Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 01.02.2004, Blaðsíða 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 33 Nemendaþjónustan sf. Álfabakka 12, Mjódd Stærðfræði - íslenska - danska - enska - náttúrufræði - íslenskar rannsóknir sýna að nemendur sem eru fyrir neðan 6 á samræmdu prófunum eiga í erfiðleikum með framhaldsnámið. - það er ennþá tækifæri til að styrkja stöðu sína fyrir vorið. - hjá okkur starfa kennarar sem náð hafa mjög góðum árangri með nemendur á samræmdum prófum. Einnig námsaðstoð við nemendur framhalds- og háskóla Innritun í síma 557 9233 frá kl. 17-19 virka daga og á vef okkar www.namsadstod.is NÁMSAÐSTOÐ fyrir samræmdu prófin í 10. bekk www.101skuggi.is Sími 588-9090Sími 530-1500 Glæsilegar fullbúnar íbúðir verð frá 14,6 - 24,6 milljónir kr. Við bjóðum m.a. vandaðar, nýtískulegar og vel hannaðar 2ja og 3ja herbergja íbúðir í 101 Skugga - hverfi. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna. Hverri íbúð fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu. Gerið samanburð á gæðum og verði við aðrar eignir á svæðinu. 2 og 3 herbergja íbúðir í miðborginni Íbúðir til afhendingar í september 2004 Verðdæmi: 69 m2 2 herb. 14,6 m kr. 73 m2 2 herb. 17,2 m kr. 95 m2 3 herb. 19,9 m kr. 102 m2 3 herb. 21,7 m kr. 117 m2 3 herb. 24,5 m kr. 123 m2 3 herb. 24,6 m kr. Bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir. Spirulina Töflur og duft lífrænt ræktað Jafnar blóðflæðið Lið-a-mótGinko biloba Extra sterkt Colostrum RNA og DNA Acidophilus Fyrir meltingu og maga. FRÁ -fyrir útlitið Nr. 1 í Ameríku Alltaf ódýrir Hágæða framleiðsla VEL var mætt á hádegistónleika Hafnarborgar á fimmtudag þegar Jó- hanna Linnet og listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar, Antonía Hevesí, fluttu nokkur Vínarlög. Fjöl- menntu ekki sízt konur á efri aldri, eins og við mátti búast um við- fangsefni og dagstíma. Kynnti píanistinn munnlega persónur og kringumstæður lag- anna við góðar undir- tektir, þó að tæki mann nokkurn tíma að venj- ast ungverska hreimn- um. Viðfangsefnin voru heldur í þyngri kanti þessarar annars fisléttu greinar og við hæfi dramatískrar raddar Jóhönnu. Raunar var fyrsta atriði ítölsk óperuaría, Lo son l’umile ancella úr Adriana Lecouvreur eftir Cilea. Wien, du Stadt meiner Träume eftir Rudolf Sieczynski frá Titanic- árinu 1912 var leikin af mikilli Vín- arsveiflu, og sýndi Antonía víðar krafta í kögglum, t.a.m. í lokalaginu, Hæja úr Czardasfurstynju Lehárs, er Jóhanna söng á íslenzku af miklum valkyrjumóð. Þar áður komu pólón- esublendingurinn Meine Lippen, sie küssen so heiß úr Giuditta eftir sama höfund og sígaunarómantíski valsinn Spiel auf deiner Geige úr Venus í silki eftir Robert Stolz, er felldi margar keilur meðal áheyrenda. Aukalagið kom hins vegar úr óvæntri átt – Aldrei á sunnudögum (sungið á ensku) eftir Manos Hadjidakis, er Melina Mercouri gerði heims- frægt í samnefndri kvik- mynd 1961. Það hefur ekki gleymzt síðan, þó að búzúkíondeggiandóin alkunnu vantaði sárlega í píanópartinum. Skemmst er frá að segja að öllu var mjög vel tekið, og m.a.s. bravóað á nokkrum stöðum. Þó að raddbeit- ing Jóhönnu væri almennt of einhæft dramatísk að smekk undirritaðs, fór samt ekki fram hjá neinum að söng- konan kunni að höfða til síns fólks. Vínardramatík TÓNLIST Hafnarborg Aría eftir Cilea og Vínaróperettulög eftir Sieczynski, Stolz og Lehár. Jóhanna Lin- net sópran, Antonía Hevesi píanó. Fimmtudaginn 29. janúar kl. 20. EINSÖNGSTÓNLEIKAR Jóhanna Linnet Ríkarður Ö. Pálsson FJÖLMENNINGARLEGUR blær verður á Vetrarhátíð að þessu sinni, en hátíðin verður haldin í þriðja sinn dagana 19.–22. febrúar. Einn af há- punktum hátíðarinnar er að koma fjölmenningarlegu yfirbragði hljóm- sveitarinnar Voices for Peace, sem heldur þrenna tónleika í porti Hafn- arhússins. Hljómsveitin er skipuð gyðingum, múslimum og kristnum mönnum og flytur tónlist bæði frá Evrópu og Miðausturlöndum, auk gamalla bæna og kvæða. Einir tón- leikanna verða sérstaklega fyrir börn. Alþjóðahúsið mun standa fyrir „Þjóðahátíð“ í Ráðhúsinu þar sem 14 þjóðir munu kynna menningu sína, matargerð og fleira með margvísleg- um uppákomum. Leikskólabörn í Reykjavík velja sér þjóðfána og hitt- ast á grænum svæðum Reykjavíkur og senda þau einföldu en sterku skilaboð út í heiminn að allt fólk eigi að vera vinir – eins og þau. Á Kjarvalsstöðum verður dagskrá frá Barcelóna, heimspeki, listir, arki- tektúr og fleira. Höfuðborgarstofa sér um skipulagningu Vetrarhátíðar og eru Reykjavíkurborg, Orkuveita Reykjavíkur og SPRON bakhjarlar hennar. Fjölmenningarlegur blær á Vetrarhátíð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.