Morgunblaðið - 01.02.2004, Side 26

Morgunblaðið - 01.02.2004, Side 26
26 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Þ að er merkilegt, jafnvel einstakt, að höfuðborg lands skuli standa ein- mitt þar sem lands- menn tóku sér fyrst varanlega bólfestu. Vísbend- ingar eru um að býli þeirra Ingólfs og Hallveigar hafi verið aðeins steinsnar frá þar sem nú er að finna greypta í gangstéttina málmplötu sem á stendur „Miðja Reykjavík- ur“. Það var ekki tilviljun að Ingólfur valdi sér bústað í Reykjavík en í aldanna rás hefur mikilvægi þessa staðar fyrir mannlíf og byggð í landinu verið misjafnt, en stöðugt vaxandi frá því fyrir rúmum 200 ár- um. Fyrir réttri öld má þó segja að hlutverk Reykjavíkur sem höfuð- borgar hafi verið staðfest. Íslands- ráðherrann kom heim og Kaup- mannahöfn var ekki lengur höfuðborg Íslands. Í tilefni þessara tímamóta langar mig að stikla á nokkrum þeim viðburðum, sem samanlagðir urðu til þess að Reykjavík er nú höfuðborg lýðveld- isins. Upphafið Sagan segir að Ingólfur Arnar- son og Hallveig Fróðadóttir hafi reist sitt bú í Reykjavík eftir til- vísun guðanna, vegna þess að önd- vegissúlur hans rak þar á land. Lík- legra er þó að Reykjavík hafi orðið fyrir valinu vegna ótvíræðra land- kosta. Þar má nefna milda veðráttu, gott skipalægi, nægt undirlendi, rekafjörur, mýrar til rauðablásturs og mótekju, heitt vatn í jörðu, gjöf- ul fiskimið, eggver og selalátur í eyjum, ágætt beitiland, akureyjar og laxveiði í ám. Síðan brestur heimildir um íbúa Reykjavíkur í um fimm hundruð ár eftir landnám. Þá var vaðmál helsta útflutningsvaran, en þegar skreiðin tók við, jókst mikilvægi útræðis- jarðarinnar Reykjavíkur á ný og á 15. öld fara heimildir að geta bænda á landnámsjörðinni og þá jafnan í heldri röð, hreppstjóra og lögréttu- manna. Stór hluti suðvesturhorns- ins komst síðan í konungseigu við siðaskiptin, en Viðeyjarklaustur og Skálholtsstóll áttu þar gríðarmiklar landareignir. Reykjavík sjálf varð konungsjörð snemma á 17. öld. Þéttbýli myndast Borgir höfðu staðið í þúsundir ára víða um heim; borgir sem voru miðstöðvar handverks, verslunar, stjórnsýslu, samgangna og trúar- iðkunar. Þær voru undirstaða sam- kenndar íbúa, enda þjóðríkishug- myndin ekki fædd. Byggð hafði nú staðið í Reykjavík í tæp þúsund ár, en sjálfsþurftarbúskapur til lands og sjávar ennþá helsta lífsbjörg heimilanna. Gertæk breyting var þó á leiðinni, að utan. Á fyrri hluta 18. aldar vaknaði áhugi um Evrópu á að auka sem mest framfarir í hverju landi með því að koma upp innlendum iðnaði og efla aðra atvinnuvegi. Danska konungsvaldið stuðlaði að fram- gangi þessa á Íslandi með stofnun hlutafélags um íslenskt iðnaðarfyr- irtæki, svokallaðar Innréttingar. Konungsjarðirnar Reykjavík og Örfirisey voru lagðar til fyrirtæk- isins. Framkvæmdir hófust vorið 1752 og brátt reis röð timburhúsa báðum megin við hina gömlu sjáv- argötu Reykjavíkurbóndans, Aðal- strætið. Þessi húsaþyrping var upphafið að þéttbýli í Reykjavík og því ekki að ófyrirsynju að einskonar stjórn- arformaður Innréttinganna, Skúli fógeti Magnússon, skuli kallaður „faðir Reykjavíkur“. Af þessu verk- smiðjuþorpi stendur ennþá Fógeta- húsið við Aðalstrætið. Reykjavík rétt fyrir aldamótin 1900. Þótt margt hafi breyst má einnig sjá kunnuglegar byggingar, þar á meðal Alþingi áður en kringlunni var bætt við, Dómkirkjuna og Lærða skóla. Hannes Hafstein Miðbærinn um aldamótin 1900. Horft niður Bankastræti, yfir Lækjargötu og áfram eftir Austurstræti. Reykjavík höfuðborg í hundrað ár Um þessar mundir er ein öld liðin frá því að Reykjavík tók að gegna hlutverki höfuðstaðar Íslendinga. Þórólfur Árnason stiklar á stóru í sögu höfuðborgarinnar í tilefni af aldarafmælinu. Mannlíf á Austurvelli hefur ávallt verið fjölskrúðugt. Hér stunda ungir afreksmenn reiptog í upphafi liðinnar aldar. Mannþröng við Stjórnarráðið. Myndin er tekin 1911 eða 1915. Ekki er vitað hvort tilefnið er afhjúpun styttu Jóns Sigurðssonar eða fundur vegna fánamálsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.