Morgunblaðið - 01.02.2004, Síða 40
MINNINGAR
40 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
✝ Margrét G. Mar-ínósdóttir fædd-
ist í Vestmannaeyj-
um 23. mars 1936.
Hún lést á heimili
sínu 7. janúar síðast-
liðinn. Margrét var
dóttir hjónanna
Guðrúnar Hákonar-
dóttur og Marínós
Jóhannesson. Systur
Margrétar eru
Hilma og Erla.
Margrét giftist
Sigurði Hreini Ólaf-
syni og átti þrjú
börn með honum,
þau eru Guðrún Svanhvít, f. 6.7.
1955, Róbert B., f. 24.7. 1956,
lést af slysförum 1978, og Sigrún
Margrét, f. 25.6. 1957. Margrét
og Sigurður slitu samvistum og
giftist hún árið 1964 Bjarna Þ.
Sigurðarsyni, dóttir
þeirra er Bjarney
Inga, f. 10.10. 1964.
Bjarni dó á að-
fangadag 1964. Síð-
an giftist Margrét
Ásgeiri Högnasyni
iðnaðarmanni og
sjómanni, f. 8.8.
1919. Margrét á níu
barnabörn, þau eru
Jón, Ásgeir, Róbert,
Sigurgísli og Valdi,
synir Svanhvítar,
Andrea Ósk og
Birgitta Ýr, dætur
Sigrúnar Lóa Fat-
umata og Ragna Margrét, dætur
Bjarneyjar, og þrjú langömmu-
börn, Anton, Daníel Erik og Al-
exander.
Útför Margrétar var gerð í
kyrrþey, að ósk hinnar látnu.
Elsku mamma mín.
Mig setti hljóða þegar síminn
hringdi 7. janúar og Ási sagði okk-
ur að þú værir dáin. Ég veit ekki
hvað maður getur sagt á slíkri
stundu. Ég talaði við þig klukku-
tíma áður og þú sagðir þá að þú
værir að lagast. En kallið kom
óvænt því þú varst of góð fyrir
þennan heim og fullkomin. Það var
alltaf allt á hreinu hjá þér elsku
mamma mín. Ég vil minnast þín og
góðu stundirnar okkar þegar við
vorum úti með litla Daníel Erik sól-
argeislann þinn úti að labba á Æg-
issíðunni, já, hvað þú varst stolt og
hafðir yndi af að labba með hann í
vagninum, og þegar við fórum í
Hafnarfjörð og fengum okkur oft
kaffi og kökur, já það var oft gaman
hjá okkur.
Elsku mamma mín, við fórum oft
í tískubúðirnar að skoða og útsölur
það var oft margt brallað saman.
Ég býð algóðan guð að styrkja Ása
og okkur í þessari miklu sorg og ég
vil þakka þér fyrir að fá að hafa
svona góðan tíma með þér og hvað
þú reyndist okkur öllum vel og ég
veit að þú ert komin á góðan stað og
ég veit að Róbert bróðir hefur tekið
á móti þér og afi og amma. Hafðu
þökk fyrir allt elsku mamma mín.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Þín dóttir
Sigrún Margrét.
Elsku amma, það er svo tómlegt
hérna án þín, þetta var eins og
vondur draumur þegar Ási hringdi
og sagði að þú værir dáin. Þú tal-
aðir við mömmu í símann klukku-
tíma áður og þá varstu svo hress
eins og alltaf. Þú hélst að þú værir
með harðsperrur eftir að hafa
keyrt Daníel í vagninum daginn áð-
ur úti á Ægisíðu. Þú varst alltaf svo
hress og kát og gast labbað enda-
laust með mömmu og Daníel, litla
sólargeislann þinn sem þú elskaðir
svo mikið og hann þig. Mikið erum
við þakklátar fyrir að hafa fengið
að njóta þín svona mikið eftir að þú
hættir að vinna.
Þú komst næstum daglega í
Skipholtið í heimsókn og dróst
mömmu og Daníel með í göngutúr á
Klambratúnið.
Þegar við fluttum gastu labbað
endalaust á Ægisíðunni. Þitt líf og
yndi var að fara í búðirnar til þess
að skoða eða kaupa föt og skart-
gripi, enda var fataskápurinn þinn
fullur af fallegum fötum og þú varst
alltaf svo fallega klædd.
Við munum alltaf vera stoltar af
þér elsku amma okkar, enda varstu
líka stolt kona.
Allt sem þú gerðir gerðir þú vel,
og heimili þitt og Ása er til fyr-
irmyndar.
Við viljum þakka þér fyrir vik-
urnar sem við áttum saman úti á
Benidorm í sumar, þar sem þú gast
legið endalaust í sólbaði.
Mikið varstu montin þegar við
komum einn daginn í heimsókn á
hótelið og strákarnir sem voru í
garðinum sögðu við þig: Mikið áttu
fallegar dætur. Þeir héldu að þú
værir mamma okkar og þá hlóstu
og sagðir stolt að þú værir amma
okkar.
Það var ekkert skrítið að þeir
héldu það, þú leist alltaf svo vel út
enda varstu gullfalleg kona og allt-
af svo fín.
Við vorum ekki sáttar við að
missa þig svona snöggt frá okkur.
Það er erfitt að sætta sig við það en
við fáum engu ráðið um það.
Við huggum okkur við það að þér
líður vel núna í himnaríki hjá öllum
englunum, og við vitum að Róbert
frændi hefur tekið á móti þér og
passar þig vel fyrir okkur. Takk
fyrir að hafa verið til elsku amma
okkar og megi guð blessa Ása,
mömmu, Svönu, Ingu, Hilmu og
okkur öll í þessum mikla missi. Hvíl
í friði elsku amma.
Við þökkum fyrir ástúð alla,
indæl minning lifir kær.
Nú mátt þú, vina, höfði halla
við herrans brjóst er hvíldin vær.
Í sölum himins sólin skín,
við sendum kveðju upp til þín.
(H.J.)
Þínar ömmustelpur
Andrea Ósk og Birgitta Ýr.
Elsku langamma mín, mikið á ég
eftir að sakna þín mikið og göngu-
túranna okkar.
Ég veit að mamma mín á eftir að
tala mikið um þig svo að ég muni
alltaf eftir þér.
Manstu, amma, dansinn okkar,
þú sagðir alltaf amma dansa, amma
dansa og ég hló og dansaði við þig
sem mér fannast svo gaman. Já
þetta var sko dansinn okkar. Ég
veit að þú ert í himnaríki hjá engl-
unum og þeir munu passa þig vel
fyrir mig. Ég veit að afi kemur til
mín oft og ég skal vera góður og
passa hann fyrir þig.
Takk fyrir allar yndislegu stund-
irnar okkar, elsku langamma mín.
Það ætíð sé mín iðja
að elska þig og biðja,
þín lífsins orð að læra
og lofgjörð þér að færa.
(Páll Jónsson.)
Þinn
Daníel Erik.
MARGRÉT
MARÍNÓSDÓTTIR
✝ Sigríður Árna-dóttir frá Bursta-
felli fæddist á Stuðl-
um í Norðfjarðar-
hreppi 19. september
1910. Hún lést á
heimili sínu í Reykja-
vík 12. janúar síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Sigurbjörg Sigurðar-
dóttir f. í Breiðavík-
urhjáleigu í Helgu-
staðahreppi í
S-Múlasýslu 25. júlí
1883, d. 15. mars
1970, og Árni Odds-
son, f. í Vestmannaeyjum 6. maí
1888, d. 16. júní 1938. Systkini
hennar eru: Aðalheiður, f. 1913,
d.1987, Pálína, f. 1914, d. 1993,
Lára, f. 1916, Helga, f. 1918, Vil-
hjálmur, f. 1921, d. 1993, og Óli Ís-
feld, f. 1927, d. 1938, sammæðra
var Guðfinna Einarsdóttir, f.
1906, d. 1999.
Sigríður ólst upp hjá foreldrum
sínum á Norðfirði til 9 ára aldurs,
en þá flutti fjölskyldan til Vest-
mannaeyja. Hún fór snemma að
vinna við barnagæslu og síðan við
almenn hússtörf. Fór hún til
vinnu sem sumarstúlka austur til
Neskaupstaðar í nokkur sumur,
þar sem hún kynntist manni sín-
um Óskari Lárussyni útgerðar-
manni, f. 1911, d. 2002, sem hún
giftist í Vestmanna-
eyjum árið 1933.
Foreldrar Óskars
voru Dagbjört Sig-
urðardóttir og Lár-
us Ásmundsson út-
vegsbóndi á
Norðfirði. Börn Sig-
ríðar og Óskars eru:
1) Árndís Lára, f. 4.
ágúst 1933, gift
Friðriki Jóni Sig-
urðssyni og eiga þau
þrjú börn; Sigur-
björgu Ósk, f. 1952,
Línu Dagbjörtu, f.
1954 og Árna Óla, f.
1956. 2) Óskar Sigurður, f. 8. júní
1941, kvæntur Kirsti Helene Ósk-
arsson (f. Guttormsen). Eiga þau
þrjú börn; Finn Óskar, f. 1965,
Helene Sigríði, f. 1972, og Ara
Ólaf, f. 1975. 3) Ólafur, f. 21. mars
1946, kvæntur Fanneyju Val-
garðsdóttur og eiga þau eina
dóttur, Hlín, f. 1980.
Sigríður og Óskar áttu heimili í
Vestmannaeyjum í 3 ár, en fluttu
þá í Neskaupstað og voru búsett
þar í 40 ár. Sigríður var húsmóð-
ir, en vann einnig við síldarsöltun
á síldarárunum eystra. Árið 1975
fluttu þau hjónin í Mosfellsbæ og
voru þar í 11 ár, er þau fluttu til
Reykjavíkur. Útför Sigríðar var
gerð frá Háteigskirkju þriðjudag-
inn 20. janúar.
Elsku amma mín.
Mig langar að þakka þér öll
góðu árin okkar, sem við áttum
saman. Margs er að minnast, því
árin eru orðin mörg. Í æsku minni
man ég þegar ég var að læðast
upp um lúguna í Ásbyrgi, ná
þunga teppinu af, og skríða upp í
rúmið hjá ykkur afa, því þar var
alltaf hlýtt og gott. Árin liðu, og í
fyrstu veikindum afa fékk ég að
vera hjá þér í nokkra daga.
Sátum við þá oft að spjalli á
kvöldin í litla herberginu, þú að
sauma út margar af þínum fallegu
myndum, og alltaf enduðum við
samverustundirnar okkar við að
hlusta á passíusálmana í útvarp-
inu. Gott var að koma í eldhúsið á
morgnana áður en ég fór í skólann,
því þá varst þú auðvitað búin að
hita kakó, smyrja brauð, svo ekki
sé minnst á tebollurnar þínar. Þið
vinkonurnar í Neskaupstað hittust
ávallt til að spila kvöld og kvöld,
þá hringdir þú og spurðir hvort ég
yrði í útbænum því það væri svo
gott að fá samfylgd heim. Völdum
við alltaf efri götuna og gátum við
þá talað saman í ró og næði. Eftir
að þið fluttuð suður, þá var ég
komin með fjölskyldu, aftraði það
okkur ekki frá að spila bingó, því
að þér þótti það mjög gaman, og
voru það yndislegar stundir og
mikið var hlegið, því að þegar þú
byrjaðir á þínum dillandi hlátri,
hlógu allir í kringum þig. Í
Hvassaleitinu var oft setið yfir
kaffibolla og umræðan var fjöl-
skyldan, hvernig barnabarnabörn-
unum heilsaðist, hvort gengi vel í
skólanum, því ávallt var fjölskyld-
an í fyrsta sæti.
Elsku amma mín, ég veit að afi
bíður með útbreiddan faðminn
sinn eins og ávallt og tekur á móti
þér. Guð veri með þér. Þitt barna-
barn
Ósk.
Elsku hjartans amma mín.
Mig langar að kveðja þig með
örfáum orðum, þó mig langi að
segja svo margt. Mér þótti svo af-
ar vænt um þig amma mín, og það
var svo gott að hafa þig og afa í
næsta húsi austur á Norðfirði,
þegar ég var að alast upp, og alltaf
hægt að leita til ykkar. Ekki fækk-
aði samverustundum okkar eftir
að þið fluttuð suður.
Þú varst alltaf svo kát og hress
með þinn smitandi hlátur og það
var svo notalegt að sitja yfir te-
bolla og hlusta á þig segja frá
gömlum tíma, því þú varst svo
minnug.
Þegar handbolti var í sjónvarp-
inu, mátti enginn trufla þig, því að
þú lifðir þig svo inn í leikinn. Nú
ert þú komin til afa elsku amma,
og ég veit að þar eru fagnaðar-
fundir.
Elsku amma mín, ég mun sakna
þín mikið og þakka þér fyrir allt.
Guð blessi þig og minningu þína.
Þín mun ég minnast
fyrir allt það góða sem þú gerðir,
fyrir allt það sem þú skildir eftir,
fyrir gleðina sem þú gafst mér,
fyrir stundirnar sem við áttum,
fyrir viskuna sem þú kenndir mér ,
fyrir sögurnar sem þú sagðir mér,
fyrir hláturinn sem þú deildir,
fyrir strenginn sem þú snertir.
Ég mun ætíð minnast þín.
(F.D.V.)
Þitt barnabarn
Lína.
... ef við hittumst aldrei aftur, fyndist
mér sem allt ævintýri tilverunnar væri
réttlætt með því að hafa hitt þig.
(Lewis Mumford.)
Elsku amma.
Nú er komið að kveðjustund eft-
ir langa samveru. Ein minningin
frá því við áttum heima á Norð-
firði, er um garðinn þinn, sem þú
varst í flestum stundum að laga til
og gera fínt og passa okkur krakk-
ana, að við skemmdum ekki neitt.
Annars eru svo margar góðar
minningar um þig og afa, að erfitt
er að gera upp á milli og um hvað
á að skrifa. En eitt get ég sagt, þú
varst alltaf virðuleg kona. Það var
alltaf notalegt þegar við fjölskyld-
an komum til þín í Hvassaleitið.
Síðastliðið eitt og hálft ár var
þér erfitt, eftir að afi féll frá, þið
voruð svo samrýnd, enda búin að
vera gift í tæp 70 ár. Nú færð þú
að hitta hann aftur amma mín.
Við munum sakna þín mikið, hvíl
þú í friði elsku amma. Guð blessi
minningu þína.
Árni Óli, Rósa og börn.
SIGRÍÐUR
ÁRNADÓTTIR