Morgunblaðið - 01.02.2004, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 29
Dagskrá:
Sjálfstæ›isflokkurinn
Háaleitisbraut 1
105 Reykjavík
sími 515 1700
www.xd.is
Mánudagur 9. febrúar
19.00-19.10 Skólasetning: Daví› Oddsson, forsætisrá›herra og forma›ur Sjálfstæ›isflokksins.
19.15-20.45 Mennta- og menningarmál: fiorger›ur Katrín Gunnarsdóttir, menntamálará›herra.
21.00-22.30 Efnahagsmál: Geir H. Haarde, fjármálará›herra.
firi›judagur 10. febrúar
19.00-20.30 Um hva› snúast stjórnmál? Dr. Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræ›ingur.
20.45-22.15 Listin a› hafa áhrif: Gísli Blöndal, marka›s- og fljónusturá›gjafi.
Fimmtudagur 12. febrúar
19.00-20.30 Utanríkismál: Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálará›herra.
20.45-22.15 Listin a› hafa áhrif: Gísli Blöndal, marka›s- og fljónusturá›gjafi.
Laugardagur 14. febrúar
10.00-13.00 Sjónvarpsfljálfun: Gísli Blöndal og Björn G. Björnsson, kvikmyndager›arma›ur.
Mánudagur 16. febrúar
19.00-20.30 Taktu flátt, haf›u áhrif: Hanna Birna Kristjánsdóttir, a›sto›arframkvstj. Sjálfstæ›isflokksins.
20.45-22.15 Listin a› vera lei›togi: Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri í Gar›abæ.
firi›judagur 17. febrúar
19.00-20.30 Greina- og fréttaskrif: Gréta Ingflórsdóttir, framkvæmdastj. flingflokks sjálfstæ›ismanna.
20.45-22.15 Samgöngumál: Sturla Bö›varsson, samgöngurá›herra.
Fimmtudagur 19. febrúar
19.00-20.30 Heilbrig›isfljónusta: Ásta Möller, varaflingma›ur.
20.45-22.15 Sjávarútvegsmál: Árni Mathiesen, sjávarútvegsrá›herra.
Mánudagur 23. febrúar
19.00-20.30 Sjálfstæ›isstefnan: Sólveig Pétursdóttir, varaforseti Alflingis.
20.45-22.15 Íslenska stjórnkerfi›: Dr. Hannes H. Gissurarson, prófessor vi› H.Í.
firi›judagur 24. febrúar
19.00-20.30 Umhverfismál: Sigrí›ur Anna fiór›ardóttir, alflingisma›ur.
20.45-22.15 Borgarmálin: Vilhjálmur fi. Vilhjálmsson, oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæ›isflokksins.
Mi›vikudagur 25. febrúar
20.00-22.00 Heimsókn í Alflingi.
Starfshættir Alflingis og me›fer› flingmála: Halldór Blöndal, forseti Alflingis.
Skólaslit.
Sta›ur: Valhöll, Háaleitisbraut 1
Tími: 9.-25. febrúar 2004
Innritun í síma: 515 1700/1777 e›a í tölvupósti: disa@xd.is
fiátttökugjald: 12.000 kr.
Um hva› snúast stjórnmál?
Stjórnmálaskóli Sjálfstæ›isflokksins
Norðurlönd standaframmi fyrir nýjumveruleika, nýjum að-stæðum og nýjumverkefnum. Það sá ég
skýrt þegar ég kom aftur til starfa
fyrir Norðurlandaráð eftir 20 ár á
öðrum vettvangi. Flokkahóparnir
hafa öðlast aukna þýðingu, stjórn-
málastarfið er orðið markvissara og
ákvarðanir eru betur undirbúnar.
Mestu umskiptin felast þó í nýjum
viðfangsefnum og í því að samstarfs-
aðilar okkar eru ekki bara frá Norð-
urlöndum. Eistland, Lettland og
Litháen, sem eru að verða hluti af
nýju og stærra Evrópusambandi, og
ekki síst norðvesturhluti Rússlands,
eru fastir þættir í stjórnmálastarf-
inu. Starf okkar er ekki lengur bund-
ið við Norðurlönd heldur erum við í
stöðugum tengslum við aðra hluta
Evrópu og ESB, og það á jafnt við þó
að tengsl okkar við ESB séu mis-
munandi.
Við þurfum að gera Norðurlönd að
sterku afli í Evrópu nýrra tíma. Mis-
munandi staða norrænu landanna í
evrópsku samstarfi gerir það enn
mikilvægara að við beitum okkur
fyrir því að Norðurlönd láti sameig-
inlega að sér kveða í Evrópu. Við
getum öðlast aukið vægi með því að
starfa með öðrum smáríkjum, og þá
ekki síst með Þingmannasamtökum
Eystrasaltsríkjanna. Tölurnar 5+3,
sem táknuðu norrænu ríkin og
sjálfsstjórnarsvæðin, hafa verið
leystar af hólmi af 5+3+3 þar sem
síðasta talan táknar Eystrasaltsríkin
þrjú. Við getum jafnframt átt gagn-
legt samstarf við Benelux-löndin.
Samstarf okkar við Eystrasalts-
ríkin þarf meðal annars að felast í því
að styrkja uppbyggingu frjálsra fé-
lagasamtaka. Frjáls félagastarfsemi
hefur um langa hríð verið bæld niður
í þessum löndum. Óvíða er starfsemi
af þessu tagi eins öflug og á Norð-
urlöndum; það er varla til sá hópur
áhugamanna eða hagsmunaðila sem
ekki hefur stofnað eigið félag. Það
kann að virðast hlægilegt, en það er
jafnframt mikill styrkur fyrir lýð-
ræðið að svo margir skuli vilja beita
sér í sjálfboðastarfi. Á þessu sviði
getum við stutt lýðræðisþróunina í
Eystrasaltsríkjunum.
Samstarf í austurátt hefur auðvit-
að einnig gildi fyrir okkur á öðrum
vettvangi en í Evrópusamstarfinu.
Eitt af helstu markmiðunum með
samstarfinu við grannsvæðin er að
vinna að umhverfismálum við
Eystrasalt, í norðvesturhluta Rúss-
land og við norðurskaut, enda hefur
ástand umhverfisins þar bein áhrif á
okkur. Þetta samstarf þurfum við að
efla. Með inngöngu Eystrasaltsríkj-
anna í Norræna fjárfestingarbank-
ann hefur verið stigið mikilvægt
skref í þá átt.
Síaukið samstarf við löndin við
Eystrasalt má þó ekki leiða til þess
að við gleymum samstarfinu milli
austurs og vestur á Norðurlöndum.
Vestnorræna ráðið hefur mikilvægu
hlutverki að gegna við að benda á
málefni sem snerta starfssvæði þess,
en hafa þarf í huga að Norðurlanda-
ráð sinnir öllum hlutum Norður-
landa.
Norðurlönd án landamæra, hug-
mynd sem var mikið til umræðu á
Norðurlandaráðsþingi í Ósló í fyrra,
nær að sjálfsögðu til allra hluta
Norðurlanda, og Vestur-Norðurlönd
taka þátt í samstarfinu á jafnræð-
isgrundvelli.
Hvaða pólitísku málefni, auk
landamærahindrana, á að leggja
áherslu á næstu árin?
Ég ætla að nefna eitt svið sem
kemur við sögu daglega á öllum
stjórnstigum, á nánast öllum póli-
tískum vettvangi, bæði í einstökum
löndum og í norrænu samstarfi, en
það eru velferðarmálin.
Hvernig getum við varið, og um-
fram allt haldið áfram að þróa nor-
ræna velferðarkerfið? Að því steðja
ýmsar hættur, bæði vegna innri erf-
iðleika og þrýstings utan frá. Vanda-
mál tengd breyttri aldurssamsetn-
sameiginlega hefð fyrir ströngum
reglum í áfengismálum, og hana
þurfum við að standa vörð um og
þróa. Á Norðurlandaráðsþingi í
fyrra var samþykkt ályktun sem er
mikilvægt skref í átt að auknu nor-
rænu samstarfi um heilbrigðis-
vandamál tengd áfengisneyslu, ekki
síst meðal ungs fólks. Með sameig-
inlegu átaki getum við jafnframt eflt
grundvöllinn fyrir ströngum reglum
um fíkniefni sem samstaða er um á
Norðurlöndum.
Það er auðvitað blæbrigðamunur
á viðhorfum okkar til norræna vel-
ferðarkerfisins. Það er því ákaflega
gefandi að skiptast á skoðunum um
þessi mál, bæði á pólitískum vett-
vangi hvers lands, og á vettvangi
Norðurlandaráðs. Það er þó jafn-
framt margt sem sameinar okkur.
Við tökum ekki síst eftir því þegar
við eigum í samskiptum við lönd utan
Norðurlanda. Mér finnst Norður-
landaráði vel lýst sem pólitísku torgi
Norðurlanda, þar sem við göngum
um eins og grískir spekingar forn-
aldar, ræðum saman og fáum inn-
blástur til góðra verka. Eitt mikil-
vægasta hlutverk Norðurlandaráðs
er þó að mínu viti að skapa tengsl,
eða búa til samstarfsnet, eins og það
nefnist á nútímamáli.
Og síðast en ekki síst: Pólitískt
torg Norðurlanda á jafnframt að
vettvangur markvissrar stefnumót-
unar sem tryggir stöðu okkar í
fremstu röð velferðarríkja í heimin-
um. En það þýðir að við verðum að
geta tekið erfiðar og óþægilegar
ákvarðanir. Ef Norðurlönd eru ein-
huga um ákvarðanirnar fá þær aukið
vægi og norræna velferðarkerfið
getur haldið áfram að vera öðrum
þjóðum heims fyrirmynd næstu 50
árin!
Stöndum vörð um sterka stöðu Norðurlanda
Höfundur er forseti Norðurlandaráðs.
Nefndir Norðurlandaráðs funda á
Íslandi 1.–3. febrúar.
’ Mestu umskiptinfelast þó í nýjum
viðfangsefnum og í
því að samstarfs-
aðilar okkar eru ekki
bara frá Norður-
löndum. ‘
ingu eru vel þekkt.
Meðalaldur þjóða
hækkar og vinnandi
fólki fækkar. Við er-
um jafnframt meðvit-
uð um það að nýjar
kröfur vinnumarkað-
arins geta reynst
fólki erfiðar. Í Sví-
þjóð eru veikinda-
dagar fleiri miðað við
höfðatölu en í nokkru
öðru landi í Evrópu,
en um leið eru Svíar
með heilbrigðustu
þjóðum í álfunni.
Stefnumótun í
áfengis- og fíkniefna-
málum er annað svið
þar sem norrænt
samstarf getur gegnt
mjög mikilvægu hlut-
verki.
Danir lækkuðu
áfengisskatta árið
2003, og með vorinu
ætla Finnar fara sömu leið í því
skyni að koma í veg fyrir að fólk
flykkist til Eistlands til að kaupa þar
ódýrt áfengi þegar Eystrasaltsríkin
ganga í Evrópusambandið.
Þrátt fyrir þetta hafa Norðurlönd
Gabriel Romanus
Hvernig á að gera Norð-
urlönd að sterku afli í Evr-
ópu nýrra tíma? Gabriel
Romanus fjallar um nýjan
veruleika og ný verkefni
Norðurlandaráðs.