Morgunblaðið - 01.02.2004, Side 45

Morgunblaðið - 01.02.2004, Side 45
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, MARKÚS SVEINSSON, lést af slysförum við heimili sitt að Sveinseyri, 28. janúar. Útför hans fer fram frá Garðakirkju, Garðabæ, miðvikudaginn 4. febrúar kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á BUGL, Barna og unglingageðdeild Landspítalans. Björn Guðmundur Markússon, Sveinn Markússon, Kristín Helga Markúsdóttir, tengdabörn, barnabörn og systkini. kirkjunnar í Síðumúla, sem í minnum er haft. Síðan fluttumst við til Akur- eyrar, en Gummi var farinn að búa í Ásum, enda nýlega kvæntur Stefaníu, systur Þorvalds. Því var sjálfhætt þessum kvartettsöng. En þess má geta, að við höfðum allir verið félagar í Karlakór Reykjavíkur og farið í 10 vikna söngferðina til Vesturheims 1946, sem styrkti enn vinaböndin. Gummi hafði mjög þýða og bjarta rödd, sem féll vel að öðrum röddum, enda beitti hann henni af smekkvísi og góðu tón- og brageyra sem honum var í blóð borið. Hann var líka fljótur að læra raddir, og fóru þar ekki marg- ir í fötin hans. Við Ellen höfum allaf haft veður af þeim Stebbu og Gumma. Þegar ég var á ferð til Þjórsárdals með skóla- fólki vorið 1948, fékk ég að skjótast heim að Ásum og sá þá frumburð þeirra í vöggu, en fæðing þessa drengs var aðeins upphafið að miklu barnaláni þeirra hjóna. Þegar Gummi og Sveinn mágur hans Ágústsson voru í fjárkaupaferð á leið í Keldu- hverfi haustið 1953, komu þeir við á heimili okkar. Þannig stóð á, að okkur hafði þá um morguninn fæðst sonur, en þann dag var jafnframt fertugs- afmæli Gumma. Þeir fóru síðan býsna nærri um aldur hvor annars, afmæl- isdrengirnir. Oft höfum við hjónin komið að Ásum og á ýmsum tímum árs og alltaf verið tekið með kostum og kynjum, hlýju brosi og hjartans yl, hvernig sem á hefir staðið. Þá var jafnan margt rætt og rifjað upp, sem kátínu vakti, og hressilega hlegið. Einu sinni var sláturgerð vikið til hlið- ar, meðan við stóðum við, og það þótti húsbændum ekki tiltökumál. Reglu- lega hefir verið skipst á jólakveðjum og oft talast við í síma og spjallað lengi. Slíkir vinir sem Stebba og Gummi eru miklar guðs gjafir og mik- ið lífslán. Guðmundur Ámundason var mikill drengskaparmaður, hreinn og beinn í öllum samskiptum og skoðanaskipt- um og sannur vinur vina sinna. Af- staða hans til manna og málefna var alltaf skýr og klár, mótuð af hugsjón- um hans og grundvallarhugmyndum um mannlegt samfélag og sambúð manns og náttúru. Hann var líka ódeigur að styðja þann málstað, sem hann taldi sannastan og réttastan og féll best að samvisku hans og réttlæt- isvitund, við hvern sem var að eiga og hvað sem stundarhag og sýndarhags- munum leið. Hann var kappsfullur dugnaðarmaður og mikill verkmaður, dró ekki af sér við vinnu, vasklegur, hávaxinn og holdskarpur. Það voru engin undur, þótt hnén væru farin að bila og fætur að láta undan undir verkalokin. En hann hafði alltaf jafn- mikla ánægju af að syngja, nú síðast með kór Stóranúpskirkju. Góður bóndi og góður drengur hef- ir lagt frá sér amboðin með sæmd, góður vinur kvatt og skipt um tilve- rusvið. Suðurland breiðir opinn faðm móti hækkandi sól og silfurglitrandi óravíðu hafi. Afréttirnar hafa tekið á sig hreinan, hvítan skrúða, og Hreppafjöllin standa heiðursvörð. Þakklátum huga biðjum við Ellen vini okkar allrar blessunar og vottum Stebbu og allri fjölskyldunni einlæga samúð. Sverrir Pálsson. Sumir vaxa með hverju verki. Þannig var Guðmundur Ámundason frá Sandlæk. Hann missti föður sinn ungur og strax frá tíu ára aldri þurfti hann að ganga til allra verka fullorðins karl- manns. Sveinninn óx úr grasi, hávax- inn, grannur og stæltur, og varð þekktur dugnaðar- og eljumaður. Svo rösklega gekk hann til verka að þeim sem til sáu líður seint úr minni. Það var enginn aukvisi sem hlaut tíu í ein- kunn fyrir dugnað á Bændaskólanum á Hvanneyri og afköst hans við fisk- verkun í Eyjum þóttu með fádæmum. Ég átti því láni að fagna að dveljast nokkur sumur sem snúningastrákur á Ásum hjá Guðmundi og Stefaníu Ágústsdóttur, föðursystur minni, sem lifir mann sinn. Allt iðaði af lífi, úti sem inni. Fjölmörg börn og unglingar áttu þar sumarathvarf og bættust í hóp mannvænlegra barna hjónanna, Ágústs, Höllu, Stefáns og Kristínar. Vart er hægt að hugsa sér betri fyr- irmyndir en Gumma og Stebbu, eins og við kölluðum þau, og ánægjuleg voru kvöldin við akademíu eldhús- sborðsins þar sem ungu fólki var gert ljóst að jafnmiklu skipti að virða ís- lenska tungu og að standa vel að verki. Síðar meir, þegar æskugalsinn rann af okkur, reyndust kynnin af mannkostahjónum ómetanleg kjöl- festa og veganesti. Svipmyndir af Guðmundi Ámunda- syni leita á hugann. Sumri er tekið að halla, hann er að þykkna upp í suð- vestrinu og mikið í húfi að ná að hirða af Heiðartaglinu. Komið er að síðustu ferð dagsins og í ljósaskiptunum þok- ast drekkhlaðinn Dodge vörubíllinn, næstum algrænn af töðu, upp Rana- brekkuna. Guðmundur bóndi við stýrið, skarpleitur, útitekinn og sveittur af erfiði dagsins, með derhúfuna öfuga eins og komst í tísku 30 árum síðar. Við krakkarnir sitjum á hlassinu, ærslafull og spennt, og ekki dregur það úr stemmningunni í hópnum að við vitum af huldufólki í Ranaklett- inum. Nú er komið að erfiðasta hjall- anum. Það ymur ógurlega í vél og hvín í gírkassa, bíllinn missir ferð og nötrar af átökunum. Ætlar hann ekki að hafa það upp? Í þann mund sem við höldum að brekkan verði ekki sigruð, yfirgnæfir tignarleg tenórrödd stun- urnar í bifreiðinni. Þróttmikill söngur og rámur bílgnýr renna saman í eitt, verða að kraftbirtingu manns og vél- ar, svo að undir tekur í Bæjarásnum. Brekkan lætur undan. Nú hefur húmað að hollvini mínum Guðmundi Ámundasyni. Samhljómi himinhvelfinga hefur bæst tær og fagur tónn. Jón Þorvaldsson. Okkur fannst Ásaheimilið vera eins konar miðstöð sveitarinnar þegar við bjuggum í Gnúpverjahreppnum. Þar var símstöðin þar sem hægt var að eiga þau símtöl sem ekki áttu heima á hinum opnu sveitalínum sem þá voru í notkun. Gamli ættarhöfðinginn Ágúst Sveinsson og Stefanía dóttir hans voru við símann og önnuðust margs konar fyrirgreiðslu fyrir sveitungana sem ekki var nú alltaf á hinum op- inbera opnunartíma! Samkomuhús sveitarinnar og skólinn, Ásaskóli, voru í túnfætinum og kirkjustaður- inn, Stóri-Núpur, í næsta nágrenni. Ásar voru sannarlega um þjóðbraut þvera, enda var þar gestkvæmt. Ása- fjölskyldan kunni þá list að taka þann- ig á móti gestum að hver sem þangað kom fékk að njóta sín enda voru allir aufúsugestir. Þar bar margt til sem mótaði vellíðan gestsins. Þetta var hús kynslóðanna. Þrjár kynslóðir bjuggu saman í mikilli sátt og gleði þar sem þau eldri miðluðu reynsluarf- inum og góðum gildum til þeirra yngri. Ágúst var sjóður af sögum og fróðleik og barnabörnin opin og skemmtilega greind. Þá spillti ekki viðurgerningurinn, kæfan, kleinurnar og flatbrauðið hennar Stefaníu voru hreinn veislukostur en mesta veislan var þó samfélagið, ekki síst í kringum stóra nægtaborðið í eldhúsinu. Þar voru fjörmiklar, jákvæðar samræður um margs konar málefni og þar mun- aði mest um húsbóndann, Guðmund, sem hafði lifandi áhuga á lífinu og öll- um birtingarmyndum þess og var jafnframt svo naskur að sjá hinar kímilegu hliðar sem hann kynnti með björtum og glöðum hlátri sínum. Í þessu samfélagi varð tíminn skamm- ur, það var skemmtilegt að vera með Ásafólkinu, þar sem jafnvægi ríkti og gagnkvæm virðing, alúð og um- hyggja. Fyrir okkur sem ung prestshjón var það ómetanlegt að eiga stuðning Ásafólksins. Þau þekktu og skildu all- ar aðstæður í sveitinni og það sem þau lögðu til í kirkjustarfinu gekk venjulega eftir. Þau voru óspör á tíma sinn fyrir kirkjuna. Ágúst hafði verið meðhjálpari í nær hálfa öld en hætti um þetta leyti en Ágúst yngri, dótt- ursonur hans og nafni, tók við keflinu eins og í boðhlaupum og þeir nafnar hlupu saman í nokkra mánuði, svo haldið sé líkingunni, uns sá eldri hætti hlaupinu þegar sá yngri var kominn á fulla ferð. Guðmundur og Stefanía sungu í kirkjukórnum um áratugi og það munaði um þau. Guðmundur hafði gullfallega tenórrödd sem hann beitti af smekkvísi og virðingu fyrir tónlistinni. Hann var sannkallaður burðarás í sinni rödd auk þess sem hann skapaði afar skemmtilegt og hlýlegt andrúmsloft í þeim kórum sem hann söng í með ljúfmannlegri og glaðri framkomu sinni. Við kynntumst þeim Guðmundi og Stefaníu best í hjónaklúbbi sem starf- aði í sveitinni. Þar var fjallað um eitt- hvert brýnt og bitastætt málefni og þar var Guðmundur í essinu sínu. Hann hlustaði vel, spurði bein- skeyttra spurninga og kom gjarnan með jákvæðar athugasemdir sem vöktu bæði umhugsun og gjarnan hlátur enda var Guðmundur maður gleði og birtu. Það er fólk eins og Guðmundur í Ásum sem eykur á menningu þess- arar þjóðar, sem kemur okkur til manns, gerir okkur að meiri mönnum með því að deila með okkur áhuga- efnum sínum, reynslu og lífsgleði, já- kvæðu lífsviðhorfi og örlátum stuðn- ingi á lífsleiðinni. Og nú er Guðmundur í Ásum geng- inn inn í fögnuð herra síns eftir langt og gott líf. Við minnumst hans með mikilli virðingu, þökkum innilega samfylgdina og biðjum hans góðu fjöl- skyldu blessunar og huggunar Guðs. Rannveig Sigurbjörnsdóttir, Bernharður Guðmundsson. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 45 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÓSU INGIBJARGAR JAFETSDÓTTUR, Erluhrauni 6, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til allra þeirra, sem önnuðust hana í veikindum hennar. Kristján Þ.G. Jónsson, Sigríður G. Jónsdóttir, Brynhildur R. Jónsdóttir, Guðmundur S. Halldórsson, Kristín Jónsdóttir, Heimir Ólafsson, Steinunn G. Jónsdóttir, B. Jens Guðbjörnsson, Sigurður Jónsson, Brynhildur Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til ykkar allra, sem sýndu okkur ómetanlegan stuðning og hlýju við andlát mömmu, dóttur, systur, mágkonu og frænku okkar, ÞÓRUNNAR JÓNSDÓTTUR hjúkrunarfræðings, Rekagranda 6, Reykjavík. Eva Björk Kaaber, Axel Kaaber, Sigríður Björnsdóttir, Björn Jónsson, Guðrún Valgeirsdóttir, Ingibjörg Jónsdóttir, Eyjólfur Bjarnason og systkinabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, ELÍNAR SVEINSDÓTTUR, Gullsmára 7, áður til heimilis í Helgamagrastræti 27, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 1 á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð fyrir hlýhug og góða umönnun. Gréta Geirsdóttir, Þórir H. Jóhannsson, ömmubörn og langömmubörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, EINARS INGA GUÐJÓNSSONAR, Vesturbergi 39, Reykjavík. Guðrún Árnadóttir, Árni Guðni Einarsson, Rannveig María Jóhannesdóttir, Böðvar Einarsson, Guðbjörg Halldórsdóttir, Ellert Valur Einarsson, Þórunn Alfreðsdóttir, Guðjón Magni Einarsson, Sif Guðmundsdóttir, Hjördís Einarsdóttir, Ólafur Bjarnason, Elín Einarsdóttir Jóhann Helgason, Jón Páll Einarsson, Tina Jepsen, barnabörn og barnabarnabarn. Innilegar þakkir fyrir vináttu og hlýhug vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, VALGERÐAR JÓHANNESDÓTTUR, Langeyrarvegi 11, Hafnarfirði. Þóra Vala Þórðardóttir, Viðar Þórðarson, Erla Gestsdóttir, Bjarni Þórðarson, Kristín Guðmundsdóttir, Jóhannes Þórðarson, Ingibjörg Ása Júlíusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞURÍÐUR GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR frá Króksfjarðarnesi, til heimilis að Hæðargarði 33, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskrikju þriðju- daginn 3. febrúar kl. 13.30. Ólafía B. Ólafsdóttir, Halldór Þ. Þórðarson, Haraldur H. Sigurðsson, Anna K. Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.