að sýning- arhaldið er að spyrjast út og það eru að hafa samband við mig að- ilar sem að ég vissi kannski ekki um. Ég geri ráð fyrir að ekki séu öll kurl komin til grafar með slíkt enn sem komið er, en það er hægt að bæta við þátttakendum næstu vikuna.“ Nú er Ísland ekki stór eining á alþjóðavísu … með hvaða hugar- fari koma Spánverjarnir að svona kynningardögum? „Spánverjar eru ótrúlega já- kvæðir í garð Íslendinga og virða okkur vel og mikið. Þeir taka þátt í þessu af heilum hug vegna þeirra fjölmörgu Íslendinga sem koma til Spánar á hverju ári og hafa þannig hjálpað til við að byggja upp spænskan ferða- mannaiðnað síðustu áratugina. Það er mikill áhugi á Íslandi á Spáni og þeir segja fullum fetum að Ísland sé mik- ilvægt framtíðarland viðskipta við Spán.“ Hverjir geta átt erindi á svona sýningu? „Ja, ég myndi segja að þegar við höfum farið yfir dagskrána, eins og við höfum nú gert, að það eigi nánast allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þetta verður fjölbreytt og þetta verður fjöl- skylduvænt.“ Stefán Á. Magnússon  Stefán Á. Magnússon fæddist á Akureyri 15. júní 1950. Nam við KHÍ og stundaði nám í versl- unar- og markaðsfræðum í Bandaríkjunum. Starfaði víða vestra, m.a. hjá Western Int- ernational Hotels í Seattle, General Motors og Honeywell í Kaliforníu, auk þess að sýna föt, m.a. í tímaritinu Vogue. Var markaðsstjóri Pennington Ltd fyrir Norðurlönd og markaðs- stjóri hjá G. Helgason og Melsteð í tíu ár og Perlunnar í fimm ár. Er nú sjálfstætt starfandi við al- mannatengsl, sýningarhald og ráðgjafarþjónustu. … að ganga frá fasteigna- kaupum ÓLAFUR Ólafsson, formaður Fé- lags eldri borgara, vísar algerlega á bug gagnrýni Einars Odds Krist- jánssonar alþingismanns á ummæli hans um að útgjöld til heilbrigðis- mála séu lægri en skýrsla OECD gefi til kynna. Einar Oddur sagði í Mbl. í gær að fullyrðingar Ólafs væru „kerlingabækur“. Fjármála- ráðuneytið hefði farið nákvæmlega yfir tölur OECD og uppgjör Ís- lands á heilbrigðiskostnaði væri ná- kvæmlega eins framreiknað og í öðrum ríkum þjóðum Evrópu. „Það eru hreinar kerlingabækur að halda því fram að við séum að rugla saman heilbrigðismálum og félagsmálum,“ sagði þingmaður- inn. Ólafur segir á hinn bóginn að samkvæmt skýrslu OECD um út- gjöld til heilbrigðismála gildi ákveðnar reglur varðandi hvað sé talið undir heilbrigðismál og hvað undir félagsmál. Öldrunarmál falla að mestu undir heilbrigðismál á Íslandi „Þeir hafa sett ákveðnar reglur og eins og staðan er í árslok 2003 þá höfðu flest ríki, eða um 20, fylgt í öllu reglum OECD þar sem öldr- unarmál falla að mestu undir fé- lagsmál, þ.e. þær stofnanir þar sem hjúkrun og læknisþjónusta er minni en helmingur af kostnaði.“ Að sögn Ólafs er Ísland ekki í þess- um hópi né í hópi þeirra ríkja sem vinna nú að því að breyta sínum reglum til samræmis við reglur OECD. Ísland er í hópi fimm ríkja, Noregur þar með talinn að hluta til, Slóvenía og nokkur Austur-Evr- ópuríki, sem greina öldrunarmál að mestu leyti undir heilbrigðismál. Segir Ólafur að samkvæmt sér- stakri skýrslu OECD um Ísland, e. Health Expenditure and Finance Data 2003, komi fram að færu þessi ríki eftir reglum OECD þá myndi skráður heilbrigðiskostnaður lækka um 0,6-0,9% af vergri lands- framleiðslu sem myndi í raun þýða að útgjöld til heilbrigðismála á Ís- landi myndu lækka úr 9,2% af vergri landsframleiðslu í 8,3-6% eða nálægt meðaltali OECD þjóð- anna. „Það getur vel verið að þessar skýrslur séu kerlingaskrif en þetta eru þó skýrslur OECD,“ segir Ólaf- ur og bætir við: „Mér finnst að við eigum að gera þá kröfu að þing- menn kynni sér grundvallaratriði áður en þeir hlaupa upp í ræðu- stól.“ Útgjöld til heilbrigðismála samkvæmt tölum OECD Ólafur vísar gagnrýni Einars Odds á bug ADSL-tengingum hefur fjölgað mjög mikið hérlendis undanfarin misseri og hefur mikill meirihluti notenda fengið sér þráðlausa net- tengingu, en netnotkun er hlutfalls- lega hvergi meiri í Evrópu en á Ís- landi. Vöxtur í netþjónustu yfir ADSL frá Símanum var um 105% á nýliðnu ári og um 80% seldra lausna frá því í ágúst hafa verið þráðlausar, að sögn Evu Magnúsdóttur, upplýsingafull- trúa Símans. Pétur Pétursson, for- stöðumaður upplýsinga- og kynn- ingarmála Og Vodafone, segir að ADSL notendum á eigin kerfi Og Vodafone hafi fjölgað um 85% árið 2003 og um 70% þeirra, sem fengu sér nettengingu síðustu fjóra mán- uði ársins, hafi fengið sér þráðlausa nettengingu. Eva segir að mikil spurn hafi ver- ið eftir bandbreiðum samböndum hjá Símanum undanfarna mánuði en um 35% aukning hafi orðið á öðrum bandbreiðum samböndum en ADSL. Íslendingar séu nýjunga- gjarnir og góð tilboð að undanförnu hafi líka haft þessi áhrif, en tæplega 40% heimila hérlendis séu komin með bandbreið sambönd og þá fyrst og fremst ADSL sambönd. Um 93% þjóðarinnar hafi aðgang að ADSL þjónustu Símans, sem sé sennilega hæsta hlutfall í heimi, en aðeins Suður-Kórea og Taívan standi Ís- lendingum framar í netnotkun. Samkvæmt nýlegri breskri könn- un, sem fyrirtækið Pielle Consulting hafi látið gera, sé Síminn með tæp 18% notenda af hverjum 100 not- endalínum en Suður-Kórea með 30% og Taívan með rúm 18%. Næstu Evrópuríki séu Belgía með tæp 14% og Danmörk með rúm 11%. ADSL-kerfi Og Vodafone nær til um 75% þjóðarinnar, að sögn Pét- urs, en það er á höfuðborgarsvæð- inu, Akureyri, Selfossi, í Reykja- nesbæ og Vestmannaeyjum. Netnotkun hlutfallslega hvergi meiri í Evrópu en á Íslandi Mikil aukning í þráð- lausri nettengingu Það verður eftirsjá að honum, skjáta mín. Hann jarmaði svo vel fyrir okkur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.