Morgunblaðið - 01.02.2004, Page 11

Morgunblaðið - 01.02.2004, Page 11
eigu sama aðila og slakað var á reglum sem torvelduðu samruna dagblaða. Sömu sögu er að segja frá Bandaríkjunum þar sem slakað hef- ur verið á reglum nú nýverið og leyfi- leg hlutdeild eins aðila á sjónvarps- markaði hækkuð úr 35 í 39%. Nýlegar lagabreytingar á Ítalíu hafa einnig verið túlkaðar þannig af mörgum að þær festi tök Berluscon- is á fjölmiðlamarkaðinum enn í sessi. Annars staðar eins og í Frakklandi, Þýskalandi og Austurríki er uppi stöðug viðleitni til að laga löggjöfina að örri þróun á fjölmiðlamarkaði í því skyni að koma í veg fyrir nýjar tegundir samþjöppunar. Ríkisútvarp stuðlar líka að fjölbreytni En það eru fleiri leiðir færar til þess að standa vörð um fjölbreytt framboð fjölmiðlaefnis heldur en reglur um eignarhald. Nærtækast er að nefna tilvist sjálfstæðs ríkisút- varps. Reyndar er íslenska hugtakið „ríkisútvarp“ nokkuð misvísandi. Nær væri að tala um almennings- eða þjóðarútvarp til að endurspegla hugmyndina um starfsemi sem nýt- ur sjálfstæðis bæði gagnvart póli- tískum valdhöfum og áhrifaríkum aðilum í athafnalífinu og getur verið í höndum opinberrar stofnunar, en líka einkaaðila að vissum skilyrðum uppfylltum. Sérfræðinganefnd á vegum Evrópuráðsins, sem skilaði af sér skýrslu um fjölbreytni fjölmiðla í Evrópu fyrir um það bil ári síðan (sjá www.coe.int/media), nefndi einmitt að til þess að stemma stigu við til- hneigingu til samþjöppunar á fjöl- miðlamarkaði í álfunni væri nauð- synlegt að standa vörð um og renna frekari stoðum undir sjálfstætt al- menningsútvarp til að „tryggja út- breiðslu fjölbreyttra upplýsinga og skoðana til almennings“. Þótt í orði kveðnu sé mikil samstaða hjá Evr- ópuríkjum um ágæti almenningsút- varps á sú hugsjón víða í vök að verj- ast. Í allmörgum löndum hefur einnig verið gripið til sérstakra ráðstafana til að styðja við bakið á dagblaða- útgáfu. Slíkar ráðstafanir geta verið í formi lækkunar eða niðurfellingar virðisaukaskatts. Í öðrum löndum eins og til dæmis Noregi og Aust- urríki njóta dagblöð eða tímarit rík- isstyrkja. Skilyrði eru til dæmis þau að viðkomandi dagblað hafi sjálf- stæða ritstjórnarstefnu, skili ekki hagnaði og sé ekki stærsta dagblað á sínum markaði. Nokkrar niðurstöður Í víðasta skilningi er í öllum V- Evrópuríkjum einhver opinber við- búnaður í formi laga eða stofnana til þess að tryggja fjölbreytt streymi upplýsinga og skoðana og að fram komi allar hliðar mála: Sjálfstætt ríkisútvarp ásamt ákvæðum sem tryggja að það nái augum og eyrum allra þegnanna, löggjöf um rétt til andsvara, eftirlitsstofnanir með ljós- vakamiðlum, líkt og útvarpsréttar- nefnd hér á landi, sem eiga að áminna hljóðvarps- og sjónvarps- stöðvar ef þær fara út af strikinu, styrkir til dagblaða sem annars myndu leggja upp laupana o.s.frv. Við það bætist að almennar sam- keppnisreglur, sem gilda í öllum þessum löndum, myndu líklegast koma í veg fyrir að einn aðili næði al- farið undir sig einkareknum fjölmiðl- um eins lands og eru því vissulega varnagli. Ennfremur er rétt að nefna að sjálfstæði blaðamanna og frelsi til að vinna faglega í samræmi við siða- reglur er einnig trygging gegn því að eigendur fjölmiðla misnoti þá sem áróðurstæki fyrir pólitísk stefnumið sín eða einfaldlega til þess að tryggja völd sín í viðskiptalífinu. En víðast hvar hefur sú skoðun orðið ofan á að ekki sé nóg að gert. Misjafnt er hversu mikillar vinsælda ríkisútvarp nýtur. Lögbundinn rétt- ur einstaklinga til andsvara hrekkur skammt, opinbert styrkjakerfi til að halda lífi í fjölmiðlum er hálfgerð tímaskekkja og sjálfstæði blaða- manna þarf oft að víkja fyrir hags- munum eigenda. Því sé þörf á sér- stökum reglum sem hamli gegn óhæfilegri samþjöppun. Betra sé að hafa sem flestar raddir til að tryggja fjörug skoðanaskipti og að mál sem varða almenning upplýsist. Slíkar reglur geta verið bundnar við til- teknar tegundir fjölmiðla, til dæmis á þann veg að enginn einn aðili geti lagt undir sig allar sjónvarpsstöðvar. En þær geta líka bannað sama aðila að vera virkur á margs konar fjöl- miðlamarkaði. Nú þegar rætt er um hvort þörf sé á lagasetningu á Íslandi um þessi efni er vert að benda á örfá atriði. Í litlu einangruðu landi eru fáir fjöl- miðlar og búum við því við nokkurs konar náttúrulega fábreytni. Fjöl- miðlar annarra landa geta líka að mjög litlu leyti komið í staðinn fyrir okkar eigin, eins og mætti hugsa sér hjá ríkjum sem liggja þétt saman á meginlandinu. Þessar staðreyndir mæla með því að sérstakra aðgerða sé þörf til að tryggja fjölbreytni og afstýra einokun. En smæðin þýðir líka að markað- urinn ber ekki nema örfá dagblöð og örfáar sjónvarpsstöðvar. Þess vegna er ekki hægt að yfirfæra módel millj- ónaþjóða hugsunarlaust yfir á Ís- land. Fyrirtæki verða að hafa svig- rúm til að ná hagkvæmni stærðarinnar. Samt er vissulega um- hugsunarefni að fjölbreytni er vart að finna í útvarpslögum sem mark- mið stýringar þeirrar sem felst í út- hlutun takmarkaðra gæða, þ.e. út- varpsrása. Þar skerum við okkur verulega úr. Að lágmarki mætti uppáleggja útvarpsréttarnefnd að stuðla að því við úthlutun leyfa að fjölbreytni ríki á markaði bæði hvað varðar eignarhald og dagskrá. Að sama skapi virðist það heldur óskemmtileg tilhugsun að ekki skuli vera neinn varnagli í lögum við því að öll dagblöð færðust á eina hendi eða jafnvel allir einkafjölmiðlar. Að vísu myndu samkeppnisyfirvöld líklega láta mál til sín taka ef í slíka einokun stefndi en virðist svo sannarlega þörf á sérstökum lagaákvæðum. Menn geta velt því fyrir sér hvort sé heppilegra að hafa almenn mats- kennd ákvæði sem fela yfirvöldum, hvort sem það eru samkeppnisyfir- völd eða ekki, að meta samruna fjöl- miðla í ljósi lýðræðisviðhorfa, eða draga skýrar línur strax í byrjun. Virka lögin? Víða í álfunni má heyra efasemdir um hvort löggjöf til höfuðs sam- þjöppun á fjölmiðlamarkaði nái nógu vel markmiðum sínum. Slík löggjöf getur torveldað hagræðingu í at- vinnugreininni og dregur úr vaxtar- möguleikum öflugra fyrirtækja. Þá heyrist oft að til þess að standa vel að vígi í alþjóðlegri samkeppni þurfi fjölmiðlar að vera öflugir heima fyr- ir. Eins hefur verið bent á að þróun í fjölmiðlun sé svo ör að löggjafinn komi alltaf of seint. Þar sem löggjöf af þessu tagi sé sjaldnast afturvirk standi menn oft frammi fyrir orðn- um hlut. Hert löggjöf sem kemur of seint til að stugga við öflugasta að- ilanum á markaði getur hins vegar torveldað öðrum að komast upp að hlið hans og þannig í raun haft þver- öfug áhrif. Aukið framboð á fjölmiðlaefni vegna fjölgunar sjónvarpsstöðva og Netsins hefur einnig leitt til þess að menn spyrja hvers vegna þurfi leng- ur að hafa áhyggjur af því þótt dag- blöð renni saman eða öflug fyrirtæki kaupi upp útvarpsleyfi. Á móti kem- ur að þótt líkja megi þróun síðustu ára við byltingu er ekki þar með sagt að framboð á gæðaefni hafi aukist. Það er líka trú manna að hefðbundn- ir miðlar þar sem haldið er úti frétt- um og fréttaskýringu haldi áfram að gegna lykilhlutverki í lýðræðisþjóð- félagi. Beri því að vera á varðbergi gegn því að láta markaðsöflin alfarið leika lausum hala.                                              !    "                        $                      %    % # $               %"   &            # '                 ())          !#  * &  &                       #    +    &         #             "   , $           -).       #   +    &         # $              % # $                /  0 %  1  %   %  %1  %1    !# 2                 # 3                    #   +    &         # $          /4.  &      5     /))/                  #         # *           ##           #   +          /4. &         # 6                   %    %           # 3    #    #       & #      , 7              -).        ## # 4.         8               &    '            "      &     4))#)))    +    &         #     * &  &                     %   %   %1              +     %          # 9         /4.    "           &  #                 "          #    +     %          # 9                            #   +    %         # $           -). %   3         " %  #   +     %          #   !"#         &   &             #  $% +     %          #      # '           # &'  $            -). %      &   /4.                    !#                        !" #$ $ $%  "                       ! "  #$      "  %         %   %  & ' ()  !* Höfundur starfar sem lögfræðingur hjá Evrópuráðinu. Skoðanir sem birtast í greininni eru alfarið á ábyrgð höfundar og endurspegla ekki nauðsynlega viðhorf Evrópuráðsins. Vinsamlegast sendið ábendingar um efni til pall@evc.net. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 11 Ummæli vikunnar ’Með þessum aðgerðum stjórnvalda erverið að rjúfa þjóðarsátt um gott heil- brigðiskerfi og afleiðingarnar geta orð- ið mjög alvarlegar.‘Úr ályktun fundar um málefni Landspítala – háskólasjúkrahúss á þriðjudag. ’Þetta er í raun tvöfaldur draumur aðrætast.‘Selma Björnsdóttir tekur að sér hlutverk Krissu í Grease-söngleiknum í Borgarleikhúsinu. ’Hún fór að hágráta, hún fékk sjokk.‘Sigurður Pétur Harðarson , stuðningsmaður Sophiu Hansen, lýsir viðbrögðum hennar við þeim fréttum að yngri dóttir hennar, Rúna, sé nú gift kona. ’Aðilar í atvinnurekstri sem halda aðnýja íslenska stefnan sé fólgin í dýrkun gróðans án nokkurrar samfélagslegrar ábyrgðar eru á villigötum og stjórn- málamenn eiga ef nauðsyn krefur að vísa þeim leiðina.‘ Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra á ársfundi viðskipta- og hagfræðideildar HÍ á þriðjudag. ’Kaupin á umræddum hlut nú eru lið-ur í að koma festu á eignarhald Flug- leiða og í framhaldinu verður aðkoma annarra fjárfesta skoðuð.‘Hannes Smárason um kaup sín og tengdaföður síns, Jóns Helga Guðmundssonar, á 38,48% hlut í Flug- leiðum. ’Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin vakirmjög vel yfir þessu og við fylgjumst auðvitað grannt með en enn sem komið er hafa ekki verið settar á neinar ferðahömlur.‘Haraldur Briem sóttvarnalæknir um fuglaflensuna í Asíu. ’Tilgangurinn er að kanna hve margirútlendingar eru við nám í þessum greinum og hvetja háskólana til að gæta þess að hver og einn geti ekki komist yfir þá þekkingu og efni sem þarf til að smíða gereyðingarvopn.‘Norska leyniþjónustan fylgist með háskólanemum í kjarneðlisfræði, l í fefnafræði og f leiri greinum. ’Þetta er okkar Þjóðminjasafn og mik-ilvægast er að ljúka þessari fram- kvæmd með sóma. ’Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra segir að Þjóðminjasafnið verði opnað síðar á árinu, ekki 22. aprí l eins og að var stefnt. ’Áma er frábær kýr í alla staði.‘Bertha Kvaran , e igandi afurðahæstu kýr landsins. ’Ég var heppinn og lenti sennilegaeinmitt á rétta staðnum, ef ég hefði verið á aðeins öðrum stað á milli hlera og skips hefði ég getað klippst í sund- ur.‘Hólmgeir Kristmundsson skipverji á Arnari HU-1 lenti útbyrðis við veiðar í Barentshafi . ALAIN Juppé, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, var á föstudag fundinn sekur fyr- ir misferli, sem tengist kosningasjóðum, og dæmdur í skilorðsbundið fangelsi. Hann getur ekki sóst eftir opinberu embætti í tíu ár. AP Dæmdur fyrir spillingu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.