Morgunblaðið - 01.02.2004, Síða 25

Morgunblaðið - 01.02.2004, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 25 um við, hagsmunaaðilarnir, til þess að færa okkur þau í nyt? Er vonir um frama, ábata og þekkingu enn að finna í verkaskrám okkar líkt og forð- um? Eðli mannsins er samt við sig. Við ættum hreint ekki að gera lítið úr ágirnd okkar mannanna. Minna má á að enn fer það orð af Norðurskauts- ráðinu að þar á bæ geri menn sér til- tölulega hóflegar vonir um vegsemd og auðlegð. Enn sem komið er erum við lítt þekkt samtök án fastaskrif- stofu og reglubundinnar fjárhags- áætlunar. Hins vegar gerum við okk- ur talsverðan metnað til að öðlast þekkingu, ekki síst um umhverfi norðurskautsins. Eftir stofnun Norðurskautsráðsins hafa ríkisstjórnir og frumbyggjaþjóð- ir á norðurskautssvæðinu sameinast um að gera eftirlit með og mat á um- hverfi norðurskautsins að forgangs- verkefni í verkaskrá ráðsins. Vandað- ar skýrslur hafa verið teknar saman og gefnar út um mengunarhættu og áhrif mengunar á vistkerfi norður- skautssvæðisins og á varðveislu líf- fræðilegs fjölbreytileika. Eftir að hafa borið kennsl á forgangsmengun- arefni sinnir Norðurskautsráðið, í sí- fellt meiri mæli, verkefnum sem mið- ast að því að takmarka og draga úr mengun á norðurskautssvæðinu. Yfirvofandi loftslagsbreytingar Verkefni, sem lýtur að umhverfi norðurskautsins og vekur mikla at- hygli um þessar mundir, er yfirstand- andi mat á áhrifum loftslagsbreytinga á norðurskautssvæðinu. Um er að ræða fyrstu svæðisbundnu allsherjar- rannsókn á loftslagsbreyt-ingum sem birt verður eftir að samningur Sam- einuðu þjóðanna um loftslagsbreyt- ingar var gerður. Ekki verður annað séð en að loftslagsbreytingar muni setja mark sitt á lífríki á norður- skautssvæðinu á komandi árum og áratugum, haldi fram sem horfir að lofthiti þar um slóðir hækki tvöfalt á við meðalhita annars staðar á jörð- inni. Hringrásir í lofthjúpi og hafi, líf- hvolfið, mannvirki, lífsviðurværi og heilbrigði manna verða fyrir meiri eða minni áhrifum. Því er skiljanlegt að beðið sé með óþreyju vísindalegra niðurstaðna matsgerðarinnar sem birta á haustið 2004. Litlum vafa er undirorpið að um- hverfismál, á vissan hátt sá hluti verkaskrár Norðurskautsráðsins þar sem hvað bestum árangri hefur verið náð, verða áfram í hópi forgangsverk- efna ráðsins. Norðurskautssvæðið og svæðið rétt sunnan við Norðurheim- skautsbaug eru þó ekki umhverfi ein- vörðungu, þau eru heimkynni fólks, um það bil fjögurra milljóna manna, þar á meðal yfir þrjátíu frumbyggja- þjóða. Reyndar eru afleiðingar margra þeirra ferla, sem lýst er í skýrslum Norðurskautsráðsins um vistkerfið, að byrja að koma í ljós í lífi fólksins á svæðinu. Á það einkum við um loftslagsbreytingar en einnig, í minna mæli þó, um mengun í fæðu- keðjunni. Hverjar sem breytingarnar kunna að verða þurfum við að lifa við þær og nýta okkur þau færi sem bjóðast til þess að þróa norðurskautssvæðið á umhverfisvænan hátt. Vilji menn líta raunsætt á lífsaðstæður á norður- skautssvæðinu er nauðsynlegt að huga að hinni félagslegu og efnahags- legu vídd í meiri mæli en áður. Af þeim sökum er eitt verkefna íslensku formennskunnar um þessar mundir fyrsta víðtæka rannsóknin á lífsskil- yrðum á öllu norðurskautssvæðinu, Skýrsla um þróun lífskjara á norður- skautssvæðinu, sem stendur til að birta haustið 2004. Öðrum framtaks- verkefnum miðar og áfram, t.d. rann- sóknum á því hvernig unnt sé, með sem skilvirkustum hætti, að styrkja íbúa á norðurslóðum með því að bæta aðgang þeirra að upplýsingum og fjarskiptatækni. Þannig göngum við til verks vopnuð betri þekkingu á um- hverfi norðurskautssvæðisins með sameiginlegar þarfir íbúa að leiðar- ljósi. Þegar hefur verið bent á eitt mik- ilvægt atriði; gnótt náttúruauðlinda. Hafi einhver einhverju sinni velt því fyrir sér hvort andi guðs svífi yfir auðnum norðurskautssvæðisins má benda á að sú spurning virðist aldrei hafa angrað íbúa sjálfs svæðisins. Þvert á móti hermir rússnesk þjóð- saga að þegar guð skapaði jörðina hafi hann ferðast umhverfis hana og dreift auðlindum. Er hann náði til norðurskautssvæðisins varð honum hálft á svelli og spreðaði auðlindum úr skjóðu sinni út um allt svæðið. Svarið við spurningunni getur aug- ljóslega aldrei falist í ásókn í efnis- legan ávinning einvörðungu eða jafn- vel mestmegnis. Aukið efnahagslegt mikilvægi norðurskautssvæðisins fyrir heiminn allan býður heim auk- inni hættu á umhverfisspjöllum. Þetta er eitt af hinum erfiðu og ævar- andi úrlausnarefnum á sviði stefnu- mörkunar fyrir norðurskautssvæðið. Tökum dæmi: Verði einhvern tíma talinn raunhæfur kostur að flytja olíu, jarðgas og jarðefni eftir sjóleiðum á norðurskautssvæðinu kynni mikill ol- íuleki að hafa hörmulegar afleiðingar. Lekinn árið 1989 úr olíuskipinu Vald- ez, sem var í eigu Exxon, sýndi svo ekki verður um villst að ekkert eitt land yrði þess megnugt að fást við slíkar afleiðingar á eigin spýtur. Álíka slys á norðurskautssvæðinu, þar sem mengaður ís gæti borist til við- kvæmra búsvæða, gæti þýtt að hreinsun og tepping olíunnar yrði martröð líkust að því er varðar skipu- lagningu á aðdráttum og flutningi. Þótt hætta á slíkum atburðum kunni að vera til staðar er það hins vegar engin ástæða til þess að lýsa því yfir að skynsamleg nýting náttúruauð- linda geti ekki farið fram á norður- skautssvæðinu. Áhættan er upp- spretta krefjandi viðfangsefna sem kalla á hugvitssamlegar lausnir. Fyrir því er önnur ástæða að norð- urskautssvæðið skiptir æ meira máli fyrir alþjóðasamfélagið. Með rann- sóknum okkar á fyrirbærum, eins og mengun sem berst langar leiðir milli landa og loftslagsbreytingum á norð- urskautssvæðinu, gerum við okkur far um að dæma um það hvað fram- tíðin kann að bera í skauti sér fyrir önnur svæði á jörðinni. Í þessum skilningi má líta á norðurskautssvæð- ið sem útvörð eða frumkvöðul, allt eft- ir því hvor myndlíkingin er valin. Hvernig mun, til dæmis, aukin upp- söfnun hættulegra efna í lífverum, meðal annars kvikasilfurs, hafa áhrif á heilbrigði manna? Eða hvernig mun aukin bráðnun jökla, aukin úrkoma og aukið rennsli fljóta hafa áhrif á yfir- borðsstöðu sjávar á jörðinni og hita- og seltuhringrás í höfunum sem aftur stuðlar að dreifingu varma jarðarinn- ar? Svo kann að vera að svara við þessum spurningum sé að leita á norðurskautssvæðinu. Þó svo að það sé góð byrjun að beina athygli að norðurskautssvæð- inu nægir það ekki eitt og sér. Norð- urskautsráðið þarf, í því skyni að geta fengist við viðfangsefni sem kunna að eiga rætur um víða veröld eða varða jörðina sem heild, að fá til liðs við sig mikilsmegandi aðila að alþjóðasam- starfi, meðal annars Sameinuðu þjóð- irnar, sérstofnanir þeirra og Evrópu- sambandið. Af þessu má ljóst vera hvers vegna samvinna við alþjóða- stofnanir er mikilvægur þáttur í starfsemi ráðsins. Sem dæmi má nefna Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna, vettvang þar sem Norður- skautsráðið hafði t.a.m. hlutverki að gegna við að fá viðbrögð við kvikasilf- ursmengun tekin upp í verkaskrá stofnunarinnar. Ráðið tekur virkan þátt í svæðisbundinni framkvæmd þeirrar áætlunar sem var samþykkt á fundi æðstu ráðamanna þjóða heims um sjálfbæra þróun í Jóhannesarborg árið 2002. Það hefur og lagt sitt af mörkum til aðgerðaáætlunar Evrópu- sambandsins um norðlægu víddina og hefur hliðsjón af markvissum verk- efnum þar sem um gagnkvæma hags- muni er að ræða. Horfur eru því á að málefni norðurslóða verði vaxandi þáttur utanríkismálanna á komandi árum. Greinin er byggð á erindi sem höfundur flutti í Konunglega vísindafélaginu í London, en hann er formaður embætt- isnefndar Norðurskautsráðsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.