Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ T ony Blair, forsætisráðherra Bretlands, er sporléttur þessa dagana, eftir að þingið samþykkti naumlega áætlun ríkisstjórnarinnar um hærri námsgjöld í háskóla og eftir að í ljós kom að Hutton- skýrslan nánast hvítþvoði ríkisstjórnina í Kelly-málinu, sem snerist um aðdraganda sjálfsmorðs vopnasérfræðingsins Davids Kellys. Fréttaskýrendur segja þó að for- sætisráðherrann sé fjarri því að vera laus úr öllum vanda. Tök hans á Verkamannaflokkn- um séu greinilega ekki nógu traust, því í stað þess að geta stólað á 161 sætis stjórn- armeirihluta á þinginu hafi námsgjaldamálið náð fram að ganga með aðeins fimm at- kvæða mun. Í skoðanakönnun dagblaðsins Evening Standard á fimmtudag kom í ljós, að aðeins 36% aðspurðra voru því sammála að ríkisstjórnin hefði ekki brotið af sér gagnvart vopnasérfræðingnum David Kelly, en helmingur var á því máli að svo hefði ver- ið. Og heil 70% vilja að nú verði rannsakað sérstaklega hvort ríkisstjórnin lagði í hern- aðinn gegn Írak á fölskum forsendum. Fréttaskýrendur segja að nú verði forsætis- ráðherrann að fara að sýna þjóðinni að hann sé fús til að einbeita sér að innanríkismálum, eftir mikla áherslu á alþjóðamál allt frá hryðjuverkaárásinni á Bandaríkin 11. sept- ember 2001. Þrátt fyrir sigra vikunnar er því aðeins stund milli stríða hjá Tony Blair. Heppinn forsætisráðherra Hæfileiki Blairs til að sleppa úr erfiðum aðstæðum er vart mannlegur, að mati Boris Johnsons, ritstjóra íhaldsblaðsins Spectator, sem bætti því við að tilraunir til að „negla“ forsætisráðherrann væru eins og reyna að festa hlaup á vegg með prjóni. Tony Trav- ers, deildarstjóri stjórnmáladeildar London School of Economics, segir atburði vikunnar sýna að forsætisráðherrann búi yfir því sem öllum stjórnmálamönnum sé mikilvægast: Heppni. „Það leikur enginn vafi á að Blair er heppinn og heppnin skýtur upp kollinum þegar þörf krefur,“ sagði Travers þegar nið- urstöður atkvæðagreiðslunnar og Hutton- skýrslunnar lágu fyrir. Þá var einnig haft eftir honum, að þrátt fyrir sigra vikunnar yrðu eftirmálin forsætisráðherranum erfið. Annáluð heppnin eltir Blair ekki á röndum innan Verkamannaflokksins. Hann leiddi flokkinn til stórsigurs í kosningunum 1997 og 2001 og flokkurinn hefur stærri meiri- hluta á breska þinginu en dæmi eru um áð- ur. Samt skríða mál í gegnum þingið með naumum meirihluta, eftir að ríkisstjórnin hefur beitt öllum sínum brögðum til að hemja liðsmenn sína. Forsætisráðherrann, sem kom flokknum til valda eftir fjölmörg mögur ár, þarf sífellt að búa við að ýmsir þingmenn reyni að grafa undan honum á all- an hátt og víli ekki fyrir sér að grafa svo undan trúverðugleika hans að ríkisstjórninni stafi hætta af. Andrew Rawnsley, stjórnmálaskrifari dagblaðsins Guardian og höfundur bókarinn- ar Servants of the people þar sem fyrsta kjörtímabil ríkisstjórnar Blairs er rakið, rit- aði grein í blað sitt sl. sunnudag þar sem hann veltir fyrir sér hvernig Blair glutraði niður meirihlutanum. Rawnsley segir að sumir þingmanna Verkamannaflokksins geti ekki fyrirgefið Blair hernaðinn í Írak, aðrir hafi horn í síðu hans þar sem þeir hafi ekki fengið ráðherrastól og svo séu þeir sem sjái ofsjónum yfir stórsigrum hans í kosningum. Hann sé því í raun fórnarlamb eigin vel- gengni. Tony Travers hjá London School of Economics bætir um betur og segir suma þingmenn aldrei geta fyrirgefið forsætisráð- herranum breyttan kúrs Verkamannaflokks- ins á undanförnum árum. Í grein sinni bendir Rawnsley á, að þrátt fyrir að þingmenn hafi ótal sinnum svikist undan merkjum og kosið gegn málum sem ríkisstjórnin hefur viljað koma í gegnum þingið hafi þeir aldrei þurft að axla ábyrgð á þeirri hegðan sinni og jafnframt hafi hún aldrei skaðað ríkisstjórnina og því í raun engu máli skipt. Margir hafi því alls ekki áttað sig á því hversu óstýrilátur hópur þingmenn Verkamannaflokksins sé, því rík- isstjórnin hafi ávallt haft sitt fram í skjóli þessa mikla meirihluta. Nokkrir uppreisn- armenn í hverju máli hafi aldrei breytt heildarútkomunni. Á fyrsta kjörtímabili ríkisstjórnarinnar riðluðust fylkingar þingmanna hennar oftar en dæmi voru um hjá öðrum meirihluta frá stríðslokum. Og á öðru kjörtímabili hefur staðan versnað og næstum 200 af 408 þing- mönnum Verkamannaflokksins hafa ein- hvern tímann kosið gegn vilja stjórnarinnar. Rawnsley segir að nú sé stemmningin slík í hópi þingmanna að það teljist kostur fremur en löstur að hafa gengið gegn vilja stjórn- arinnar. Hann nefnir dæmi af Gwyneth Dun- woody, formanni samgöngunefndar og fræg- um uppreisnarsegg, sem taldi sér til tekna á framboðsfundum fyrir síðustu kosningar að hafa 27 sinnum kosið andstætt vilja stjórn- arinnar. Samstarfsmenn hennar í kjördæm- inu höfðu þær athugasemdir einar fram að færa, að hún væri ekki nógu uppreisnar- gjörn. 100 dragbítar í hverju máli Staðan er auðvitað ekki góð fyrir rík- isstjórnina, þegar 60 til 70 þingmenn virðast staðráðnir í að vinna gegn henni í hverju máli, eins og verið hefur raunin. Þegar þar við bætast svo kannski 30 þingmenn, sem eru í raun og sann andvígir því máli sem til umfjöllunar er, þá er ljóst að ríkisstjórnin byrjar hvert mál með 100 djöfla að draga. Andrew Rawnsley segir að vinir forsætis- ráðherrans reyni að ráða honum heilt og benda honum á að hann verði að sinna þing- mönnunum betur. Hann verði að leita álits þeirra og hlusta á skoðanir þeirra í öllum málum, ekki eingöngu þegar hann þarf að knýja mál í gegn með naumum meirihluta. Þetta rímar ágætlega við það sem aðrir stjórnmálaskýrendur segja, þ.e. að þing- menn séu óánægðir með að stefna í öllum málum sé mótuð af forsætisráðherranum sjálfum og nánustu samstarfsmönnum hans og þingmönnum sé svo ætlað að gleypa mál- in hrá og afgreiða þau. Á þessum nótum rit- aði m.a. Sunder Katwala, aðalritari Fabian Society, umræðuvettvangs og hugmynda- banka með sterk tengsl við Verkamanna- flokkinn. Ekki munu allir hugsa svo hlýlega til upp- reisnarmanna í hópi þingmanna að þeir mælist eingöngu til að forsætisráðherrann sýni þeim og skoðunum þeirra meiri virð- ingu. Rawnsley vísar í ónefndan, fyrrverandi ráðherra, sem segir að huga verði að keyr- inu. Það hafi sjaldan verið hafið á loft og enginn hafi þurft að líða fyrir upphlaup gegn flokknum. Innanríkismál hafa setið á hakanum Í fyrrnefndri grein Sunder Katwala, að- alritara Fabian Society, í dagblaðinu Guard- ian á mánudag, veltir hann framtíð forsætis- ráðherrans fyrir sér. Hann bendir á, að þegar stórmál þessarar viku séu að baki hljóti menn að horfa til næstu þingkosninga að ári. Katwala segir alþjóðleg málefni hafa ríkt ofar öllu á yfirstandandi kjörtímabili og nú sé stuðningsmönnum Blairs efst í huga það sem setið hefur á hakanum. Forsætis- ráðherrann muni nú vilja taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í umbótastefnu sinni heima fyrir. Sumir mestu stuðningsmanna hans, sem hafa áhyggjur af því að varfærin sameiningarstefna gæti valdið því að kjós- endur litu svo á að ríkisstjórnin hefði misst dampinn, telja líka hættu á að klofningur í röðum þingmanna gæti stöðvað umbótatil- lögur stjórnarinnar. Katwala bendir einnig á, að í næstu kosn- ingum muni Verkamannaflokkurinn að venju kljást við höfuðandstæðing sinn, Íhalds- flokkinn, sem muni sem fyrr halda á lofti stefnu sinni um minni ríkisafskipti. Verka- mannaflokkurinn verði að geta, á skýran hátt, sett fram hugmyndir sínar um jákvætt og hvetjandi hlutverk ríkisins, sem sé und- irstaða umbótaáætlunar stjórnarinnar. Sex árum eftir að Verkamannaflokkurinn komst til valda hafi ríkisstjórninni ekki enn tekist að koma til skila þeirri ímynd bresks sam- félags sem hún ætli sér að móta. Þarf að taka á Íraksmáli Við vangaveltur um framtíð forsætisráð- herrans er ekki hægt að horfa framhjá því, að Íraksstríðið vofir enn yfir honum og virð- ist lítið lát á deilum um þátttöku Breta í því. Þrátt fyrir að Hutton lávarður hafi komist að þeirri niðurstöðu í skýrslu sinni að breska ríkisstjórnin hafi ekki ýkt hættuna af vopn- um Íraka af ásettu ráði fyrir innrásina í Írak í mars síðastliðnum stendur eftir, að enn hafa engin efna- og sýklavopn fundist þar. Í leiðara dagblaðsins Guardian á mánudag er bent á, að Blair hafi viðurkennt að hann hafi trúað þeim upplýsingum sem hann fékk um slíka vopnaeign Íraka á sínum tíma. Hann hafi einnig staðfest að engin vopn hafi fund- ist. Hins vegar hafi hann ekki tengt þessi tvö atriði og viðurkennt, að upplýsingarnar hafi verið rangar eða að meira hafi búið að baki Íraksstríðinu en ætluð efna- og sýkla- vopnaeign Íraka. Forsætisráðherrann gæti ekki slegið því á frest öllu lengur. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, stendur keikur eftir vikuna Stund milli stríða Þrátt fyrir að Tony Blair geti hrósað sigri í átakamálum vikunnar hefur hann ærið verk að vinna. Í grein Ragnhildar Sverrisdóttur kemur fram að samherjar hans í Verka- mannaflokknum gætu reynst honum skeinuhættari en pólitískir andstæðingar. AP Síðasta vika var vika átaka og sigra fyrir Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. Hutton-skýrslan hvítþvoði ríkisstjórnina í Kelly-málinu og Blair hafði sigur í atkvæðagreiðslu um námsgjöld í háskóla, en stúdentar mótmæltu fyrir utan þinghúsið og báru grímur með mynd forsætisráðherrans. AP Tony Blair ber höfuðið hátt eftir vikuna en þarf að takast á við ærin verkefni á næstunni. rsv@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.