Morgunblaðið - 01.02.2004, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 01.02.2004, Qupperneq 50
SKOÐUN 50 SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Saga FH og Hallsteins Hinrikssonar verður ekki aðskilin HINN 2. febrúar halda FH-ingar hátíð í Kaplakrika, en þá verður þess minnst að Hallsteinn Hinriksson, stofnandi FH hefði orðið 100 ára gamall. Hallsteinn, ásamt 10 ungum fim- leikadrengjum úr Íþróttafélagi Hafn- arfjarðar stofnuðu FH hinn 15. október 1929. Allt frá stofndeg- inum og til dauðadags 10. október 1974 stóð Hallsteinn í fararbroddi í baráttunni fyrir FH, sem aðalkennari félags- ins og félagslegur leið- togi. Hann var einstakur foringi. Það var alla tíð mikil reisn yfir Hallsteini – ákaflega virðulegur mað- ur í jakkafötum, skyrtu og með bindi og þannig mætti hann til leikfimi- kennslu í skólunum og til að þjálfa FH-inga eða til að stjórna liðum sín- um í keppni. Stíll Hallsteins var einfaldur, hann krafðist stundvísi, hæfilegs aga og snyrtimennsku. Smitandi áhugi hans og ótrúleg seigla til að halda hópnum saman var frábær. Hann var ein- stakur mannasættir. Þetta leiddi af sér vakningu meðal ungs fólks í Hafnarfirði fyrir íþróttum og hollri hreyfingu, þetta var leiðarljósið sem enn þann dag í dag lýsir hafnfirskri æsku. Hallsteinn Hinriksson var fæddur á Úlfsstöðum á Völlum í Suður- Múlasýslu 2. febrúar 1904. Foreldrar hans voru Hinrik Hinriksson, bóndi í Kollastaðagerði á Völlum, og kona hans Gunnþórunn Gísladóttir. Hann flutti síðan með foreldrum sínum suð- ur í Mýrdal árið 1914 og bjuggu þau þar á jörðinni Norðurgarði, sem enn er í eigu fjölskyldunnar. Í Mýrdaln- um kynntist Hallsteinn fyrst íþrótt- um. Eftir að hafa lokið unglinga- skólanum í Vík lá leið Hallsteins í Samvinnuskólann í Reykjavík. Sam- hliða námi þar sótti hann íþrótta- námskeið á vegum UMFÍ og ÍSÍ veturinn 1926–1927. Veran í Samvinnu- skólanum hafði mikil áhrif á Hallstein og alla tíð síðan mátti glöggt finna áhrif frá Jónasi frá Hriflu og anda ung- mennafélaganna í störf- um Hallsteins. Eftir Samvinnuskól- ann gerðist Hallsteinn skólastjóri í Vík í Mýr- dal, en hugur hans stóð til frekara íþróttanáms og 24 ára gamall heldur hann til Dan- merkur og stundar nám í íþróttum í Statens Gymnastik Institut. Þar lýk- ur hann námi 1929 og kemur þá heim, en seinna eða árið 1937 heldur hann aftur utan og stundar þá framhalds- nám við sama skóla. Við heimkomuna 1929 ræðst Hall- steinn sem kennari við Barnaskóla Hafnarfjarðar og Flensborg og varð leikfimikennsla hans ævistarf. Strax í upphafi vetrar 1929 leitar til Hallsteins áðurnefndur hópur 10 drengja, er stundað höfðu fimleika undir stjórn Bjarna Bjarnasonar, sem gerst hafði skólastjóri að Laug- arvatni og voru þeir nú þjálfaralausir. Í stuttu máli ná þeir strax saman Hallsteinn og piltarnir tíu og stofna Fimleikafélag Hafnarfjarðar 15. október. Með stofnun FH verða mikil tíma- mót í sögu Hafnarfjarðar, því FH varð strax mjög áberandi íþrótta- félag, fyrst í fimleikum pilta og stúlkna og síðan frjálsum íþróttum en þar var Hallsteinn mikill afreks- maður og vann þar til Íslandsmeist- aratitla og varð m.a. fyrsti Íslands- meistari FH en það var í stangarstökki. Síðar bættust á keppnisskrá hjá FH knattspyrna og handknattleikur. Hallsteinn var allt í öllu í starfi FH enda var félagið og íþróttaæska bæj- arins honum einkar hjartfólgin. Ævi- ferill Hallsteins og saga FH voru samtvinnuð hvern einasta dag sem hann lifði. Hafnfirðingar geta aldrei fullþakkað Hallsteini það verk sem hann vann fyrir æskufólk bæjarins. Ekki verður farið hér grannt ofan í sögu FH Henni verða gerð betri skil í 75 ára afmælisriti félagsins sem út kemur í haust í tengslum við afmæli FH En minnast verður hér á fram- göngu Hallsteins sjálfs í frjálsum íþróttum. Hann fór í broddi fylkingar með félaga sína til að taka þátt í mót- um í Reykjavík, fyrst 1934 og var framganga FH-inga þar rómuð. Hall- steinn var þar fremstur meðal jafn- ingja. Áður er getið Íslandsmeist- aratitils hans í stangarstökki, en frægt var þegar Hallsteinn sigraði tvo Ólympíufara í 100 m hlaupi og stangarstökki, skapaði það mikla ólgu innan íþróttahreyfingarinnar og þótti mörgum að Hallsteinn hefði átt að fara á Ólympíuleikana í Berlín 1936. Stofnun íslenska lýðveldisins árið 1944 hafði mikil áhrif á íþróttahreyf- inguna í landinu og þar voru Hall- steinn og FH engin undantekning og FH átti sína fulltrúa í glæstum afrek- um Íslendinga á árunum sem árang- ur Íslendinga var sem frábærastur. En sá hluti í starfi FH sem Hall- steinn er kunnastur fyrir er hand- knattleikurinn. Hallsteinn hefur löngum verið kallaður faðir hand- knattleiksins á Íslandi og sannarlega var hann það í Hafnarfirði. Hand- knattleikurinn í FH vakti þjóð- arathygli og hafði mikil áhrif á iðkun handknattleiks á landinu öllu. Á ár- unum frá 1954 voru handknattleiks- menn FH dáðir á landinu öllu líkt og knattspyrnumenn Akraness. Þessir hópar voru taldir mótvægi við stór- borgina Reykjavík. Á þessum tíma var Hallsteinn þjálfari FH og honum tókst á sinn einstaka hátt að skapa lið sem hélt saman í gegnum þykkt og þunnt og skapaði fjölmarga Íslands- meistaratitla. En frægð FH náði líka til Norðurlandanna og Þýskalands, því meistaraflokkur karla fór þangað í þrjár frægar keppnisferðir á þess- um árum. Skemmtilegt er að vitna hér í ræðu sem fyrrverandi formaður FH Gísli Sigurðsson flutti á 30 ára af- mæli félagsins 1959. En þar segir Gísli m.a. „Ef til vill er það einber ágiskun mín, að í kringum 1950 hafi hand- knattleikurinn verið kominn í kyrr- stöðu. Eitt er víst að hér í Hafnarfirði var maður sem taldi að enn mætti bæta leikinn og enn væri margt að læra. Maður þessi var Hallsteinn Hinriksson. Með ærinni fyrirhöfn tók hann að kynna sér umsagnir um leikinn. Er hann hafði numið um hríð tók hann að leita fyrir sér um aðra útfærslu á leiknum en verið hafði. Hóf hann að kenna eftir nýrri reglu, þriðja flokki félagsins. Leið ekki á löngu að kennslan tæki að bera árangur. Þriðji flokkurinn varð sigursæll. Þessu var áfram haldið upp í gegnum annan Eftir Ingvar Viktorsson ’FH-ingar leggja allt í sölurnar til þess að viðhalda þeim anda sem byggður var upp í félaginu á fyrstu árunum undir forystu Hallsteins.‘ Ingvar Viktorsson Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17 Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 Vel staðsett um 300 fm einbýli innst í botn- langagötu. Mjög góð aðkoma að húsinu, stór innkeyrsla að bílskúr. Aukaíbúð er á jarðhæð ásamt miklu tómstundarými með heitum potti o.fl. Góð staðsetning og fallegur garður. Verð kr. 30,0 millj. SKIPTU VIÐ FAGMENN – ÞAÐ BORGAR SIG Húsið er um 280 fm einbýli en með öllum lögnum fyrir aukaíbúð á jarðhæð. Vandað hús með 4 góðum svefnherbergjum og stórum stofum, 2 ný baðherbergi og innbyggður bíl- skúr o.fl. Stórar suðursvalir á efri hæð og ver- önd á neðri hæð. Einstaklega gott skipulag í húsinu. Rólegt hverfi og gatan er botnlanga- gata, gott útsýni og veðursæld. Til afhending- ar við kaupsamning. Verð kr. 29,8 millj. Glæsilegt 240 fm einbýli á einni hæð með 5 góðum svefnherbergjum og rúmgóðum stofum. Innbyggður bílskúr og glæsileg lóð með heitum potti og góðri útiaðstöðu. Húsið er byggt 1993. Hornlóð með útsýni. Verð kr. 43,0 millj. Vel staðsett 205 fm einbýli byggt 1998 með bíl- skúr og frágenginni lóð. Húsið er allt hið vandað- asta og vel skipulagt. Góður garður með bæði timbur- og helluverönd. Í húsinu eru 3 svefnher- bergi, mjög góðar stofur, tvö baðherbergi og sjónvarpsstofa. Verð kr. 37,0 millj. Um 300 fm húseign með tveimur aukaíbúðum á jarðhæð og innbyggðum bílskúr. Mjög góð að- koma er að húsinu sem stendur innst í botn- langagötu og góð bílastæði. Mjög áhugaverð eign á rólegum stað. Til afhendingar við kaup- samning. Verð kr. 33,5 millj. FANNAFOLD HNJÚKASEL KÖGUNARHÆÐ - GARÐABÆ ASPARGRUND - KÓPAVOGI RAUÐAGERÐI BRÚNASTAÐIR - FALLEGT Glæsilegt einnar hæðar einbýlishús sem er 160,4 fm auk mjög rúmgóðs innbyggðs bílskúrs sem er 31,1 fm, samtals 191,1 fm. Fjögur rúm- góð svefnherbergi. Allar innréttingar eru vand- aðar úr Mahogny viðarspón. Verð 25,6 millj. 5844 REYNIMELUR 53 - OPIÐ HÚS Í DAG Nánari upplýsingar og myndir á www.Heimili.is og hjá Boga Péturssyni, lögg. fasteignasala, s. 699 3444. sími 530 6500 Bogi Pétursson löggiltur fasteignasali Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 Fallegt 175 fm parhús á þremur hæðum með 42 fm aukaíbúð í kjallara og meðfylgj- andi 34 fm sérstandandi bílskúr. 7 svefn- herbergi alls eða leigumöguleikar á auka- íbúð í nágrenni Háskólans. Vandaðar inn- réttingar og gólfefni. Stór afgirtur bakgarð- ur, svalir og hellulögð verönd í suður. Eggert og Hulda taka á móti áhugasömum í dag frá kl. 14.00-16.00. Verð 29,5 millj. Áhvíl. 3,0 millj. Til sölu gott skógræktarland á fallegum stað í uppsveitum Suðurlands. Landið er um 40 ha að stærð og afgirt. Gott vegasamband og stutt í hitaveitu. Allar upplýsingar veitir sölumaður Hóls - bújarðir, Jón Hólm Stefánsson, í síma 896 4761. Upplýsingar gefur sölumaður Hóls – bújarðir Jón Hólm Stefánsson, sími 896 4761. Skógræktarland á fallegum stað Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. s. 588 4477 - valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Falleg 4ra herbergja íbúð á efstu hæð í þessu fal- lega frábærlega vel staðsetta húsi á Seltjarnar- nesi. Íbúðin, sem er björt og skemmtileg, skipt- ist í 3 svefnherbergi, stofu, baðherbergi og eld- hús. Sameign mikið endurnýjuð. Glæsilegt útsýni. Áhv. 4,7 millj. Verð aðeins 13,3 millj. Laus fljót- lega.Opið hús verður í dag, nnudag, frá kl. 15-17. Erna tekur á móti áhugasömum. Melabraut 15 - Seltjarnarnesi Opið hús í dag frá kl. 15-17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.