Morgunblaðið - 01.02.2004, Qupperneq 22
Guðjón og Noel Blake, aðstoðarmaður hans, fyrir leikinn í Colchester: Ég hef þegar lært mikið af stjóranum.
22 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
En það var nú eitthvað annað. Þeg-
ar ég kom sagði Ridsdale: Við ætl-
um bara að biðja þig að hafa engar
áhyggjur af þessum úrslitum. Við
sjáum hvað þú ert að gera, við
hvaða aðstæður þú hefur unnið og
úr hvaða efniviði þú hefur að moða
í augnablikinu. Horfðu því fram á
veginn – við styðjum við bakið á
þér!“
Guðjóni kom þetta skemmtilega
óvart. „Það hefði verið óþarfi að
segja þetta en ég mat það mikils.“
Enda finnst honum gott að vinna
með þeim Ridsdale og Walker. „Við
höldum aldrei neina formlega
fundi, þeir koma hér yfir til mín og
fá gott, sterkt kaffi og við skipt-
umst á skoðunum.“ Skrifstofur
þeirra eru í annarri stúku Oakwell-
leikvangsins.
Framtíðin
„Ég reyni að fylgjast vel með
varaliðinu okkar til þess að sjá
hvers akademíudrengirnir eru
megnugir. Mér sýnist í fljótu
bragði ekki hægt að byggja framtíð
félagsins á því starfi og þess vegna
er ég mikið á ferð og flugi. Við er-
um bara tveir sem þjálfum liðið, ég
og Noel Blake [aðstoðarfram-
kvæmdastjóri], og því er mikið að
gera.“ Markmannsþjálfari liðsins í
hlutastarfi er John Lukic, sem
lengi stóð í marki Arsenal, og Guð-
jón starfar einnig náið með eina Ís-
lendingnum hjá félaginu, Róbert
Magnússyni sjúkraþjálfara og fyrr-
verandi fyrirliða FH. Hann kom til
starfa hjá Barnsley í haust.
„Við æfum meira en hefðbundið
er í 2. deild, til dæmis tvisvar á
þriðjudögum og fimmtudögum. Svo
eru léttar æfingar morguninn eftir
leik til þess að ná mönnum niður en
annar dagur eftir leik er hvíldar-
dagur. Í venjulegri viku, þar sem
leikur er á laugardegi, er því frí á
mánudegi en svo æft alla daga fram
að leik. Það er reyndar algengt að
við spilum á þriðjudegi eða mið-
vikudegi. Ef við spilum til dæmis á
þriðjudegi er æft á sunnudegi og
mánudegi en frí á fimmtudegi.“
Hefur liðinu ekki gengið betur en
þið þorðuð að vona í haust?
„Jú. Ég leyfði mér að vona að við
næðum að narta í hæla liðanna í
efri hlutanum og gera atlögu að
sæti í umspilinu. Markmiðið var
fyrst og fremst að hætta að tapa
klaufalega. Í vetur átti að ná tökum
á fjárhagnum og koma liðinu úr
fallhættu; að tryggja stöðuna bæði
fjárhagslega og fótboltalega.“
Hann segir andstæðingana nú
koma á Oakwell til þess að verjast
og halda stigi og það sé mikil
breyting frá því í fyrra þegar
Barnsley var einu stigi frá því að
falla í 3. deild.
„Ég er reyndar sannfærður um
að hefði ég ekki misst menn í
meiðsli værum við með enn fleiri
stig og ofar á töflunni. Í einum
leiknum í haust var ég bara með
tvo varamenn sem ég hefði getað
sett inn á, hinir voru of ungir og
ekki ennþá reiðubúnir.“
Þegar Guðjón var ráðinn til
Barnsley vildi þáverandi eigandi
hafa hönd í bagga með hver yrði
aðstoðarmaður hans. „Það var
gömul Barnsleyhetja, Ronnie Glav-
in, og hann var hjá mér fyrst. Það
var hins vegar óhjákvæmilegt að
segja honum upp eftir seinni yf-
irtökuna. Það er gott að við [Noel]
Blake höfum engar tengingar inn í
félagið og engar fyrirfram
ákveðnar hugmyndir. Andrúmsloft-
ið hér var agalaust og andlaust en
með festu og ákveðni hef ég snúið
því við. Það gerist ekkert af sjálfu
sér, það þarf að takast á við fullt af
vandamálum; greina þau og takast
á við þau hratt og örugglega. Ef of
langur tími líður verður maður
meðvirkur og erfiðara verður að
breyta. Þetta er hluti af því að vita
hvað maður vill. Heima er það
stundum kallað frekja en á ekkert
skylt við hana.“
Guðjón segir að í haust hafi sér
virst sem nokkrir leikmannanna
hafi viljað komast að því úr hverju
nýi stjórinn væri gerður, eins og
hann orðar það. „Það var bæði fyll-
irí á mannskapnum og agaleysi á
æfingum. Ég stóð hins vegar fast á
mínu og einn þessara manna er nú
einn mikilvægasti leikmaður liðs-
ins. Þeir gerðu sér grein fyrir því
hvernig ég vildi breyta félaginu; ég
bý til ákveðna umgjörð gagnvart
leikmönnum og þeir vita að brjóti
þeir reglur verða þeir sektaðir og
settir út úr liðinu. Og það eru eng-
ar sérleiðir til; eitt verður yfir alla
að ganga.“
Hann segir að með árangri auk-
ist væntingarnar „og ef til vill má
segja að ég setji mestu pressuna á
sjálfan mig. Ég hef alltaf verið
tilbúinn að leggja á mig mikla
vinnu því það er eina leiðin til ár-
angurs.“
Þegar Guðjón er spurður hversu
hátt hann stefni í fótboltaheiminum
svarar hann:
„Ég er mjög sáttur við að vinna
fyrir þá menn sem ég vinn fyrir í
dag. Maður veit raunverulega aldr-
ei hversu langt hægt er að fara í
þessu starfi. Í enska boltanum virð-
ist oft skipta meira máli hverja
maður þekkir en hvað maður kann;
ekki what you know but who you
know eins og þeir segja. Því er
mjög mikilvægt fyrir mig að vinna
með manni eins og Ridsdale.“
Segist svo auðvitað vilja fara eins
langt og kostur er. „Ég er reyndar
viss um að ég gæti látið gott af mér
leiða í úrvalsdeildinni. Viss um að
aðferðir mínar gætu hjálpað liðum
þar.
Ég frétti að Maggi Pé [Magnús
Pétursson, fyrrverandi knatt-
spyrnudómari] hefði sagt í sjón-
varpi heima á Íslandi að ég væri sá
eini sem gæti bjargað Liverpool, og
ég er reyndar viss um að ég væri
kominn lengra með liðið hefði ég
getað keypt menn fyrir 120 millj-
ónir punda eins og Gérard Houllier
hefur gert.“
Guðjón er gamall stuðningsmað-
ur Liverpool og segir sárgrætilegt
hvernig liðið hefur tapað einkenn-
um sínum. „Ég kynntist Houllier
1994 og mér finnst einfaldlega eins
og hann hafi ekki náð að jafna sig
eftir þau erfiðu veikindi sem hann
gekk í gegnum. Það er ekki sami
eldur í honum og áður.“
„Ég vann svolítið fyrir Aston
Villa í fyrra og fékk þá smjörþefinn
af því hvernig stórir klúbbar eru.
Sá þá jafnframt að þar voru miklir
möguleikar á að bæta ýmsa hluti,
nánast á öllum sviðum.“
Guðjón „njósnaði“ um leikmenn
fyrir Graham Taylor, knattspyrnu-
stjóra félagsins, bæði í Englandi og
erlendis, og sótti síðan um starf
hans þegar Taylor hætti.
„Já, ég fór í viðtal við Doug Ellis.
Hann hringdi á mánudagsmorgni,
sagði mér þá að hann hafði rætt við
David O’Leary á föstudeginum og
að allar líkur væru á að honum yrði
boðið starfið. En ég átti tveggja
tíma fund með Ellis, sem tilkynnti
svo síðar um daginn að O’Leary
yrði ráðinn. Við ræddum mínar
hugmyndir og fleira, en hann taldi
sig þurfa að ráða þekktan mann, til
þess að fjölmiðlar og áhorfendur
yrðu sáttir.“
Guðjón segir að bara það að hafa
sótt um starfið og átt fund með Ell-
is sé mikilvægt. „Ellis sagði reynd-
ar eftir fundinn að ef ég þyrfti með-
mæli gæti ég nefnt nafn hans
hvenær sem væri. Aston Villa hefur
verið í samstarfi við Íslendinga og
þar á bæ muna menn vel eftir Hall-
dóri Einarssyni, Henson, sem
framleiddi keppnisbúninga fyrir fé-
lagið fyrir tæpum tveimur áratug-
um.“
Þú sóttir um landsliðið þegar Atli
Eðvaldsson hætti störfum. Hefurðu
kannski séð eftir því að þú hættir
með landsliðið á sínum tíma?
„Þegar Atli hætti gaf KSÍ út að
Ásgeir og Logi yrðu ráðnir til
bráðabirgða en svo yrði leitað að
erlendum þjálfara. Ég var atvinnu-
laus og sótti um starfið; taldi að ef
til vill væri áhugi á því að ráða mig
aftur. Ég hef hins vegar aldrei séð
eftir því að hætta með landsliðið.
Og meðan ég var atvinnulaus hafði
ég alltaf þá bjargföstu trú að ég
fengi annað starf. Ég gerði það að
hluta til í gamni að sækja um lands-
liðsþjálfarastarfið til að sjá hvernig
viðbrögð ég fengi og það má segja
að þau hafi verið eins og ég átti von
á. KSÍ svaraði aldrei umsókninni,
hvorki munnlega né skriflega.“
Guðjón segist ekki vita hvers
vegna honum var ekki svarað „en
ég hélt að þó ekki væri nema vegna
fyrri starfa minna fyrir þessa sömu
menn yrði mér svarað. En þeir sáu
ekki ástæðu til þess. Kannski má
segja að margir haldi að fótboltinn
sé nánast tilkominn þeirra vegna
en gera sér ekki grein fyrir því að
þeir eru þar sem þeir eru vegna
fótboltans.“
Hvað meinarðu með þessu? Ertu
að skjóta á forystu KSÍ?
„Ja, þetta á þá við um mig líka.
Ég er hér vegna fótboltans en ekki
öfugt. En það skal tekið fram að ég
naut þess mjög að starfa með
landsliðið og á mjög góðar minn-
ingar frá þeim tíma. Bæði var gam-
an að starfa með leikmönnum og
þeim sem störfuðu í kringum liðið
og við náðum skemmtilegum ár-
angri.“
Stórhríð og norðangarri
Hefur þú breyst sjálfur hér úti?
„Heima er ég af mörgum talinn
ráðríkur en hér hins vegar talinn
góður stjórnandi. Ég hefði aldrei
náð árangri ef ég hefði ekki haft
trú á sjálfum mér. Þegar ég hóf að
þjálfa, tiltölulega ungur, vissi ég
líka hvað ég ætlaði mér og það
skiptir miklu máli. Á vegi manns
verða margir með aðrar skoðanir,
en þjálfari verður að vera sjálfum
sér trúr og fara í þá átt sem hann
ætlar sér.“
Guðjón segir víða fallegt í Eng-
landi en saknar þess þó iðulega að
sjá ekki sjóinn oftar. „Ég kemst
annað slagið í tæri við hann, við
spilum á nokkrum stöðum við sjó-
inn. Það væri skrýtið ef ég saknaði
ekki sjávarilmsins. Ætli ég sé ekki
eini managerinn í Englandi sem
hefur stundað sjómennsku. Ég
efast um að nokkur annar stjóri
hafi verið í stórhríð og norðangarra
á 68. breiddargráðu.
Ég er þeirrar skoðunar að allt
mótlæti efli menn ef tekist er á við
það á réttan og raunhæfan hátt –
það kemur ekki í ljós fyrr en við
mótlæti úr hverju menn eru gerðir.
Og ekki eru allt vinir sem við þér
hlæja í lífsins ólgusjó.“
skapti@mbl.is
Ég verð að segja það alveg eins og er að það varalgjör guðsgjöf fyrir mig að fá tækifæri til aðstarfa með Guðjóni,“ sagði Noel Blake, að-
stoðarframkvæmdastjóri Barnsley, í samtali við Morg-
unblaðið.
Blake var varnarmaður og lék á sínum tíma m.a.
með Aston Villa, Leeds, Birmingham og Stoke City og
var framkvæmdastjóri Exeter áður en hann sneri sér
að kennslu, en hann er menntaður kennari, og starfaði
síðast við knattspyrnuakademíu Stoke City, þar sem
ungir strákar stunda nám og æfa knattspyrnu.
„Við Guðjón höfum svipaðar hugmyndir um knatt-
spyrnu,“ sagði Blake. „Hann er atvinnumaður fram í
fingurgóma, mjög fróður, skipulagður og agaður. Og
hann er heiðarlegur. Guðjón hugsar vel um fólkið sitt;
honum er umhugað að bæði leikmönnum og öðru
starfsfólki hans líði vel, og hér er ekki farið í mann-
greinarálit. Hann kemur eins fram við leikmennina og
konurnar sem sjá um að hita teið.“
Blake segir langan veg frá „gamla, enska bolt-
anum“ til þess sem þeir eru að reyna að gera hjá
Barnsley í dag. Hann vill láta spila „fótbolta“ en ekki
„loftbolta“ eins og hann orðar það. Vill að menn æfi
sem mest með knött og hann gangi á milli manna í
leikjum; ekki að sparkað sé langt fram og hlaupið á
eftir boltanum. Hann var á mála hjá Aston Villa 1982
þegar félagið varð Evrópumeistari. Þá var Ron Saund-
ers við stjórnvölinn og hugmyndafræði hans var svip-
uð. „Ég reyndi að láta hlutina ganga svona fyrir sig
þegar ég var stjóri hjá „Exeter“ en fékk engan stuðn-
ing. Hélt á tímabili að ég væri orðinn geggjaður og
þess vegna er dýrmætt að hitta Guðjón fyrir. Ég verð
að segja það alveg eins og er að það var algjör guðs-
gjöf fyrir mig að fá tækifæri til að starfa með Guðjóni.“
Blake segist þegar hafa lært mikið af fram-
kvæmdastjóranum og hann segir sjálfstraust sitt hafa
eflst til muna við það að starfa með manni sem sjái
íþróttina í sama ljósi og hann sjálfur, „og það er mér
dýrmætt að fá ákveðið frelsi til þess að koma mínum
hugmyndum á framfæri við leikmennina.“
Guðsgjöf að fá að starfa með Guðjóni
sjálfsögðu alltaf athuga úrslitin í leikjum Leeds er fé-
lagið hluti af fortíð minni, Barnsley er framtíðin og það
er mitt hlutverk og annarra stjórnarmanna að styðja
við bakið á Guðjóni og Noel Blake til þess að þeir geti
búið til gott lið.“
Ridsdale segir gott gengi liðsins það sem af er vetri
hafa komið þægilega á óvart. „Greiðslustöðvun gerir
það meðal annars að verkum að viðkomandi félag má
ekki hafa nema 20 leikmenn í herbúðum sínum. Það
væri í sjálfu sér ekki vandamál ef allir væru heilir en
Guðjón hefur oft ekki haft nema 15 til 17 leikmenn úr að
velja og það gerir honum erfitt fyrir. En ég ítreka að
framkvæmdastjórinn og leikmennirnir hafa staðið sig
frábærlega. Þeir eiga heiður skilið fyrir að hafa einbeitt
sér að verkefninu og ekki látið fjárhagsvandræði fé-
lagsins trufla sig.“
Síðustu 12 mánuðir voru Barnsley mjög erfiðirfjárhagslega, við eyddum sumrinu í að reynaað kaupa félagið en tókst það ekki fyrr en í
september og málið var ekki frágengið fyrr en í lok
október. Mér er það mikil ánægja að segja þér að nú er
fjárhagurinn orðinn traustur og við getum einbeitt okk-
ur að því að byggja félagið upp til framtíðar,“ sagði Pet-
er Ridsdale, aðaleigandi og stjórnarformaður Barnsley,
í samtali við Morgunblaðið.
Ridsdale segir orðstír félagsins mjög góðan, stuðn-
ingur við það sé víðtækur og miklir möguleikar á að
fjölga stuðningsmönnunum verulega. „Félagið þarf
virkilega á því að halda að eflast og komast upp úr 2.
deildinni eins fljótt og nokkur kostur er.“
Gjarnan er skipt um framkvæmdastjóra liða þegar
eigendaskipti verða á félögum. Var það aldrei á dag-
skrá hjá ykkur?
„Nei, að mínu mati hefur framkvæmdastjórinn stað-
ið sig afar vel í starfi. Orðstír hans er framúrskarandi,
bæði frá því hann þjálfaði landslið Íslands og Stoke
City. Ég hef fylgst með störfum hans frá byrjun, hef
reyndar séð hvern einasta leik í vetur, og líst mjög vel
á. Ég hrífst af þeim aga og metnaði sem einkennir störf
Guðjóns og hvernig hann stýrir liði sínu. Enda ég hef
fullvissað hann um það að við munum byggja félagið
upp í sameiningu.“
Hann segist hryggur vegna slæmrar stöðu Leeds
United, sem hann hefur stutt frá barnæsku „en héðan í
frá fer öll mín orka í að byggja Barnsley upp og reyna
að stuðla að velgengni félagsins. Þó að ég muni að
Peter Ridsdale, aðaleigandi og stjórnarformaður
Barnsley, ræðir við Guðjón fyrir leik liðsins í
Colchester 10. janúar.
Ridsdale:
Byggjum upp
saman