Morgunblaðið - 01.02.2004, Síða 38
LISTIR
38 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SEX sönglög eftir Atla Heimi
Sveinsson tónskáld verða frumflutt
á tónleikum Myrkra músíkdaga á
mánudagskvöld. Lögin eru samin
við þrjú ljóða Sigfúsar Daðasonar
og þrjú ljóð eftir bandaríska skáldið
Keith Waldrop.
„Þessi lög eru samin fyrir rödd,
píanó og óbó og flytjendur eru
söngvararnir Signý Sæmunds-
dóttir, Hrólfur Sæmundsdóttir,
Richard Simm píanóleikari og Ey-
dís Fransdóttir óbóleikari,“ segir
Atli Heimir.
Eins og höggmyndir
úr orðum
„Sigfús Daðason hefur alltaf ver-
ið mitt uppáhaldsljóðskáld og í mín-
um huga okkar stærsta skáld að
Steini Steinari gengnum. Hann orti
ekki mikið en ljóð hans eru dýrt
kveðin, meitluð og forn en samt
mjög nútímaleg. Þau eru nánast
eins og höggmyndir úr orðum. Þau
minna mig stundum á Eddukvæði,
stundum á kveðskap Egils Skalla-
Grímssonar en um leið bera þau
með sér andblæ franskrar nútíma-
ljóðlistar.“
Atli segir hvert lag samið sem
eins konar hugleiðingu um ljóðið.
„Ég kaus að setja þetta upp fyrir
rödd, píanó og óbó með löngu for-
spili og eftirspili þar sem ljóðið
verður eins konar hugleiðing í
miðju tónverksins. Hljóðfærin fá
sjálfstæða rödd í stað þess að sinna
undirspili. Þetta er í anda 19. aldar
meistaranna Schuberts og Schu-
manns þar sem rödd og hljóðfæri
endurspegla hugblæ ljóðsins og
hlutverk söngvarans er ekki endi-
lega að syngja laglínu heldur mæla
fram ljóðið, svo heildaráhrifin
verða ekki ólík lítilli leiksýningu í
huga áheyrandans.“
Atli kveðst hafa samið þessi lög
við ljóð Sigfúsar árið 1992 er hann
dvaldi í París. „Ég fór svo yfir þetta
núna og gekk frá þessu til flutnings
af þessu tilefni. Ég á fleiri lög við
ljóð Sigfúsar en að þessu sinni voru
þrjú valin til flutnings.“
Músíkleg sléttubönd
Úr allt annarri átt eru ljóð banda-
ríska skáldsins Keith Waldrop sem
Atli Heimir kynntist er hann dvaldi
sem gestaprófessor við tónlist-
ardeild Rhode Island háskólans í
Bandaríkjum fyrir nokkrum árum.
„Þetta eru mjög amerísk og falleg
ljóð sem kveiktu löngun hjá mér til
að semja lög við. Eitt ljóðanna vakti
athygli mína þar sem titill þess er á
þýsku og við athugun kom í ljós að
hann er fenginn frá þýska skáldinu
Heinrich Heine. Þegar ég bar sam-
an ljóð Heines og Waldrops áttaði
ég mig á því að Waldrop hafði ort
upp ljóð Heines en í öfugri röð vísu-
orðanna, þannig að upphafið hjá
Heine var niðurlagið hjá Waldrop.
Ég ákvað að semja tónlistina við
báða textana og gera þetta á sama
hátt þannig að lögin snúa bökum
saman. Eins konar músíkleg sléttu-
bönd sem flutt eru af tveimur
söngvurum. Síðan var mér bent á
að Brahms hefði samið lag við þetta
sama ljóð Heines og þá varð þriðji
hlutinn til sem er með tilvitnunum í
tónsmíð Brahms.“
Það á vel við að frumflutning-
urinn fari fram á Myrkum mús-
ikdögum sem nú eru haldnir í 25.
sinn. Atli Heimir var einn af upp-
hafsmönnum þessarar vetr-
arhátíðar íslenskrar tónlistar en að-
alsmerki hennar hefur alla tíða
verið frumflutningur á íslenskum
tónsmíðum. „Þegar þetta byrjaði
var okkur efst í huga að fylla í þá
eyðu sem gjarnan myndaðist í tón-
listarlífinu eftir jólin og áramótin
með áherslu á nýja tónlist. Nú er
þetta löngu orðin stofnun sem sóm-
ir sér vel í íslensku tónlistarlífi sem
er gríðarlega gróskumikið árið um
kring. Við eigum líka orðið svo mik-
ið af geysihæfu tónlistarfólki sem
ræður við alla skapaða hluti,“ segir
Atli Heimir Sveinsson tónskáld.
„Ljóðið verður eins konar hugleiðing í miðju tónverksins,“ segir Atli Heimir Sveinsson tónskáld um sönglög sín.
Hugblær ljóðsins í tónum
VEGNA stórverkefna Óperukórs
Hafnarfjarðar hér heima í vor og
menningarferðar til Búlgaríu nk.
haust getur kórinn bætt við sig
kórfélögum, sér í lagi tenórum og
bössum. Sungnir verða m.a. Hátíð-
artónleikar með Sinfóníuhljómsveit
Sofiu undir stjórn Bernharðs Wilk-
inson og samanstendur efnisskráin
af ítölskum óperukórum og aríum
ásamt kórverkum eftir Pál Ísólfs-
son og Jón Ásgeirsson. Einsöngv-
ari á tónleikunum verður Elín Ósk
Óskarsdóttir óperusöngkona.
Stjórnandi Óperukórs Hafnar-
fjarðar er Elín Ósk Óskarsdóttir
og gefur áhugasömum upplýsing-
ar.
Raddir óskast í óperukór
ATVINNA mbl.is
DILBERT mbl.is